Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1999, Page 1

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1999, Page 1
FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1999 15 Úrslitin ráðast í torfær- unni um helgina dD Glatt á hjalla í íslenska landsliðshópnum íslenska landsliðið í handknattleik hitaði upp fyrir leikinn gegn Makedóníu með því að spila æfingaleik gegn Stjörnunni í Garðabæ og sigraði í leiknum með 33 mörkum gegn 22. Meiðsli hrjá suma leikmenn í landsliðshópnum en vonir eru um að allir verði búnir að jafna sig fyrir leikinn á sunnudagskvöldið. Júlíus Jónasson lékk ekki leikinn gegn Stjörnunni en hann var slæmur í baki. Gústaf Bjarnason fékk tak í kálfann í leiknum og loks eru það meiðsl Dags Sigurðssonar en það verður ekki Ijóst fyrr en á laugardag hvort hann verður leikhæfur gegn Makedóníu. í gær bárust fréttir um að stór hópur stuðningsmanna myndi fylgja landsliði Makedóníu til landsins. DV-mynd E.ÓI. Barthez í Fabien Barthez, markvörður heims- meistara Frakka, mun ekki standa í markinu þegar þeir mæta íslending- um í lokaumferð riðlakeppni Evrópu- mótsins sem fram fer í París þann 9. október næstkomandi. Barthez tekur út leikbann en hann fékk að líta sitt annað gula spjald í keppninni þegar hann felldi sóknar- mann Armena í leik þjóðanna í fyrra- kvöld. Bernard Lama „Kötturinn" mun líklega taka stöðu Barthezar í leiknum gegn Islendingum en þar er á ferðinni reyndur markvörður sem oft hefur staðið á milli stanganna í franska landsliðinu. Lama leikur með Paris leikbanni SG og segir Roger Lemerre, þjálfari franska landsliðsins, að hann hafi leikið mjög vel í upphafi leiktíðarinn- ar í frösnku deildinni. Guivarc’h í liðið Meiri breytingar gætu verið í vænd- um í liði heimsmeistaranna en Loger Lemerre hefur gefið það í skyn að Stephan Guivarc’h fái tækifæri að nýju í framlínunni. Hann myndi þá leika með David Trezeguet í fremstu víglínu og saman myndi þeir taka stöður Sylvain Wiltord og Lilian Las- landers sem voru í byrjunarliðinu gegn Armenum í fyrrakvöld. -GH Júlíus Jónasson, fyrirliöi landsliðsins í handbolta: „Þurfum að ná toppleikjum“ - til aö tryggja okkur sæti í úrslitakeppninni Júlíus Jónasson, sem leikið hef- ur um árabil með íslenska lands- liðinu í handknattleik, hefur ákveðið að leikimir gegn Makedóníu í forkeppni Evrópu- móts landsliða verði síðasta verk- efni hans með liðinu. Júlíus verð- ur fyrirliði í leikjunum tveimur. Kaplakriki hefur reynst okk- ur vel í gegnum árin - Hvemig líst honum á komandi leiki? „Það þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn á verkefnið og gefa sig allan í það. Það er mikið atriði að komast vel frá leiknum í Kaplakrika á sunnudagskvöldið. Það hefst með sameiginlegu átaki okkar og áhorfenda. Húsið í Hafh- arfirði hefúr reynst okkur vel í gegnum árin, fólk hefur stútt liðið vel þar, og vonandi verður sama uppi á teningnum núna. Það er nokkuð ljóst að við verðum að vinna leikinn með minnst fimm marka mun og fara þannig með ágætt veganesti í síðari leikinn úti. Við vitum alveg hvað bíður okkar í Skopje. Þar era áhorfendur dýr- vitlausir og svífast einskis,” sagði Júlíus í samtali við DV. Makedóníumenn leika vörn- ina framariega - Hafið þið upplýsingar um hvemig vöm Makedóníu leikur allan jafnan? „Já, þeir leika oft mjög framar- lega, þetta 3-2-1 vöm en hana þekkjum við vel enda vanir að leika gegn henni. Það er samt aldrei að vita hvað þeir gera og við verðum að vera klárir í allt. Þor- bjöm þjálfari er búinn að liggja yfir myndböndum frá leikjum Makedóníu og í dag fórum við bet- ur yfir leik þeirra. Ég persónulega þekki ekki mikið til liðsins en þessi tvefr dagar sem til stefnu em verða vel notaðir til að skoða and- stæðinginn.” Allt verður að smella saman hjá okkur - Markmiðið er að komast í úr- slitakeppnina í janúar. Heldur þú að það takist? „Við þurfum að eiga toppleiki til að það gangi eftir. Það verður allt að smella saman hjá okkur. Þetta verður erfitt eins og hver og einn annar leikur. Ég persónulega ætla að klára minn feril með landslið- inu með stæl,“ sagði Júlíus Jónas- son við DV. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.