Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1999, Blaðsíða 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1999
Huðrún byrjaði á aö setja skol í hárið á Tinnu sem er í mahóníkop-
arbrúnum lit. Síðan var hárið blásið til og það greitt. Tinna er með
mjög Ijósa húð og henni fara best hlýir, gulbrúnir og brúnir tónar.
Þeir litir sem notaðir voru til að farða hana eru látlausir, léttglans-
andi og tóna vel við háralit hennar. Þar sem húðliturinn er svo
ljós þolir Tinna ekki mikla málningu. Kristin segir að konur
sem hafa ljósa húð eigi að varast dökka liti því þeir verði of
hörkulegir. Því notaði Kristín mUda liti og lítinn farða á
Tinnu. Varaliturinn er brúngyUtur en það er klassískur lit-
ur sem fer mörgum konum vel. Hann er ekki mjög áberandi
og er fínn dagsdaglega. Kristín byrjaði á að hylja bólur og
rauða bletti í húðinni og notaði tU þess stiftfarða og púð-
ur. Til að skerpa augnabrúnirnar var notaður örlítiU
augnskuggi því þær eru mjög ljósar. Á kinnarnar fór sólar-
púður sem gefur frísklegt útlit og undirstrikar skarpar lín-
ur í andliti Tinnu. Á varimar fór dökkrauðbrúnn varablý-
antur og brúngyUtur varalitur. Yfir það var settur ljósbleik-
ur glossvaralitur tU að lýsa varimar upp.
-HG
Ljós og tær húð - mildir litir
Heilbrigt og eðlilegt útlit
í fyrirrúmi í vetur
Vetrartískan í förðun leggur
áherslu á eðlUegt útlit. Það á
ekki að sjást að konur séu
málaðar heldur er frekar lögð
áhersla á að útlitið sé heUbrigt,"
segir Kristín Ágústsdóttir, förðunar-
fræðingur hjá NO NAME. „Við sjá-
um þetta til dæmis í því hvernig
farði er að koma núna. Þykka köku-
meikið er að fara og stiftfarði er að
í haust og vetur
Þar sem nú eru árstíðaskipti fannst blaðamanni Tilverunnar rakið að
kanna hvað væri nýjast í hártísku og förðun á komandi vetri. Við tókum
hús á Guðrúnu Geirsdóttur, hárgreiðslumeistara hjá hárgreiðslustofunni
Hárþingi, og Kristínu Ágústsdóttur, förðunarfræðingi NO NAME, til að at-
huga hvað væri t gangi. Til að sýna lesendum á mynd hvemig nýjasta tísk-
an í hári og förðun kemur út fékk Tilveran einnig þrjú módel til liðs við
sig. Þær heita Fríða Björg Eðvarðsdóttir, 40 ára landslagsarkitekt, Olga
Sigurðardóttir, 33 ára skrifstofukona, og Tinna Rún Ragnarsdóttir, 17 ára
menntaskólanemi. Hér sjá lesendur afraksturínn.
koma inn. Hann er í sams konar
umbúðum og varalitir, nema stærri.
Þessi faröi er blanda af púðri og
farða og því gefur hann matta og
eðlUega áferð og það er mjög auðvelt
og fljótlegt að nota hann. Hann ver
húðina líka betur en nokkuð annað
gegn hitabreytingum."
„Annars er tískan að miklu leyti
tvískipt eftir því hvort um er að
ræða dagförðun eða kvöldförðun. Á
daginn er alveg hætt að nota vara-
blýant og varaglossin em ríkjandi.
Kvöldin eru alltaf ööruvísi. Þá
ganga sterkari og dekkri litir og
meira er gert fyrir augun en á dag-
inn.“ Kristín segir að nú séu mjóar
augnabrúnir á leiðinni út. Konur
geti farið að safna augnabrúnum aft-
ur og þær séu orðnar eðlilegri. „Vín-
rauðir litir eru aUtaf mjög vinsælir
á haustin en íslenskar konur eiga
flestar að varast mjög dökka vara-
liti. Þeir gera okkur grimmar og
harðar. Núna era að koma mjög
skemmtUegir litir, fallegir og bjart-
ir, sem em með svokaUaðri hrímá-
ferð. Þeir hafa svolitla sanseringu
og brúnir og vínrauðir litir em
áberandi. Það má samt segja að leif-
ar sumarsins séu plómulitir og
sterkbleikir litir. Svo er eldrauður
klassiskur varalitur sem fer aldrei
úr tísku.“
Glanspúður og lausir
augnsKuggar
En hvað með kinnaliti? Þeir hafa
verið úti í nokkurn tíma. Eru þeir
að koma inn aftur? „Já, að vissu
marki. Kinnamar eiga núna að vera
frísklegar en liturinn á ekki að vera
afgerandi. íslenskar konur hafa
flestar fremur hvíta húð og roða í
kinnum og við þurfum ekki mikinn
roða í viðbót. Sá litur sem kemur
einna sterkast inn núna er bronslit-
ur. Hann gengur hjá öllum og gefur
fallegan blæ. Svo má nefna að
glanspúður er eitt af því sem á eftir
að vera áberandi í vetur. Það gefur
frísklega og sportlega áferð sem
gengur alveg ofan á bringu. Þetta er
alveg nýtt og við eigum örugglega
eftir að sjá þetta víða á árshátíðun-
um í vetur. Lausu augnskuggarnir
sem em að koma núna em mjög
skemmtilegir og sniðugt að leika sér
með þá og prófa að setja á augu, nef,
kinnar og varir til að ná fram
skemmtilegum blæbrigðum." segir
Kristín að lokum.
-HG