Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1999, Blaðsíða 26
34
ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1999
Afmæli
Guðlaug Björnsdóttir
Guðlaug Björnsdóttir, læknarit-
ari á hnédeild Sjúkrahúss Reykja-
víkur, Hvassaleiti 26, Reykjavík, er
sextug i dag.
Starfsferill
Guðlaug fæddist á Vopnafirði og
ólst þar upp. Hún lauk gagnfræða-
prófi frá Laugum í Þingeyjarsýslu
1956.
Guðlaug var búsett á ísafirði
1960-88 og starfaði þá á ýmsum stöð-
um, síðast sem fulltrúi á skrifstofu
verkalýðsfélagsins Baldurs.
Á meðan Guðlaug bjó á ísafirði
sinnti hún ýmsum félags- og trúnað-
arstörfum fyrir verkalýðsfélagið
Baldur.
Hún flutti suður 1988 og hefur
verið læknaritari á sjúkrahúsi
Reykjavíkur síðan en hún er löggilt-
ur læknaritari frá 1990.
Fjölskylda
Guðlaug giftist 31.12. 1957 Rúrik
Sumarliðasyni, f. 8.2. 1932, umsjón-
armanni í Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti. Hann er son-
ur Sumarliða Guð-
mundssonar, f. að Mið-
húsum í Vatnsfjarðar-
sveit 30.9. 1888, d. 11.11.
1959, sjómanns í Bolung-
arvík, og Maríu Frið-
gerðar Bjarnadóttur, f. á
Eyri við Mjóafjörð 7.10.
1892, d. 23.2.1966, hús-
móður.
Börn Guðlaugar og Rú-
riks eru María Friðgerð-
ur, f. 21.3.1958, viðskipta-
fræðingur, gift Pétri
Snæbjömssyni hótelstjóra og eiga
þau saman tvær dætur, Þuríði, f.
5.9.1984, og Ástríði, f. 8.9. 1989; Hel-
ena Snæfriður, f. 29.7. 1960, tón-
menntakennari, gift Jóni Pétri
Kristjánssyni húsasmið en böm
þeirra era Rúrik Fannar, f. 17.10.
1985, og Guðrún, f. 14.3.1990; Hulda
Rós, f. 2.3. 1964, lögfræðingur, gift
Lárusi Finnbogasyni, löggiltum
endurskoðanda en synir þeirra eru
Láras Sindri, f. 28.2.1992, og Arnar
Heimir, f. 26.3. 1994.
Systkini Guðlaugar eru
Halldór, f. 5.4. 1930,
bóndi í Engihlíð í
Vopnafirði; Arnþór, f.
20.6.1931, búsettur á Ak-
ureyri; Sigurður, f. 5.11.
1932, bóndi í Háteigi,
Vopnafirði; Metúsalem,
f. 3.8. 1935, húsasmíða-
meistari í Reykjavík;
Einar Magnús, f. 20.4.
1937, d. 13.4. 1978, var
bóndi á Svínabökkum,
Vopnafirði; Þórarinn, f.
3.10. 1945, vélvirki í Hafnarfirði.
Foreldrar Guðlaugar voru Bjöm
Vigfús Metúsalemsson, f. 29.5. 1894,
d. 2.12. 1953, bóndi á Svínabökkum
í Vopnafirði, og Ólafla Sigríður
Einarsdóttir, f. 22.8. 1899, d.
30.3.1990, hjúkrunarkona.
Ætt
Björn var sonur Metúsalems, b.
á Svínabökkum Jósefssonar, b. á
Svínabökkum, Jónssonar, b. á
Refsstað, Péturssonar, afa Sigfúsar
Eymundssonar, ljósmyndara og
bóksala. Móðir Metúsalems var
Ingunn Sigurðardóttir, b. á Egils-
stöðum, Sigurðssonar og Arnþrúð-
ar Jónsdóttur. Móðir Björns var
Guðlaug Pálsdóttir, silfursmiðs á
Eyjólfsstöðum, bróður Þórunnar,
ömmu Þorsteins Gíslasonar, skálds
og ritstjóra, föður Gylfa, fyrrv. ráð-
herra, og Vilhjálms, fyrrv. útvarps-
stjóra. Páll var sonur Sigurðar,
umboðsmanns á Eyjólfsstöðum,
Guðmundssonar, sýslumanns í
Krossavík, Péturssonar. Móðir
Páls var Ingunn Vigfúsdóttir, pr. á
Valþjófsstað, Ormssonar og Berg-
ljótar Þorsteinsdóttur, pr. á Krossi,
Stefánssonar. Móðir Guðlaugar
var Helga Benjamínsdóttir, Þor-
grimssonar og Guðrúnar Vigfús-
dóttur, b. í Fremraseli, Tómasson-
ar. Ólafía var dóttir Einars Magn-
ússonar, skútusjómanns á Bíldu-
dal, og Sigríðar Oddsdóttur.
Guðlaug
Björnsdóttir.
Katrín Gunnarsdóttir
Katrín Gunnarsdóttir leiðbein-
andi, Höfðastíg 6, Bolungarvík, er
fertug í dag.
Starfsferill
Katrín fæddist í Reykjavík en ólst
upp i Garðabæ frá fimm ára aldri.
Hún lauk stúdentsprófum frá MR
1979, lauk námi við Bankamanna-
skólann 1980 og stundaði nám í al-
mennri bókmenntafræði við HÍ
1992.
Katrín var bankaritari við Lands-
banka íslands, Múlaútibú, 1979-83,
starfaði við Bröste-Umboðið 1983-90,
var framkvæmdastjóri þar 1985-90,
starfaði hjá O. Johnson & Kaaber
1990-92, á Skrifstofu jafnréttismála
1996-97, var innkaupastjóri Kötlu
ehf. 1999 og er leiðbeinandi við
Grunnskóla Bolungarvíkur frá 1999.
Katrín var formaður UMSF
Stjörnunnar í Garðabæ 1983-85, sat
í stjórn UMSK 1984-86 og formaður
1985- 86, sat í stjórn ÍSÍ 1986-94, var
formaður unglinganefndar ÍSÍ
1986- 92 og formaður fræðslunefndar
ÍSÍ 1992-94.
Hún var varaformaður Heimdall-
ar 1985-86, sat í stjórn Hvatar
1987- 91, var formaður fjölskyldu-
málanefndar Sjálfstæðisflokksins
1997, varaborgarfulltrúi fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn í Reykjavík 1990-94,
sat í stjóm Sjálfstæðisfélags Bessa-
staðhrepps 1995-99 og formaður
þess 1997-99 og hefur átt sæti í ýms-
um nefndum á vegum Reykjavíkur-
borgar, Bessastaðahrepps og á veg-
um ríkisins.
Fjölskylda
Katrín giftist 7.12.1991 Guðmundi
J. Hallbergssyni, f. 28.9. 1967, sendi-
bílstjóra. Hann er sonur Hallbergs
Guðmundssonar, hárskera og öku-
kennara, og Sigurlaugar Guð-
mundsdóttur húsmóður. Katrín og
Guðmundur skildu 1996.
Dóttir Katrínar með Bjarna Bene-
diktssyni saltfisksútflytjanda er
Auðbjörg Brynja Bjarnadóttir, f.
31.10. 1978, en unnusti hennar er
Bjarki V. Guðnason.
Synir Katrínar og Guðmundar
Hallbergssonar eru Hallberg Brynj-
ar Guðmundsson, f. 8.7. 1992; Axel
Darri Guðmundsson, f. 15.9. 1993;
Guðmundur Jóhann Guðmundsson,
f. 15.9. 1993.
Alsystkini Katrínar eru Kristinn
H. Gunnarsson, f. 19.8. 1952, alþm. í
Bolungarvík, en kona hans er Aldís
Rögnvaldsdóttir og eiga þau fjögur
börn; Sigrún B. Gunnarsdóttir, f.
7.9. 1954, BA í ensku og leiðbein-
andi, búsett í Keflavik, en maður
hennar er Hjörleifur Ingólfsson og
eiga þau eitt barn en Sigrún á tvö
börn fyrir; Karl Á. Gunnarsson, f.
26.9. 1955, framkvæmdastjóri FMS á
Ísafirði-Bolungarvík, búsettur í Bol-
ungarvík, en kona hans er Guðlaug
Bemódusdóttir og eiga þau þrjú
böm en Karl á tvær dætur af fyrri
sambúð; Guðrún J. Gunnarsdóttir,
f. 6.10. 1957, hjúkrunarfræðingur,
búsett í Vestmannaeyjum, og á hún
tvö börn; Hafsteinn H. Gunnarsson,
f. 22.8. 1965, lífræðingur, búsettur í
Garðabæ, en hann á eina dóttur.
Hálfbræður Katrínar, sammæðra,
eru Gunnar I. Birgisson, f. 30.9.
1947, alþm. og formaður bæjarráðs
Kópavogs, búsettur í Kópavogi, en
kona hans er Vigdís Karlsdóttir og
eiga þau tvær dætur; Þórarinn Sig-
urðsson, f. 26.4. 1950, tölvunarfræð-
ingur, búsettur í Hafnarfirði, en
kona hans er María Sif Sveinsdóttir
og eiga þau þrjá syni.
Foreldrar Katrínar eru Gunnar
H. Kristinsson, f. 1.11. 1930, fyrrv.
hitaveitustjóri, og Auðbjörg Brynj-
ólfsdóttir, f. 1.11. 1929, húsmóðir.
Þau bjuggu í Reykjavík og
Skotlandi en hafa búið i Garðabæ
frá 1964.
Ætt
Gunnar er sonur Kristins, bif-
reiðarstjóra í Reykjavík, Kristjáns-
sonar, múrara og steinsmiðs. Móðir
hans var Anna Sigríður Þorfínns-
dóttir en hún var fyrri kona Krist-
jáns.
Móðir Gunnars var Karólína
Ágústína Jósepsdóttir, sjómanns á
ísafirði, Sigmundssonar, Hagalíns-
sonar, Jóhannessonar, I Kvíum í
Jökulfjöröum. Móðir Karólínu var
Ásdís Sigrún Kristjánsdóttir
Auðbjörg er dóttir Bárðar Lárus-
sonar, sjómanns, Halldórssonar, pr.
á Breiðabólsstað á Skógarströnd.
Móðir Auðbjargar Dagmar Frið-
riksdóttir, Jónssonar kaupmanns og
Jónínu, ættaðrar frá Mjóafírði og
Seyðisfírði (Bræðraborg).
Kjörforeldrar Auðbjargar
Brynjólfur, sjómaður, Einarsson í
Reykjavik og Guðrún Jónsdóttir.
Ingibjörg Benediktsdóttir
Ingibjörg Benedikts-
dóttir sjúkraliði, Lauf-
vangi 7, Hafnarfirði, er
' fimmtug í dag.
Starfsferill
Ingibjörg fæddist í
Reykjavík en ólst upp í
Hafnarfirði. Hún stund-
aði nám við Flensborg-
arskólann, stundaði síð-
ar nám við Sjúkraliða-
skóla íslands og lauk
sjúkndiðaprófí 1983. Þá
stundaði hún nám við
Ingibjörg
Benediktsdóttir.
Myndlistarskólann á
Akureyri og stundar nú
nám við Myndlistar-
skóla Reykjavíkur.
Ingibjörg var búsett í
Noregi 1973-78 þar sem
hún starfaði við geð-
sjúkrahús. Hún hefur
síðan stundað sjúkra-
liðastörf á Vífilsstöðum,
á Kristnesi og á dvalar-
heimilinu Hlíð.
Fjölskylda
Ingibjörg giftist 14.4.
1972 Sigmundi Sigfússyni, f. 26.7.
1945, geðlækni. Hann er sonur Sig-
fúsar Björgvins Sigmundssonar
kennara og Önnu Frlmannsdóttur,
húsmóður og saumakonu en þau
eru bæði látin. Ingibjörg og Sigur-
mundur skildu 1999.
Synir Ingibjargar og Sigmundar
eru Marjón Pétur Sigmundsson, f.
5.4. 1969, þjónn í Hafnarfirði; Sig-
fús Þór Sigmundsson, f. 9.9. 1973,
nemi í stjórnmálafræði við HÍ;
Benedikt Sigmundsson, f. 10.11.
1980, nemi við VMA; Haraldur Sig-
mundsson, f. 10.11. 1980, nemi við
VMA.
Systkini Ingibjargar eru Harald-
ur Benediktsson, f. 11.10. 1953,
kokkur í Hafnarfirði; Benedikt
Benediktsson, f. 25.3. 1958, sendi-
bílstjóri í Hafnarfirði; Viðar Bene-
diktsson, f. 1.2. 1959, múrari í
Hafnarfirði; Bima Benediktsdótt-
ir, f. 31.1. 1964, ritari í Hafnarfirði.
Foreldrar Ingibjargar: Benedikt
Kjartansson, f. 16.3. 1929, málara-
meistari í Hafnarfirði, og Soffía
Haralds Haraldsdóttir, f. 6.1. 1934,
d. 28.2. 1984, húsmóðir.
Til hamingju með afmælið 21. september
90 ára
Klara Vémundsdóttir, Kleppsvegi 62, Reykjavík. Valdemar Andrésson, Mýrargötu 18 A, Neskaupstað.
85 ára
Ragna Kemp, Klyfjaseli 22, Reykjavík.
75 ára
Áslaug K. Sigurðardóttir, Nesvegi 45, Reykjavík. Freyja Kristófersdóttir, Vesturbergi 52, Reykjavík. Steinunn Jóhannesdóttir, Miðvangi 41, Hafnarfirði.
70 ára
Guðbjörg Karlsdóttir, Ölduslóð 26, Hafnarfirði. Ingibjörg Pálsdóttir, Laufvangi 1, Hafnarfírði. Magnús Magnússon, Hagaflöt 8, Garðabæ. Svava Valdimarsdóttir, Hrísmóum 1, Garðabæ
60 ára
Helga Kress. Ásvallagötu 62, Reykjavík. Hörður Þ. Ásbjörnsson, Njálsgötu 23, Reykjavík.
50 ára
Eygló Einarsdóttir, Breiðvangi 41, Hafnarfirði. Ingigerður Magnúsdóttir, Ásholti 6, Mosfellsbæ. Kristín Magnúsdóttir, Merkurteigi 8, Akranesi. Kristín Vilhjálmsdóttir, Staðarhrauni 4, Grindavik. Lárus Einarsson, Dalatanga 4, Mosfellsbæ. Matthías G. Gilsson, Hjalteyrargötu 1, Akureyri. Páll Eðvarð Sigurvinsson, Bárðarási 21, Hellissandi. Reynir K. Guðmundsson, Grettisgötu 60, Reykjavík. Sigurjón Halldórsson, Sæbóli 28, Grundarfirði.
40 ára
Ásbjöm E. Ásgeirsson, Granaskjóli 34, Reykjavik. Barbara Nogal, Bárðarási 8, Hellissandi. Bergþóra Andrésdóttir, Kiðafelli, Mosfellsbæ. Birgir Már Guðnason, Hlíðarhjalla 44, Kópavogi. Björg Ándrésdóttir, Þingási 23, Reykja’vík. Gísli Ragnar Gunnarsson, Lindasmára 1, Kópavogi. Guðbjartur K. Ingibergsson, Kaldaseli 2, Reykjavík. Helga Berg, Glæsibæ 17, Reykjavík. Magnús Guðjónsson, Fellasmára 1, Kópavogi. Snjólaug Guðrún Kjartansdóttir, Vesturbergi 41, Reykjavík. Tómas Árdal, Grenihlíð 12, Skagafirði.