Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1999, Page 1
Sega
Rally 2
á leiðinni
bls. 28
|
Framkvæmdastjóri
stærstu netmið-
stöðvar í Svíþjóð
bls. 23
Katla
vöktuð
bls. 24-25
tö1vui tækni og vísinda
PlayStation
Finnst líf á
Evrópu?
Vísindamenn eru
um þessar mundir
að velta fyrir sér
hvort bora eigi
niður á neðansjáv-
arfljót á Suðurskautslandinu. Þar
niðri gætu nefnilega leynst vis-
bendingar um það hvort mögulegt
sé að finna lif á einu
tungla Júþíters.
Fljótið heitir Lake
Vostok og liggur
það fjóra kílómetra
undir yfirborði
Suðurskautslands-
ins. Menn halda því fram að
margt sé líkt með því og vötnum
sem er að finna undir jöklum
tunglsins Evrópu. Telja menn því
að ef líf finnst við hinar köldu og
erfiðu aðstæður í Lake Vostok geti
það þýtt að einnig þrífist líf á Evr-
ópu. Vegna einangrunar suður-
skautsíljótsins búast menn við að
þar sé að finna mjög áhugaverða
hluti en enn þá hefur ekki verið
borað þangað niður vegna ýmissa
vandkvæða sem slíkum fram-
kvæmdum fylgja.
Rafnef þefar
af þvagi
Rafrænt nef sem
þefar af þvagi get-
ur dregið verulega
úr þeim tíma sem
það tekur að
greina sýkingar í þvagrás, að sögn
vísindamanna við Cranfield-há-
skóla í Bretlandi sem hönnuðu nef-
iö. Það hefur hlotið nafnið Diag-
Nose og getur það orðið til veru-
legra bóta fyrir þá sem fá sýkingar
af þessu tagi því oft skiptir miklu
máli að greina sýkingar sem allra
fyrst til að hægt sé að meðhöndla
þær á réttan hátt áður en þær
verða að verulegu vandamáli.
Þekktar greiningaraðferðir í dag
taka aUt að 48 tima en Diag-Nose
þarf aðeins nokkra klukkutíma til
að þefa af þvaginu og ákvarða
hvaða sýking sé á ferðinni.
LíiiJUJJ£>
ína'úl
í síðustu viku
misstu geimvís-
indamenn
NASA samband
við geimfarið
Mars Climate
Orbiter þegar það átti að komast á
sporbaug um Mars. Talið er að
geimfarið hafi farið alltof nálægt
plánetunni og brunnið upp í gufu-
hvolfi hennar. Áætlað hafði verið
að geimfarið myndi fara á spor-
baug um 200 km frá yfirborði Mars.
Á miðvikudegi reiknaðist mönnum
hins vegar til að geimfarið myndi
koma að plánetunni í 150 km hæð
sem var ásættanlegt. Én raunin
varð hins vegar sú að lofthæðin
var 60 km og í þeirri hæð er lítill
möguleiki á að Mars Climate Orbit-
er hafi komist óskaddað af. Vís-
indamennirnir reyndu allt hvað
þeir gátu til að ná aftur sambandi
við geimfarið en allt kom fyrir
ekki. Nú þurfa menn því að hefja
rannsókn á því hvað hafi farið úr-
skeiðis í þessu metnaðarfulla rann-
sóknarverkefni á plánetunni
rauðu.
Samkvæmt fyrstu athugunum
virðist sem ekkert hafi verið að
geimfarinu sjálfu og líklegast sé að
um mannleg mistök eða villu í hug-
búnaði hafi verið að ræða. Menn
horfa aðallega til atburða þann 15.
september þegar vélar voru settar
af stað til að fmstilla aðflug geim-
farsins og telja jafnvel að villa í út-
reikningum þann dag hafi orðið
þess valdandi að allt fór úrskeiðis.
Geimvísindamenn leggja áherslu
á það í kjölfar þessara vandræða,
að þau marki hvergi nærri endalok
geimferða til Mars. Áður hafa
menn misst geimfor í leiðöngrum
sem þessum og lært af þeim mis-
tökum að senda ekki mjög um-
fangsmikil og dýr geimför í einu,
heldur fara frekar fleiri og ódýrari
leiðangra. Þess vegna er missirinn
ekki eins mikill og margir ef til vill
hefðu haldið.
vefasr é
visir.is
allt sem þú þarft að vita
- og miklu meira til