Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1999, Page 1
19
Grétar semur til 3ja ára við Lillestrom
Grétar Hjartarson knattspyrnumaður hefur ákveðið að
ganga í raðir norska A-deildarliðsins Lilleström. Hann
gengst undir læknisskoðun hjá félaginu á þriðjudaginn og
standist Grétar hana skrifar hann undir þriggja ára
samning við félagiö.
„Ég er auðvitað mjög spenntur og nú hillir undir að
gamall draumur rætist. Ég tel þetta góðan samning sem
þeir eru að bjóða mér. Hann er til þriggja ára en það eru
ákvæði í honum að þeir geti framlengt hann um eitt ár. Ég
fer í læknisskoðum í Noregi á þriðjudaginn og verði allt i
lagi þar reikna ég með að skrifa undir þennan sama dag.
Ég mun svo fara endanlega út þann 1. desember en þá
hefjast æfingarnar," sagði Grétar í samtali við DV í gær.
Fleiri íslendingar til Lilleström?
Forráðamenn Lilleström eru greinilega mjög hrifnir af
íslenskum leikmönnum. Fyrir hjá félaginu eru Rúnar
Kristinsson og Heiðar Helguson og tveir aðrir íslenskir
leikmenn eru í sigtinu hjá félaginu. Þetta eru tveir ungir
leikmenn, Indriði Sigurðsson, varnarmaður úr KR, og
Armann Björnsson, framherji Sindra á Hornaflrði. Ár-
mann kom heim i gær frá Noregi eftir vikudvöl hjá Lille-
ström og hafa forráðamenn félagsins boðið honum að
dvelja hjá liðinu í vetur og æfa með því. Ármann er 18 ára
gamall og skoraði 7 mörk fyrir Sindra í 13 leikjum í 2.
deildinni í sumar.
Þjálfari Lilleström er mjög spenntur fyrir því að fá Ind-
riða í sínar raðir en fleiri erlend félög, bæði á Englandi
og í Noregi, hafa borið víurnar i leikmanninn.
-GH
mm
íslandsmótið í handknattleik karla hófst í gærkvöld með sex leikjum í karlafiokki. Misvel gekk hjá mönnum í fyrsta leik. Leó Örn Þorleifsson mátti bíta í það súra epli að fá rauða spjaldið og
vera vikið af leikvelli í sínum fyrsta leik með Víkingi gegn sínum gömlu félögum í KA. Á myndinni sést Leó Örn fylgjast með félögum sínum í félagsheimili Víkinga fjarri félögum sínum.
Brynjar og Rúnar
til Stoke City?
Brynjar Björn Gunnarsson, landsliðsmaður í knattspymu, er talinn líkleg-
ur til að verða keyptur til enska félagsins Stoke City ef íslensku fjárfestam-
ir eignast þar meirihluta. Frá þessu er skýrt í fjölmiðlum þar í dag.
í gær voru uppi vangaveltur um að tveir norrænir landsliðsmenn væru í
sigtinu hjá íslendingunum og að vonum beindust þá sjónir manna að lönd-
um þeirra. Brynjar Björn hefur átt mjög gott tímabil með Örgryte í Svíþjóð
í ár en hann var keyptur þangað frá Válerenga í Noregi síðasta vetur. Hann
er 23 ára gamall og getur leikið bæði sem miðvörður og vamartengiliður, og
leikstíll hans ætti að henta vel í ensku knattspyrnunni. Rúnar Kristinsson er
einnig orðaður við Stoke í enskum fjölmiðlum í gær. í samtali við DV í gær
sagðist Rúnar hafa heyrt um þessi mál fyrir nokkrum mánuðum en ekkert
hafl verið rætt við sig. Rúnar, sem á eitt ár eftir af samningi sinum við
Lilleström, sagðist mundu setjast niður með forráðamönnum Lilleström allra
næstu daga og ræða framtíð sína hjá félaginu en Lilleström vill bjóða honum
nýjan samning. Af kaupunum sjálfum berast fáar fréttir. Forráðamenn Stoke
segja það eitt að þeir eigi í viðræðum við tvo aðila en í flölmiðlum í Stoke
hefur komið fram að íslendingarnir hafi enn engin svör fengið. .
meo vo
Geir Sveinsson stjórnaði íslensku félagsliði sem þjálfari í
fyrsta skipti er Valsmenn unnu öruggan sigur gegn HK að Hlíðarenda.
Geir er einn besti varnarmaður sem íslenskur hand-^-----------
knattleikur hefur alið og strax í fyrsta leik íslands-/^ 'Jíi_? t
mótsins mátti sjá handbragð hans á Valsliðinu. V.
Njáll áfram
með ÍR-inga
Njáll Eiðsson mun í dag
skrifa undir nýjan þjálf-
arasamning við 1. deildar-
lið ÍR í knattspyrnu en
Njáll hefur stýrt Breið-
holtsliðinu undanfarin
þrjú ár.
Samningur Njáls gildir
til eins árs og hafa Breið-
hyltingar tekið stefnuna á
að komast i hóp efstu liða
að nýju. Ekki er reiknað
með miklum mannabreyt-
ingum hjá ÍR. Sóknarmað-
urinn skæði, Sævar Þór
Gíslason, gæti þó yfírgefið
ÍR-inga en Eyjamenn eru á
höttunum eftir honum
ásamt fleiri liðum í úrvals-
deildinni. -GH