Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1999, Page 1

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1999, Page 1
19 Suðurnesja- menn lágu fyrir Lugano í Evrópu- keppninni C2T) FH-ingurinn Larus Long og ÍR-ingurinn Ragnar Óskarsson berjast hér hart í leik liðanna í Austurbergi í gær en þessir tverir leikmenn léku best allra í leiknum. Línumennirnir Finnur Jóhannsson og Hálfdán Þórðarson fylgjast með. DV-mynd E.ÓL - '•ssm - Wimbledon tilbúiö að greiða 240 milljónir fyrir Hermann Hreiðarsson Enska knattspyrnufélagið Wimbledon virðist tilbúið til að hækka um helming boð sitt í ís- lenska landsliðsmanninn hjá Brentford, Hermann Hreiðarsson, og greiða fyrir hann 240 milljónir króna. Á dögunum bauð Wimbledon þessa upphæð fyrir tvo leikmenn Brentford, Hermann og Darren Powell, en því var snarlega hafnað. Ron Noades, fram- kvæmda- stjóri Brent- ford, sagði þá að menn skyldu bíða eftir því að sjá Hermann spila gegn heimsmeist- urum Frakka næsta laug- ardag. Eftir það væri hann tilbúinn til að ræða tilboð í íslendinginn. Á fréttavefnum, Teamtalk, í gær var sagt að Sam Hammam, eigandi Wimbledon, væri þegar tilbúinn til að hækka sig í 240 milljónir króna og myndi bjóða Brentford þá upp- hæð strax eftir helgina. -VS Ahangendur Brentford fjölmenna til Parísar Allir 50 miðamir, sem stuðnings- klúbbur enska knattspyrnufélagsins Brentford fékk á landsleik Frakk- lands og íslands í París á laugardag- inn, seldust upp. Einstakt tækifæri fyrir stuðningsmennina David Lane, ritstjóri Fanzine, blaðs stuðningsklúbbsins, efndi til ferðarinnar og segir að það sé ein- stakt tækifæri fyrir stuðningsmenn Brentford að sjá einn af sínum mönnum, Hermann Hreiðarsson, í leik gegn sjálfum heimsmeisturun- um. KSÍ var Brentford innan handar með að útvega miðana. Á fréttavefn- um, Teamtalk, er haft eftir ónefnd- um starfsmanni KSÍ að Hermann hafi fullvissað sambandið um að stuðningsmenn Brentford væru friðsamir og engin hætta á ólátum af þeirra hálfu. -VS Eiður orðaður við Leicester Eiður Smári Guðjohnsen, landsliðsmaður í knattspymu, hefur verið orðaður við enn eitt enskt lið, Leicester City. Eins og áður hefur komið fram vora Newcastle og Sunderland sögð á eftir íslendingnum í síðustu viku og var kauptilboð upp á • yfir tvær milljónir punda nefnt í því sambandi. Á fréttaveftium, Teamtalk, er sagt að það muni þó ekkert gerast fyrr en Bolton ráði nýjan ffamkvæmdastjóra. Enginn leikmaður verði seldur frá félaginu fyrr en þau mál hafi skýrst. Ekki er talið óliklegt að Phil Brown verði boðin staðan en hann hefur stjómað liðinu í síðustu leikjum með góðum árangri. Eiður Smári Guðjohnsen. -VS/JKS Tómas skoraði sigurmarkið Tómas Ingi Tómasson skoraði sigurmark AGF frá Árósum í leiknum gegn Esbjerg í dönsku A-deildinni í knattspyrnu í gær- kvöld. Jafnt var, 1-1, og þrjár mínútur vom til leiksloka þegar íslendingurinn guiltryggði sigur AGF, 2-1. Að loknum 11 umferðum er Herfólge efst með 22 stig og AB hefur 22 stig. AGF er hins vegar í þriðja neðsta sæti af tólf liðum með 9 stig. -JKS Ingi hættur með Val Ingi Bjöm Albertsson verður ekki áfram þjálfari hjá Valsmönn- um í knattspymu en sem kunnugt er tók hann við liðinu snemma sumars eftir að Kristni Bjömssyni var vikið ffá störfúm. Valsmenn hafa ekki tekið ákvörðun um það hver verði eftirmaður Inga Bjöms en Hlíðarendaliðið leikur í 1. deildinni á næstu leiktíð. Valsmenn þurfa væntanlega að sjá á eftir Sigurbimi Hreiðars- syni. Honum verður líklega boð- inn þriggja ára samningur við sænska A-deildarliðið Trelleborg í dag en hann gekkst undir lækn- isskoðun hjá félaginu í dag og spOar með varaliðinu í kvöld. -GH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.