Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1999, Síða 1
19
Suðurnesja-
menn lágu
fyrir Lugano
í Evrópu-
keppninni
C2T)
FH-ingurinn Larus Long og
ÍR-ingurinn Ragnar
Óskarsson berjast hér hart í
leik liðanna í Austurbergi í
gær en þessir tverir
leikmenn léku best allra í
leiknum. Línumennirnir
Finnur Jóhannsson og
Hálfdán Þórðarson fylgjast
með.
DV-mynd E.ÓL
-
'•ssm
- Wimbledon tilbúiö að greiða 240 milljónir fyrir Hermann Hreiðarsson
Enska knattspyrnufélagið
Wimbledon virðist tilbúið til að
hækka um helming boð sitt í ís-
lenska landsliðsmanninn hjá
Brentford, Hermann Hreiðarsson,
og greiða fyrir hann 240 milljónir
króna.
Á dögunum bauð Wimbledon
þessa upphæð fyrir tvo leikmenn
Brentford, Hermann og Darren
Powell, en
því var
snarlega
hafnað. Ron
Noades,
fram-
kvæmda-
stjóri Brent-
ford, sagði
þá að menn
skyldu bíða
eftir því að
sjá Hermann
spila gegn
heimsmeist-
urum
Frakka
næsta laug-
ardag. Eftir
það væri
hann tilbúinn til að ræða tilboð í
íslendinginn.
Á fréttavefnum, Teamtalk, í gær
var sagt að Sam Hammam, eigandi
Wimbledon, væri þegar tilbúinn til
að hækka sig í 240 milljónir króna
og myndi bjóða Brentford þá upp-
hæð strax eftir helgina.
-VS
Ahangendur Brentford
fjölmenna til Parísar
Allir 50 miðamir, sem stuðnings-
klúbbur enska knattspyrnufélagsins
Brentford fékk á landsleik Frakk-
lands og íslands í París á laugardag-
inn, seldust upp.
Einstakt tækifæri fyrir
stuðningsmennina
David Lane, ritstjóri Fanzine,
blaðs stuðningsklúbbsins, efndi til
ferðarinnar og segir að það sé ein-
stakt tækifæri fyrir stuðningsmenn
Brentford að sjá einn af sínum
mönnum, Hermann Hreiðarsson, í
leik gegn sjálfum heimsmeisturun-
um.
KSÍ var Brentford innan handar
með að útvega miðana. Á fréttavefn-
um, Teamtalk, er haft eftir ónefnd-
um starfsmanni KSÍ að Hermann
hafi fullvissað sambandið um að
stuðningsmenn Brentford væru
friðsamir og engin hætta á ólátum
af þeirra hálfu.
-VS
Eiður orðaður
við Leicester
Eiður Smári Guðjohnsen, landsliðsmaður í
knattspymu, hefur verið orðaður við enn eitt
enskt lið, Leicester City. Eins og áður hefur
komið fram vora Newcastle og Sunderland
sögð á eftir íslendingnum í síðustu viku og
var kauptilboð upp á • yfir tvær milljónir
punda nefnt í því sambandi.
Á fréttaveftium, Teamtalk, er sagt að það
muni þó ekkert gerast fyrr en Bolton ráði
nýjan ffamkvæmdastjóra. Enginn leikmaður
verði seldur frá félaginu fyrr en þau mál hafi
skýrst. Ekki er talið óliklegt að Phil Brown
verði boðin staðan en hann hefur stjómað
liðinu í síðustu leikjum með góðum árangri.
Eiður Smári Guðjohnsen. -VS/JKS
Tómas skoraði
sigurmarkið
Tómas Ingi Tómasson skoraði
sigurmark AGF frá Árósum í
leiknum gegn Esbjerg í dönsku
A-deildinni í knattspyrnu í gær-
kvöld. Jafnt var, 1-1, og þrjár
mínútur vom til leiksloka þegar
íslendingurinn guiltryggði sigur
AGF, 2-1.
Að loknum 11 umferðum er
Herfólge efst með 22 stig og AB
hefur 22 stig. AGF er hins vegar
í þriðja neðsta sæti af tólf liðum
með 9 stig. -JKS
Ingi hættur
með Val
Ingi Bjöm Albertsson verður
ekki áfram þjálfari hjá Valsmönn-
um í knattspymu en sem kunnugt
er tók hann við liðinu snemma
sumars eftir að Kristni Bjömssyni
var vikið ffá störfúm. Valsmenn
hafa ekki tekið ákvörðun um það
hver verði eftirmaður Inga Bjöms
en Hlíðarendaliðið leikur í 1.
deildinni á næstu leiktíð.
Valsmenn þurfa væntanlega að
sjá á eftir Sigurbimi Hreiðars-
syni. Honum verður líklega boð-
inn þriggja ára samningur við
sænska A-deildarliðið Trelleborg
í dag en hann gekkst undir lækn-
isskoðun hjá félaginu í dag og
spOar með varaliðinu í kvöld.
-GH