Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1999, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1999, Qupperneq 3
20 FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999 FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999 21 Sport Sport Bland í poka Viking Stavanger hefur áhuga á að kaupa Steinar Adolfsson, landsliðs- mann í knattspyrnu, frá Kongsvin- ger, samkvæmt frétt í Stavanger Af- tenblad. Kongsvinger er falliö úr A- deildinni og i samtali við blaðið segir Steinar að það sé ekki spennandi að spila í næstu deild fyrir neðan, sér- staklega ekki ef hann ætli að halda sæti sínu í landsliðinu. Hnéskel Steinars brotnaði í byrjun september og spilar hann ekki meira á þessu ári. Bobby Robson, knatt- spyrnustjóri hjá Newcastle, hefur fengið Argentínumanninn Lucas Comineli aö láni frá spænska liðinu Grenada út þetta tíma- bil. Hann er þriðji leik- maðurinn sem Robson fær til liðs viö félagið eftir aö hann tók við stjórn- inni. Ísíðustu viku gekk Brasilíu- maðurinn Fumaca í raðir Newcastle frá Barnsley og um helgina keypti Newcastle skoska landsliðsmanninn Kevin Gallacher. Þorvaldur Örlygsson hefur verið ráðinn þjálfari 1. deildarliös KA í knattspyrnu til tveggja ára. Þorvald- ur lék með KA til ársins 1989 en hef- ur síðan spilaö sem atvinnumaður í Englandi með Nottingham Forest, Stoke og Oldham. Hann er 33 ára og mun jafnframt leika með KA-mönn- um. Stern John, 22 ára gamall leikmaður frá Trínidad, er orðinn mjög eftirsótt- ur og sækjast ensk knattspymufélög mjög eftir honum. John hefur skorað 43 mörk í 54 leikjum fyrir Columbus Crew í bandarísku atvinnudeildinni og Leicester, Watford og Nottingham Forest era nú komin í harða baráttu um piltinn sem er með lausan samn- ing um áramót. Arnar Gunnlaugsson lék i 70 mínútur með varaliði Leicester þegar það tapaöi, 1-2, fyrir Watford á mánudags- kvöldið. Þetta var annar leikur Arnars eftir langvarandi meiðsli og hann er sagð- ur eiga langt í land með að ná fyrra formi. Það veröur því eflaust einhver bið á að hann fari að spila með Leicester í A-deildinni. Edson, fyrrum markvörður Santos í Brasiliu og sonur knattspyrnugoðs- ins Pele, var í gær dæmdur í sex ára fangelsi í heimalandi sinu. Edson var valdur að bilslysi fyrir sjö árum þar sem einn maður lét lífið. Þar sem Ed- son var ekki á sakaskrá fær hann að stunda vinnu að deginum en þarf að gista innan múranna að nóttu til. Hertha Berlin, lið Eyjólfs Sverris- sonar í þýsku knattspymunni, hefur átt í gífurlegum vandræðum i haust vegna meiðsla leikmanna. Nú er ljóst að tveir þeirra, Rene Tretschok og Rob Maas, fara í uppskurð á næstu dögum og verða ekki leikfærir fyrr en eftir vetrarfríið. Enska knattspyrnufélagiö West Ham gæti verið dæmt úr leik í UEFA- bikamum fyrir að nota Króatann Igor Stimac gegn Osijek frá Króatíu á dögunum. Stimac fékk á sínum tíma fjögurra leikja bann í Evrópu- keppni þegar hann lék með Hajduk Split og á enn eftir að taka út tvo síð- ari leikina. George Graham, framkvæmdastjóri enska knattspyrnufélagsins Totten- ham, hefur hug á að fá sænska lands- liðsmanninn Yksel Osmanovski frá Bari á Italíu og er tilbúinn til að greiða fyrir hann 600 milljónir króna. Birkir Kristinsson lék ekki í marki Lustenau gep Ried í austurrisku A- deildinni_Ugærkvöld. Guö- jón Þóröarson landsliðs- þjálfari vildi fá hann strax í islenska landsliðið í Par- is og þangað var Birkir mættur í gær ásamt öðrum landsliðs- mönnum. Mick McCarthy, landsliðsþjálfari íra í knattspyrnu, framlengdi samning sinn við írska knattspymusambandið til ársins 2002. Hann verður því með liöið fram yfir forkeppni heimsmeist- aramótsins. Grikkir sigruöu Albani, 2-0, i 2. riöli forkeppni Evrópumóts landsliða í knattspymi í Aþenu i gærkvöld. í þessum riðli eru Norðmenn langefstir með 22 stig og hafa þegar tryggt sér sæti i úrslitakeppninni. Slóvenía hefur 17 stig og Lettar hafa 13 stig. -GH/VS/JKS Natalia Gomzina og Anna Pavlicuk eru mættar í slaginn eystra og komn- ar ■ Þróttarbúninginn. Rússneskar í Þrótt Tvær rússneskar stúlkur leika með Þrótti frá Neskaupstað í 1. deild kvenna í blaki í vetur. Þær heita Natalia Gomzina og Anna Pavlicuk og koma frá félaginu Trud í borginni Jaroslav. Ef að líkum lætur styrkja þær verulega lið Þróttar sem varð í þriðja sæti 1. deildar í fyrra. Þess má geta að Þróttur úr Neskaupstað átti sex Islandsmeistara af sjö mögulegum í yngri flokkum á síðasta tímabili og blakdeild félagsins er án efa ein sú öflugasta á landinu. -VS 1. deild karla í handknattleik Aldrei að gefast upp - FH vann upp gott forskot ÍR og tók stigin tvö „Ég get ekki verið annað en sátt- ur við stigin tvö eins og leikurinn þróaðist. Strákamir neituðu að gef- ast upp og þeir eiga hrós skilið fyr- ir góöan karakter. Ég var mjög ánægður með vörnina og mark- vörsluna en við eigum eftir að slípa sóknarleikinn mikið. Við gerðum mikið af tæknifeilum í fyrri hálfleik og við færðum þeim á silfurfati þetta forskot í byrjun," sagði Elvar Erlingsson, þjálfari FH-inga, við DV eftir hálf ævintýralegan sigur Hafn- aríjarðarliðsins á ÍR-ingum í Aust- urbergi í gær. Lokatölur urðu, 22-25, en FH-ing- ar áttu frábæran endasprett, þeir komust fyrst yflr í leiknum þegar tvær mínútur voru til leiksloka og tryggðu sér sigurinn með því að skora fjögur síðustu mörkin. FH-ingar byrjuðu ekki gæfulega og það stefndi í stórsigur heimanna í fyrri hálfleik. Þegar 17 mínútur voru liðnar af leiknum hafði FH að- eins skorað eitt mark en ÍR-ingar sjö og komu fimm þeirra úr hraða- upphlaupum eftir klaufaleg mistök FH-inga. Hafnfirðingarnir náðu að rétta sinn hlut áður en blásið var til leikhlés en þeim tókst að minnka muninn niður í eitt mark. I seinni hálfleik héldu ÍR-ingar þægilegu for- skoti mest allan tímann og ekkert í spilunum benti til annars en að Breiðhyltingar væru að landa enn einum heimasigrinum. En FH-ingar eru þekktir fyrir allt annað en að gefast upp og þegar Magnúsi Árnasyni var skipt inn á í FH-markið fóru hlutirnir að snúast FH-ingum í vil. Magnús skellti í lás og við það hljóp mikill hamur í fé- laga hans. Leikur ÍR-inga hrökk í baklás og FH-ingar færðu sér þaö í nyt og unnu sætan sigur og sinn annan í röð en ósigurinn var sá fyrsti hjá ÍR á tímabilinu. Stór galli á okkar góða liði „Ég á mjög erfitt með að skýra hvað gerðist í leik okkar en eitthvert einbeitingaleysi greip um sig hjá okk- ur. Við misstum niður gott forskot og það er ekki í fyrsta sinn sem það ger- ist. Við verðum að vinna í þessu því þetta er stór galli á okkar góða liði,“ sagöi Ragnar Óskarsson, leikstjóm- andi ÍR-inga, sem lék best heima- manna ásamt Ólafi Sigurjónssyni og síðan varði Hallgrímur vel í fyrri hálfleik. fR-ingar em með gott liö en þeir þurfa að halda haus og einbeitingu allan timann ef þeir ætla að ná langt í vetur. Láras Long lék best í liði FH. Hann skoraði sjö glæsileg mörk og var með góða nýtingu. Gunnar Beinteinsson lék einnig vel en mennirnir sem fór langt með að vinna leikinn fyrir FH voru Magnús markvörður og Sigurgeir Ægisson sem greip tækifærin vel sem hann fékk í seinni hálfleik og skoraði 5 góð mörk. -GH ÍR 22(10) - FH 25(9) Gunnleifur í Fram? - leikur líklega með Ayr United í vetur Samkvæmt heimildum DV era miklar líkur á að Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður úr KR, gangi til liðs við Fram fyrir næsta tímabil. Gunnleifur fékk fá tækifæri með KR í ár og hugs- ar sér nú til hreyfings þar sem nokkuð Ijóst er að Krist- ján Finnbogason mun áfram verja mark íslands- og bik- armeistaranna. Gunnleifur vildi ekkert segja þegar DV bar þetta und- ir hann en sagði hinsvegar nokkuð öraggt að hann færi á næstu dögum til skoska B-deildarliðsins Ayr United. „Það kemst endanlega á hreint um helgina en það stefnir allt í að ég verði leigður til Ayr í fjóra mánuði. Það gæti farið svo að fyrsti leikurinn minn yrði gegn Celtic í deildabikarkeppninni strax næsta miðvikudag," sagði Gunnleifur við DV. -VS Vinnum á eðlilegum degi „Ég var mest óánægðastur með hve mótherjinn ýtti okkur alltof langt út í sókn- arleiknum. Við tókum ekki nógu vel á þeim vanda og ennfremur var svissneska liðið mun grimara. Lugano er sterkt en við náðum okkur því miöur aldrei á flug í leiknum. Samt voram við inn í leiknum alveg þangað til að fimm mínútur voru eftir. Á eðlilegum degi vinnum við þetta lið því það er ýmislegt sem við höfum sem þeir hafa ekki. Við ætlum að vinna þá þegar við mætum þeim aftur á heima- velli. Hittnin brást en við fengum ekki nógu mikið af góðum skotum og samvinna manna var ekki góð. Við vorum líka ekki hreyfanlegir og ekki duglegh- að opna fyrir hvorn annan. Þetta var fyrsti leikurinn í keppninni og ég held að menn hafi dregið lærdóm af honum. Núna verður allt sett í gang og ég lofa betri leik gegn finnska liðinu Huima í næstu viku,“ sagði Sigurður Ingimundarson, annai' þjálf- ara liðsins, í samtali við DV eftir leikinn. -JKS Evrópukeppni félgasliöa í körfuknattleik: Liðið lék allt langt undir getu - Reykjanesbær tapaði fyrir Lugano, 94-76 Körfuknattleikslið Reykjanesbæjar tap- aði fyrsta leik sínum í riölakeppni Korac-keppninnar í gærkvöld þegar liðið lék gegn Lugano frá Sviss. Lokatölur leiksins urðu, 94-76, en i hálfleik var stað- an, 40-37, fyrir svissneska liðið. Leikurinn var í jámum lengst af og það var ekki fyrr en fimm mínútum fyrir leikslok sem Lugano seig fram úr og munurinn var í lokin 18 stig. Þetta var fullmkill munur þegcir á heildina er litið en Reykjanesbæj- arliðið var að leika langt undir getu að sögn Sigurður Ingimundarsonar sem er annar af þjálfuram liðsins. Sóknarleikur íslenska liðsins var strið- ur í fyrri hálfleik og raunar í öllum leikn- um. Hitnin, sem er einn sterkasti hlekkur liðsins, brást því miður. Jafnt var á flest- um tölum en það íslenska var með for- ystu, 33-34, þegar skammt var til loka fyrri hálfleiks. Siðari hálfleikur þróaðist með svipuð- um hætti og sá fyrri og jafnt var á öúum tölum. í stöðunni, 74-74, fór að halla imd- an fæti og Lugano tók leikinn smám sam- an í sínar hendur. Reykjanesbæjarliðið reyndi allt hvað það gat, breytti í svæðis- vöm og reyndi að setja pressu á heima- menn. Allt kom fyrir ekki og átján stiga ósigur var staðreynd í lokin. Liðið lék allt undir getu en segja má að að Pumell Perry og Hjörtur Hjartarson hafi staðið upp úr. Næsti leikur liðsins í riðlinum verður 13. október gegn finnska liðinu Humina í Keflavík. Stigin: Pernell Perry 35, Hjörtur Harðarson 13, Chianti Roberts 8, Teitur Örlygsson 8, Hermann Hauksson 5, Guð- jón Skúlason, Friðrk Ragnarsson 3, Frið- rik Stefánsson 2. -JKS 1-0, 1-1, 7-1, 7-3, 9-4, 10-6, (10-9), 12-9, 15-11, 17-13, 19-16, 19-19, 22-21, 22-25. ÍR: Ragnar Óskarsson 9/4, Ólafur Sigurjónsson 7, Bjami Frantson 2, Finnur Jóhannsson 1, Inghnundur Ingimundarson 1, Róbert Rafnsson 1, Erlendur Stefánsson 1. Varin Skot: Hailgrhnur Jónasson 9, Hrafn Margeirsson 0. Brottvísanir: 6 mínútur. Rauó spjöld: Engin. Vitanýting: Skoraö úr 4 af 4. Áhorfendur: 300. Gœöi leiks (1-10): 6. Dómarar (1-10): Guðjón Sigurðsson og Ólafur Haraldsson (7). FH: Lárus Long 7, Sigurgeir Ægisson 5, Gunnar Bein- teinsson 4, Guðmundur Pedersen 3/1, Brynjar Geirsson 2, Knútur Sig- urðsson 2, Hálfdán Þórðarson 1, Sverrir Þórðarson 1. Varin skot: Egidijus Petkkevicius 8, Magnús Ámason 8. Brottvísanir: 4 mínútur. Rauö spjöld: Engin. Vítanýting: Skorað úr 1 af 1. Maður leiksins: Lárus Long, FH. ÍR-ingurinn, Ingimundur Ingimundarson, stekkur hér upp að FH-vörninni. Finnur Jóhannsson, Sigurgeir Ægisson og Ragnar Óskarsson fylgjast með. DV-mynd E.ÓL Keflvíkingar báru sigur úr býtum í Eggjabikarnum f fyrra með viðeigandi hætti, bikarinn góði fékk rembingskoss hjá Kristjáni Guðlaugssyni og Sæmundi Oddssyni. Perry skoraði 35 stig Pemell Perry, Bandaríkjamaðurinn í sameiginlegu liði Keflvíkinga og Njarðvíkinga, lék vel gegn Lugano í Evrópukeppninni i gærkvöldi og setti niður 35 stig. Hér er Perry í leik gegn London Leoparts í undankeppninni þar sem Suðumesjaliðið fór með sigur af hólmi. Eggjabikarinn hefst í kvöld i fjórða sinn: Fjórir leikhlutar - prufukeyrsla á nýjum reglum í ár Eggjabikarinn hefur göngu sína í kvöld með þremur af átta viðureign- um í 16 liða úrslitum. í Eggjabikar- inn komast öll úrvalsdeildarliðin auk fjögurra liða úr 1. deild sem náðu bestum árangri á síðasta vetri. Keppnin fer nú fram í fjórða sinn og hefur hún verið mikil lyftistöng fyrir annars rólega tíð í körfubolt- anum á þessum tíma. Keppni hinna fjögurra fræknu fer síðan fram 13. og 14. nóvember í Laugardalshöll- inni en til þess að komast þangað verða liðin að vinna sig í gengum tvær útsláttarumferðir með leikjum heima og að heiman. Ákveðið hefur verið að prafu- keyra nýjar reglur í ár, þær sömu og komast í gagnið næsta haust. Þá á að fjórskipta leiktímanum þannig, að spilað verður fjóra 10 minútna leikhluta. Leikhlé milli fyrsta og annars leikhluta og 3. og 4. era tvær mínútur en leikhléið sjálft er síðan tíu mínútur. Hvort lið má taka þrjú leikhlé í hvorum hálfleik og liðsvillur fyrir bónuskot era fjór- ar í hverjum leikhluta. Eftir þessu fyrirkomulagi verður spilað í Eggjabikamum í ár en 24 sekúnda skotklukka (í stað 30 sek.) og 8 sekúndna reglan til að koma bolta yfir í miðju (í stað 10 sek.) verður að bíða fram til næsta hausts. Allt er þetta þáttur í reglubreyt- ingum FIBA sem eiga að skella á eftir Ólympíuleikanna í Sydney á næsta ári. Keppnin er styrkleikaröðuð, hugsuð þannig að bestu liðin í fyrra, Keflavík og Njarðvík, ættu ekki að mætast fyrr en í úrslitum, fari þau á annað borð alla leið í úr- slitin í ár. í fyrstu umferð Eggjabik- arsins mætast eftirtalin lið: Fimmtudagur 7. október ÍR-Grindavík 19.00 lA-Haukar 20.00 Skallagrímur-KR 20.00 Föstudagur 8. október Valur-KFÍ 18.00 Stjaman-Keflavík . . . . 20.00 Hamar-Tindastóll . .. . 20.00 Þór Þ.-Njarðvik 20.00 Þór Ak.-Snæfell 20.30 Laugardagur 9. október Grindavík-lR 16.00 KR-Skailagrímur 16.00 Haukar-Í A 16.00 Sunnudagur10 . október KFÍ-Valur 20.00 Keflavík-Stjaman .. . . 20.00 Njarðvík-Þór Þ 20.00 Tindastóll-Hamar . .. . 20.00 Snæfell-Þór Ak 20.00 Keflvíkingar ósigraðir Aðeins eitt lið hefur fagnað sigri í Eggjarbikamum i þriggja ára sögu hans en það er lið Keflavíkur. Keflavík hefur unnið alla átján leiki sína í keppninni og skorað 105,2 stig og hitt úr 10,4 3ja stiga körfum að meðaltali í leik. Fimm lið, (Keflavík, KR, Grinda- vík, Njarðvík og Tindastóll), hafa komist alla leið í Höllina og fjögur af þeim, öll nema Njarðvík, hafa spilað til úrslita. Öll þrjú árin hafa þrjú lið skipt því á milli sín að spila til úrslita gegn Keflvíkingum. -ÓÓJ Einn besti dómari Evrópu dæmir í París -r?~ Einn besti dómari í Evrópu nú um stundir, Þjóðverjinn ■ Bernd Heynemann, dæmir landsleik Frakka og íslend- inga í forkeppni Evrópumóts landsliða í París á laugar- n daginn kemur. Heynemann hefur geysilega reynslu að •'9® jj baki og er í efsta dómaraflokki Knattspymusambands Evrópu. Heynemann, sem kemur frá Magdeburg, er 45 ára og því kominn á aldur samkvæmt almanki UEFA. W ^ Því er leikurinn á París með síðustu verkefnum hans ---jnnan uefa. Aðstoðardómarar verða Harald Sather og Markus Scheibel en þeir dæma mikið af leikjum í þýsku úrvalsdeildinni. Eftirlitsmaður UEFA á leiknum verður Skotinn George Brian Smith. -JKS Frakkland-ísland Frakkar treysta á Trezeguet Frakkar binda miklar vonir við framherjann David Trezeguet þegar þeir mæta íslendingum í und- ankeppni EM í knattspyrnuu í París á laugardaginn. Hinn 21 árs gamli Trezeguet, sem fæddur er í Argent- ínu, hefur leikið mjög vel með Mónakó í frönsku A-deildinni á leiktíðinni og er markahæsti leik- maður deildarinnar með 9 mörk í jafnmörgum leikjum. Roger Lemerre, þjálfari frönsku heimsmeistaranna, getur varla gengið framhjá Trezeguet þegar hann velur byrjunarliðið. Nicolas Anelka er ekki í leikmannahópnum og þeir Thierry Henry og Christophe Dugarry taka báðir út leikbann og það eitt ætti að tryggja Trezeguet sæti í liðinu. Trezeguet hefur ekki átt sæti i franska liðinu en hefur þess í stað leikið með U-21 árs liðinu. „Það hefur verið erfitt spila ekki með A-liðinu en ég held að ég hafi ekki átt skilið að vera í liðinu fram að þessu,“ sagði Trezeguet sem gekk ekki sem skildi með liði Mónakó á síðustu leiktíð enda mörg lið á Spáni og á Ítalíu sem voru að krakka í hann á sama tíma og það kom niður á leik hans. Hann skrif- aði undir nýjan fjögurra ára samn- ing við Mónakó í sumar og í haust hefur hann farið á kostum í fram- línu Mónakó með Argentínumann- inn, Marcelo Gallardo, við hlið sér. Liðið sem skorar á undan vinnur leikinn „Að spila með Gallardo í Mónakó er eins og að spila með Zidane í franska landsliðinu. Ég átti erfitt eftir heimsmeistarakeppnina. Ég var þreyttur og mér gekk illa hjá Mónakó. Núna er allt annað uppi á teningnum. Mér líður vel og er klár í slaginn. Við höfum fengið góð tækifæri í mörgum leikjanna í riðl- inum en ekki nýtt þau og þetta verð- ur að enda í leiknum gegn íslend- ingum. Það lið sem fyrr skorar í leiknum á laugardaginn mun vinna leikinn,“ sagði Trezeguet. -GH Soortkorn Valsmenn hlustuðu ekki Það vakti að vonum athygli í vor þegar Magnús V. Pétursson, kaup- maður og fyrr- um knatt- spyrnudómari, spáði þvi í sam- tali við DV að Reykjavíkur- stórveldin KR og Valur myndu falla úr úrvals- deildinni í knattspyrnu í ár. Helmingur- inn kom fram, Valur féll en KR varð hinsvegar tvöfaldur meistari. Magnús segir að skýringin á þessu væri einföld. KR-ingar hafi tekiö mark á sér, margir úr þeirra röð- um hafi þakkað sér fyrir viðvörun- ina og sagt við sig aö hún hafi eflt þá til dáða. Valsmenn hafi hinsveg- ar látið varnaðarorð sin sem vind um eyru þjóta og því fór sem fór á Hlíðarenda. Þorleifur rekinn Þorieifur Ananíasson, fyrrum handknattleiksmaður með KAum áratuga skeið, hefur haldið uppi reglulegum og líflegum fréttaflutningi á heimasíðu KA undanfarin misseri. Þar til 7. september sl. þegar skyndi- lega birtust „Lokaorð" frá „Leibba“. Þar segist hann hafa ver- ið rekinn vegna þess að stjórnar- menn handknattleiksdeildar vildu ekki lengur að á síðunni yrðu flutt- ar fréttir í þessum dúr. „Ég mun ekki verða skoðanalaus talsmaður misvitra stjómarmanna sem nú munu taka við síðunni eða leggja hana niður eftir atvikum," segir Þorleifur meðal annars í lokagrein- inni. Og á þeim mánuði sem síðan er liðinn hefur ekki birst ein ein- asta frétt á síöunni. Skrifaði fyrir HK Þorleifur er þó ekki alveg hættur. HK-ingar i Kópavogi sáu sér nefni- lega leik á borði og fengu hann til að skrifa um leik KA og HK á dögunum á heimasíðu HK. Það var að von- um hin athyglis- verðasta grein og hún hófst þannig: „Mér þykir þið hugað- ir í Kópavoginum að sleppa mér inná þessa saklausu heimasiðu ykkar, dæmdum manninum. Ég gat því ekki annað en tekið boðinu um aö skrifa um leik KA/HK og náði að laumast framhjá vökulum augum stjómarmanna og vörpu- legra dyravarða með blýantsstubb og blaðsnifsi í KA-heimilið á fóstu- dagskvöldiö." Landskunnur sóðakjaftur Síðan tók við mergjuð lýsing á leiknum og að lokum sagði Þorleif- ur: Ég trúi ekki öðra en síðunni ykkar verði nú lokað og þið reknir, sem ekki nennið að skrifa sjálfir heldur fáið landskunna sóðakjafta til að tala ykkar máli. Ef ekki, teldi ég heppilegra að hafa frekar stjórnarmenn eða handboltamenn í næsta gámi sem þið fáið frá okkur að norðan,“ og vitnaði þar til þess að fleiri Akur- eyringar hefðu verið í byrjunarliði HK en KA. Tæklaði síðast 19. maí Viða er verið að stokka upp spilin hjá knattspyrnufélögunum þessa dagana og menn eru að vonum misánægðir með árangur sumarsins. 1 einum heyrði ég sem var afar óhress með leik- menn sins liðs og vildi losna viö þá flesta og fá aðra í stað- inn. Ég nefhdi þá einn leikmann liðsins og sagði að hann hlyti þó að verða um kyrrt. „Sá andskoti! Hann hefur ekki farið í tæklingu síðan 19. maí,“ svaraði viðmæland- inn aö bragöi. Umsjón: Víðir Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.