Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1999, Síða 4
FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999
■' 22
Sport unglinga
<ÁVI*U,
Stelpumnr úi 7
bekh f Mýrrtrhúsí?
flokk a Skolánlóti-
Grótt|jnnar á dög-
ununi enda með
ðfluyt lió.
DV-mynd Oskar
**
4 ' Æ'
*ar
Valhusaskoli vann skolamotið i 8. flokki drengja og voru þeir að
vonum kátir með bikarinn og verðlaunapeningana í lok mósins.
Stelpurnar í 6. bekk í Grandaskóla settu mikinn svip á Skólamót
k Gróttu líkt og í fyrra og unnu annað árið í röð. Að sjálfsögðu var
- lukkudýrið, apinn, mætt tii leiks til að færa þeim gæfu til sigurs.
Sigurskolarnir
HY«i
1
Annað Skólamót Gróttu í handbolta var
haldið á dögunum í íþróttahúsi Seltjamar-
ness í boði unglingaráðs Gróttu.
í fyrra var hugmyndin að vinna upp
brottfall stúlkna úr iþróttum með því að
halda sér stúlknamót og náðist þá frábær
árangur. 220 stúlkur mættu þá til leiks, á
aldrinum 10 til 16 ára og margar þeirra fóru
að æfa, ekki bara hjá Gróttu, heldur sumar
líka hjá Val og Fram. Aðrar fóru líka að æfa
aðrar íþróttir svo sem sund og fimleika,
þannig að hvatning með móti sem þessu
hafði góð áhrif á íþróttalífíð í vesturhluta
höfuðborgarinnar. Hlutfall þátttakenda og
árangurs snerist líka við hjá Gróttu. Stúlk-
umar i Gróttu urðu þrefaldir meistarar og
fjöldi stúlkna sem æfðu handbolta í
Gróttunni varð meiri en hjá drengjunum
sem höfðu verið mun fleiri áður en að fariö
var út í framkvæmd þessa móts í fyrra.
í ár var ráðist í það stórvirki að halda
skólamót skólanna á Seltjamarnesi og i
vesturbæ bæði fyrir stúlkur og drengi. Við-
brögðin urðu mjög góð, það komu 45 lið á
mótið og vom því um 470 krakkar sem
skemmtu sér konunglega yfir handbolta-
leikjum þessa helgi.
Úrslit mótsins báru unglingastarfi Grótt-
unnar gott vitni. Skólamir á Seltjamames-
inu unnu í öllum bekkjum nema einum, 6.
bekk stúlkna, þar unnu Grandaskólastúlkur
glæsilegan sigur annað árið í röð. Stærsti
hluti bama og unglinga á Seltjarnarnesinu
stundar nú handboltaæfingar hjá nokkrum
af færastu yngri flokka þjálfuram landsins,
sem þjálfa eftir fyrirfram samræmdu skipu-
lagi og stefnu, gæðaþjálfun, yfirþjálfarinn
Gauti Grétarsson hefur forystu fyrir.
Þessi staðreynd og árangur skóla af svæð-
inu gegn öðram skólum í vesturbæ sýnir
enn frekar að með áhuga og skipulögðu
starfi er hægt að snúa vörn í sókn og það
stórsókn. Þessi saga af Nesinu ætti því að
koma öðram hverfum og hverfisfélögum af
stað í sams konar frumherjastarf.
Handboltaveturinn er nú að hefjast á ný
og nú er að sjá hvaða félög og unglinga-
starf stendur upp úr í vetur. -ÓÓJ
5. bekkur
Stúlkur: Mýrarhúsaskóli
Drengir: Mýrarhúsaskóli
6. bekkur
Stúlkur: Grandaskóli
Drengir: Mýrarhúsaskóli
7. bekkur
Stúlkur: Mýrarhúsaskóli
Drengir: Mýrarhúsaskóli
8. bekkur
Stúlkur: Valhúsaskóli
Drengir: Valhúsaskóli
9. bekkur
Stúlkur: Valhúsaskóli
Drengir: Valhúsaskóli
10. bekkur
Stúlkur: Valhúsaskóli
Drengir: Valhúsaskóli
Samtals sigrar:
Valhúsaskóli ................
Mýrarhúsaskóli...............
Grandaskóli
6. bekkur Mýrarhúsaskóla stóð sig mjög vel og vann skólamótið.
Strakarnir i 5
Mýrarhúsaskóla
saman og
unnu sigur jáijj
á mótinu. I
bekk i
stóðu
Valhúsaskóli átti bestu
handboltastelpurnar í 9. bekk,
sem sjást hér að ofan.