Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1999, Blaðsíða 5
20 ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999 ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999 21
rsjrai MdU ÉIIÉ H ■ ■ IIII ■ H1MIP1* ■ ■ H H ■ ■ ■ ■ ■■ ■■ ■ fggg
Gróðurhúsaáhrifin takmörkuð að mati sumra:
Hækkandi hiti ekki bara
manninum að kenna
- segir Ágúst H. Bjarnason rafmagnsverkfræðingur
Ekki bara gróðurhúsaáhrif sem skipta máli:
Sjávarhiti fyrir
norðan mikilvægur
- segir Páll Bergþórsson sem spáir góðri tíð á næstu árum
Á íslandi er með-
alhiti það nálægt
frostmarki að við
finnum mun
meira fyrir
minnstu breyt-
ingum á hitastigi heldur en íbúar
landa nær miðbaugi þar sem meðal-
hitinn er nær 20 gráðum. Hitastigið
hefur jafnframt geysilega mikið að
segja hvað varðar gróður á landinu
og fiskinn í sjónum. Páll Bergþórs-
son veðurfræðingur hefur rannsak-
að hitastig hér á landi og komist að
því að einn helsti áhrifavaldur þess
er sjórinn. DV-Heimur hafði sam-
band við Pál og bað hann að útskýra
þetta nánar.
„Það hefur komið í ljós að lofthiti
hér á norðurslóðum fylgir greini-
lega sjávarhitanum," segir Páll.
„Það er náttúrlega ekki óeðlilegt því
loftið þarf ekki mikinn varma til að
hitna og það er geysilegur varmi í
sjónum. Sjórinn í kringum landið
ræður því úrslitum um hvað loftið
er hlýtt í landinu og þess vegna
skipta hafstraumarnir jafnframt
miklu máli.“
Gott útlit næstu ár
„Því er hægt að spá fyrir um loft-
hita hér á landi með því að fylgjast
með hitastigi sjávar í kringum okk-
ur. Straumarnir hingað til lands
liggja í stórum dráttum frá Sval-
barða og þaðan eru þeir um þrjú ár
á leiðinni. Þar sem sjórinn geymir
hita sinn geysilega vel þýðir þetta
að ef hlýtt er þarna norður frá þá
mun veðurfar verða tiltölulega hlýtt
hér við land næstu ár á eftir.“
Aðspurður um veðurhorfur á ís-
landi næstu ár út frá þessum spá-
dómum segir Páll að útlitið sé mjög
gott þvi á öllum veðurstöðvum fýrir
norðan land er mjög mildur sjór um
þessar mundir. En hann bendir á að
sjávarhiti við Svalbarða segi til um
meira en hitann á íslandi þvi hann
hefur spádómsgildi varðandi allt
norðurhvel jarðar, allt að 5 til 10 ár
fram í tímann. Síðan byrjað var að
mæla hitastig á Svalbarða hefur
komið í ljós að hægt er að spá fyrir
um hitastig á norðurhvelinu sjö ár
fram í timann með skekkju sem oft-
ast hefur verið minni en 0,05 gráð-
ur.
Mikil áhrif á íslendinga
„Þetta hefur mikla efnahagsþýð-
ingu fyrir okkur,“ heldur Páll
áfram, „því hitinn ræður svo
miklu um lífsskilyrði manna hér á
norðurhveli jarðar. Þetta er aug-
ljóst hvað varðar fiskveiðar því
greinilegt er að fiskveiðar ganga
mun betur hér á landi þegar sjór-
inn er hlýr til lengdar. Síðustu 30
ár hefur verið helmingi minni
þorskafli heldur en var áður þegar
sjórinn var hlýrri og það er mjög
nærtæk skýring að hitastig sjávar
hafi haft þar mikil áhrif.“
Páll segir að þessar sveiflur
vegna mismunandi hitastigs sjávar
séu skýring á þeim hitasveiflum
sem hafa orðið á jörðinni síðustu
100 ár. Þær skýra jafnframt út af
hverju gróðurhúsaáhrifin hafa
ekki birst þannig að jafnt og þétt
hafi hlýnað á jörðinni á þessum
tíma.
„Sjávarhitinn veldur skamm-
tímasveiflum á hitastigi jarðar og
þar af leiðandi hefur verið erfiðara
að greina gróðurhúsaáhrifin.
Hækkandi hitastig nú á síðustu
árum og þeim næstu eru því ekki
bara af völdum gróðurhúsaáhrif-
anna heldur eirmig vegna skamm-
tímasveiflu á hitastigi jarðar. Þetta
getur einnig virkað öfugt, þannig
að kólnun á hitastigi sjávar á norð-
urhveli jarðar vinni á móti gróður-
húsaáhrifunum. Þetta gerðist t.d. á
sjöunda áratugnum þegar hitastig
lækkaði þrátt fyrir gróðurhúsaá-
hrifin. Þá töldu margir að allt tal
um gróðurhúsaáhrif væri mark-
laust en þetta var útskýringin á því
hvers vegna hitastig hækkaði
ekki,“ segir Páll.
Ef svo heldur fram sem
horfir má búast við að
einhvern tímann á
næstu öld verði hitastig
orðiðþremur stigum
hærra heldur en var fyrr
á þessari öld. Þá verður
loftslag hér orðið svip-
að því sem það er í
Vestur-Noregi og
Skotlandi og má því bú-
ast við td. góðum skil-
yrðum til kornræktar og
skógræktar hér á landi.
Þeir eru
þónokkrir sem
hafa efast um
aö gróðurhúsa-
áhrifin
svokölluðu séu
eins mikil eða hættuleg og sumir
vísindamenn hafa haldið fram. í
hópi þeirra er Ágúst H. Bjamason
rafmagnsverkfræðingur en hann
hefur haldið úti vefsiðu
(http://www.rt.is/ahb/soI/) þar
sem finna má ýmis rök gegn því
að hækkun hitastigs af manna-
völdum sé alvarlegt vandamál.
DV-Heimur hafði samband við
Ágúst til að forvitnast nánar um
þessa afstöðu efasemdarmann-
anna.
„Ég held að gróðurhúsaáhrifin
séu heldur minni en margir halda
og mér sýnist sem flestir þeirra
sem hafa rannsakað þessi mál
mikið séu þeirrar skoðunar að
það séu aðrir þættir sem vega ef
til vill jafn þungt eða þyngra en
losun gróðurhúsalofttegunda af
mannavöldum," segir Ágúst.
„Menn vita að það hafa verið
sveiflur i veðurfari alla tíð og sem
dæmi má nefna að um árið 1000
var veður jafn hlýtt og það er um
þessar mundir. Þá sigldu víkingar
á opnum bátum yfir Atlantshafið
og Eiríkur rauði settist að á
Grænlandi. Upp úr 1300 fór síðan
kólnandi og mjög slæmt árferði
fylgdi i kjölfarið allt fram á átj-
ándu öld þegar aftur fór að hlýna
og allt var þetta án þess að nein
gróðurhúsaáhrif þyrfti til.“
Þéttbýlisáhrif
Að sögn Ágústs telja margir að
skýringin á þessum sveiflum á
hitastigi sé að talsverðu leyti hæg-
fara breytingar á sólinni. Menn
vita að virkni sólar hefur verið
stígandi á þessari öld og hefur
hitastigið á jörðinni fylgt virkni
hennar mjög greinilega á þessum
tíma. Jafnframt er vitað að þegar
hvað kaldast var á sautjándu öld
var virkni sólarinnar i lágmarki.
Hann segir einnig að gæði veð-
urstöðva geti orsakað það að
hærra hitastig mælist án þess þó
að raunveruleg hækkun hafi átt
sér stað. „Það hefur komið í ljós
að þar sem góðar og þróaðar veð-
urstöðvar eru í meirihluta verður
ekki vart við mikla hækkun á
hitastigi, en hins vegar er hækk-
unin meiri þar sem skilyrðin eru
ekki eins góð. Þetta hafa menn
reynt að skýra með því að í upp-
hafi voru settar upp veðurathug-
unarstöðvar fyrir utan borgir, en
síðan stækka borgirnar og hús og
malbik umlykja rannsóknarstöðv-
arnar en skóglendi og gras
minnka. Þetta verður til þess að
nánasta umhverfi veðurstöðv-
anna verður heitara án þess þó að
um raunverulega hækkun hita-
stigs sé að ræða. Þetta hefur verið
kallað þéttbýlisáhrif eða „urban
effect" á ensku,“ segir Ágúst.
Áhuginn að minnka
„Gervihnattamælingar sem
gerðar hafa verið frá því 1979 eru
að margra mati mun betri mæl-
ingar en þær sem hafa verið gerð-
ar á jörðu niðri. Þær mæla hita-
stigið yfir höfum, yfir báðum
skautunum og alls staðar þar sem
erfitt er aö komast að fyrir fólk á
jörðu niðri. Þarna eru því meðal-
talsmælingar yfir allan heiminn.
Samkvæmt þessum mælingum
hefur engin markverð hækkun
orðið siðan 1979 ef undanskilin er
hækkunin sem varð á síðasta ári
vegna E1 Nino, en sú hækkun hef-
ur gengið til baka í dag.“
En Ágúst leggur áherslu á að
þetta sé auðvitað ekki einfalt mál
og að það sé ósköp einfalt að
draga rangar ályktanir af ákveðn-
Athyglisverð tilgáta um gróðurhúsaáhrifin:
Geta valdið lækkun sjávarborðs
- vegna holumyndunar á hafsbotni
Suðurskautið hefur bráðnað í 10.000 ár
Ágúst H. Bjarnason rafmagnsverk-
fræðingur heldur úti vefsíðu á slóð-
inni http://www.rt.is/ahb/sol/ þar
sem finna má röksemdafærsiur fyr-
ir því að gróðurhúsaáhrifin séu ekki
eins alvarlegt mál og margir telja.
um niðurstöðum í fljótfærni.
„Undanfarin ár hefur þetta gerst
alloft að mínu mati, en mér finnst
þó að upp á síðkastið hafi áhugi
manna á þessu máli minnkað
nokkuð og þetta er ekki orðið eins
mikið fár og það var á sínum
tíma. Nú finnst mér umræðan
skjóta upp kollinum sérstaklega í
kringum ákveðnar ráðstefnur eða
slíkt og mann grunar að þama
séu vísindamenn sem hafa at-
vinnu af því að rannsaka þessi
mál að reyna að halda uppi
hræösluáróðri svo þeir fái áfram
fjármagn til rannsókna sinna,“
segir Ágúst að lokum.
-KJA
Páll Bergþórsson veðurfræðingur segir að sjávarhiti í Norðursjó skipti mjög miklu um það hve mikili hitinn er hér á iandi.
Hann telur að búast megi við því að á næstu öld verði meðalhiti orðinn um þremur gráðum hærri en við upphaf þessar-
ar aldar vegna gróðurhúsaáhrifanna.
Það sem Bratton er að benda á er
að hækkandi hiti sjávar vegna gróð-
urhúsaáhrifanna getur leitt til þess
að ákveðin tegund kristalla á hafs-
botni (e. „Clathrates") bráðni. Krist-
allar af þessu tagi loka inni gasteg-
undir eins og t.d. metan og þegar þeir
bráðna verða til „holur“ þegar gasið
fer upp á yfirborðið. Sjórinn flæðir
inn í þessar holur á hafsbotninum og
því lækkar sjávarborðið.
Að mati dr. Bratton er
líklegast að þetta valdi
því að sjávarborð lækki
um einn og hálfan metra
en í allra versta falli gæti
þetta orðið til þess að
sjávarborðið lækkaði um
heila 25 metra. Hann telur
þó að sennilega muni
lækkun sjávarborðs
vegna þessara áhrifa
Þetta eru vissulega góð tíðindi fyr-
ir þá sem búa í sjávarbæjum og borg-
um um allan heim. Hins vegar eru
vondu fréttimar þær að mögulegt er
að losun metangass, sem er eitt
þeirra efna sem orsakar gróðurhúsa-
áhrifin, af hafsbotni geti leitt til þess
að gróðurhúsaáhrifin muni verða
jafnvel enn meiri í framtíðinni.
verða jafnmikil og hækk- Þorp eins og t.d. Vík í Mýrdal gætu farið illa út úr
unin sem verður vegna hækkun sjávarborðs. Nýjar tilgátur um gróður-
bráðnunar jökla af völdum húsaáhrifin herma að ef til vill sé mögulegt að
hækkandi hitastigs. sjávarborð hækki ekki vegna þeirra.
Jjj>
njBiíi
í þúsundir ára
hefur vænt
stykki af Suð-
urskautsland-
inu verið að
bráðna og mun
eflaust halda því áfram um
ókomna tíð. Og það sem meira er,
enginn getur gert nokkurn skap-
aðan hlut við því. Ólíkt því sem
víða er á Suðurskautslandinu er
gróðurhúsaáhrifunum líklega
ekki um að kenna.
„Á síðustu ísöld var ísbreiðan á
Suðurskautslandinu vestanverðu
um 1.300 kílómetrum meiri en hún
er nú í Rosshafsflóanum,“ segir
Brenda Hall við háskólann I Maine
sem vann að rannsókninni. „Gögn
okkar benda til að hún hafi hopað
allt frá lokum ísaldarinnar, senni-
lega síðustu tíu þúsund árin.“
Vísindamennirnir segja í grein í
tímaritinu Science að bráðni is-
breiðan algjörlega muni yfirborð
sjávar um heim allan hækka um
fimm til sex metra og sökkva þar
með milljónum kílómetra af strand-
lengju.
Howard Conway, jarðeðlisfræð-
ingur við Washingtonháskóla, sem
Slitinn brandari
En hverju má búast við af gróður-
húsaáhrifunum hér á landi að mati
hans? „Það virðist vera að gróður-
húsaáhrifin séu nú þegar orðin þau
að hitastig hafi hækkað um eina
gráðu hér á landi og á Svalbarða hef-
ur hitastig hækkað um rúmar tvær
gráður. Ef svo heldur fram sem horf-
ir má búast við því að einhvem tím-
ann á næstu öld verði hitastig orðið
þremur stigum hærra heldur en var
fyrr á þessari öld. Þá verður loftslag
hér orðið svipað því sem það er í
legt atferli eins og bmni jarðelds-
neytis hófst og hitastig fór hækk-
andi. En orsakirnar fyrir bráðnun
annars staðar em ekki alveg jafn-
augljósar. Breytingar á hafstraum-
um eða á þvi hvernig vatn fer und-
ir ísbreiðuna geta einnig átt þar
hlut að máli.
Hall, Conway og félagar þeirra
fóru í tugi ferða út á ísbreiðuna á
vesturhluta Suðurskautslandsins
til að mæla bráðnunarhraðann.
Þau leituðu að ýmsum vísbending-
um um hversu stór ísbreiðan hefur
verið í gegn um tíðina. Núna þekur
hún um 932 þúsund ferkílómetra.
Vísbendingarnar sem leitað var
vom meðal annars mörgæsaskitur.
Einnig var stuðst við ratsjármynd-
ir af yfirborðsisnum og ísnum niðri
við fast land.
Hall segist vona að rannsóknin
verði ekki vopn í höndum þeirra
sem gagnrýna kenninguna um
gróðurhúsaáhrifin.
„Þótt við segjum að núverandi
hopun ísbreiðunnar sé kannski
ekki af völdum gróðurhúsaáhrif-
anna þýðir það ekki að þau séu
ekki tÚ,“ segir Brenda Hall.
Vestur-Noregi og Skotlandi og má því
búast við t.d. góðum skilyrðum til
komræktar og skógræktar hér á
landi. Skuggahliðarnar em svo þær
að það hækkar í sjónum og af því get-
ur skapast stórhætta bæði hér á landi
og þó sérstaklega í þéttbýlum löndum
eins og t.d. í Indlandshafi og víðar,"
segir hann.
En hvað um spádóma um að
Golfstraumurinn muni ekki lengur
veita hita hingað upp eftir? „Ég segi
nú stundum að það sé bara slitinn
brandari. Auðvitað getur Golfstraum-
Gróöurhúsaáhrifin eiga ekki sök á öllu:
Ekki er hægt að kenna mannskepnunni um allt sem aflaga hefur farið í nátt-
úrunni. Þannig hefur hluti Suðurskautslandsins verið að bráðna í tíu þús-
und ár, án þess að gróðurhúsaáhrifin hafi átt nokkra sök þar á.
leiddi rannsóknina, segir að þó svo
að gróðurhúsaáhrif af mannavöld-
um flýti kannski fyrir ferlinu sé lít-
ið hægt að gera við því.
„Þetta virðist vera hluti náttúru-
legrar hringrásar," segir Conway.
Ljóst er að sums staðar hefur ís-
inn verið að bráðna frá því mann-
urinn breyst eitthvað en það er alls
ekkert, sýnist mér, sem bendir til
þess að hlýnandi veðurfar dragi úr
honum og hér muni kólna vegna
gróðurhúsaáhrifanna. Hitt er annað
mál að hér verða áfram sveiflur á
veðurfari vegna áhrifanna að norðan
sem geta ýmist unnið með eða á móti
gróðurhúsaáhrifunum,“ segir Páll að
lokum. -KJA
Afleiðingar gróðurhúsaáhrifanna fyrir fiskveiðarnar, aðalatvinnuveg íslendinga, eru óljósar en líklegt er að áhrifin
gætu orðið veruleg á lífríki sjávar hér við land og vfðar í heiminum.
Skýrsla umhverfisráðuneytis:
Áhrif á ísland mjög óljós
- nokkur hækkun hitastigs þó líkleg
Árið 1997 gaf
umhverfisráðu-
neytið út um-
fangsmikla
skýrslu sem bar
heitið „ísland og
loftslagsbreyt-
ingar af mannavöldum". Þar var
meðal annars velt upp þeirri spurn-
ingu hverjar afleiðingar gróður-
húsaáhrifanna gætu orðið hér á
landi.
Meginniðurstaða þeirra vanga-
veltna var að mjög erfitt væri að
koma með ákveðið svar. Sérstaklega
vegna þess að ísland liggur á haf-
svæði þar sem mætast kaldir og hlý-
ir haf- og loftstraumar og er í raun
bæði talið mögulegt að hitastig
lækki hér á landi og hækki. Lík-
legra er þó talið að um hækkun á
hitastigi verði að ræða þó flest
bendi til þess að hækkunin verði
minni hér á landi en víðast hvar
annars staðar.
Skipti máli fyrir fiskveiðar
í skýrslunni er litið nánar á af-
leiðingar gróðurhúsaáhrifanna á
einstaka þætti í náttúru íslands. Þar
kemur t.d. fram að allar breytingar
á hafstraumum og hitastigi sjávar
myndu hafa miklar afleiðingar á
alla grunnþætti sem hafa áhrif á
fiskveiðar, s.s. frumframleiðslu
(ljóstillifun þörunga) í hafinu, út-
breiðslu einstakra fiskistofna, fiski-
göngur og staðsetningu hrygningar-
stöðva. Eins og með flest annað sem
þessu viðkemur er hins vegar ekki
ljóst hverjar þessar afleiðingar ná-
kvæmlega yrðu.
Hvað hækkun sjávarborðs varðar
er bent á að hún sé nokkurt
áhyggjuefni fyrir íslendinga „enda
býr mikill meirihluti landsmanna
við ströndina eða skammt frá
henni. Hækkun sjávarborðs gæti
valdið töluverðum skaða vegna auk-
innar tíðni sjávarflóða og skemmda
sem þau gætu valdið á höfnum, veg-
um og öðrum mannvirkjum," segir í
skýrslunni.
Jákvætt fyrir landbúnað
Skilyrði til landbúnaðar og skóg-
ræktar hins vegar ættu að batna
hér á landi vegna gróðurhúsaáhrif-
anna svo framarlega sem þau leiði
til þess að hitastig muni hækka á
landinu. Meðal annars kom í ljós
við rannsóknir að hlýnun hér á
landi upp á 1,3 gráður gæti leitt til
16-19% aukningar á heyframleiðslu.
Þó má jafnframt búast við að aukn-
ing meðalhita á íslandi myndi verða
til þess að ýmsar plágur eins og
skordýr og plöntusjúkdómar myndu
Þar kemur t.d. fram að
allar breytingar á haf- /
straumum og hitastigi/
sjávar myndu hafa
miklar afleiðingar á
alla grunnþætti sem
hafa áhrifá fiskveiðar;
s.s. frumframleiðslu í
hafinu, útbreiðslu ein-
stakra fiskistofna,
fiskigöngur og stað-
setningu hrygningar-
stöðva.
færast í vöxt í landbúnaði.
Að lokum er svo bent á að gróður-
húsaáhrifin gætu leitt til þess að
möguleikar til raforkuframleiðslu
hér á landi myndu aukast vegna
bráðnunar jökla og aukins rennslis
í jökulám.
Hægt er að skoða þessa skýrslu
umhverfisráðuneytisins alla á
heimasíðu umhverfisráðuneytisins
sem hýst er á vef Stjómarráðsins,
http://www.stjr.is/
Samkvæmt
bandaríska jarð-
fræðingnum dr.
John Bratton er
mögulegt að
hækkandi hita-
stig andrúmslofts
jarðar muni leiða til þess að sjávar-
borð lækki og það jafnvel verulega.
Þetta er öfugt við það sem flestir hafa
haldið fram en það er að sjávarborð-
ið hækki vegna aukinnar bráðnunar
íss um heim allan.
Að mati dr. Bratton er
líklegast að þetta valdi
því að sjávarborð lækki
um einn og hálfan metra
en í allra versta falli gæti
þetta orðið til þess að
sjávarborðið lækkaði um
heila 25 metra.