Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1999, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1999, Page 7
FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999 7 Fréttir Nýtt tilkynningaskyldukerfi í öll skip fyrir áramót: Hefði flýtt björg un um helgina - sendir sjálfvirkt út staðsetningartölur með stuttu millibili í tveim skipsströndum um helg- ina kom vel í ljós hvað viðbragðs- flýtir getur skipt miklu máli við björgun sjómanna. í öðru tilfellinu mátti ekki miklu muna að illa færi, en með nýju tilkynningaskyldukerfi sem nú hefur verið lögleitt, hefði þó mátt bregðast mun fyrr við. Það var þó ekki til staðar í bátunum sem strönduðu. Það er reyndar einstakt í heiminum að slíkt kerfi sé gert að skyldu á öllum skipum. Við leit að Víkingi SU sem strandaði undir Barðanum um helg- ina, þá gat stjórnstöð í Reykjavík fylgst með öllum ferðum björgunar- skipsins Gunnars Friðrikssonar og var kort af siglingaferlinu reyndar sýnt í frétt um strandið í DV á mánudag. Slysavarnafélag íslands hefur barist mjög fyrir því að tekið yrði upp nýtt tilkynningaskyldukerfi fyrir öll skip í íslenska flotanum yfir sex metrum að lengd. Byggir kerfið á sjálfvirkum sendingum á staðarákvörðunum frá skipum til stjórnstöðvar Tilkynningaskyldunn- ar í Reykjavík. „Kerfið virkar þannig að ef boð hætta að berast, þá fer sjálfvirkt kerfi í gang sem kveikir á ákveðnu ferli til að leita að viðkomandi skipi. Þá er líka neyðarhnappur um borð í skipinu sem ekki þarf ann- að en slá á til að senda út neyðar- kall. Um leið heyra skip á svæð- inu neyðarkallið um kerfið hjá sér. Þá getum við ráð- ið tíðni sending- anna frá skipun- um og í slæmum veðrum getum við aukið tíðnina niður í fárra sek- úndna millibil og fylgst þannig ná- •Víkingur strandaði sunnudaginn 17. okt. .sl. -rr. - Garðar strandaöi á laugardagskvöldið 16. pJsL'áí'. 'j ^ $ Ji, - jsm Bolungarvík Flateyrl Víkings i ndstaöur virkan tilkynn- ingaskyldubúnað um næstu áramót. Eftir það fá þau ekki fullgild haf- færnisskírteini nema hafa búnað- inn um borð. Hann segir að vel gangi að koma búnaðinum í skipaflotann en um 350 skip eru þegar komin með hann. Þar bætist um 50 skip við í hverri viku, en rík- ið borgar hluta af hverju tæki og kostar búnaðurinn um borð í skip án vsk. um 95.000 krónur. Hann samanstendur af GPS leiðréttingar- búnaði og sendum. -HKr. Hrunakirkja: Skirt upp úr heitu Eiríkur Jóhannsson, sóknar- prestur í Hrunakirkju í Hruna- mannahreppi, skírir börn upp úr volgu vatni og telur það gef- ast betur og trufla síður athafn- ir en ef kalt vatn er notað. „Það er ómögulegt að vera með ískalt vatn í skírnar- fontinum því börnin eru yfir- leitt hárlítil og hrökkva við þegar því er stökkt á þau,“ sagði séra Eiríkur sem er orð- inn þekktur i sveitinni fyrir að vera með grátlausar skirnarat- hafnir. Heyrir til undantekn- inga að börn gráti við skírnar- fontinn í Hrunakirkju og þakk- ar séra Eiríkur það volga vatn- inu. „Ég tek þetta bara úr kran- anum og hef vel volgt,“ sagði séra Eirikur og minnti á að ís- lendingar hefðu neitað að láta skíra sig nema í heitum laug- um árið 1000 þegar kristni var lögtekin á Alþingi. „Menn settu kalda vatnið fyrir sig þá og ekki að ástæðulausu," sagði séra Eiríkur í Hruna. -EIR Helgarferð Þetta kort sýnir feril björgunarskipsins Gunnars Friðrikssonar við leitina að Víkingi SU. Ferillinn var skráður með sjálfvirkum tilkynningaskyldubúnaði skipsins. Magnús- kvæmlega með hvar skip er statt metra fyrir metra", segir Þór Magn- ússon hjá SVFÍ. „Þetta er að okkar viti gífurlega mikið öryggistæki og er gjörbylting í öryggismálum sjómanna. Við erum fyrsta þjóðin í heiminum sem gerum slíkt kerfi að skyldu sem ör- yggisbúnað í skipum. Þó hægt sé að fylgjast nákvæm- lega með ferli skipa, þá er það alveg tryggt að það fá engir aðgang að þeim upplýsingum nema Tilkynn- ingaskyldan og verið er að vinna að nánari reglum á meðferð gagna,“ segir Þór Magnússon. Samkvæmt kerfinu sem notað er í dag, er það skylda sjófarenda að tilkynna sig þegar látið er úr höfn og síðan tvisvar á sólarhring og aft- ur þegar komið er í höfn. Eins og dæmin sanna geta þó liðið nokkrir klukkutímar frá því bátur tilkynnir sig þar til farið er að óttast um ferð- ir hans. Eiríkur Þorbjörnsson, verkefnis- stjóri SVFÍ nýja kerfisins, segir að samkvæmt nýjum lögum eiga öll skip sex metrar og stærri í íslenska flotanum að vera komin með sjálf- Úthlutun byggöakvóta: Sæunn Axels í mál - ef ekki hefur veriö farið að reglum „Ég er að láta kanna rétt minn gagnvart Byggðastofnun og hvort á okkur hefur verið brotið varðandi úthlutun byggðakvóta," sagði Sæ- unn Axelsdóttir, útgerðarmaður í Ólafsfirði, við DV. Fyrirtæki Sæ- unnar fékk ekki „eitt einasta kiló“ við síðustu úthlutun. „Ólafsfjörður er kvótalaust byggð- arlag," sagði Sæunn. „Bæjarfélagið byggir að mestu á fiskverkun. Við keyptum 270 tonna kvótalausan bát um áramótin. Við sóttum um byggðakvóta strax eftir áramót. Þeir hjá Byggðastofnun virðast hafa ver- ið búnir að ákveða hvað þeir myndu gera en ég efast um að það séu til lög fyrir því sem þeir gerðu. Það erum við að láta kanna og förum beint í mál ef svo reynist ekki hafa verið.“ -JSS London 5. nóvember 24.990,- Heimsferðir kynna nú einstakt tilboð til heimsborgarinnar London þann 5. nóvember. Flug, flugvallarskattar og hótelgisting í 2 nætur á hreint ffábærum kjörum.Hvergi i Evrópu er jafnmikið um að vera í listum og menningarlífi og hjá Heimsferðum getur þú valið um gott úrval hótela. Verð kr. 13.890.- Flugsæti með flugvallarsköttum, I. nóv., 8. nóv., 15. nóv. Gildir frá mánudegi til fimmtudags. Verð kr. 24.990. Flug og gisting á Bayswater -hótelinu í London með morgunmat. Flugvallarskattar innifaldir. 5. nóvember, 2 nætur. HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð, 562 4600, www.heimsferdir.is UifiJR ■°li Nöfn allra þeirra sem kaupa SHARR Pioneer AEG tæki eða aðrar vörur fyrirað lágmarki 10.000 kr., frá Bræðrunum Ormsson, eða hjá umboðsmönnum, komast í lukkupott sem dregið verður úr í desember næstkomandi. Verðlaunin eru ekki af verri endanum O Þrír farseðlar á leik Manchester United í Manchester I byrjun næsta árs. (Innifalið: Flug, gisting, morgunverður og miðar á leikinn). O 2 flugmiðar til Akureyrar með íslandsflugi og gistinótt á Fosshótel KEA O 5 stk. Game Boy Color O 10 SHARP-bolir ö 100 stk. Nintendo Mini Classics Alls eru 120 vinningar í Lukku-pottinum. Þú kaupir SHARP, PIONEER, AEG tæki eða aðrar vörur að verðmæti 10.000 kr., á tímabilinu sept.-des. og ferð í Lukku-pottinn (fyllir út miða með nafni og heimilisfangi). Gildir hjá Bræðrunum Ormsson og hjá öllum umboðsmönnum. ma.Cop<o TEFAL OYflMflHfl Jamo CDinoesiT FINLUX Nikon LOEWt. BEKO (níFí OLYMPUS Igl NINTENDO.64 GAMEBOY __ Manchester United - sameiginleg sigurganga frá 1982 ■ SHARP hetur mld aöalstrrktanðili Uancester Unitad tri 1982

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.