Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1999, Qupperneq 19
FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999
23
Fréttir
Trúnaður um sjúkraskrár nær út yfir gröf og dauða:
Aðgengi er aldrei leyft
- nema sjúklingur leyfi eða sérstaklega rökstutt tilefni sé til þess, segir Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir
Matthías Halldórsson aðstoðar-
landlæknir segir að til að komast í
sjúkraskrár á Heilsuverndarstöð-
inni í Reykjavík hafi þurft ansi
einbeittan brotavilja. Einhver gjör-
kunnugur hljóti að hafa látið sjón-
varpsstöðina vita.
Matthías segir að í lögum standi
ekkert um hver eigi sjúkraskrárn-
ar en hins vegar sé tekið fram að
þær eigi að vera í vörslu þess aðila
sem færir þær og forstöðumaður
beri ábyrgð á geymslu þeirra. Þar
er um að ræða viðkomandi heilsu-
gæslustöð, sjúkrahús eða einka-
stofnanir. Hann segir að eftir
ákveðinn áraijölda endi þær í læst-
um hirslum á Þjóðskjalasafni ís-
lands'. í millitíðinni fara sumar
sjúkraskrár í geymslu hjá héraðs-
lækninum í Reykjavík, á Heilsu-
verndarstöðinni, m.a. í þeim tilfell-
um að læknir lætur af störfum eða
fellur frá og enginn tekur við af
honum.
„Aðgengi að þessum skrám er
aldrei leyft nema með samþykki
sjúklings. Á Þjóðskjalasafni eru
skrárnar í lokuð-
um hirslum.
Fullum trúnaði
er haldið jafnvel
löngu eftir að
sjúklingur er lát-
inn. Hægt er að
sækja um leyfi til
landlæknis til að
skoða skrár
Matthías Hall- ™gna rannsókn-
dórsson aðstoð- arvinnu ef Þess
arlandlæknir er Þörf en Þó má
aldrei birta neitt
er tengst getur sjúklingnum. Ætt-
ingjar mega heldur ekki skoða
sjúkraskrár nema sérstaklega rök-
stutt tilefni sé til þess.
Varðandi atvikið þegar Stöð 2
komst í sjúkraskrár á Heilsuvernd-
arstöðinni í Reykjavík sagði Matth-
ías að þar hafi verið um að ræða
gamlar berklaskýrslur og röntgen-
myndir.
„Það þarf ansi einbeittan brota-
vilja til að komast að þessum
sjúkraskrám. Það var verið að
gera við skolpleiðslur og því var
ekki læst eins og venja er til.
Þarna hlýtur einhver gjörkunnug-
ur að hafa látið sjónvarpsstöðina
vita. Til að komast að þessu þarf
að fara niður í djúpar kjallara-'
tröppur, inn þröngar dyr og um
töluverða rangala að næstu hurð.
Þó það hafi ekki verið læst þá seg-
ir það ekki að mönnum hafi verið
heimilt að fara þarna inn,“ segir
Matthías Halldórsson sem telur
þetta atvik þó út af fyrir sig vera
þarfa áminningu.
-HKr.
Græna smiðjan með námskeið:
Huga að jólaskreytingum
Rúmir tveir mánuðir eru til jóla
og fyrirhyggjusömu húsmæðurnar
eru byrjaðar að huga að stórhátíð-
inni. Margt er grænt í Hveragerði
en nú fer að roðna og gulna og þar
með fækkar grænu litunum. Grænt
framboð er ekki í Hveragerði og
Grænu höndinni, gróðurhúsi og
veitingasölu, hefur verið lokað. En
Græna smiðjan, sem er í senn hand-
verkstæði og verslun með íslenska
muni, er opin daglega og í fullum
gangi. í Grænu smiðjunni, sem er í
eigu Kristínar Bjamadóttir textíl-
hönnuðar, er sitthvað til sölu og allt
alíslenskt, hvaðanæva af landinu.
Meðal annars eru seld bamaleik-
fóng úr tré, ýmsir handunnir skart-
gripir, til dæmis úr fiskbeinum og
tré, íslenskar unaðsoliur og íslensk
telauf úr villijurtum. Eitt verkefni
Kristínar er námskeiðahald á haust-
mánuðum. Þar nýtur hún aðstoðar
Hrannar Waltersdóttur leirlista-
manns og Sigurbjartar Gunnars-
dóttur glerlistamanns. Um er að
ræða gerð ýmissa muna og leið-
beina þær þrjár hver á sínu sviði.
Fyrir skömmu var haldið fyrsta
námskeiðið og var kátt á hjalla hjá
þeim sem það sóttu. Hvert nám-
skeið er einstakt og eru þau opin
ölium. Námskeiðin verða haldin á
hverju fimmtudagskvöldi fram að
jólum. - eh
Byggðasafnið í Görðum:
Safnahús fyrir
steina, landakort
og fótboita
DV, Akranesi:
Bæjaryflrvöld á Akranesi vilja að
kannað verði hvort fýsilegt sé að
byggja við Byggðasafnið í Görðum á
Akranesi og koma þar fyrir Steina-
ríki Islands, Safni Landmælinga ís-
lands og íþrótta- og knattspyr-
numinjasafni. Tillaga þess efnis var
samþykkt í bæjarráði Akraness og
bæjarstjóm Akraness.
Bæjarstjórn segir að fyrir liggi
skipulagt byggingasvæði að Görð-
um fyrir byggðasafnið og líta verði
svo á að viðurkenning liggi einnig
fyrir um þátttöku ríkisins í upp-
byggingu safnsins í samræmi við
ákvæði laga þar um.
Beinir bæjarráð Akraness því til
stjórnar Byggðasafns Akraness og
nærsveita að kanna hvort með hag-
kvæmum hætti megi auka húsakost
safnsins. Skoðað verði einnig meö
hvaða hætti megi fjármagna verk-
efhið og fá framlög á íjárlögum til
þess. -DVÓ
Ævintýraleikritið Gleym-mér ei og Ljóni Kóngsson verður frumsýnt í Iðnó
næstkomandi laugardag. Kjartan Guðjónsson, Linda Ásgeirsdóttir og Agn-
ar Jón Egilsson voru gripin glóðvolg á æfingu í fyrradag. DV-mynd Teitur
Ungur sonur Kristínar í Grænu smiðjunni á námskeiðinu.
Caradon Henrad
Miðstöðvar
ofnar
• Afkastamiklir
ofnar á mjög
hagstæðu verði
• Vottað af R.B
• 5 ára ábyrgð
• Allt til jtípulagna
HUSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is