Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1999, Page 23
FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999
27 4
Fréttir
Sambandsþing UMFÍ I Tálknafirði undirbýr stórmót:
Hátt á fjóröa þúsund
erlendir keppendur
DV.Tálknaiirði:
41. Sambandsþing Ungmennafé-
lag íslands var haldið á Tálknafirði
16.-17. október sl.
Mættir voru um 85 manns; full-
trúar og gestir. í ávarpi formanns,
Þóris Jónssonar, í upphafi þings
leiddi hann hugann að þeim tima-
mótum sem í vændum eru um
næstu áramót hvort sem aldamót
eru þá eða ekki. UMFÍ hefur starfað
frá 1907 og ljóst að nokkrar áherslu-
breytingar hafa orðið innan hreyf-
ingarinnar á liðnum áratugum. Þó
er ljóst að flest þau baráttumál sem
sett voru á oddinn fyrir tæpum
hundrað árum eiga enn í dag fúllt
erindi til íslensku þjóðarinnar, m.a.
umhverfismál og hin fjölbreytta
menningarstarfsemi ungmennafé-
laganna víðs vegar um land.
Mörg og krefjandi verkefni eru
fram undan hjá ungmennafélags-
hreyfingunni. Á næsta ári verður
norrænt menningarmót hér á landi
í tengslum við Reykjavik, menning-
arborg Evrópu árið 2000. Mótið er
haldið á vegum NSU, sem UMFÍ
veitir nú forystu og er von á að
hingað komi á fjórða þúsund er-
lendra þátttakenda auk íslenskra.
Fjórða Unglingalandsmót UMFÍ
verður haldið á Tálknafirði og Vest-
urbyggð um verslunarmannahelg-
ina árið 2000 og er þetta í fyrsta
skipti sem stórmót á vegum UMFÍ
er haldið á Vestfjörðum. Héraðs-
sambandið Hrafnaflóki hefur veg og
vanda af því móti. Árið 2001 verður
23. Landsmót UMFÍ haldið á Egils-
stöðum og er undirbúningur þar
komin á fullan skrið.
í lok ávarps lýsti formaður þeirri
skoðun sinni og ósk að ungmennafé-
lagshreyfingin ætti eftir að vaxa og
dafna um ókomna tíð og farið yrði
að huga að aldarafmæli UMFÍ árið
2007.
Kristinn H. Gunnarsson alþingis-
maður ávarpaði þingið og lýsti
ánægju sinni með að UMFÍ héldi
þing sitt hér á Vestfjörðum og
hvatti stjómendur sem og hinn al-
Vitabrautin skapaði
mikla atvinnu
DV, Hómavlk:
Miklar framkvæmdir hafa staðið
yfir i gatnagerð á Hólmavík síðan
fyrir mitt sumar og fer senn að sjá
fyrir endann á því sem lokið verður
við áður en vetur gengur í garð. Tek-
in var fyrir Vitabrautin með tengi-
vegum við Hafnarbraut ásamt bíla-
stæði við grunnskólann, um 3.600
fermetrar. Miklir efnisflutningar
áttu sér stað og komið var niður
regnvatnslögn til að taka við rennsli,
ekki síst úr holtum og hæðum ofan
byggðarinnar. Á næsta sumri verður
gengið frá gangstéttum og bundið
slitlag lagt. Miklar framkvæmdir
hafa verið á þessu svæði frá vordög-
um og nánast hver hönd og hvert
vinnutæki haft næg verkefni og útlit
er fyrir að svo verði enn um sinn og
í undirbúningi eru miklar bygging-
arframkvæmdir á Hólmavík sem
gerð verður grein fyrir síðar. -GF
menna félagsmann til dáða. Einnig
ávöii)uðu þingið Hafsteinn Pálsson
frá ÍSÍ og Jón Þórðarson frá Vestur-
byggð. Fyrir þinginu lágu margvís-
leg málefni ásamt hefðbundnum
verkefnum sambandsþings ásamt
stjórnarkosningu.
Ný stjóm UMFÍ er svo skipuð,
Þórir Jónsson var endurkjörinn for-
maður og aðrir í stjóm em Kristín
Gísladóttir, Kristján Ingvason,
Helga Guðjónsdóttir, Björn B. Jón-
son, Anna R. Möller og Sigurbjörn
Gunnarsson, og varamenn eru Sig-
urður Aðalsteinsson, Jóhann Ólafs-
son, Kjartan Einarsson og Helga
Jónsdóttir.
í lokin þakkaði formaður þing-
fulltrúum fyrir starfssamt og gott
þing ásamt því að færa heimamönn-
um þakkir fyrir móttökumar.
-KA
Margir trassa
bílaskoðun
Lögreglan í Kópavogi hefur
sektað fjölda eigenda óskoðaðra
bila að undanfornu. Þegar eigend-
ur bifreiða hafa ekki farið með bif-
reið sína í skoðun á tilsettum tíma
mega þeir eiga von á 8000 króna
sekt fyrir aðalskoðun en 4000
króna sekt ef um endurskoðun er
að ræða. Eigendur hafa þá viku-
frest eftir að bifreiðin hefur verið
merkt af lögreglu tU skoðunar en
eftir það eru númerin klippt af
Taka aö sér fréttaflutning fyrir RÚV:
Ekki minnkar hrepparígurinn
henni. Það er síðasti tölustafurinn
á númerinu sem gefur tU kynna
hvenær á árinu bUlinn skal vera
skoðaður. Þó má fara sex mánuð-
um fyrr og gefinn er frestur til
þriggja mánaða frá síðasta tölustaf
númers. Miðað er við áramót og
geta þessi lög því verið ósanngjörn
í þeim tUfeUum sem númerið end-
ar á núUi en þá hefur eigandi þijá
mánuði en ekki mánuðina á árinu
á undan. -hól
Búmenn vilja byggja á Króknum
Byggingarfélagið Búmenn, félag um
nýjar leiðir í húsnæðismálum eldra
fólks, hefur sótt tU íbúðalánasjóðs um
framkvæmdalán vegna 12 íbúða á
Sauðárkróki. Félagið áætlar að byggja
íbúðirnar á skipulögðu svæði vestan
Sjúkrahúss Skagfirðinga. Á næstunni
verður boðað tU stofnunar Skagafjarð-
ardeildar Búmanna, að sögn Reynis
Ingibjartssonar framkvæmdastjóra,
en Búmenn hófu á dögunum að byggja
á Akureyri og félagið er einnig byrjað
að byggja hús í Kópavogi, í Bessa-
staðahreppi á Álftanesi.
í undirbúningsnefnd fyrir stofnun
Skagafjarðardeildar Búmanna eru
þeir Þórður Eyjólfsson, Kári Þor-
steinsson og Trausti Pálsson, en þeir
ásamt þremur öðrum aðUum eru
ákveðnir i að byggja á Sauðárhæðum
vestan við Sjúkrahúsið þar sem skipu-
lagt svæði er fyrir 32 íbúðir. Stjóm
Búmanna fundaði með hóp heima-
manna í Skagafirði á dögunum. Af
sveitarfélagsins hálfu er ákveðið að
ráðist verði í framkvæmdir á svæðinu
nú í haust, þannig að það verði bygg-
ingarhæft næsta vor. Verkið verður
boðið út á næstunni, en áætlað er að
byggingarframkvæmdir hefiist á
svæðinu í aprílmánuði næsta vor.
Reynir Ingibjartsson, framkvæmda-
stjóri Búmanna, á ekki von á öðru en
íbúðalánasjóður verði við þessum um-
sóknum, en óskir hafi borist tU Bú-
manna úr mörgum sveitarfélögum um
samvinnu við eldri borgara um bygg-
ingu íbúða. Sótt hefur verið um lán tU
bygginga í 16 sveitarfélögum. Búmenn
er félag ætlað fólki 50 ára og eldri, en
Reynir segir að yngra fólk geti sótt
um inngöngu í félagið tU að fá þá fyrr
íbúðarétt. Byggt er eftir leiguíbúða-
kerfi þar sem fólk kaupir íbúðarétt,
10-30% eftir þörfum kaupendanna.
Áætlað er að fermetrinn i íbúðunum
sem Búmenn byggja muni kosta um
100 þúsund krónur. -ÞÁ
DV, Vesturlandi:
Ríkisútvarpið og Skessuhorn hafa
gert með sér samkomulag um frétta-
flutning af Vesturlandi. Fréttamenn
Skessuhoms munu framvegis flytja
fréttir úr öllum landsfiórðungnum.
Rikisútvarpið hefur komið upp hljóð-
stofu í Borgamesi þannig að allar
fréttir af Vesturlandi verða unnar og
fluttar frá Borgamesi. Hingað til hef-
ur RÚV verið með fréttaritara í Borg-
amesi, á Akranesi og í Grundarfírði.
Þannig að gamli hrepparígurinn held-
ur áfram, Borgnesingar berjast alltaf
við Akumesinga um að fá sína sneið
af hverri köku.
-DVÓ \
* leit.is
íslenska leitarvélin á Netinu
'E
Óvenjuleg afmælisskreyting á Seltjarnarnesinu. Ungir menn gera sér sitt
hvað til gamans.
Höddi 20 ára:
Kannski full-
langt ekið
Hei, er þetta nú ekki fulllangt
gengið, gæti bílstjórinn á gamla
japanska bílnum verið að segja,
kominn hálfur út með hausinn,
þegar jeppinn ekur upp á hann.
Skýring: í stað þess að hengja
mislitar blöðrur eða skrautborða
uppi í tré eins og títt er þegar
ungt fólk á afmæli fitjuðu ungir
Seltirningar upp á annars konar
skreytingu sem sést á þessari
mynd. Afmælisgestirnir hans
Hödda, Harðar Smára Sigurðsson-
ar, ráku upp stór augu þegar þeir
sáu þessa afmælisskreytingu í
hlaðinu á Melabraut 6. Þar sat
jeppinn hans Hödda uppi á gömlu
bílhræi eins og hani á haug. Ekki
voru frekari uppákomur í þessu
fyrsta verulega stóra afmæli unga
mannsins, 20 ára afmælinu, en
allt fór fram eins og best varð á
kosið.
LAGER ÚTSALA
Fulla ferð á útsöluna... *’
EVRÓ
c
Borgartún 22
105 Reykjavík sími: 551 1414