Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1999, Síða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1999, Síða 41
LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 53 Aldamótaveisla með stæl: Seldist upp án auglýsinga - tíu rátta matseðill á 32 þúsund á mann íslendingar eru greinilega reiðu- búnir að halda upp á aldamótin með stæl hvenær sem þau kunna að vera. Þegar Radisson SAS Hótel Saga setti saman 10 rétta veisluseð- il á gamlárskvöld og nýárskvöld seldist upp í báðar veislumar án þess að þyrfti að auglýsa. Samt kost- ar veislan 32 þúsund krónur á mann. „Þetta eru að mestu leyti fasta- gestir okkar héma i Grillinu. Þá á ég við fólk sem borðar héma nokkram sinnum á ári og hefur oft borðað hér á gamlárskvöld,“ sagði Hanna María Jónsdóttir markaðs- stjóri í samtali við DV. 90 matar- gestir rúmast í Grillinu hvort kvöld, samtals 180 manns. Veislumar fara þannig fram að tekið verður á móti gestunum með fordrykk kl. 19.00 en borðhaldið hefst kl. 20.00. Rétt fyrir miðnætti verður sérstök Qugeldasýning fyrir gestina en útsýni frá áttundu hæð- inni er afar gott. Eftir miðnætti gefst gestum kostur á að fara á dansleik í Súlnasal og hver gestur fær gjöf frá Grillinu til minja um kvöldið. „Það verður ekkert hér í boði sem hægt væri að hafa betra, ekkert verður næstbest," sagði Paul Hend- rik Remmer, veitingastjóri Radis- son SAS hótelanna í Reykjavík. Matur, umgjörð og andrúmsloft verður fyrir fagurkera. Radisson SAS Hótel Saga heitir enn í vitund þjóðarinnar Hótel Saga en upphaflega gekk húsið undir nafninu Bændahöllin enda reist af samtökum bænda og búnaðarsam- banda til að skjóta þaki yfir höfuð bænda í kaupstaðarferðum. Grillið var opnað í ársbyrjun 1963 og var ffá upphafi ætlað það hlutverk að vera veitingastaður í fremstu röð. Staðurinn hefur alltaf haldið fast í þetta markmið sitt og hvergi hvikað þótt tíðarandinn hafi sveiflast til. Innréttingar í Grillinu eru enn með sama sniði og þær voru árið 1963 og Þeir bera ábyrgð á áramótaveislunni á Radisson SAS Hótei Sögu: Paul Henrik Remmer veitingastjóri, Agnar Sverr- isson, yfirmatreiðslumaður í Grillinu og Hendrik Björn Hermannsson yfirþjónn í Grillinu. bera tísku síns tima vitni. Hins veg- ar hefur viðhorf manna farið í heil- an hring og sennilega þykir dýra- hringurinn í loftinu heldur flottari nú en þá, sérstaklega vegna þess að hann er upprunalegur. -PÁÁ Matseðillinn Canapé Veuve Clicquot Ponsardin Ostrur og kampavín Tattinger Brut Humar með krabbaravioli og tómatconfit Chablis Premier Cru „Fourchaume" 1996 Gæsaliffarterrine Gewurztraminer Seign de Ribeupierre 1983 Steikt hörpuskel með smokkfiskörmum og bleksósu Chablis Premier Cru „Fourchaume" 1996 Villisveppaseyði með trufflum Sancerre 1998 Hreindýrahryggur með steinseljurót og ætiþistlagratíni Cðte Rotie 1994 Hvítt súkkulaði með kókosffoðu Fonseca 20 ára Dessert anno 2000 Fonseca 20 ára Kaffi, koníak og líkjör Petits fours Fagurlega skreyttir diskar með girnilegum réttum gera að verkum að veislan er einnig fyrir augað en ekki bara bragð- laukana. Á miðnætti skálað í Bollinger kampavíni . Lyftu upp tilverunni Lyftidýnurnar frá Húsgagnahöllinni eru góð lausn til að fullkomna hvíldina. Þær aðlaga sig að þínum þörfum. Þú getur stillt höfða- og fótalag að eigin ósk, þannig að líkaminn hvílist og endurnærist. Njóttu lífsins útsofin og hvíld. HUSGAGNAHOLUN IDEGRAND LYFTIDÝNA Lúxusdýna moð einstaka eiginleika. Bólstraðui hækkan- legur botn. Ralstýrð stilling við höfða* og ♦ótalag. 1390 x 1.700 sin, m Pocketljaðrir á lennotra, Dynunni má snOn.víð. Slerkt, vatt stungið áklatðl sem h.»Mjt er át) l>vo við 60 Moiðaþ.ylirdýna og dynuhemlll fylgja. Silni II) 8000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.