Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1999, Blaðsíða 22
22
MÁNUDAGUR 1. NÓVEMBER 1999
Fréttir
DV
Náðu forskoti í viðskiptum á Vísi.is
(viðsláptm m flsuásyflleft að imð m tm𠧧 Wutifflif mu að §mm.-
Á Vtet.-ís m að fma liimði tíffífjötim m viðski&alifið, tí§0ý§ifi§af af V§fð&féta&fi§i
visir.is
Notaðu vísifingurinn!
(slaflf§ m mfistðk fátö§ auk flýjusttí frétta óf (tsmti fiáfmáte §§ wástefrtS:
Ví§if:i§ mtí tjélt§ffltí§ttí t'steflsfrtí §stflsfflétífl á ttefifltí þar §sm &á mf í ösifití
smöafidi viá viá§l#t§IM-
Taktu púlsinn
á viöskiptalífinu!
Aflakló jafnt á láði sem legi:
Kom heim með
87 rjúpur
- sem er besti dagsárangur ársins en fjarri íslandsmeti
Skipstjórinn á togaranum Gull-
veri náði besta rjúpnaveiðiárangri
vertíðarinnar á miðvikudaginn þeg-
ar hann veiddi 83 rjúpur á Fjarðar-
heiði. Daginn eftir fékk hann 32 og
hafði þá veitt 115 rjúpur á tveim
dögum. Þetta er fjarri því að vera ís-
landsmet. Það er trúlega í höndum
Indriða bónda Aðalsteinssonar í
Skjaldfönn við ísafjarðardjúp, 201
rjúpa eftir daginn.
Axel skipsljóri var ánægður með
fenginn og var ófáanlegur til að vísa
á veiðilendur sínar sem hann
hyggst heimsækja á næstu dögum.
Hann þurfti að fara tvær ferðir með
fenginn til bils síns sem var á næstu
grösum.
„Ég hef oft komið heim með yfir
hundrað rjúpur en þessi veiði hjá
Axel er áreiðanlega mesta dagveið-
in til þessa, sjálfur hef ég lítið Axel Ágústsson, skipstjóri á Gull-
veitt,“ sagði Indriði í Skjaldfönn í veri - 83 rjúpur á einum degi.
gær. -JBP DV-mynd JJ
Eigum til afgreiðslu ^
nýja rennibekki
TOS-SN-40-C
TOS-SN-50-C
TOS-SN-500-S með 77mm gegnumborun
CNC-Hálfsjálfvirkan rennibekk o.fl.
mwÉM&R afo Einkaumboð (yrir TOS járnsmíöavéiar
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri fær listaverk að gjöf:
Hrafn og plógur
DV, Vestnrlandi:
Nýlega var Landbúnaðarháskól-
anum á Hvanneyri afhent listaverk-
ið „Hrafn og plógur" eftir Magnús
Tómasson. Gjöfin er lokamynd
frumgerðar þeirrar sem skólinn
fékk gefna á 50 ára afmæli búvís-
indadeildar í september 1997. Gef-
endur eru búnaðarsamböndin í
landinu ásamt allmörgum fyrirtækj-
um og stofnunum sem tengjast ís-
lenskum landbúnaði.
-DVÓ
Ágreiningur er kominn upp um kjördæmamál á Hornafirði:
Meirihluti vill Suður en
bæjarstjóri Norðaustur
- samkvæmt óformlegri skoðanakönnun framhaldsskólanemenda
Nokkur ágreiningur er kominn
upp á Höfn í Hornafirði um í hvaða
kjördæmi bæjarfélagið eigi að verða
árið 2003. Bæjarstjórn boðaði til
málþings um málið í fyrrakvöld þar
sem kynntar voru niðurstöður
óformlegrar skoðanakönnunar sem
nemendur í framhaldsskólanum
gerðu. Voru þær á öndverðum
meiði við skoðanir margra, þ. á m.
bæjarstjórans.
„Skoðanakönnunin var nú reynd-
ar gerð með óformlegum hætti á
klukkutíma og telst því ekki vís-
indaleg. Það var hringt í fólk, farið
á vinnustaði við aðalgötuna og fólk
spurt á fömum vegi. Þau náðu samt
að spyrja 116 manns og vildu 73 fara
í Suðurkjördæmið en 29 í Norðaust-
urkjördæmið. Aðrir vora óákveðnir
eða neituðu aö svara. Niðurstaðan
er svipuð og margir reiknuðu með
og er hún nokkuð afgerandi, með
öllum fyrirvörum þó,“ segir Eyjólf-
ur Guðmundsson, skólameistari og
bæjarfulltrúi.
„Fólkið í bænum virðist vilja fara
í Suðurkjördæmið en þangað sækir
það mest af sinni meiri háttar þjón-
ustu. Ég vil hins vegar að ákvarðan-
ir um þetta verði teknar út frá rétt-
um forsendum, þ.e. út frá sveitarfé-
lagaforsendum, forsendum varðandi
byggðasjónarmið og atvinnuupp-
byggingu. Það eru þau sjónarmið
sem þarf að hafa uppi til að geta tek-
ið einhverja vitræna ákvörðun
vegna þess að við það að taka
ákvörðun um að velja Norðaustur-
kjördæmið er ekki þar með sagt ver-
ið að byggja einhverja múra suður á
bóginn. Ég held að við verðum að
horfa á þetta til dæmis þannig að ef
við verðum í Norðausturkjördæmi
getum við miklu frekar lagt lóð á
vogarskálarnar um að fá bættar
samgöngur austur eftir en það hafa
menn verið að horfa á að við þurf-
um á að halda. Við þurfum ekki
bættar samgöngur suður. Það er
mín skoðun og þar af leiðandi tel ég
að það sé betra fyrir sveitarfélagið
sem slíkt að vera i Norðausturkjör-
dæmi,“ segir Garðar Jónsson bæjar-
stjóri.
„Bæjarstjómin mun núna fjalla
um þetta mál og hvemig málþingið
tókst og hún mun ákveða næstu
skref. Ég get svo sem ekkert tjáð
mig fyrir hönd bæjarstjómar enda
hefur hún ekki ákveðið neitt þannig
að það verður bara að koma í ljós.
En næstu skref verða ráðin í bæjar-
stjórn.“ -hdm
Viðskiptavefurinn
I_I I_I
□DLO
Nýjustu viðskiptafréttir
Gengi hlutabréfa
Tilkynningar af Verðbréfaþingi
Stöðugar upplýsingar af mörkuðum
Arsreiknmgar iyririækja
Gcngi gjaldmiðla
■
Mestu hækkanir
Mestu lækkanir
Peningamarkaður
Húsbréf
Skuldabréf
Ríkísskuldabréf
átWW-Wffe- 'v'W’'' 7'
■.........