Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1999, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1999, Blaðsíða 29
ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1999 37 Verk á sýningunni Grafík f mynd. Grafík í mynd Grafík í mynd er sýning á verk- um innlendra og erlendra lista- manna á Kjarvalsstöðum sem opn- uð var um helgina. Á sýningunni eru verk grafíklistamanna auk lista- manna sem þekktari eru fýrir að nota aðra miðla en hafa þó nýtt sér tækni grafíklistar. Hluti sýningar- innar eru verk frá fyrri öldum sem varpa ljósi á hefðbundnar hug- myndir um miðilinn og dregur fram þær breytingar sem orðið hafa á hugmyndum listamanna um lögmál grafíklistar. Þannig skapast mót- vægi við söguna með hughrifum og tækni samtímans. Sögulegi hluti sýningarinnar kemur frá Listasafninu í Bergen og eru öll verkin------—--------- eftir listamenn ^ÝllÍll&ðr sem sett hafa J ð svip sinn á listasöguna, þar á meðal má nefna menn eins og Rembrandt, Goya, Gauguin, Chagall og Manet. Nýju verkin á sýningunni eru ýmist unnin eftir hefðbundnum leiðum eða teygja mörk miðilsins út á ystu nöf og beita til þess nútímatækni. íslensku listamennimir sem eiga verk á sýningunni eru Aðalheiður Valgeirsdóttir, Anna Líndal, Bene- dikt G. Kristþórsson, Guðmundur Á. Siguijónsson, Guðný B. Guðjóns- dóttir, Halldór Ásgeirsson, Ingibjörg Jóhannsdóttir, Kristinn E. Hrafns- son, Kristján Steingrímur, Magda- lena M. Kjartansdóttir, Sigrid Valt- ingojer og Valgerður Hauksdóttir. Erlendu gestimir em Karen Dugas, Christoph Gerling, Geert Opsomer og Annu Vertanen. Sólveig Ásgeirsdóttir á stofu sinni að Langholtsvegi 165. Hefur störf sem kírópraktor Sólveigu Ásgeirsdóttir hefur verið veitt leyfisbréf útgefið af heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytinu, til að starfa sem hnykk- ir/kírópraktor hér á landi. Hefur hún opnað stofu að Langholtsvegi 165. Starfssvið kírópraktora felst að- allega í greiningu og meðferð á kvillum í stoðkerfi líkamans, svo sem háls-, herða-, höfuð- og mjó- baksverkj- _______________ veig stund- Tilkyniiingar aði nám í----------------- kírópraktík í Bournemouth, Englandi 1987 til 1991 og útskrifað- ust með Bachelor of Science 1991 og ári síðar útskrifaðist hún svo með Diploma in Chiropractic. Sólveig starfaði sem kírópraktor á Englandi á árunum 1991-1997. Menningarkvöld í Klébergsskóla í kvöld stendur unglingadeild Klébergsskóla fyrir menningakvöldi í tilefni útgáfu ljóðabókar 8. 9. og 10. bekkjar. Dagskrá hefst kl. 20 í fé- lagsheimilinu Fólksvangi. Skemmti- atriði af ýmsum toga verða flutt af nemendum, kaffisopi og ljóðabók til sölu. Allir velkomnir. Vísindin í vörulandi í dag, kl. 12.15 flytur Halldór Stef- ánsson fyrirlestur á vegum Mann- fræðistofnunar Háskóla íslands sem hann nefnir Vísindin í vörulandi: af auglýsingum vísindatímarita, í stofu 101 í Lögbergi, HÍ. Norræna húsið: Tvær hörpur Aðrir háskólatónleikar vetrarins Verða í Norræna húsinu á morgun og hefjast þeir kl. 12.30. Þá leika þær Sophie Schoonjans og Marion Her- rera á hörpu. Sophie Schoonjans lærði hörpu- leik í heimalandi sínu, Belgíu. Hún hefur spilað með ýmsum evrópsk- um hljómsveitum en einnig með Hong Kong Philharmonic Orchestra. Sophie er búsett hér á landi; hér hefur hún kennt og spil- að, m.a. með Sinfóníuhljómsveit ís- lands og Sinfóníuhljómsveit Norð- urlands. Marion Herrera er frönsk og lærði í Frakklandi. Hún hefur spilað á fjölmörgum tónleikum og leikið inn á hljómdiska. Hún hefur leikið einleik með Sinfóníuhljóm- sveit Norðurlands. I fyrra kenndi hún við Tónlistarskólann á Akur- eyri. Báðar hafa þær Sophie Schoonjans og Marion Herrera oft unnið til verðlauna fyrir leik sinn. Tónleikar Á tónleikunum á morgun leika þær fjögur verk. Fyrsta verkið er Prelúdía, fúga og tilbrigði op. 18 eft- ir César Franck. Verkið er upphaf- lega samið fyrir orgel en á tónleik- unum verður leikin hörpuútsetning Deweys. Eftir Cor de Groot er Rauða kisan: Ilmandi vals, stutt verk fyrir tvær hörpur. Þriðja verk- ið á dagskránni er Solfeggietto eftir Carl Philipp Emanuel Bach. Síðasta verkið er Sónatina fyrir tvær hörp- ur eftir Jean-Michel Damase. Sophie Schoonjans og Marion Herrera hörpuleikarar leika í Norræna húsinu í hádeginu á morgun. Snjókoma Gengur í norðvestan 15-20 m/s með snjókomu eða slyddu norð- austantil, en 8-13 og él á Vesturlandi og lægir smám saman. Norðvestan Veðríð í dag 5-8 m/s og skýjað með köflum sunn- anlands í dag, en vaxandi austanátt og þykknar upp í kvöld, 10-15 m/s og slydda eða rigning i nótt. Vægt eða slydda frost norðantil, en hiti 0 til 5 stig sunnanlands. Höfuðborgarsvæðið: Norðlæg átt, 8-13 m/s og stöku él fram eftir morgni, en síðan 5-8 og skýjað með köflum. Vaxandi norð- austanátt í kvöld, 10-15 m/s og dálít- il slydda í nótt. Hiti 0 til 4 stig. Sólarlag í Reykjavík: 17.09 Sólarupprás á morgun: 09.15 Síðdegisflóð í Reykjavík: 14.09 Árdegisflóð á morgun: 02.59 Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri alskýjað 0 Bergstaóir snjókoma -1 Bolungarvík snjóél á síö. kls. -1 Egilsstaöir 2 Kirkjubœjarkl. skýjaö 3 Keflavíkurflv. snjókoma 0 Raufarhöfn snjókoma 0 Reykjavík úrkoma í grennd 0 Stórhöföi úrkoma í grennd 2 Bergen skýjaö 9 Helsinki alskýjaö 9 Kaupmhöfn skýjað 12 Ósló léttskýjaö 9 Stokkhólmur 9 Þórshöfn skúr 7 Þrándheimur rigning 6 Algarve skýjaö 17 Amsterdam skýjaó 11 Barcelona Berlín rigning 13 Chicago alskýjaö 8 Dublin léttskýjaö 5 Halifax heiöskírt 4 Frankfurt rigning 14 Hamborg rigning 13 Jan Mayen súld 4 London skýjaö 10 Lúxemborg rigning 13 Mallorca þokuruöningur 12 Montreal heiöskírt 10 Narssarssuaq heiöskírt -11 New York heiöskírt 13 Orlando París rigning 13 Róm lágþokublettir 13 Vín hálfskýjaö 5 Washington þokumóða 13 Winnipeg heiðskírt -4 Víða snjór á vegum Nokkuð hefur snjóað á Vestfjörðum og Norður- landi og eru sumar leiðir þungfærar og einstaka heiðar eru ófærar, meðal annars Lágheiði og Mjóa- fjarðarheiði, annars staðar er yfirleitt ágæt vetrar- Færð á vegum færð á þjóðvegum landsins. Á einstaka stöðum eru vegavinnuflokkar að verki og er vel merkt þar sem þeir eru að störfum. Hálendisvegir eru nú flestir lokaðir en einstaka eru þó færir fjallabílum. Ástand vega 4*- Skafrenningur 0 Steinkast 0 Hálka [3 Vegavinna-aögát 0 Öxulþungatakmarkanir C^) öfært Œl Þungfært © Fært fjallabilum Auður og Óli eignast son Þessi myndarlegi drengur fæddist á fæðing- ardeild Landspítalans 6. október kl. 0.06. Hann var Bam dagsins við fæðingu 4.320 grömm og 53,5 sentímetrar. For- eldrar hans eru Auður Sandra Grétarsdóttir og Óli Hjörvar Kristmunds- son og er hann þeirra fyrsta bam. dagsÍSpl Jake Gyllenhaal leikur hugsjóna- drenginn Homer Hlckham. Október himinn October Sky, sem Bíóborgin sýnir, gerist í Coalwood í Vestur- Virginíu árið 1957. Þetta er kola- námubær þar sem allir drengir enda sem kolanámumenn. Homer Hickam er engin undantekning. Faðir hans er kolanámumaður sem hefúr ekki efhi á að kosta hann í langskólanám og hann. er of lítill til að geta gert sér vonir um íþróttastyrk til háskólanáms. Líf hans breytist snögglega þegar geimfariö Sputnik sést fljúga eins og ’///////// halastjcuna yflr 7 Kvikmyndir Coalwood. Ailt í einu er heimurinn ekki svo lítill... October Sky er gerð eftir ævi- sögu Homers Hickam, jr., sem eft- ir að hafa sett sig upp á móti vilja foður síns braust til mennta og starfar sem vísindamaður hjá NASA. Faðir hans var verkstjóri í kolanámu og hafði aldrei séð son sinn fyrir sér öðruvísi en við vinnu í kolanámu. Nýjar myndir í kvikmyndahúsum: Bióhöllin: Runaway Bríde Saga-bíó: Konungurinn og ég Bíóborgin: October Sky Háskólabíó: Instinct Háskólabíó: Bowfinger Kringlubíó: South Park ... Laugarásbíó: The Sixth Sense Regnboginn: Út úr kortinu Stjörnubíó: Hlauptu, Lola, hlauptu Krossgátan 1 2 3 4 5 6 7 * 10 11 TT 13 u \t 16 1? T" íft Lárétt: 1 hinkra, 8 öruggur, 9 flakk, 10 eigi, 11 hestur, 13 mýrajám, 15 leit, 16 durtar, 17 kindum, 18 mikið, 19 bola, 20 sveifla. Lóðrétt: 1 breiður, 2 kvendýr, 3 tré, 4 mæddur, 5 sáir, 6 páraði, 7 sting, 12 kaunið, 14 lélega, 16 fjörug, 18 óður. Lausn á síðustu krossgátu: Lóörétt: 1 oflof, 6 af, 8 rjól, 9 áll, 10 kóð, 11 gata, 13 aldan, 15 ós, 16 bura, 18 grá, 20 ami, 21 frið, 22 kaflar. Lóðrétt: 1 orka, 2 fjólum, 3 lóð, 4 Olga, * 6 alt, 7 flas, 12 angra, 14 drif, 15 órir, 16 bak, 17 afl, 19 áði. Gengið Almennt gengi LÍ 02. 11. 1999 kl. 9.15 Einínq Kaup Sala Tollqenqi Dollar 70,740 71,100 71,110 Pund 116,600 117,200 116,870 Kan. dollar 48,230 48,530 48,350 Dönsk kr. 10,0230 10,0780 10,0780 Norsk kr 9,0000 9,0500 9,0830 Sænsk kr. 8,5750 8,6220 8,6840 R. mark 12,5278 12,6031 12,6043 Fra. franki 11,3555 11,4237 11,4249 Belg. franki 1,8465 1,8576 1,8577 Sviss. franki 46,4700 46,7300 46,7600 Holl. gyllini 33,8008 34,0039 34,0071 Þýskt mark 38,0847 38,3136 38,3172 ÍL líra 0,038470 0,03870 0,038700 Aust sch. 5,4132 5,4457 5,4463 PorL escudo 0,3715 0,3738 0,3739 Spá. peseti 0,4477 0,4504 0,4504 Jap. yen 0,675200 0,67920 0,682500 írskt pund 94,579 95,147 95,156 SDR 97,970000 98,56000 98,620000 ECU 74,4900 74,9300 4,9400 Simsvari vegna gengisskráningar 5623270

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.