Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1999, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1999
DV
Kort af „Laugaveginum".
Samhentir skokkarar hjá ÍR:
Gaman að vera t
— segir Svava Oddný Ásgeirsdóttir sem
ætlar ásamt fálögunum í Brúarhlaup
í Danmörku næsta sumar
Seljahverfi er rúmlega 50 manna
hópur fólks sem æflr gjaman fjór-
um sinnum í viku. Einn helsti leið-
beinandi þeirra er Svava Oddný
Ásgeirsdóttir. Hún segir að fólk sé
nú að skila sér inn í hópinn aftur
eftir að hafa tekið sér hvíld eftir
sumarið. Svava segir að í þessum
hóp sé nokkuð fastur kjarni, en
lika séu haldin byrjendanámskeið
til að fá nýja skokkara inn í hóp-
inn. Hún segir að það þurfi mikla
þolinmæði og áhuga til að stunda
skokk reglulega og halda það út.
„Þeir sem búnir eru að ná því
marki hlaupa, skokka eða ganga í
hvaða veðri sem er og þá er sama
hvort það er Þorláksmessa, gaml-
ársdagur eða eitthvað annað.“
Skokk er mjög
fjölskylduvænt
Sem dæmi um samheldnina hélt
hópurinn árshátíð fyrir skömmu
þar sem mættu 55 manns. Stærstur
hluti hópsins er á aldrinum frá 30
til 50 ára. Svava segir að skokk sé
mjög fjölskylduvænt, þar mæti
hjón og stundum komi krakkamir
með og sumir séu jafnvel með
hundana sína. Hún segir að útivist
bjóði þannig ekki síður upp á
skemmtilegar gönguferðir og víða
séu frábærar gönguleiðir í næsta
nágrenni þéttbýlisins.
Hlaupahópurinn leggur af stað á æfingu frá ÍR-húsinu í Seijahverfi.
Utivist snýst ekki bara um
hlaup og puð, hún snýst
kannski ekkert síður um
mannleg samskipti og að hafa
ánægju af félagsskapnum. Hópur
slikra skokkara hyggst hlaupa hálft
maraþon annan í hvítasunnu næsta
sumar er brú verður vígð milli Dan-
merkur og Svíþjóðar.
Æft fjórum sinnum í viku
Hjá íþróttafélagi Reykjavikur í
Hlupu Laugaveginn og
blésu vart úr nös
í sumar hlupu 16 einstaklingar
úr hópnum, bæði konur og karlar,
svokailaðan Laugaveg sem er um
55 km leið. Svava segir að út í slíkt
fari enginn nema vera búinn að
æfa vel. Við undirbúninginn var
arkað upp á Esju vikulega í marg-
ar vikur og stunduð löng hlaup um
hverja helgi auk æflnga nokkrum
sinnum í viku. „Það skilaði sér
líka vel því við hlupum þetta með
glæsibrag án þess að fmna fyrir
því ef svo má segja. Það varð eng-
um meint af þessu.“ Svava segist
hafa verið 7 klukkustundir og
fimmtíu mínútur, en þeir fljótustu
hafi verið um sex tíma á leiðinni.
Hún segir að veðrið hafl verið eins
og best verður á kosið, mátulega
mikil sól og golan í bakið alla leið.
Svava segir að hópurinn geri þó
líka annað en að hlaupa og þessa
leið hafl þau líka gengið í róleg-
heitunum.
Ætla í Brúarhlaupið
næsta sumar
Á sumrin er gjarnan farið í
kvöldgöngur í hverri viku á fjöll í
nágrenni Reykjavíkur. Þá er geng-
ið á Esjuna, Móskarðshnjúka,
Kéili, Vffilsfell eða önnur fjöll á
svæðinu. Næsta sumar, eða nánar
tiltekið 12. júní, sem er annar í
hvítasunnu, á svo að leggjast í vík-
ing og taka þátt í svokölluðu Brú-
arhlaupi sem fram fer þegar veg-
tenging verður vígð milli Dan-
merkur og Svlþjóðar. Um tuttugu
manns úr hópnum hafa þegar
skráð sig í þetta hlaup sem er hálft
Laufafell
Svava Oddný Ásgeirsdóttir.
■
maraþon, eða 21 kilómetri, sem
þeim þykir svo sem ekki mikið.
Svava segir að í þeirri ferð verði
gert ýmislegt fleira skemmtilegt en
að hlaupa. Hugmyndin sé t.d. að
leigja hjól og kajaka og gera eitt-
hvað fleira skemmtilegt, enda er
félagsskapurinn þeim ekki síður
mikilvægur en hlaupaáhuginn.
-HKr.
Ferðir: Ég er kominn upp á það / - allra þakka verðast / - að sitja kyrr á sama stað, / og samt að vera að ferðast.
- Jonas Hallgrímsson (Sparnaður).
ersónuleg sérversjaj
toppurLmv v úfívL&t
r°u/^io *
° J ar..
jEGLAGERÐIN
JTRIR ÞÁ sem
Itt I unvisT
www.evorost.iswww.soglagordin.ls
Skeifan 6 * Reykjavík * Sími 533 4450
Eyjarslóð 7*101 Reykjavík • Sími 51 I 2200
í útivist
kulda
Apourtec
dF'liBl