Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1999, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1999
27
Wéttir
Síendurtekinn þjófnaður úr þurrkara í Yrsufelli:
„Þetta er í fjórða sinn sem fótun-
um okkar mæðgnanna er stolið úr
þurrkaranum. Fyrst lét þjófurinn
sér nægja að taka gallaþuxurnar
okkar og spariboli en núna síðast
tók hann náttkjólinn minn og aUar
nærbuxurnr okkar,“ sagði Svanfrið-
ur Bjarnadóttir sem býr í YrsufeUi 3
og deUir þar þvottahúsi með ná-
grönnum sínum. „Þetta er tilfinnan-
legt tjón fyrir okkur og ég þarf að
komast í búð til að kaupa ný fót. Ég
kemst bara varla úr húsi vegna þess
að ég á ekkert lengur tU að fara í,“
sagði Svanfríður sem reyndi að
setja upp miða í þvottahúsinu í
Yrsufelli með áskorun tU þjófsins
um að skUa fotunum - án árangurs.
Svanfríður býr ein ásamt 16 ára
gamaUi dóttur sinni sem einnig hef-
ur tapað klæðum sínum í þvotta-
húsinu í YrsufeUi:
„Dóttir min tekur þetta nærri sér.
Ég sendi hana niður eftir þvottinum
í gær og hún kom grátandi upp aft-
ur og sagði mér að búið væri að
stela öUu úr vélinni."
- Geturðu ekki þekkt fótin þin á
nágrönnunum í stigaganginum?
„Það getur verið erfitt því þetta
eru fót sem yfirleitt eru keypt í Hag-
kaupi og framleidd í miklu magni.
Það eru aUir í svona fötum hérna.
Og ekki get ég beðið fólk um að
sýna mér nærbuxumar sem það er
í,“ sagði Svanfríður sem enn og aft-
ur skorar á þurrkaraþjófinn að
skUa fötunum. -EIR
Svanfríður við tóman þurrkarann.
Einhver annar í
nærbuxunum mínum
- segir Svanfríður Bjarnadóttir sem kemst vart úr húsi fyrir klæðleysi
Fjarkennsla á fullu á Ströndum:
i
I
Nemendur sem hlið við hlið
Vera kann að með hugmynd
þeirri sem til varð sumarið 1998 um
að kannaðir yrðu möguleikar þess
að hefja samkennslu í nokkrum
greinum í grunnskólunum á Hólma-
vik og Broddanesi hafi verið brotið
blað í kennslumálum yngri nem-
enda grunnskóla þessarar þjóðar til
framtíðar horft. Hvar sem mál þetta
var reifað fékk það góðar viðtökur
og lýstu allir þeir sem það var
kynnt þeim vilja sínum að greiða
götu þess hvað best þeir gætu.
Jákvæð viðbrögð hafa verið mál-
inu sú lyftistöng, sem það þarfhað-
ist, þvi vandamálin reyndust drjúg-
um fleiri og stærri en I fyrstu voru
fyrir séð. Má þar meðal annars
nefna skort á ljósleiðara eða ígildi
hans. Þessar vikurnar, rúmu ári eft-
ir að hugmyndin varð til, er hún
samt að verða að veruleika en að
samstarfi þessu standa fjölmennasti
og fámennasti skóli Strandasýslu.
Segja má að tímamótastundin
hafi runnið upp hinn 24. september
síðastliðinn, en þá fór fram formleg
prófun á búnaði þeim sem fulltrúar
Nýherja höfðu sett upp í báðum
skólunum nokkrum dögum áður.
Krakkarnir a Holmavík og í Broddanesi horfa hugfangin á, fjarkennslan nær
til þeirra og kann að valda byltingu í kennslumálum hér á iandi.
Þar er um að ræða tölvu með
myndavél, skjávarpa og gagna-
myndavél allt mjög fullkomið, „en
þó einfalt til notkunar", að sögn
Victors Arnar Victorssonar, aðstoð-
arskólastjóra Hólmavíkurskóla.
í Hólmavíkurskóla er hægt að
stjórna sjónsviði myndavélar sem
staðsett er í Broddanesskóla og öfugt.
Þegar alit hefur verið slípað og sam-
an fellt er nánast eins og nemendur í
báðum skólum sitji hvert við annars
DV-mynd Guðfinnur.
hlið. Athygli fréttaritara vakti hvað
mynd og þá ekki síst hljóð var skýrt.
Fjölmargar stofnanir hafa komið að
þessu verki með fjármögnun og fag-
legri ráðgjöf. Má þar nefna mennta-
málaráðuneytið, Byggðastofnun, Há-
skólann á Akureyri, Kennarasam-
band íslands svo nokkurra sé getið.
Næstu vikumar verða notaðar til
æfinga og prófana en formleg fjar-
kennsla hefst á vorönn.
-Guðfinnur
Akur.
eyringur!
||l ■ i
með fröaskum
á miLLi
4
VESTURLANDSVEG^