Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1999, Blaðsíða 1
„I shot the sheriff" - var sungið fyrir nokkrum arum og
DV-bflar komu þessu loks í verk - með myndavél - meðan BMW
X5 var skoðaður f Georgfu á dögunum. Mynd DV-bflar SHH
Kiörinn fyrir þingmenn utan af landi
Fiat Coupé sportbfllinn er nú kom-
inn með nokkra andlitslyftingu
og sérlega fríska turbovél.
Þetta er bfll sem þolir að það
sé komlð við bensíngjöf-
ina. Hann fer vel á vegi
og fer býsna vel með þá
sem í framsætunum
sitja. Það er því ekki úr
vegi að láta sér detta í
hug að þetta sé hentug-
ur bfll fyrir þá sem þurfa
oft að skreppa langar
ieiðir - og vera snöggir
aðþví.
BMW X5 er svipaðrar stærðar og 5-línan
frá BMW en að öllu leytl ný og sjálfstæð
hönnun, lúxusbfll sem kemst verri vegi
heldur en hefðbundnir fólksbílar en má þó
ekki flokka sem jeppling, hvað þá jeppa,
þótt hann sé með 18 sm veghæð með
ákveðna sportbflseiginleika sem sést af
því að hröðun 0-100 er aðeins 7,5 sek.
Hann er með sídrifið aldrif, 62% af aflinu á
afturhjólum en 38% á framhjólum sem
virðist gefa einstaklega gott veggrip - þar
við bætist raunar rafeindastýrð stöðug-
leikastýring og spólvörn en allt þetta leið-
ir m.a. af sér að X5 á að taka örugglega af
stað fullhlaöinn upp á móti 32° halla mið-
að við sæmilegt undirlag.
X5 hefur staðist öll árekstrapróf með mik-
illi prýði og má fullyrða að hann sé ein-
hver öruggasti bfll í heimi - sá öruggasti,
sagði Carl-Peter Forster, einn af stjórnar-
mönnum BMW, í hófi sem blaðamönnum
var haldið í Atlanta. Yfirbyggingin er sjálf-
bær (ekkí á grind) með frambitum sem
ganga inn undir gólfið við árekstur og
sérstökum styrkingum í hurðapóstum,
ekki sfst niðri við gólf, höggvarðar hliðar
og fóðringar til að dempa högg. Sfðast en
ekki síst eru 6 líknarbelgir staðaibúnaður
og hægt að bæta fjórum við sem auka-
búnaði, alls 10 líknarbelgir í einum bfl.
Höfundar X5, sem voru til viðtals við ís-
lenska bflablaðamenn f sveitasælunni f Ge-
orgíu á dögunum, lögðu áherslu á að bíllinn
værl fyrst og fremst vandaður og öruggur
lúxusbfll sem gæti farið miklu verri vegi en
hægt væri að fara t.d. á 7-lfnu bflunum frá
BMW. En alls ekki torfærutæki.
Bls.46
Sjálfskiptur Isuzu Trooper kominn
Isuzu Trooper hefur náð mjög góðri fótfestu á
íslenska jeppamarkaðnum. Jeppinn er enda
aflmikill og ágætlega búinn á dágóðu verði.
Margir aðdáendur jeppans hafa beðið eftir þvf
að hann kæmi sjálfskiptur en bið þeirra er nú á
enda, þvf að sögn Júlíusar Vrfils Ingvarssonar,
framkvæmdastjóra Bflheima, eru fyrstu sjálf-
skiptu Trooperarnir á leiðinni til landsins og
verða væntanlega sýndir hjá Bflheimum helg-
ina 13. og 14. nóvember.
Bflarnir koma nú með ýmsum endurbótum,
nýtt áklæði á sætum, nýjar álfelgur og minni
háttar breytingar í innri búnaði. Að utan ber
mest á nýju grilli, auk þess sem nú er val á
þremur nýjum litum til vlðbótar.
Enn er Trooper á dágóðu verði því handskipt-
ur án ABS kostar hann 2.985.000 en 3.085.000
með ABS. Sjálfskipti bflllnn kostar 3.157.000
án ABS en 3.255.000 með ABS.
Forráðamenn Isuzu í Japan eru ánægðir með
góða markaðshlutdeild Trooper ■
nánar inni í blaðinu:
Bls. 38
ing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is •' www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.biiathing.is •
Hvar er best að gera bílakaupin?
Toyota Landcrusier 4x4,4,5,
f.skrd. 19.07.1996, ek. 48 þús. km,
5d, d.graenn, 33" breyting, ssk.,
bensín, verð 3.390 þús.
VW Passat 1.8, f.skrd. 25.08.1998,
4d, ek. 38 þús. km, svartur, bsk.,
bensín, verð 1.980 þús.
Range Rover 4x4, 2,5, f.skrd
19.09.1996, ek. 43 þús. km, d.grænn,
ssk., dísil, verð 4.050 þús.
Audi A3 1.6, f.skrd. 23.04.1999,
3d, ek. 9 þús. km, d.grár, bsk.,
verð 2.100 þús.
MMC Pajero SW 4x4, 3,5, f.skrd.
18.09.1996, 5d, ek. 53 þús. km, grár,
sóllúga, spoiler, varadekkshlíf, ssk.,
bensín, verð 3.150 þús.
MMC Carisma 1,8, f.skrd.
11.06.1999, 5d, ek. 7 þús. km,
svartur, spoiler, ssk.,
bensín, verð 1.980 þús.
Velkomin á Laugaveg 174 og vww.bilathing.is
Opnunaitími: Mánud. - föstud. kl. 9-18 og laugard. kl. 12-16
BÍLAÞING H
I
Nviyi&k &ÍH- í nofv?vw bílvivt
Laugavegi 174,105 Reykjavík, sími 569-5500