Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1999, Blaðsíða 26
38
MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1999
Sviðsljós
Fyrrverandi kærasta Friðriks prins:
Ég vildi vera
honum góð kona
Danska söngkonan Maria Montell
sagði nýlega frá því í sjónvarps-
viðtali að hún hefði verið farin að
gera sér hugmyndir um framtíðina
og um bameignir á meðan hún var
kærasta Friðriks Danaprins. Sagði
Maria að allir sem ættu kærasta eða
kærustu gerðu sér hugmyndir um
slíkt og það hefði hún einnig gert.
Samkvæmt frásögnum danskra
blaða segir Maria að hún hafi viljað
vera Friðriki góð kona.
Hingað til hafa fyrrverandi
kærustur prinsins ekki tjáð sig op-
inberlega um ástarsamband þeirra
við hann. En Maria kærði sig koll-
ótta um þá hefö þegar hún kom í
sjónvarpsviðtal vegna nýrrar geislu-
plötu sem hún er að senda frá sér.
Krónprinsinn sá ekki Mariu á
skjánum því hann var í París. Víst
þykir hins vegar að hann hafi ekki
orðið alltof hrifinn þegar hann frétti
að Maria hefði rætt samband
þeirra. En hún sleppti því reyndar
að segja frá því hvort þeirra sagði
hinu upp.
Söngkonan Maria Montell.
Friðrik á.nú nýja kærustu, Bett-
inu 0dum, sem lærði tískuhönnun í
París og starfar nú hjá Giorgio
Armani í London.
Maria á nýjan kærasta, Jacob
Gurevitsch, sem leikur á trommur í
hljómsveitinni hennar. Maria og
Jacob búa saman á Norrebro í
Friðrik prins af Danmörku.
Kaupmannahöfn. Söngfuglinn er
sem sagt hættur að sjást á Amalien-
borg. Maria segist ekki myndu vilja
hafa hreytt einhverju þegar litið er
til baka.
„Nú heldur lífið áfram. Nú er ég
aftur orðin sú Maria sem ég var fyr-
ir nokkrum árum.“
Kryddpían Mel C var hress og kát þegar hún og stallsystur hennar stilltu sér
upp fyrir Ijosmyndara i London í tilefnu útkomu glansmyndabókar.
Símamynd Reuter.
Erfið fæðing
hjá Helenu
Danska ofurfyrirsætan Helena
Christensen er hamingjusöm sem
nýbökuö móðir. En fæðing litla
sonarins var svo erfið að Helena
getur vel hugsað sér að bíða f að
minnsta kosti 30 til 40 ár áður en
hún eignast annað barn. „Sem bet-
ur fer getur maður nú eignast bam
þar til maður er 60 ára,“ segir fyr-
irsætan í viðtali við danska blaðið
Billed Bladet.
Helena hafði verið með hríðir í
einn og hálfan sólarhring áður en
sá stutti kom í heiminn. Vatnið fór
á þriðjudagsmorgni og Helena og
unnusti hennar, Norman Reedus,
sem hún hefur þekkt i nokkur ár,
fóru þá strax á sjúkrahús.
Helena var send heim og beið eft-
ir því að hríðimar yrðu sterkari.
Það var svo ekki fyrr en síðdegis á
miðvikudegi sem sonurinn fæddist.
Hann var 54 sm og 3,7 kíló.
Nú er hann kominn heim af
sjúkrahúsinu með pabba og
mömmu sem hafa gefíð honum
nafnið Mingus Lucien Reedus.
Frípóstur veitir þér aukið frelsi
Frípóstur er ókeypis tölvupóstur á Vísi.is sem þú getur nálgast á hvaða Internet-
tengdri tölvu sem er - hvar sem þú ert i veröldinni, hvenær sem er. Leiðbeiningar
og valmyndir eru á íslensku þannig að allir geta verið með. Pað eina sem þú þartt
að gera er að fara inn á Visi.is, velja þér netfang og skrá þig.
Helena Christensen ásamt Stellu McCartney á tískusýningu í París.
Símamynd Reuter
Veldu ókeypis netfang!
nmanm
visir.ss
Notaðu vísifingurinn!