Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Blaðsíða 1
a^av;-,-.: __________________. ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999 Piparsveinn slær í gegn Bls. 19 Netstöðin á Granda heimsótt Bls. 20-21 GSM-símar skaðlegir Bls. 18 tölvui tækni og vísinda PlayStation Vont að vakna snemma Máltækið um að morgunstund gefi gull í mund er ef til vill hreinasta öfugmæli, a.m.k. ef mark er takandi á nýrri breskri rannsókn. Hún leiddi í ljós að þeir sem vakna fyrr á daginn eru mun stressaðri en þeir sem sofa fram eftir, þeir eru líklegri til að kvarta undan verkjum í vöðvum, kvefi og höfuðverk, auk þess sem þeir eru almennt í mun verra skapi. Vís- indamennimir sem framkvæmdu rannsóknina fundu einnig út að hormónið sem veldur hvað mestu stressi, cortisol, er mun meira i hinum árrisulu. Þeir geta hins vegar enn ekki sagt til um það hvort það séu svefnvenjur fólks sem leiða til aukins magns af cortisol, eða hvort það sé aukið magn hormónsins sem veldur því að fólk vaknar fyrr. Varað við flugi um áramótin Taskforce 2000, óháður hópur áhugamanna um 2000-vandann, gaf nýlega út viðvar- anir til Evrópubúa varðandi far- þegaflug í kringum næstu áramót. Hópurinn segir að samkvæmt heimasíðu á vegum hins opinbera í Bandaríkjunum séu mörg Evr- ópulönd enn langt í frá viðbúin 2000-vandanum hvað farþegaflug varðar. Talin eru upp tíu lönd sem hópurinn telur hættulegt að fljúga til: Tékkland, Finnland, Þýskaland, Ungveijaland, Ítalía, Pólland, Portúgal, Rússland, Spánn og Sviss. Margir eru þó gagnrýnir á niðurstöður Task- force 2000 og segja þar vera á ferð- inni hræðsluáróður og lítið sé að marka upphrópanir hópsins. Talsvert gekk á á hlutabréfamörkuð- iLlílJJliÚilli um 1 gær ‘ kj°lfar 1 síðustu atburða í Microsoft-réttar- höldunum þegar þeir voru opnaðir eftir helgina. Seint á fóstudag til- kynnti nefnilega dómarinn í máli hins opinbera gegn Microsoft að hann teldi tölvurisann hafa einok- unarstöðu á tölvumarkaðnum og hafa misnotað sér hana á undan- fomum ámm. Við þetta lækkaði verð hlutabréfa Microsoft tcdsvert þegar markaðir vora opnaðir í gær. Þessi ákvörðun dómarans er tals- vert áfall fyrir Microsoft, þó svo for- ráðamenn fyrirtækisins hafi án efa granað að niðurstaðan yrði þessi á endanum. Á myndinni hér að ofan má sjá þá Bob Herbold og Bill Gates frá Microsoft svara spurningum blaðamanna á föstudaginn en á inn- felldu myndinni setur Gates upp at- hyglisverðan svip þegar ein spurn- ingin er borin fram. Gates sagði m.a. að nú væri nauðsynlegt fyrir Microsoft að finna út hvernig best sé að ljúka málinu þannig að það sé sanngjamt gagnvart Microsoft, rík- isstjóm Bandaríkjanna og umfram allt neytendum. Ekki búið enn Þrátt fyrir að dómarinn hafi til- kynnt þetta á fóstudaginn er réttar- höldunum enn ekki lokið. Næsta skref er að lögmenn verjenda og sækjenda fá tækifæri til að svara úrskurði dóm- arans sem síðan gefur lokaniðurstöðu sina um það hverjir vinni endanlega málið í byrjun næsta árs. Sérfræðingar telja hins vegar að í ljósi úrskurðar dómaróms á fóstudag muni Microsoft leita allra leiða til að semja við hið opinbera um málið áður en því lýkur endanlega fyrir rétti. Talið er að slíkt væri besti kostur fyr- irtækisins úr því sem komið er. En hvernig sem fer er ljóst að þessi réttarhöld munu úr þessu hafa veru- leg áhrif á framtíð Microsoft. Að öll- um líkindum verður að skipta fyrir- tækinu upp í nokkrar mismunandi deildir, gefa grunnkóða Windows- stýrikerfisins frjálsan, banna fyrir- tækinu að veita afslátt af Windows til einstakra fyrirtækja eða skipta fyrir- tækinu upp í nokkur lítil sams konar fyrirtæki. :nr ® Nýtt eldhús fyrir jól ® HÖNNUN OG RÁÐGJÖF Við veitum fólki ráðgjöf og leggjum fram hugmyndir að því hvernig best er að haga innréttingunni þar sem þarfir fjölskyldunnar eru hafðar í fyrirrúmi. ími 530 2800 Þú hefur tímatil 10. nóvember til að ákveða þig Líttu inn í glæsilegan sýningarsal að Lágmúla 8, 3. hæð og kynntu þér málið. Opið laugardag frá 10 til 16 FJÖLBREYTT ÚRVAL - STUTTUR AFGREIÐSLUTÍMI Úrval HTH-innréttinganna er mjög fjölbreytt, þar serti útfærslur geta verið margvíslegar. Afgreiðslutími á HTH-innréttingum er fjórar vikur, en getur farið í sex vikur ef um sérsmíði er að ræða. Ef þú ákveður þig fyrir 10. nóvember næstkomandi getur þú fengið innréttinguna fyrir jól. ÖLL TÆKI í ELDHÚSIÐ Auk eldhúsinnréttinga er boðið upp á öll tæki, sem þarf í nútímaeldhús, svo sem eldunartæki hvers konar, viftur, háfa, kæliskápa, frystiskápa, vaska, blöndunartæki, Ijós o.fl. Séu raftækin keypt með eldhúsinnréttingunni, bjóðast þau á heildsöluverði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.