Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1999, Blaðsíða 32
36
FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1999 DV
—
Ummæli
Vanlíðan fram-
sóknarmanna
„Vanlíðan framsóknar-
manna og vanmetakennd gagn-
vart okkur í
Vinstrihreyfmg-
unni hefur ekki
farið fram hjá
neinum. Sérstak-
lega á það við
um formann
þeirra sem hef-
ur nú löngu tapað
niður hinu lærða brosi frá því
fyrir síðustu kosningar."
Steingrfmur J. Sigfússon al-
þingismaður, í Degi.
Leiðarljósið
„Ég minni á að í Faðirvor-
inu stendur: Fyrirgef oss vorar
skuldir svo sem vér og fyrir-
gefum vorum skuldunautum.
Höfum það að leiðarljósi."
Sigurður Hafberg forstöðu-
maður um deilurnar um séra
Gunnar Björnsson, prest í
Holti, í DV.
Dómarar og reynslu-
miklu liðin
„Nánast undantekningar-
laust flnnst mér við hafa farið
-n illa út úr dóm-
gæslunni í vetur. I
Mér finnst ein-
>. j***® hvem veginn að
f \ dómarar beri of
mikla virðingu
-á fyrir þeim liö-
um sem hafa
—"meiri reynslu
og að það bitni á þeim
sem eru að reyna að sanna
sig.“
Þorbergur Aðalsteinsson
handknattleiksþjálfari, í Degi.
Rekstur leikskóla
„Það er alla vega nokkuð
ljóst að hver heiivita maður
sem tekur sér tölvu í hönd og
reiknar dæmið til enda sér að
rekstur leikskóla og sambæri-
legra uppeldisstofhana á ekki
að vera í höndum borgaryfir-
valda. Þau hafa aldrei staðið
sig og ekkert bendir til þess að
þau muni standa sig í náinni
framtíð."
Mikael Torfason rithöfundur,
í DV.
Vændi á íslandi
„Flestum þykir nóg um að
sjá samgönguráðherra og fé-
lagsmálaráðherr-
ann glíma við
vandamál grein-
arinnar í ann- j
ríki sínu þótt
ekki komi mál- ••
ið inn á borð I
menntamála-
ráðherrans ?.
líka.“
Guðmundur G. Þórarinsson
verkfræðingur, um vændi á
íslandi, í DV.
Hlll „■ l<f-||-r-in|OI 1II ^fWTTKinnJ i^ <4~<0* & f
Einleikari á heimsmælikvarða
í kvöld verða Sinfóníutónleikar í
Háskólabíói. Á efnisskránni verða
verk sem Sinfóníuhljómsveitin hef-
ur í farteskinu í tónleikaferð þeirri
sem ráðgerð er um Bandaríkin í
október árið 2000 i tilefni af þúsund
ára afmæli ferða norrænna ferða-
frömuða til Ameríku. Rico Saccani,
Rico Saccani, stjórnandi Slnfóníuhljómsveitar íslands, í Háskólabíói í kvöld.
V „itfLw
. *
aðalhlj ómsveitarstj óri Sinfóníunn-
ar, stjórnar hljómsveitinni á ný og
einleikari á---------------
fiðiu er Livia Tóiileikar
Sohn
frá
Bandaríkjunum. Á efnisskrá tón-
leikanna er Fiðlukonsert í d-moll
(1940) eftir Aram Khatsjatúrjan og
Sinfónía nr. 2 í e-moll eftir Sergej
Rakhmanínov.
Hin rúmlega tvítuga Livia Sohn
er nú þegar á hraðri leið með að
ávinna sér nafn sem einn af bestu
fiðluleikurum heims. Hún kom fyrst
fram á sjónarsviðið sem einleikari
aðeins átta ára gömul þegar hún lék
með Wallingford-sinfóníuhljóm-
sveitinni í heimaborg sinni, Conn-
ecticut í Bandaríkjunum. Upp frá
þvi var hún eftirsóttur einleikari
með ýmsum hljómsveitum víða um
Bandaríkin. Tólf ára að aldri hlaut
hún fyrstu verðlaun í alþjóða fiðlu-
keppninni sem kennd er við Yehudi
Menuhin og hefur frami hennar
verið óslitinn upp frá því.
Jón Gnarr slær í gegn í Ég var einu sinni nörd:
Notaði velgengnina sem af-
sökun til að hætta við fríið
„Þessi mikla aðsókn hefúr komið
mér á óvart. Ég hef áður verið með
svona uppistandskvöld en aldrei
eins langan tíma á sviði eins og nú
svo ég vissi ekki almennilega að
hverju ég gekk upp á aðsóknina. Ég
ákvað að vera með þrjár sýningar
og þegar seldist upp á þær og
biðlisti tók að myndast þá ákvað ég
að hafa eina sýningu í viðbót sem
seldist upp á hálftíma. Þá hringdu
þær í mig frá miðasölunni og sögðu
að þaö væri einhver hystería í gangi
og fólk væri að hringja og það yrði
að fá miða svo ég ákvað
að bæta duglega við og
þóttist góður að geta
bætt við þremur sýning-
um og nú er uppselt á þær allar,“
segir hinn vinsæli skemmtikraftur
Jón Gnarr en sýning hans, Ég var
einu sinni nörd, í Loftkastalanum
hefur slegið rækilega í gegn.“
Jón segir prógramm sitt vera sitt
úr hverri áttinni. „Sumt af því hef
ég gert áður en nýtt efni fylgir með.
Þetta eru sögur og mínar hugleið-
ingar um lífið og ævintýri mín hér-
lendis sem erlendis. Ég hef síðan
fengið mér til fulltingis Pétur Jó-
hann Sigþórsson, sem var valinn
fyndnasti maður íslands, og
hann kemur fram á undan
mér.“
Ein sýning er búin og segir
Jón hana hafa tekist mjög
vel: „í þessum bransa er það
fyrir öllu að ná salnum strax
i byrjun og það tókst fyrsta
kvöldið og var mjög gaman
og mikil og góð stemning."
Jón þurfti að fresta frii
með eiginkonu sinni til að
geta haldið áfram með sýn-
ingamar: „Ég er afskaplega
flughræddur og vil helst ekki
fljúga. Eiginkona mín hefur mjög
gaman af að fara til útlanda og ég
var búinn að lofa henni ferð og þeg-
ar ég sá fram á að ég ætti vikufrí þá
pantaði ég ferð fyrir okkur til Mi-
ami en það stóð þannig á að ferð
þangað passaði við fríið mitt. Ég
varð hræddur við þetta strax í upp-
hafl enda langt flug til Miami. Ekki
varð hræðsla mín minni þegar ég
dag einn fór að horfa á Discovery-
rásina þar sem slengt
framan í mig að Mi-
ami væri hættuleg-
var
Maður dagsins
asti staðurinn á
jörðinni. Mér
fannst þetta vera
viss skilaboð til
mín og þegar svo
flugvélin frá
Egypt
*Ék
Air fórst undan ströndum Banda-
ríkjanna var mér nóg boðið og not-
aði sem afsökun velgengni sýning-
arinnar til að hætta við fríið.“
Það er í mörgu að snúast þessa
dagana hjá Jóni: „Á næstu dögum
er ég að fara að æfa í leikriti eftir
Woody Allen sem heitir á ensku
Play It Again, Sam og ég hef þýtt og
leik ég aðalhlutverkið þannig að
drjúgur tími fer í það en leikritið
verður sýnt í Loftkastalanum. Nú,
svo stendur til að ég og félagi minn,
Sigurjón, fórum aftur í útvarpið
en það verður ekki í bráð.“
Jón Gnarr er einn af hinum
vinsælu Fóstbræðrum og hinir
fjölmörgu aðdáendur þeirra
geta séð fram á bjartari tíð:
„Það er búið að taka upp átta
nýja þætti sem verður byrjað
að sýna í febrúar og svo er Rik-
issjónvarpið að fara að endur-
sýna Tvihöfðaþættina sem voru
í Dagsljósi. Hafa verið gerðir
hálftíma þættir upp úr
þessu efhi sem sýndir
verða á föstudög-
um svo það má
segja að ég
verði meira og
minna alls
staðar á næst-
unni.
Þegar tími
vinnst til þá
notar Jón
Gnarr fri-
stundir sínar
við lestur: „Ég
les heilmikið og
er þessa dagana að
lesa bók sem hefur
að geyma heildarút-
gáfu á verkum
Woodys Allens. -HK
Það er oft mikið fjör á Tres Locos.
Afmælisveisla
á Tfes Locos
Nú er ár liðið síðan Tres
Locos hóf starfsemi sína að
Laugaveg 11 í Reykjavík.
Tilgangurinn með þessum
stað var að
bjóða upp á ný-
mæli fyrir
landsmenn. Höf-
uðáhersla var lögð á góðar
mexíkóskar veitingar og
svo suður-ameríska
danstónlist, salsa,
merengue o.fl.
Aðstandendur Tres
Locos eru að hluta
til þeir sömu og
stóðu fyrir opnun á
Dubliner í Hafna-
stræti. Þeir félagar
hafa það að mark-
miði að varðveita
þema staðarins.
Þannig hefur The Dubliner
haldist írskur og Tres Locos
mexíkóskur. í tilefni 1 árs
afmælis Tres Locos í dag
verður afmælisveisla hald-
in á staðnum frá kl. 17-01. í
boði verða léttar veitingar
og drykkir verða seldir á
hálfvirði. Dos
Paraguaios munu
spila og syngja
fyrir veislugesti
og verða ýmsar uppákomur
í tilefni dagsins.
Skemmtanir
Myndgátan
ísfiskur Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði.
Ólafur
Gunn-
arsson
les úr
nýrri
bók
sinni f
Gerðar-
safnií
dag.
Upplestur í
Gerðarsafhi
í dag kl. 17 verður upplestur á
vegum Ritlistarhóps Kópavogs i
Gerðarsafni, Ólafur Gunnarsson rit-
höfundur les úr nýútkominni skáld-
sögu sinni, Vetrarferðinni. Aðgang-
ur er ókeypis og allir velkomnir.
Ljóð á Austurvelli
í dag kl.13 mun Steinunn Sigurð-
ardóttir rithöfundur lesa ljóð á Aust-
urvelli. Það er Ijóðahópurinn og
áhugafólk um vemdun hálendisins
sem stendur fyrir upplestrinum og
vill með ljóðalestrinum minna al-
þingismenn á sína ábyrgð gagnvart
afkomendum okkar og mótmæla því
að óviðjafnanlegri náttúru íslands sé
fómað í þágu stóriðju.
Sögur af sjónum
á Súfistanum
i kvöld verða sagðar sögur af
sjónum á Súflstanum. Þar verður
lesið upp úr þremur nýjum bókum
sem allar tengjast sjónum og sjó-
mennsku í gegnum tíðina. Þær
bækur sem lesið veröur úr era:
Sægreifi deyr, eftir Árna Berg-
mann, höf-
undur íes. Bokmeimtir
Sjoran og__________________
siglingai’ eftir Helga Þorláksson,
höfundur les. Sviptingar á sjávar-
slóð, Skúli Gautason leikari les úr
sjálfsævisögu Höskuldar Skarp-
héðinssonar skipherra. Auk þess
verður leikið á harmoniku. Dag-
skráin hefst kl. 20.
Bridge
Á Evrópumótinu á Möltu fyrr í
sumar kom þetta spil fyrir í leik
Austuríkis og Danmerkur í kvenna-
flokki. Sagnir gengu eins á báðum
borðum, vestur gjafari og NS á hættu:
* G8754
44 K6
* K10874
* 3
4 1092
Á
4- D95
* DG10872
4 ÁD
«4 G98532
* 3
* ÁK96
Vestur Norður Austur Suður
pass pass 34 3 «4
pass 4 w pass pass
dobl p/h
Vömin gekk eins fyrir sig tvo
fyrstu slagina. Útspilið lauf á kóng
suðurs og litlum tígh spilað að heim-
an. Báðir vesturspilaramir settu ás-
inn en síðan skildu leiðir. Danska
vörnin spilaði áfram laufi sem sagn-
hafi drap á kóng og síðan var lauf
trompað með sexunni í blindum.
Sagnhafi gerði ráð fyrir að vestur ætti
ÁD í hjarta fyrir doblinu og spaða-
kóngurinn hjá austri (annars hefði
vestur opnað í upphafi). Sagnhafl
henti því laufi í tígulkóng og svínaöi
spaðadrottningu. Vestur fékk á kóng,
spilaði hjarta og fékk lauf til baka og
D107 í trompinu þriggja slaga virði.
Spilið fór því 800 niður. Á hinu borð-
inu ákvað austurríska konan að spila
áfram tígli í þriðja slag. Danska kon-
an Trine Bilde ákvað að henda spaða-
drottningu í tígulkóng, spila spaða á
ás, tók laufkóng og spilaði laufi. Vest-
ur trompaði með sjöu, yfirtrompað á
kóng í blindum og spaði trompaður
heim. Enn var laufi spilað og vestur
trompaði með hjartatíu. Sjöundi slag-
ur sagnhafa kom með því að trompa
tígul frá vörninni og þannig voru níu
slagir í húsi. Trine ákvað að spila
næst hjartagosa frá G98S og vestur
féll í gildruna þegar hún lagði drottn-
inguna á þann slag (og austur ásinn).
800 + 790 gaf heila 17 impa í gróða.
Þess má geta að Danir töpuðu leikn-
um 10-20! ísak Örn Sigurðsson
4 K63
44 D1074
4 ÁG62
* 54