Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1999, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1999, Blaðsíða 6
AUGLÝSING BffiKUR Byggir á eigin reynslu 5pennandi $káld$a?a eftír tí??a Hall Rithöfundurinn Siggi Hall mun kynna nýútkomna bók sína um helgina í verslun okkar í Kringlunni. Bókin sem að sögn Sigga, byggir á eigin reynslu, fjallar aðallega um mat og matargerð og á vafalaust erindi til margra Islendinga. Siggi segir að aðalpersónurnar séu lambakjöt, graenmeti, ávextir og fiskur.Við fylgj- umst með þessum persónum ganga í gegnum eld og reyk og verða að lokum að yndislegum réttum sem allir elska. Við óskum Sigga til hamingju með bókina og vonum að ef hann hreppir ekki Nóbelsverðlaunin í bókmenntum þá hljóti hann a.m.k. bókmenntaverð- laun Norðurlandaráðs fyrir framlag sitt. Spennandi kaffikynninq Nú um helgina verður kynning á Lavazza, Qualita kaffi í Nýkaupi, Kringlunni. Starfsmenn Nýkaups hlakka mikið til að fá viðskiptavini í heimsókn og keppast við að undirbúa sig á allan hátt. Sumir starfsmenn eru reyndar svo spenntir að þeir hafa varla gefað sofið undanfamar naetur án þess að fá sér flóaða mjólk. Við vonum að sem flestir geri sér að góðu að þiggja kaffisopa á Lavazza-kynningunni hjá okkur um helgina. ♦ I «-------- Góð ráð ódýr fiðvörun til óákveðinna! Vöruúrvalið í Nýkaupi, Kringlunni er nú orðið svo gríðarlegt að mörgum finnst nóg um. Er haft fyrir satt að þeir viðskiptavinir sem eiga erfitt með að ákveða- sig og vilja aðeins hafa úr nokkrum vörutegundum að velja lendi gjarnan í stökustu vandræðum í versl- uninni. Þetta kemur hins vegar ekki að sök þegar viðskiptavinir hafa áhuga á því að prófa nýjar vörutegundir því af nógu er að velja. Það er einlæg von okkar að vöruúrvalið slái engan út af laginu enda geta óákveðnir viðskipta- vinir leitað til starfsfólks okkar sem er alltaf tilbúið til að leiðbeina þeim og gefa góð ráð. Glæsileg opnun Nýkaups í Kringlunni hefur víða vakið mikla athygli. GÍæúle? opnun! JTJORIIUJPA Gildir f Nýkaupi, Kringlunni 12.-14. nóvember. Hrútur (21. mars - 19. apríl) Það er hrútleiðinlegt að borða alltaf það sama dag eftir dag. Láttu eftir þér að fá þérVSOP koníakslæri á 859 kr/kg og framtíðin brosirvið þér. Naut (20. apríl - 20. maí) Naut eins og þú kunna vel að meta danskt smörrebröd. Jafnvel þeir allra nautheimskustu sjá að 198 kr/stk. er bara ekki neitt verð. Tvíburar (21. maí - 20. júní) Stjörnurnar eru hliðhollar tvíburum sem geta keypt tvo giant smartiespoka á verði eins í Nýkaupi, Kringlunni. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Þar sem Venus er í fjósakonunum er beinlínis nauðsynlegt fyrir þig að fá þér Súrmjólk með karamellu eða jarðarberjum á sérstöku tilboðsverði, 175 kr/stk. M Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Ljónin eru konungar dýranna og ættu ekki að leggja sértil munns neitt rusl. Við mælum með SS herragarðs lifrarkæfu á 499 kr/kg eða SS ölpylsu á 1.299 kr/kg. 4> Meyja (23. ágúst - 22. sept.) Taktu daginn rólega svo þú missirekki meydóminn. Fáðu þér After Eight eftir kl. átta. Hverjum 400 g pakka fylgir annar 200 g pakki í kaupbæti. Vog (23. sept. - 22. okt.) Settu ferska tómata á vog í Nýkaupi, Kringlunni. Þeireru komnir ferskir með flugi frá Hollandi og kosta aðeins 99 kr/kg. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.) 'W Sporðdrekar eru eftirtektarsamir og láta ekki einstaklega góð tilboð fram hjá sérfara. Nú kosta grillaðir kjúklingar bara 399 kr/kg í Nýkaupi, Kringlunni. Það verður mikið um að vera í Ný- kaupi í Kringlunni um helgina og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Við tökum á móti viðskiptavimim með blómvöndum á sérstöku tilboði. Eirmig mikið úrval af pottaplöntum. Mifii kl. 10 og 19 í dag og kl. 10 og 17 á morgun laugardag kynnir Myllan, Við gefum ungum viðskiptavinum okkar Kinderegg. Gildir meðan birgðir endast. Blue dragon vörur og ráðleggingar um matargerð frá meistarakokki. Smarties Gokart bíllinn verður á staðn- um um helgina. Boðið upp á mynda- töku fyrir börnin milh kl. 14 og 18 fosmdag og laugardag. Einnig tilboð á giant Smarties pokum, tveir fyrir einn. Kjötmeistarar SS kynna Herragarðshfra- kæfu, VSOP læri, Bolpgna og örpylsur. Kjötmeistarar frá Ferskum kjötvörum kynna skinku á góðu verði og hina rómuðu Óðals gullh'nu (naut og svín). Bio t«ldnn móð mandðrínur Bio Kriggs sást laumast út úr Nýkaupi, Kringlumii, íyrir skömmu með fullan poka af maudarímim. Hann heldur því fram að mandarín- unum hafi verið komið fyrir í pokanum og bendir á það, máli sínu til stuðnings, að það sé alsendis fáránlegt að reyna að hnupla mandarínum á jafii hlægilega lágu og 99 kr/kg og auk þess sé ljótt að stela. Heimild- armaður Nýkaupssíðunnar bendir hins vegar á að þetta tilboð gildi aðeins dagana 12.-14. nóvember í Kringlunni. Pizza Hut express Um helgina verður opnaður Pizza Hut express staður í Nýkaupi, Kringlunni. Pizza Hut express er hluti af hinni virtu Pizza Hut keðju en express staðirnir eru frábrugðnir öðrum Pizza Hut stöðum að því leyti að sérstök áhersla er lögð á að viðskiptavinurinn fái matinn afgreiddan mjög fljótt eða nákvæmlega á þeim tíma sem hentar honum. Fólk leggur þannig inn pöntun, áædar hvað það tekur það langan tíma að versla í Nýkaupi og þegar það kemur aftur bíður heit pizzan eftir því. Nú um helgina verða pizza-sneiðar og gos á mjög lágu verði auk margra annarra spennandi tilboða í tilefni af opnunni. Bogmaður Œfc (22. nóv. -21. des.) A Losaðu þig við sektarkenndina sem hefur hrjáð þig allt þitt líf. Byrjaðu nýtt líf með Biomjólk með appelsínubragði á 92 kr/kg. Steingeit (22. des. - 19. jan.) Sýndu gát í fjármálum og verslaðu aðeins í Nýkaupi, Kringlunni um helgina. Fjölskyldan hefur ekki sýnt þér mikla athygli en það gæti breyst ef þú kæmir heim með SS bologna á 499 kr/kg. Vatnsberi (20. jan. - 18. feb.) Vatnsberar eru frábærir elskhugar að eigin sögn. Þú ættir að koma elskunni þinni á óvart með ostaveislu í kvöld. Ostarúllur með hvítlaukspipar og píkat, Dalabrie, Lúxus yrja og Port salut eru allir á tilboðsverði í Nýkaupi. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Reyndu að brjótast út úr viðjum vanans. (Nýkaupi, Kringlunni, getur þú fengið strútakjöt, elgskjöt og fleira frumlegt til að krydda tilveruna. Þessi stjömuspá er byggð á traustum grunni upplýsinga um vömúrval í Nýkaupi, Krínglunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.