Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1999, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1999, Blaðsíða 7
AUGLÝSING Drottnin? matvöruvenlana á hlandi Á morgun verður formleg opnun á Nýkaupi í Kringlunni eftir viðamiklar breytingar. Verslunin hefur tekið miklnm stakkaskiptum og er nú bin glæsilegasta, svo glæsileg að ýmsir vilja kalla hana drottningu matvöru- verslana á íslandi. Áherslur og aðgreining Nýkaups frá keppinautum koma skýrt fram í skipulagi, þjónustuþáttum og útliti verslun- arinnar. Fyrst ber að nefna stolt Nýkaups í Kringlunni, Markaðstorgið, sem nú inniheldur ítalskt Lavazza kaffihús, ostabúð, sælkeraborð, danskt smur- brauð, bakarí, Matarland sem býður upp á heitan mat og steikta kjúklinga, glæsilegt ávaxta- og grænmetistorg, auk Pizza Hut veitingastaðar. Þessi veitingastaður er fyrstur sinnar tegundar á íslandi, sem staðsettur er innan matvöruverslunar. Ávaxta- og grænmetistorg Nýkaups í Kringlunni heftu þá sérstöðu að þar eru að jafnaði um 200 vörutegundir á boðstólnum frá um 50 löndum, sem er einsdæmi hér á landi. Áherslur Nýkaups miða að því að fá sem mest af ávöxtum og grænmeti beint frá bónda og stór hluti innkaupa kemur ferskur með flugi til landsins til þess að tryggja ferskleika og hámarksgæði. Einnig verður formlega opnuð deild sem nefnist Heimshomið, en þar er að finna mesta vöruúrval landsins til notkunar í alþjóðlegri matargerð, þar sem sérstök áhersla er á kínverska, mexíkanska, ítalska og indverska matargerð. Innan verslunarinnar er nú nýtt mjólkurtorg, ný kjöt- og fiskdeild, Jökulheimar, sem geymir úrval frysti- vöru og sérstök gosdeild. Auk þess er innan verslunarinnar apótek og innan tíðar opnar sérverslun Coke og gleraugnaverslun. I tilefni af opnuninni kemur út á morgun „Matreiðslubók Nýkaups að hætti Sigga Hall“. Bókin inniheldur 200 uppskriftir eftir Sigurð L. Hall. Á morgun verður hægt að kaupa sænska villibráð, þar á meðal dádýrakjöt, hjartarkjöt, elgskjöt og strútssteikur. Fjöldi tilboða og vörukynninga verður í tilefni opnunarinnar, þar á meðal grillaður kjúkhngur á 399 krónur og danskt smurbrauð á 198 krónur. Auk þess sem ýmislegt verður í boði fyrir yngstu kynslóðina. Skosk hagsýni John íílcííloney kemur sgndandi með syni únum John McMoney heitir skoskur maður sem hefur að gamni sínu gengist upp í þeirri klisjukenndu hugmynd að skotar séu nískir. Hann frétti af tilboðsdögum okkar í Nýkaupi, Kringlunni og Iagði synd- andi af stað frá Skotlandi með son sinn á bakinu til Islands síðastliðinn þriðjudag. Hann sagði í símaviðtali rétt fyrir brottförina að hann geri sér vonir um að gera góð kaup á Islandi og að sér litist sérstaklega vel á þá hugmynd okkar að með hverjum pakka af Keloggs morgunkorni geti viðskiptavinir valið sér annað hvort þoturass eða fallega járndós undir morgunkom í kaupbæti. Hann ætlar að hugsa sig um á sundinu hvort hann velur en á frekar von á því að velja þoturassinn. Við vonum að honum famist vel á leiðinni og að hann hreppi hagstæða strauma vegna þess að tilboðið gildir aðeins helgina 12.-14. nóvember. ..Sfcítt meá Exjai»aícíca og heiáagæsma Siggi thíhii, éQ hef funáíá TTiihlu gjöfulli veiáilenJur." SPURNING DAGSINS: Hvaákomþér m«tá óvart í Krin?lunni? Varði elskhugi: Tilboðið á kalkúnunum. Ég hélt að það myndi líða yfir mig. Páil grænmetispoppari: Úrvalið á ávaxta- og grænmetistorginu, ekki spuming. Davíð sundlaugavörður: Það kom mér mest á óvart hvað þjónustan var góð. Jenní söngkona: Mandarínumar. Þetta em ódýmstu mandarínur sem ég hef noldcm sinni rekist á. Stinni fyrrverandi lögga: Ekki margt. Er þetta ekki alltaf svona ódýrt?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.