Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1999, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1999, Page 9
MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1999 9 i>v Stuttar fréttir Útlönd Mannskæð flóð í Suður-Frakklandi: Þúsundir manna misstu allt sitt Mestu flóð í meira en hálfa öld gengu yfir suðurhluta Frakklands um helgina en úrhellisrigning var á þessum slóðum frá því að fostudag. í gærkvöld höfðu 23 fundist látnir og að minnsta kosti fimm var enn saknað. Talið var líklegt að tala lát- inna ætti enn eftir að hækka. Fjórt- án þeirra sem létust voru íbúar í Aude-héraði. Vatnselgurinn minnkaði nokkuð eftir því sem leið á gærdaginn og var veðurspáin frekar hagstæð. Þúsundir manna þurftu að yfirgefa heimili sín og ljóst að skemmdir af völdum flóðanna voru gríðarlegar. Dominique Voynet, umhverfis- ráðherra Frakklands, sakaði bæjar- yfirvöld á flóðasvæðunum um að sinna ekki skyldum sínum í kjölfar fljóðanna. Voneyt kvaðst myndu beita sér fyrir því að neyðaráætlan- ir kæmust í gagnið sem fyrst. Inn- anríkisráðherrann, Jean Pierre Chevenement, sagði að neyðará- standi yrði lýst yfir á verstu svæð- unum svo flýta mætti hjálparstarfi við þá fjölmörgu sem misstu allar eigur sínar í flóðunum. íbúar Aude-héraðsins urðu hvað verstu úti í flóðunum. Sögur af hörmungum fólks eru fjölmargar og til aö mynda máttu hjón sjá eftir tveimur ungum börnum sínum í vatnselginn en fjölskyldan hafði haldið dauðahaldi í tré í heila nótt þegar bömin gátu ekki meir. Hjálparsveitir unnu enn að björg- un í gær en vonir manna um að finna fleiri á lifi hafa dvínað nokkuð. Palestínskur lögreglumaður fagnar með því að skjóta úr sjálfvirkum riffli sínum í hátíðargöngu sem fram fór á Vesturbakkanum í gær. Palestínumenn fögnuðu því að ellefu ár eru liðin frá sjálfstæðisyfirlýsingu þeirra. Símamynd Reuter Svarti kassinn fundinn Hljóðriti egypsku flugvélarinnar sem fórst undan austurströnd Bandaríkjanna fyrir 2 vikum með þeim afleiðingum að 216 fómst fannst um helgina. Hljóðritinn hef- ur verið fluttur til Washington þar sem rannsókn á honum hefst í dag. Refsiaðgerðir Refsiaðgerðir Sameinuðu þjóð- anna gegn Afganistan tóku gildi í gær en stjórn Talebana hafði ekki nýtt sér mánað- arfrest til að framselja Osama bin Laden sem grun- aður er um að stjórna hryðju- verkum gegn Bandaríkjunum um veröld alla. Óeirðir brutust út í Kabúl og var m.a. ráðist inn í skrifstofur SÞ. Styður Pútín Boris Jeltsín, forseti Rússlands, kvaðst í gær myndu styðja Vla- dimir Pútín forsætisráðherra í embætti forseta í forsetakosning- unum á næsta ári. Sex veiðimenn létust Sex króatískir veiðimenn létust og fjórir slösuðust þegar jarð- sprengja sprakk undir bíl þeirra. Áfram herjaö í Tsjetsjeníu Rússar hertu í gær umsátrið um Grosní, höfuðborg Tsjetsjen- íu, þrátt fyrir gagnrýnisraddir hvaðanæva. Skothríð var haldið úti á tvö þorp í vesturhluta lands- ins. Flóð á Ítalíu Að minnsta kosti tveir týndu lífi og tugir manna misstu heimili sín í miklum flóðum sem gengu yfir eyjuna Sardiníu á Ítalíu um helgina. Forsetakosningar Úkraínumenn gengu að kjör- borðinu í gær og kusu sér forseta. Rúmar 37 milljónir manna voru á kjörskrá og stóð baráttan á milli þeirra Leonids Kuchma, núver- andi forseta, og Petros Symonenkos kommúnista. Fyrstu tölur eru væntanlegar síðar í dag en út- gönguspár í gærkvöld bentu til naums sigurs Kuchma. .......— --- leitis íslenska leitarvélin á Netinu — $ SUZUKI -✓///... Suzuki Baleno Wagon, skr. 06/97, ek. 52 þús. km, ssk., 5 d. Verð 1.090 þús. Renault 19RN, skr. 11/'95, ek. 49 þús. km., bsk., 4 d. Verð 695 þús. Suzuki Baleno GL, skr. 02/97, ek. 58 þús. km., bsk., 3 d. Verð 790 þús. Suzuki Vitara JLX, skr. 11/98, ek. 24 þús. km, ssk., 5 d. Verð 1.850 þús. Suzuki Swift GLX, skr. 06/98, ek. 22 þús. km, bsk., 5 d. Verð 870 þús. MMC Lancer ST 4wd, skr. 06/96, ek. 59 þús. km, bsk., 5 d. Verð 1.180 þús. Suzuki Vitara JLX, skr. 09/95, ek. 72 þús. km, bsk., 5 d. Verð 1.230 þús. Suzuki Swift GX, skr. 02/97, ek. 55 þús. km, bsk., 5 d. Verð 680 þús. Suzuki Baleno Wagon 4x4, skr. 10/96, ek. 113 þús. km, bsk., 5 d. Verð 980 þús. Suzuki Baleno GL, skr. 02/97, ek. 58 þús. km, bsk., 3 d. Verð 790 þús. Suzuki Swift GLS, skr. 04/96, ek. 56 þús. km, bsk., 3 d. Verð 650 þús. Suzuki Swift GX, skr. 01/96, ek. 81 þús. km, bsk., 5 d. Verð 570 þús. Opel Astra ST, skr. 05/97, ek. 56 þús. km, bsk., 5 d. Verð 850 þús. Suzuki Sidekick JX '93, ek. 98 þús. km, ssk., 5 d. Verð 790 þús. Opel Corsa, skr. 06/97, ek. 74 þús. km, bsk., 5 d. Verð 750 þús. VW Golf ST, skr. 05/96, ek. 74 þús. km, bsk., 5 d. Verð 930 þús. Suzuki Vitara JLX, skr. 10/92, ek. 53 þús. km, ssk., 5 d. Verð 970 þús. Mazda 626, skr. 01/98, ek. 29 þús. km, ssk., 4 d. Verð 1.740 þús. SUZUKIBÍLAR HF. Skeifunni 17 • Sími 568 5100 www.suzukibilar.is Sjónvarpssófinn er ein skemmtilegasta nýjung í húsgögnum hin síðari ár. Hann er sérstaklega hannaður til að mæta kröfum nútímans um aukin þægindi, og er góð leið til þess að láta fara vel um sig við sjónvarpið og slappa af. Siónvarpssófinn er með innbyggðu SKammeli í báðum endasætum. * Sjónvarpsófinn er með niðurfellanlegu baki í miðju sem breytist í borð með einu handtaki. » Sjónvarpssófinn er fáanlegur í mörgum tegundum, áklæðum og litum. Sjónvarpssófinn er húsgagn sem þú vilt ekki vera án. Teg. Journey 125.44C,- HU5GAGNAH0LLIN *********** Bíldshöfði 20 112 Reyk.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.