Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1999, Blaðsíða 10
10
MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1999
Fréttaljós
Grétar Mar Jónsson, forseti Farmanna- og fiskimannasambands íslands, í DV-yfirheyrslu:
Ég er tilbúinn í verkfall
- Bjarni Sveinsson, sem keppti
vió þig um forsetastólinn, dró sig til
baka úr slagnum þegar undirskrift-
ir til áskorunar á Guöjón A. Krist-
jánsson að bjóóa sig fram aö nýju
gengu á þingi FFSÍ. Hann líkti
kosningunum sem skrípaleiL.Hvaö
fannst þér um þá yfirlýsingu?
„Hann taldi að áskorunin kæmi í
bakið á bæði mér og honum. Það
Þú færð meira fyri
PENINGANA
þína ! ! !
Gleraugnaverslunin
SJÓNARHÓLl
Hafnarfírði & Glæsibæ
Frumkvöðull að lækkun gleraugnaverðs á ísla
smáskór
v/Fákafen
st. 19-24
Verð 3.890
Gámaleiga l
Vinnuskúrar
Gámur getur verið hentug lausn á
hverskyns geymsluvandamálum.
Hjá okkur færðu flestar gerðir gáma
hvort heldur er til kaups eða leigu.
Einnig leigjum við út og seljum
vinnuskúra. Getum við aðstoðað þig?
HAFNARBAKKI
Hafnarbakki hf. Suðurhöfninni Hafnarfirði
Sími 565 2733 Fax 565 2735
- ef útgerðarmenn samþykkja ekki hækkun á lífeyrisiðgjaldi
var hans afstaða og ekkert um það
að segja.“
- Hvaö finnst þér um deilu Guö-
jóns A. Kristjánssonar, fráfarandi
forseta, og Bjarna Sveinssonar, fyrr-
um stjórnarformanns Lífeyrissjóös
sjómanna?
„Þetta er sorgleg uppákoma. Ég
held að menn hafi tekið of stórt upp
í sig og sagt of mikið. Ég vona að
menn gleymi nú því sem liðið er og
horfi til framtíðar."
- Hefóir þú sem forseti samþykkt
þá skeröingu sem varö ofan á?
„Ég stóð í þeirri meiningu að
við myndum nýta rétt okkar til að
kæra þessa skerðingu og leggja
fram stjórnsýslukæru. Ég er þó
ekki viss um niðurstöðu þess
máls og spurning er hvort við
hefðum ekki staðið verr ef fjár-
málaráðuneytið hefði komið að
málinu og tekið að sér að ákveða
skerðinguna.“
- Já eóa nei. Hefóir þú gert þaö
sama og þáverandi forseti og sam-
þykkt skeröinguna?
„Já, ég hefði trúlega farið þá leið
sem var farin.“
Frekar lífeyrisskerðingar
- Er aó vænta frekari skeröinga á
lífeyrisgreiöslum?
„Þetta er bara fyrsti áfanginn og
ég er skíthræddur um að eftir tvö ár
verðum við að skerða meira."
- Eru einhver ráó til aö sporna
gegn skeröingum?
„Það var samþykkt á þingi okkar
að krafa okkar í næstu kjarasamn-
ingum verði sú að framlag útgerðar-
innar verði hækkað úr 6 prósentum
í 8 prósent."
- Munuö þió standa fast á
þeirri kröfu?
„Það munum við gera. Ég bendi á
að það er enginn lífeyrissjóður með
eins hátt hlutfall ekkna og öryrkja
og útgerðarmenn verða að koma til
móts við okkur. Ég er tilbúinn aö
fara í verkfall til að framfylgja þess-
ari kröfu.“
- Nú er unniö aö sameiningu
meirihluta félaga fiskimanna
innan FFSÍ. Jafnframt er þaö
skilningur margra aö meö
sameiningu felaganna verði
Farmannasambandiö til hliöar
sem eins konar skúffusamband.
Ert þú sammála því aö minnka
vœgi sambandsins?
„Á meðan stór hluti félaganna
er ekki aðili að stofnun stórs fé-
lags er ekki tímabært að minnka
vægi FFSÍ. Vonandi tekst að
sameina sem flest félög á næstu
árum og þá verður Farmanna-
sambandið skúffustofnun en
verður þó að vera til af tæknileg-
um ástæðum svo sem þeirri að
greiðslur úr Greiðslumiðlunar-
sjóði berast Farmannasamband-
inu.“
- Hvaö heföi þaö þýtt fyrir sam-
bandiö ef Bjarni Sveinsson heföi
verió kosinn?
„Þing FFSÍ er æðsta stofnunin og
eftir samþykktum þess ber stjóm og
forseta að vinna. Vinni stjóm af
heilindum skiptir ekki öllu hver er
forseti."
- Bjarni Sveinsson sagöi í DV aö
forystumennirnir, Guöjón forseti og
Benedikt Valsson framkvœmdastjóri,
vœru einangraöir. Ertu sammála því?
„Það stenst ekki í ljósi þess
hvemig skipting var á þinginu. Ég
vil meina að Bjami hafi verið að
tala um þetta í þröngum skilningi
og hann hafi verið að vísa til lifeyr-
ismálsins."
VHRHEYBSlft
Reynir Traustason
Úttar Sveinsson
- Vélstjórar eru meö sitt eigió
samband, undirmenn meö sitt og
þiö yfmmenn einnig. Gagnrýnt hef-
ur verió aö sjómenn tali ekki einu
máli. Styöur þú sameiningu allra
sjómannasambandanna í eitt?
„Ég segi eins og Martin Luther
King: „I have a drearn". Auðvitað
vil ég sjá alla sjómenn í sömu sam-
tökunum enda brenna sömu málin á
öllurn."
Vinn með öllum
- Eldar hafa logaö um árabil
milli Vélstjórafélags íslands og
FFSÍ. Munt þú taka upp náiö sam-
starf viö Helga Laxdal, formann
vélstjóra?
„Ég mun reyna að vinna með öll-
um sem við eigum erindi við. Þar
skiptir ekki máli hvort um er að
ræða félaga okkar á sjónum, í landi
eða viðsemjendur. Þar undanskil ég
engan.“
- Fréttir berast af því að samiö
hafi veriö viö vélstjóra um allt aö
400 þúsunda króna kauptryggingu
á sama tíma og skipstjórar eru meö
100 þúsund krónur í tryggingu.
Þannig eru dœmi um aö yfirvél-
stjóri sé meö fjórföld skipstjóralaun.
Hvernig líst þér á þessa þróun?
„Þetta er hroðaleg þróun fyrir
okkur skipstjórana. Við bemm
ábyrgð á skipi og mannskap en aðr-
ir í áhöfn eru metnir sem dýrari
menn.“
- Ábendingar hafa borist um aö
þú sért útgeröarmaöur og getir
þannig ekki stýrt hagsmunasamtök-
um launþega. Ertu vanhœfur?
„Nei, ég á 20 prósenta hlut í út-
gerð sem ég mun selja. Það er nauð-
synlegt fyrir þá sem starfa í svona
samtökum að vera algjörlega
ótengdir öllum rekstri útgerðar. Ég
mun jafnframt hætta sem skipstjóri
og einbeita mér að starfinu sem for-
seti FFSÍ. Það er ekki hægt að starfa
samhliöa þessu undir sægreifum
eða kvótakóngum".
- Hefuróu veriö tekinnfyrir
kvótasvindl?
„Já, ég hef reyndar lent í því að
vera ásakaður um kvótasvindl. Bát-