Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1999, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1999
15
Tízkutál
Að tolla 1 tízkunni
er mörgu fólki hið
mesta mál. Þetta vita
tízkuhönnuðir og
kaupahéðnar og nota
sér út í æsar með
áróðri - og skrumi ef
því er að skipta.
Tízkufyrirbrigði geta
verið skemmtileg og
áhugaverð, sér í lagi
þegar í hlut á kven-
fatnaður ýmisskonar,
þótt grímur renni á
margan manninn þeg-
ar kaupverð kemur á
daginn.
Elkur við athafna-
frelsi - úrelt,
gamaldags
En tízka birtist i
óteljandi tilbrigðum. Það má heita
tízka hjá ungliðum í stjórnmálum
að nú skuli allt vera sem frjálsast
og helzt hömlulaust. Hin frjálsa
samkeppni á öllu að snúa til bezta
vegar og farsældar. Að vilja setja
elkur við athafnafrelsi manna er
úrelt og gamaldags og það vilja
menn sízt vera.
Og nú hefir frelsisþráin brotist
út hjá bröskurum, sem þykir tími
til kominn að venja neytandann
við að líta á áfengi sem matvöru á
borð við kex og kókómalt. Segja,
að gera megi eina
ferð úr tveimur með
því að fólk geti orðið
sér úti um vinflösku
um leið og það kaup-
ir mjólk og brauð. -
Undir þetta munu
frjálsræðismennirn-
ir taka og aðrir þeir
sem nýtízkan tál-
dregur.
Það eru hinsvegar
járnkaldar stað-
reyndir að áfengi er
eitt hið háskalegasta
vímuefni. Það eru
einnig blákaldar
staðreyndir að
áfengi er í flestu falli
undanfari og orsök
þess að menn ánefj-
ast öðrum enn geig-
vænlegri eiturefnum.
Eins og krækiber í helvíti
Að mati þess, sem hér heldur á
penna, er ekkert, sem að steðjar ís-
lenzkri þjóð, jafn háskasamlegt og
ásókn eiturefn-
anna. Þegar haft
er í huga, að
áfengið er tábeit-
an, sem teymir
fólk áfram út í
enn ógnarlegri
ófæru, má einskis
láta ófreistað að
bægja þeim vá-
gesti frá, og ungu
fólki sérstaklega.
Vegna þeirra, sem
allt mæla í krón-
um og aurum, má
minna á, að sá ágóði, sem íslenzka
ríkið hefir af sölu áfengis, er eins
og krækiber í helvíti á borð við
það eignartjón sem af þvi og öðr-
um eiturefnum hlýzt fjárhagslega.
Annað tjón verður aldrei í tölum
talið.
Sverrir Hermannsson
Kjallarínn
Sverrir
Hermannsson
alþingismaður
„Það eru hinsvegar járnkaldar
staðreyndir að áfengi er eitt hið
háskalegasta vímuefni. Það eru
einnig blákaldar staðreyndir að
áfengi er í flestu falli undanfari
og orsök þess að menn ánetjast
öðrum enn geigvænlegri eiturefn-
um.“
Gera megi eina ferð úr tveimur með þvf að fólk geti orðið sér úti um vín-
flösku um leið og það kaupir mjólk og brauð, undir þetta munu frjálsræð-
ismennirnir taka og aðrir þeir sem nýtízkan táldregur, segir m.a. í grein
Sverris. - í matvöruverslun Nýkaups í Kringlunni.
Kommúnismi,
klám og sori
Á því hefur lengi leikið grunur
að hér hafi einhvern tima verið
geymd kjarnorkuvopn. Miðað við
hversu mikilvægt ísland var land-
fræðilega á dögum kalda stríðsins
hefði það verið hernaðarleg fiflska
að geyma ekki nokkrar bombur
hér. Hafi einhverjir haldið að
kalda stríðinu væri lokið þá skjátl-
aðist þeim hrakalega.
Rannsóknarfréttastofan á Stöð 2
hélt baráttunni áfram. Geislavirkt
úrfellið var ekki fallið til jarðar er
Árni Snævarr geystist fram í
broddi fylkingar með skandal ald-
arinnar ef ekki árþúsundsins: Sov-
étríkin veittu fé til islenska
Kommúnistaflokksins! Þvílík ógn!
Þvilík skelfing! Og til að kóróna
allt saman var dreginn upp há-
tæknilegur hlerunarbúnaður (fyr-
ir meira en tíu árum) úr Kleifar-
vatni með afmáðum rússneskum
stöfum.
Stórkostlegar fréttir?
Mér fyndist það fréttnæmt ef
Grænfriðungar veittu fé til
vinstri-grænna eða Hamas-sam-
tökin til Heimdellinga. Það er
nefnilega nútíð. Ég veit ekki hvort
ég á að eyðileggja einlæga frétta-
gleðina hjá fréttamönnum Stöðvar
2 en Sovétríkin eru liöin undir
lok, íslenski Kommúnistaflokkur-
inn líka og flestir hlutaðeigandi
löngu komnir undir græna torfu.
Hvaða stórkostlegu fréttir fáum
við næst? Að það sé búið að finna
upp hjólið?
Sem færir okkur sjálfkrafa aö
næststærsta fréttaefninu á Stöð 2.
Fréttamenn á
vaðstígvélum að
elta uppi kúk og
klósettpappir og
sýna í nærmynd.
Auðvitað er það
vandamál að
skolpræsi borg-
arinnar séu í
lamasessi. En
þarf nauðsyn-
lega að leita uppi
hvern einasta
hortitt fréttatíma eftir fréttatíma?
Og gleymum ekki sökudólgnum,
glæpagenginu ógurlega, sem hellir
ósómanum yfir fjörur borgarinn-
ar, sjálfri borgarstjórninni.
Það vill nefnilega þannig til að
borgarstjórnin þjáist af hinum
skelfilega sjúkdómi vinstri-slag-
síðu. Hún skyldi þó aldrei hafa
tengsl við Rússagrýluna ræfils-
legu? Ætli Stöð 2 sé komin á spor-
ið um „alheimssamsærið"? Vita
Fox og Scully af þessu?
Á leiðinni í klær „para-
noiunnar" skulum við
alveg gleyma því að
Grafarvogur var byggð-
ur upp í stjómartíð Sjálf-
stæðisflokksins.
Stöð 2 gleymir ekki
Stöð 2 er einkarekin
stöð, frumherji frjálsra
fjöltniðla á íslandi.
Fyrstu merki frelsisins í
Austur-Evrópu voru
McDonalds-staðir og
klámbúllur. Og Stöð 2
bregst ekki skyldum sín-
um í trúboði frelsisins.
Það er ekki hægt að
fjalla um klám né klám-
búllur á Stöð 2 öðruvísi
en að flagga dönsku
dömunni á píkustönginni. Það eru
þrjú ef ekki fjögur ár siðan Jón
Ársæll ræddi við hana og bauð
upp á leggangaskoðun í ólæstri
frétt eftir sjö, bömum landsins til
fróðleiks. Kvöldið eftir tilkynnti
Þorsteinn J. með meðaumkunar-
brosi að þetta hefði víst farið eitt-
hvað fyrir brjóstið á viðkvæmum.
Ég hringdi, ég er viðkvæmt lítið
blóm. Það vildi svo skemmtilega
til að þetta var um svipað leyti og
kvenfréttastjórinn þeirra var fæld-
ur úr starfi. Gott að fá svona und-
irstrikuð skilaboð.
Skömmu síðar komu karlstripp-
arar til landsins og Þorsteinn tók
á móti þeim úti á flugvelli og tal-
aði við þá í bílnum
á leiðinni í bæinn.
Ég beið að sjálf-
sögðu spennt eftir
samsvarandi sýn-
ishomi af karlketi.
En það var búið,
ekkert meira
nema Steini litli,
gjörsamlega miður
sin yfir þessum
ósköpum.
Langdvölum
í klámi
Nýlega Qallaði
svo Ólöf Rún um
skaðsemi kláms
og talaði við fé-
lagsfræðing um
vanda unglinga.
Og hvað var sýnt
á meðan? Nú, klám auðvitað. Þetta
eru jú fréttir og nauðsynlegt að
fólk fái grafiska útfærslu á þvi
sem er verið að fjalla um. íslenska
þjóðin liggur reyndar langdvölum
í klámi og ætti vera farin að fatta
dæmið.
Miðað við hvað Stöð 2 er „frjáls-
lynd“ þá gæti manni dottið í hug
að þeir ættu hagsmuna að gæta á
klámmarkaðinum. Eins og t.d.
Ijósbláa sjónvarpsstöð og símalín-
ur. Má ég, sem forfallinn sjón-
varpssjúklingur og áskrifandi að
Stöð 2, vinsamlegast fara fram á
hlutlausari fréttaflutning og fleiri
bera stráka.
Ásta Svavarsdóttir
„Stöð 2 er einkarekin stöð, frum-
herji frjálsra fjölmiðla á íslandi.
Fyrstu merki frelsisins í Austur-
Evrópu voru McDonalds-staðir og
klámbúllur. Og Stöð 2 bregst ekki
skyldum sínum í trúboði frelsis-
ins. “
Kjallarinn
Ásta
Svavarsdóttir
bókmenntafræðingur
Með og
á móti
Á að taka kjördæmamálið
upp að nýju?
Þverpólitísk nefnd um kjördæmamálið
komst að samkomulagi um megin
breytingar á kjördæmaskipan og skilaði
áliti þar um í fyrrahaust. Samþykktar
voru stjórnarskrárbreytingar þ.a.l. en
ekki ný kosningalög. Nýrri kjördæma-
nefnd er nú ætlað að Ijúka málinu en
deilt er um hvort hún eigi að hrófla við
megin hugmyndum fyrri nefndar.
Málið er
ófrágengið
Það er mikilvægt að átta sig á
því að kjördæmamálið er enn
ófrágengið, hvort sem mönnum
líkar það betur
eða verr.
Staða máls-
ins er þessi:
Búið er að
breyta stjórn-
arskránni og
ákveða þar
með að kjör-
dæmin verði
sex eða sjö, og
að kjördæma-
skipan og
skiptingu þingsæta milli kjör-
dæmanna skuli ákveða með lög-
um.
Þessari seinni kjördæmanefnd
er ætlað að semja frumvarp að
þessum nýju kosningalögum.
Auk þess var ákveðið á fyrra
þingi að opna fyrir breytingar á
fyrirliggjandi tillögum um sex
kjördæmi með því að heimila að
kjördæmin gætu orðið sjö.
Pólitískt og lagalega er málið
því enn á umræðustigi þó vissu-
lega liggi fyrir ákveðin megin til-
laga. En hún er jú bara tillaga,
enn sem komið er.
Mikilvæg
samstaða
hefur náðst
Hin þverpólitíska kjördæma-
nefnd sem skilaði af sér í fyrra-
haust lagði mikla vinnu í þessi
mál og náði
mikilvægu
pólitísku sam-
komulagi eftir
mikla yfirsetu.
Vinnan hef-
ur þvi farið
fram í nefnd
allra flokka og
mikilvæg nið-
urstaða er
fengin, m.a.
um kjördæma-
mörkin, þó sú niðurstaða hafi
ekki enn verið lögfest.
Stjómarskránni var breytt í
samræmi við megin hugmyndir
nefndarinnar. Vegna tímaskorts
á vorþinginu tókst hins vegar
ekki að ganga frá og samþykkja
ný kosningalög á síðasta þingi.
Það er miður, enda tel ég mjög
óheppilegt að slíta málið svona í
sundur. Ég er ekki að spá kosn-
ingum á næstunni, en við skul-
um samt átta okkur á því að á
meðan ekki hafa verið samþykkt
ný kosningalög, er ekki hægt að
kjósa í landinu.
Þó ekki hafi náðst að sam-
þykkja ný kosningalög á vorþing-
inu gefur það enga ástæðu til að
fara enn og aftur niður í kjölin á
þessum flóknu og lengst af við-
kvæmu ágreiningsmálum.
Kjallarahöfundar
Athygli kjallarahöfunda er
vakin á því að ekki er tekið við
greinum í blaðið nema þær ber-
ist i stafrænu formi, þ.e. á tölvu-
diski eða á Netinu. DV áskilur
sér rétt til að birta aðsent efni á
stafrænu formi og í gagnabönk-
um.
Netfang ritstjórnar er:
dvritst@ff.is