Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1999, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1999, Qupperneq 36
Vinnmgstölur Iaugardagúui: 06.11 18 - 9 (10 upphæð Vinningar vinninga 5.658.190 2. 4 af 5 + 211.910 9.610 3. 4 af 5 2.857 590 4. 3 af 5 5 Jókertölur vikunnar: ---- 0 2 115^* m m mm FRETTASKOTIÐ SIMiNN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1999 Skeiðará vex „Það var að koma fólk til okkar núna sem er frá Höfn í Hornafirði. Þegar það fór yfir Skeiðará sagði það að fýlan væri mikil. Þetta byrj- aði eiginlega á mánudaginn en það hefur verið að aukast í ánni síðustu tvo til þrjá daga,“ sagði Magnús Friðfinnsson í Freysnesi við DV í gærkvöld, spurður um nýjustu fregnir af Skeiðarárhlaupi. Ekki er búist við stóru hlaupi, jafnvel hafa menn rætt um helming af meðalhlaupi. Búist er við að það nái hámarki á næstu dögum. Magn- ús kvaðst ekki búast við að hlaupið mundi hafa nein áhrif á umferð bíla um Skeiðarársand. -Ótt Margrét Frímannsdóttir: Staðan er sterk „Staða Alþýðubandalagsins er mjög sterk," sagði Margrét Frí- mannsdóttir for- maður, eftir nýaf- staðinn fund Al- þýðubandalagsins um helgina. „Stað- an er mun skýrari nú en var fyrir kosningamar, þeg- ar ákveðið var að fara í þetta sam- starf við Samfylkinguna. Nú er gengið frá því að Alþýðubandalagið ætlar að gerast aðili að Samfylking- unni ef hún verður að formlegu stjómmálaafli. “ -HKr. Stoke City: Gunnar er yngsti stjórnar- formaðurinn Loftskeytamað- ur vann milljónir Stálheppinn loftskeytamaður úr Reykjavík náði sér í 3.366.273 krónur í gullpotti Happdrættis Háskóla ís- lands í Ölveri á laugardag. Þetta er níunda gullið sem fellur í Ölveri en gullvinningar sem unnist hafa eru tæpar 80.000.000 í Ölveri, ásamt ógrynni af silfurpottum, að sögn Baldurs Helga Hólmsteinssonar, starfsmanns í Ölveri. Loftskeytamað- urinn er 66 ára og að hans sögn kem- ur vinningurinn í góðar þarfir fyrir jólin. „Vinningshafmn kemur stund- um til okkar Baldurs og hann var hálfhissa þegar kassinn fór að væla, hann hélt að hann væri bilaður. Ég er viss um að hann hefur sjaldan eða aldrei spilað í spilakassanum, enda vissi hann greinilega ekki hvað var að þegar vinningurinn kom,“ sagði Magnús Halldórsson, framkvæmda- stjóri Ölvers. -DVÓ Baldur Helgi Hólmsteinsson við spilakassa. DV-mynd S Þorsteinn Pálsson, sendiherra íslands í London, var heiðursgestur á leik Stoke og Bristol City í gær, f tilefni af yfir- töku íslendinganna, og hér færir borgarstjóri Stoke honum keramikplatta að gjöf fyrir leikinn. DV-mynd Pjetur Safnaöarfundir í Holts- og Flateyrarsóknum: Vilja prestinn burt um jólin - óska eftir þjónustu annars prests en sr. Gunnars A almennum safnaðarfundi i Flat- eyrarsókn síðdegis i gær var sam- þykkt tillaga um að fara þess á leit við sr. Agnesi Sigurðardóttir, pró- fast í Bolungarvík, að hún sjái til þess að annar prestur en sóknar- presturinn annist guðsþjónustur á Flateyri á aðventu og um jól og ára- mót. Formaöur sókarnefndar, Gunn- laugur Finnsson á Hvilft, segir að þetta sé gert á þeim forsendum að sr. Gunnari verði veitt leyfi frá störfum á sama tíma ef ekki verði búið að leysa þann ágreining sem uppi er. Tuttugu og átta manns greiddu atkvæði um tillöguna á fundinum. Tuttugu sögðu já, þrír voru á móti en fimm sátu hjá. Sr. Gunnar Björnsson sagðist ekkert hafa heyrt um málið i gær- kvöld og vildi ekkert tjá sig um það hvort hann væri á leiðinni I frí. Fyrir viku var samþykkt svipuð til- laga á almennum safnaðarfundi Holtssóknar. Séra Agnes sagði í sam- tali við DV í gær að hún hefði ráðfært sig við biskup vegna málsins en það væri angi af deilum sóknarbarna við prestinn í Holti. Þá væri spurning hvort sóknarbörn þyrftu að leysa sóknarbönd til að gera það mögulegt að útvega annan prest til að þjónusta í sókninni. Þá er enn ekki vitað hvort deilumálinu í sókninni verður áfrýj- að til áfrýjunarnefndar þjóðkirkjunn- ar, en frestur tU þess rennur út um næstu helgi. Fyrr er vart að vænta að prófastur taki ákvörðun í málinu. Reglur eru þannig að ef sóknar- bönd eru leyst má kjörprestur fólks- ins halda guðsþjónustur í viðkom- andi sókn þótt annar prestur sitji þar fyrir. Þannig hefur t.d. sr. Magnús Erlingsson, sóknarprestur á ísafirði, þjónað í Kirkjubólskirkju í Valþjófsdal, sem annars heyrir undir prestinn í Holti. Tilfinninga- legur vandi við að kalla annan prest til starfa er sérlega mikill hvað varðar Holtssókn, þar sem sitjandi .prestur býr í húsi gegnt sóknar- kirkjunni í Holti. -HKr. DV; Stoke: Hinir nýju eigendur meirihluta í enska knattspyrnufélaginu Stoke City mættu á leik liðsins við Bristol City í gær með friðu foruneyti. Alls voru um 60 íslendingar á leiknum á Britannia Stadium en í dag tekur Guðjón Þórðarson væntanlega við starfi framkvæmdastjóra félagsins. Gunnar Þór Gíslason er nýr stjórnarformaður Stoke City. Hann er 33 ára gamall og þar með yngsti stjómarformaður í ensku knatt- spymunni. Auk hans eiga Ásgeir Sigurvinsson og Elvar Aðalsteins- son sæti í stjórninni ásamt tveimur fulltrúum gömlu stjórnarinnar. Greinilegt er á almenningi i Stoke að yfirtöku íslendinganna er beðið með mikilli eftirvæntingu og fólk vonast eftir því að þeim takist að hefja þetta fornfræga félag til vegs og virðingar á nýjan leik. Á blaðamannafundi nú fyrir há- degið mun hin nýja stjóm Stoke kynna áætlanir sínar, hvað varðar uppbyggingu, liðsstjórnun og leik- menn. Nokkrir íslenskir leikmenn eru sterklega orðaðir við félagið. Sjá nánar á bls. 23. -KGK/PS/VS Erfitt að reka prest: Rautt spjald og brottrekstur Sem kunnugt er tók úrskurðar- nefnd þjóðkirkjunnar ekki afger- andi afstöðu í deilumáli Holtsklerks í niðurstöðu sinni á dögunum. Séra Gunnar Bjömsson, sóknarprestur í Holti, er með svo- kallaða æviráðn- ingu af þvi að hann kom til starfa fyrir 1. júlí 1996 og því verður honum ekki sagt upp á einfald- an hátt. Að sögn Agnesar Sigurðar- dóttur, prófasts ísa- fjarðarprófastsdæm- is, þá er mögulegt að vikja presti frá ef honum hefur fyrst verið veitt áminning í starfi. Þá er það líkt og í fótboltanum, að við aðra áminningu fær hann rautt spjald og er þá vænt- anlega vísað úr starfi. Þetta hefur þó enn ekki gerst í tilviki sr. Gunn- ars. Prófasturinn, sr. Agnes Sigurðar- dóttir, hefur boðað presta í prófasts- dæminu til fundar á ísafirði í dag vegna þeirra deilna sem nú eru uppi í Önundarfirði. -HKr. Sr. Gunnar Björnsson. Veðrið á morgun: Bjartviðri víðast hvar Á morgun er gert ráð fyrir vestlægri átt og fremur hægum vindi. Dálítil él verða við austur- ströndina en annars víða bjart veður. Veðrið í dag er á bls. 45. Jólakort Sími 569 4000 Hafnarbraut 23, Kóp. i Í i i i i i i i i i i i i i i i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.