Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1999, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1999
21
I>V
Sport
NBA-DEILDIN
Aðfaranótt laugardags:
Boston - New York........80-74
Walker 22, Pierce 19, Anderson 17 -
L.Johnson 16, Houston 16, Sprewell 14.
Philadelphla - Chicago .... 92-86
Iverson 35, Lynch 15, Maccullock 10 -
Hawkins 30, Hoiberg 14, Brand 13.
Miami - Washington.......104-95
Mouming 25, Mashbum 22, Majerle 14
- Murray 15, Williams 13, Hamilton 13.
Charlotte - New Jersey .... 96-92
Jones 24, Wesley 17, Campbell 17 -
Marbury 31, Van Hom 18, Gill 11.
Milwaukee - Phoenix .....107-92
Robinson 27, Ailen 20, Cassell 19 -
Hardaway 19, Kidd 17, Guglitotta 12.
Sacramento - Utah .......105-92
Webber 20, J.Wiiliams 18, Barry 12 -
Malone 20, Homacek 14, Russell 11.
Portland - Denver.........93-78
Wallace 19, Schrempf 15, Smith 14 -
Mcdyess 17, Van Exel 15, Posey 11.
Houston - LA Lakers.......97-81
Francis 22, Rogers 16, Olajuwon 12 -
Rice 11, Green 10, Fisher 10.
Golden State - Vancouver .. 103-93
Starks 22, Mills 20, Marshail 13 -
Rahim 21, Reeves 20, Dickerson 20.
Aðfaranótt sunnudags:
Indiana - Washington .... 105-83
Rose 16, Miller 15, Groshere 15 -
King 20, Murray 12, Strickland 10.
Cleveland - Milwaukee .. 117-112
Sura 23, Knight 18, Kemp 14 -
Robinson 32, Cassell 22, Allen 22.
Detroit - Seattle........107-99
Hill 34, Stackhouse 24, Hunter 17 -
Payton 30, Patterson 16, Baker 12.
Dallas - Orlando........125-117
Finley 28, Ceballos 21, Pack 21 - Gatl-
ing 31, Armstrong 29, Williams 18.
Minnesota - Phoenix .... 111-100
Nesterovic 23, Brandon 21, Szczerbiak
18 - A. Hardaway 21, Marion 13.
Chicago - Boston .........92-91
Hoiberg 19, Brown 18, Hawkins 14 -
Walker 24, Anderson 20, Pierce 19.
San Antonio - Charlotte . . . 95-79
Duncan 22, Robinson 16, Rose 14 -
Phills 13, Coleman 13, Campbell 12.
Portland - Atlanta ......131-95
Stoudamire 20, O’Neal 17, Schrempf
16 - Henderson 22, Terry 17, Rider 14.
Golden State - Houston . . . 95-103
Jamison 27, Mills 19, Marshall 16 -
Francis 27, Williams 16, Barkley 15.
M)
ENGLAND
B-deild:
Grimsby - Charlton . . 2-5
Ipswich - Tranmere . . 0-0
Swindon - - Norwich . . 0-0
Walsall - Port Vale . . 0-0
Fulham - Bamsley . . . 1-3
Crystal Palace - QPR . 3-0
Nottingham F. - Huddersfield . . 1-3
Shefíield United - Bolton 1-2
WBA - Portsmouth . . 3-2
Efstu og neðstu lið:
Charlton 17 12 2 3 34-18 38
Huddersf. 19 11 4 4 40-20 37
Man.City 18 11 4 3 27-12 37
Barnsley 18 11 1 6 35-26 34
Stockport 18 8 6 4 24-24 30
Ipswich 18 8 5 5 33-24 29
Bolton 18 8 5 5 28-19 29
Blackburn 16
Sheff.Utd 18
Walsall 19
Swindon 19
Crewe 17
8 5 19-20 17
5 9 19-30 17
6 10 15-30 15
5 11 12-33 14
4 10 15-28 13
Eióur Smúri og Guöni Bergsson
léku báöir allan tímann fyrir Bolton í
gær. Gareth Farally skoraði fyrra
mark Bolton meö fyrstu snertingu í
sínum fyrsta leik fyrir félagiö og Bo
Hansen skoraði síðara markið.
Lárus Orri Sigurösson lék allan
leikinn með WBAsem vann lang-
þráðan sigur á Portsmouth með
marki mínútu fyrir leikslok.
Bjarnólfur Lárusson fór af velli fyr-
ir Sigurö Ragnar Eyjólfsson hjá
Walsall á 78. minútu gegn Port Vale.
ívar Ingimarsson lék fyrri hálfleik-
inn með Torquay sem gerði jafntefli,
1-1, við Darlington í D-deildinni.
Bjarki Gunnlaugsson tók út leik-
bann þegar Preston vann Notts
County i C-deildinni.
-VS/GH
Romario, fyrrum stjarna Brasilíu-
manna, var rekinn frá liði sínu, Fla-
mengo, um helgina. Hann fór út að
skemmta sér þrátt fyrir að leikmönn-
um liðsins væri fyrirskipað að halda
sig heima á hóteli eftir tap í deilda-
leik sem gerði vonir Flamengo um
brasilíska meistaratitilinn að engu.
Romario, sem er 33 ára, er marka-
hæsti leikmaður liðsins á tímabilinu.
Lætur verkin ts
..Scholes hefur allt tn L b 01 morkin í lei
að leiðarljósi að suara ..r T-'3 °S bann sP^ar m
tala,“ sagði Keegan yfirIysm™r og láta ,
er vel fagnað af Michael Owen og Alan Shearer. Reuter
Paul Scholes rís á fætur eftir seinna mark sitt gegn Skotum og
Belgar unnu óvæntan sigur á Itöl-
um, 1-3, í vináttulandsleik í knatt-
spyrnu sem fram fór í Lecce á Italíu
á laugardagskvöldið. Gilles De
Bilde, Marc Wilmots og Bart Goor
skoruðu fyrir Belga en Paolo Vanoli
fyrir Itali.
Hollendingar léku sinn 11. leik í röð
án sigurs undir stjóm Franks Rijka-
ards þegar þeir gerðu 1-1 jafntefli við
Tékka í Eindhoven. Jaap Stam kom
Hollendingum yfir en hinn hávaxni
Jan Koller jafnaði fyrir Tékka.
Lió Spánar og Brasiliu ollu bæði
vonbrigðum þegar þau gerðu 0-0 jafn-
tefli á laugardagskvöldið. Grikkir
sigruðu Nígeríumenn í Aþenu, 2-0.
Bland í poka
Birkir Kristinsson átti náðugan dag
í marki Lustenau
þegar liðið gerði 0-0
jafntefli við GAK
Graz í austurrísku
A-deildinni i knatt-
spyrnu á laugardag-
inn. Lustenau var
óheppið aö sigra
ekki i leiknum en
liðið er áfram næst-
neðst í 10 liða deildinni með 15 stig,
þremur stigum meira en botnliðið
Bregenz.
Englendingar eiga alla möguleika á sæti í lokakeppni EM:
„Mjög stoltur"
- sagði Alan Shearer eftir 0-2 sigur gegn Skotum á Hampden Park
Englendingar eru komnir með
annan fótinn í úrslitakeppni Evr-
ópumótsins í knattspyrnu eftir 0-2
sigur á Skotum í fyrri leik þjóðanna
sem fram fór á Hampden Park i
Glasgow á laugardag. Sá seinni
verður á Wembley í London og þar
þurfa Skotar að vinna sinn stærsta
sigur í enska höfuðstaðnum í hálfa
öld til að snúa blaðinu við og kom-
ast í úrslitakeppnina.
Paul Scholes skoraði bæði mörk-
in, á 21. og 42. mínútu, eftir sending-
ar frá hægra kanti frá Sol Campbell
og David Beckham. Skotar sóttu
meira og fengu tvö góð færi sem
ekki nýttust.
„Englendingar verðskulduðu ekki
þessi úrslit því þeir ógnuðu okkur
aldrei nema þegar þeir skoruðu
þessi tvö mörk. Varnarmistök felldu
okkur, og eftir að við lentum 0-2
undir máttum við ekki sækja of stíft
því þriðja markið hefði gert vonir
okkar um að komast áfram að engu.
En við erum enn með í baráttunni,
við erum vanir að skora á erfiðum
útivöllum og gerum það vonandi
lika á Wembley," sagði Craig
Brown, þjálfari Skota.
Kevin Keegan, þjálfari Englend-
inga, hafði aðra sögu að segja, var
alsæll með sína menn og sérstak-
lega með vörnina.
„Við lékum frábærlega og nú
lögðu allir sig fram en það hefur
verið skortur á þvi síðan ég tók við
liðinu. Fyrri hálfleikurinn gekk ná-
kvæmlega eins og ég vonaðist eftir,
þetta var eins og handrit hefði verið
skrifað fyrir okkur, og liðið er farið
að spila í líkingu við það sem ég vil.
Þetta er ekki búið en staða Skota er
mjög erfið,“ sagði Keegan.
Alan Shearer sagðist ekki hafa
heyrt enska þjóðsönginn fyrir leik-
inn vegna hávaða í áhorfendum.
„En við þögguðum niður í þeim, ég
er mjög stoltur af frammistöðu okk-
ar á þessum erfiða velli. Þetta var
þó aðeins fyrri hálfleikur og við
munum spila til sigurs á Wembley á
miðvikudaginn," sagði fyrirliðinn.
„Okkur tókst ekki að opna ensku
vörnina nægilega vel þrátt fyrir gíf-
urlega vinnslu í liðinu. Þetta verður
erfitt og við þurfum í raun fárán-
lega góðan leik til að snúa blaðinu
við í London," sagði Colin Hendry,
varnarjaxl Skota. -VS
„Fullkominn leikur"
- Danir öruggir, Tyrkir standa vel, Slóvenar lögðu Úkraínu
Danir eru öruggir með sæti í úr-
slitakeppni EM í knattspyrnu eftir
yfirburðasigur, 0-5, á ísraelum í
fyrri leik þjóðanna sem fram fór í
Tel Aviv á láugardag. Seinni leikur-
inn íKaupmannahöfn á miðvikudag
er formsatriði eftir þessi úrslit. Nú
er ljóst að þrjú Norðurlandalið
verða með i lokakeppninni, Dan-
mörk, Noregur og Svíþjóð, og það
hefur ekki gerst áður í EM eða HM.
„Þetta var fullkominn leikur, allt
gekk okkur í hag og við náðum úr-
slitum sem ekki var hægt að láta sig
dreyma um. Þetta er forskot sem við
getum ekki tapað niður," sagði Bo
Johansson, þjálfari Dana og fyrrum
þjáifari íslenska landsliðsins.
Jon Dahl Tomasson skoraði strax
á 2. mínútu og aftur á 35. minútu.
Eftir að Haim Revivo var rekinn af
velli á 58. mínútu var mótspyrnu
ísraela endanlega lokið og Stig Töft-
ing, Martin Jörgensen og Brian
Steen Nielsen bættu við mörkum.
írar fóru illa að ráði sínu þegar
þeir gerðu 1-1 jafntefli við Tyrki í
Dublin. Robbie Keane kom þeim
yfir 11 mínútum fyrir leikslok en
fjórum mínútum síðar fengu þeir á
sig óþarfa vítaspyrnu þegar Lee
Carsley sló til boltans, liggjandi á
vellinum. Tayfur Havutcu jafnaði
úr vítaspyrnunni og Irar eiga nú
erfitt verk fyrir höndum Ekki síst
vegna þess að Robbie Keane fékk
gult spjald fyrir mótmæli og verður
í banni í seinni leiknum.
Slóvenar unnu nokkuð óvæntan
en mjög verðskuldaðan sigur, 2-1, á
Úkraínumönnum í Ljubljana. And-
rei Shevchenko kom Úkraínu yfir
með fallegu skoti eftir 33 mínútur
en Zlatko Zahovic jafnaði í byrjun
síðari hálfleiks. Þegar 6 mínútur
voru eftir fékk Milenko Acimovic
boltann í miðjuhringnum eftir út-
spark frá Shovkovksy, markverði
Úkraínu, og sendi hann rakleitt til
baka, yfir markvörðinn og í netið,
2-1. Tveir Úkraínumenn voru rekn-
ir af velli, Dmitri Parfenov eftir
klukkutíma leik og Andriy Gusin á
lokamínútu leiksins. -VS
Frakkar frískír
Frakkar unnu sannfærandi
sigur á Króötum, 3-0, í vináttu-
landsleik í knattspymu í Paris á
laugardagskvöldið. Roger Le-
merre breytti liði sinu talsvert
frá 3-2 sigrinum á íslandi í síð-
asta mánuði og það hreif. Robert
Pires, Florian Maurice og Tony
Vairelles skoruðu mörkin í síð-
ari hálfleiknum. -VS
ÞÍN FRÍSTUND
-OKKAR FAG
Bíldshöfða 20 • 112 Reykjavík • 510 8020
• www.intersport.is