Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1999, Side 1

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1999, Side 1
ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999 Frábær boxleikur Bls. 18 Erfða- breyttar hænur Bls. 22 Netið færir sig upp á Bls. 20-21 PlayStation í síðustu viku gerðist sá atburður úti í geimnum að Hubble- stjörnusjónaukinn, sem er á sporbaug um jörðu, varð fyrir alvarlegri bilun og var því slökkt á öllum helstu kerf- um sjónaukans og hann settur í það sem kallað er „öruggt ástand" á með- an beðið er eftir viðgerð. Það sem olli þessu var að einn 7J£jJJJíIJ snúður (e. gyroscope) sjónaukans bil- aði. Þar af leiðandi voru einungis tveir af sex slíkum snúðum virkir - og Hubble þarf a.m.k. þrjá virka snúða til að geta miðað rafauga sínu af nákvæmni út i geiminn. Missir hinna þriggja snúðanna hafði neytt Geimferðastofnun Banda- ríkjanna tO að heíja skipulagningu viðgerðarfarar til að þjónusta og gera við sjónaukann og bilunin í síðustu viku sýndi svo ekki varð um villst að sú fór var orðin tímabær. Áætlað er að hún verði farin þann 6. desember. Ferðaáætlunin hljóðar upp á að tvö pör geimfara takist á hendur fjór- ar erfiðar geimgöngur til að gera við og bæta ýmsa mikilvæga hluta sjón- aukans sem átti níu ára afmæli sitt í geimnum á þessu ári. Efst á verk- efnalistanum er að skipta um alla sex snúða sjónaukans. Hubble hefur aldrei verið aðgerða- laus svona lengi og eru fræðingar hjá NASA nokkuö áhyggjufullir af að hann muni ekki hafa mjög gott af hvíldinni. Jafnvel þótt sjónaukinn muni ekki skaðast hefur þetta samt slæmar afleiðingar fyrir nokkrar rannsóknir sem verið var að fram- kvæma með sjónaukanum. Sumar tefjast en aðrar eru jafnvel úr sög- unni vegna þessa þriggja vikna hlés. Andlegir kvillar og ölvunarakstur Finnskir vísinda- menn hafa komist að því að fólk sem er ákært fyrir ölvun- arakstur á unga aldri er líklegra en annað fólk til að verða andlega veikt eða fremja ofbeldisfulla glæpi seinna á lífsleið- inni. Þetta fundu Finnarnir út með því að rannsaka hóp fólks sem allt var fætt á sama árinu, 1966. í ljós komu mjög sterk tengsl milli þess- ara einkenna og því yngri sem einstak- lingur er dæmdur fyrir ölvunarakstur - þeim mun meiri líkur eru á að hann sé andlega veikur eða ofbeldisfullur. Þessar niðurstöður telja vlsindamenn- imir að leiði óhjákvæmilega til þess að hægt verði að aðstoða þá betur sem keyra ölvaðir á unga aldri, því sú hegðun sé vísbending um að lík- ur séu á andlegum kvillum hjá viö- komandi. itít'ji Bóluefni gegn kvefi? Bandarískir vísinda- menn telja sig hafa fundið aðferð til að stöðva eina af aðal- veirunum sem or- sakar kvef hjá fullorðnum. Við rannsóknir sínar hefur þeim tekist að koma í veg fyrir að veiran kom- ist inn í mannsfrumu og fjölgað sér þar, sem ætti að verða til þess að stöðva hana eða a.m.k. draga úr getu hennar. En vísindamennimir eiga þó enn langt í land með að finna bóluefni gegn kvefi, því rann- sóknimar hafa hingað til einungis farið fram í tilraunaglösum og þær aðstæður eru talsvert ólikar þvi sem gengur og gerist úti í hinum raunverulega heimi. Aðferð vísinda- mannanna byggir í stórum dráttum á að láta bakteríuna E.coli bindast veirunni áður en hún kemst í venju- lega mannsfmmu. iiajyjj£> ímúi f axfjölskyldan Betri faxtæki eru vandfundin! FO-2600 • Innbyggður sími • Prentar á A4 pappír • Sjálfvirkur deilir fax/sími • Símsvara tengimöguleiki • Laserprentun • 512 kb minni • 20 blaða • 100 blaða pappírsbakki •Innbyggður sími • Sjálfvirkur deilir fax/sími • Símsvara tengimöguleiki • Hitafilmu prentun • Prentar á A4 pappír • 10 blaða frumritamatari • 60 blaða pappírsbakki FO-4500 • Prentar á A4 pappír • Laserprentun • 1 mb í minni (ca 50 slður) • 50 blaða frumritamatari • 650 blaða pappírsgeymsla F-3600M • Faxtæki, sími, Windows- prentari, skanni, tölvufax, og Ijósriti í einu tæki • Sjálfvirkur deilir fax/slmi • Laserprentun • Prentar á A4 pappír • 30 blaða frumritamatari • 100 blaða pappírsbakki

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.