Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1999, Síða 1
19
Helgi og
félagar
fengu
Bæjara
cjD
nundur Hí
ari Oskan
HM kvenna í handbolta:
Danska liðið
til alls líklegt
2. umferö í riðlakeppni heims-
meistaramóts kvenna í handknatt-
leik lauk í gærkvöld. í B-riðli sigr-
uðu Rúmenar Fílabeinsströndina,
33-15, Austurríki vann Kúbu, 37-27,
og Frakkar sigruðu Úkrainu, 18-16.
Rúmenar, Frakkar og Austurríki
hafa 4 stig.
í C-riðli unnu heimsmeistarar
Dana lið Japans, 28-15, Makedónía
vann Argentínu, 33-10, og Þýska-
land og Angóla gerðu jafntefli,
20-20. Danir og Makedónía eru efst
með 4 stig.
í D-riðli vann S-Kórea lið Brasil-
íu, 27-20, Ungverjar sigruðu Kongó,
39-17 og Rússar unnu Kína, 38-21.
Rússar, S-Kórea og Ungverjar hafa
4 stig.
-JKS
United ríkast
Manchester United er samkyæmt skýrslum rík-
asta knattspyrnufélag heims. í ársskýrslum fyrir
tímabilið 1997-98 nam ársvelta liðsins tæpum 11
milljörðum króna. Þessi tala kemur til með að
hækka töluvert á næsta ári en árið sem er að
renna út hefur verið mjög gjöfult fyrir félagið og
bara fyrir sigurinn í meistaradeildinni fékk
félagið nálægt 500 milljónum króna.
Af 20 ríkustu félögum heims koma níu frá
Bretlandi en 14 af þessum ríkustu eru annað hvort
frá Bretlandi eða ítaliu.
United er í toppsætinu eins og i fyrra. Þar á eftir
koma Real Madrid, Bayern Múnchen, Juventus, Newcastle, Barcelona,
AC Milan, Inter Milano, Chelsea og Liverpool er í 10. sæti á þessum lista
yfir rikustu félög heimsins.
Eins og sést á þessari upptalningu eru félög frá Evrópu einráð á lista
þeirra tíu efstu en i 11. sæti er lið Flamengo frá Brasilíu
-JKS/GH
Skotland:
Aberdeen sló
Rangers út
Aberdeen kom geysilega á óvart í
gærkvöld þegar liðið sigraði Glas-
gow Rangers, 1-0, í 8-liða úrslitum
skoska bikarsins. Hvorki hefur
gengið né rekið hjá Aberdeen í vet-
ur og liðið er í neðsta sætinu í A-
deildinni. Það var Andy Dow sem
skoraði eina mark leiksins í fram-
lengingunni.
Celtic sigraði Dundee, 1-0, á Park-
head í Glasgow með marki frá Dan-
anum Morten Wieghorst á 90. mín-
útu. Celtic lék einum færri í 46 min-
útur eftir að Stephane Mahe var vís-
að af leikvelli.
Sigurður Jónsson lék ekki með
Dundee United sem lagði
Motherwell, 3-2.
-JKS
England:
David Moyes
hrósar Bjarka
David Moyes, imattspymu-
stjóri hjá Preston North End,
hrósar Bjarka Gunnlaugssyni í
hástert fyrir frammistöðu hans i
deildabikarkeppninni í fyrra-
kvöld þar sem Preston lagði En-
fíeld, 3-0, en Bjarki skorað eitt
mark í leiknum.
„Það er mjög gott að Bjarki
skuli vera búinn að opna marka-
reikninginn og ég held að þetta
hafi verið fyrsta markið hans
fyrir Preston af mörgum. Bjarki
hefur lagt hart að sér frá því
hann kom í haust og í leiknum
gegn Enfield sýndi hann frábæra
takta og skoraði gott mark.
Hann er því farinn að banka
mjög hressilega á dyrnar," segir
Moyes. -GH
Þýski handboltinn:
Wetzlar skellti
meisturum Kiel
Sigurður Bjamason og félagar
hans í Wetzlar unnu sætan sigur
á meisturum Kiel í þýsku A-
deildinni í handknattleik í gær-
kvöldi. Sigurður skoraði tvö af
mörkum Wetzlar en hjá Kiel var
Júgóslavinn Perunicic lang-
markahæstur með 11 mörk.
Flensburg náði 7 stiga forskoti
í deildinni með sigri á útivelli
gegn Frankfurt, 20-25. Flensburg
er með 26 stig eftir 14 leiki, Kiel
er með 19 stig eftir 12 leiki og
Lemgo 19 stig eftir 13 leiki.
Wetzlar er með 13 stig og er í 9.
sæti. -GH
Enski deildarbikarinn:
Meistararnir
slegnir út
Tottenham á ekki lengur
möguleika á að verja deildar-
meistaratitilinn í knattspyrnu
en liðið lá fyrir B-deildarliði Ful-
ham í gær, 3-1. Þá bar Aston
Villa sigurorð af Southampton,
4-0.
-GH
íslendingaliðin
drógust saman
í gærkvöld var dregið til
8-liða úrslita í enska deildarbik-
arnum i knattspyrnu. Athygli
vekur að Bolton, með þá Eið
Smára Guðjhonsen og Guðna
Bergsson innanborðs, fékk
heimaleik gegn Hermanni Hreið-
arssyni og félögum í Wimbledon.
West Ham leikur heima gegn
Aston Villa, Tranmere mætir
Middlesbrough og Leeds eða
Leicester mætir Fulham. Leik-
imir fara fram 14. eða 15. desem-
ber. -JKS