Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1999, Qupperneq 1

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1999, Qupperneq 1
• Jólagetraun DV Jólaútstillingar á Laugaveginum • Langur laugardagur Jólaundirbúningur á leikskóla Óslóartré Reykvíkinga í fyrra var þaö á Austurvelli en nú verður þaö á Ingólfstorgi. Óslóartréð flutt á Ingólfstorg - ljósin tendruð 5. des. Sunnudaginn 5. desember nk. klukkan 16 verða ljósin á jólatrénu, gjöf Óslóborgar til Reykvíkinga, tendruð. Óslóborg hefur nú í 48 ár sýnt þennan borgarbúum vinarbrag. Vakin er sérstök athygli á því að jólatréð frá Ósló stendur að þessu sinni á Ingólfstorgi sökum yflrstand- andi framkvæmda við og á Austur- velli. Aðstöðuleysi jólasveina ræður einnig þessari ákvörðun þar sem þak Nýja-Kökuhússins er ekki lengur til staðar en þaðan hafa þeir skemmt bömum undanfarin ár. Athöfnin á Ingólfstorgi hefst klukkan 15.30 með leik Lúðrasveitar Reykjavikur og klukkan 16 afhendir sendiherra Noregs, Kjell Halvorsen, tréð fyrir hönd Óslóborgar og borg- arstjóri Reykjavíkur, Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir, veitir trénu viðtöku fyrir hönd borgarbúa. Á eftir syngur Dómkórinn jóla- sálma og jólasveinar koma í heim- sókn og skemmta yngstu borgurun- um undir stjóm Askasleikis. Islenski vagninn í jólaskrúögöngunni í Norfolk: íslensk börn stóöu á vagninum sem var skreyttur níu þúsund Ijósaperum og fékk sérstök verðlaun fyrir bestu lýsinguna. A annað hundrað Islendingar tóku þátt í jólaskrúðgöngunni í Norfolk: mikið upp úr því að gera vagninn, sem kominn er til ára sinna, sem fallegastan úr garði og hann er aldrei eins frá ári til árs,“ sagði Ransy (Ragnheiður Þórisdóttir ) Morr í samtali við DV. Það er Íslensk-ameríska félagið í Norfolk sem skipuleggur framlag Is- lendinganna en með vagninum ferð- ast jafnan hópur íslenskra barna. Að þessu sinni voru þau klædd i bláa og silfraða búninga og með stjörnur á höfðinu en þema ársins var Óskastjaman. „Bömin hafa óskaplega gaman af þessu og hlakka alltaf mikið til. Þau stóðu sig mjög vel og fengu góðar viðtökur áhorfenda. Vagninn okkar var skreyttur níu þúsund ljósaper- um og við fengum verðlaun fyrir fallegustu jólaljósin," sagði Ransy. Pönnukökur og kleinur MikiU Qöldi Islendinga býr á þessum slóðum og í íslensk-amer- íska félaginu eru 200 félagar. Af þeim eru 150 íslendingar og segir Ransy fólk halda ágætum tengslum sín á milli. „Norfolk er stórt svæði og fólkið dreifist víða. Félaginu hef- ur tekist að halda hópnum vel sam- an með fjölmörgum viðburðum árið um kring. Nú erum við komin á fullt við að undirbúa jólaball fyrir krakkana sem haldið verður á sunnudaginn. Þar verða sungin ís- lensk jólalög og svo bjóðum við jóla- köku, pönnukökur, kleinur og íleira góðgæti,“ sagði Ransy Morr að lok- um. -aþ Það var mikið um dýrðir í Nor- folk í Bandaríkjunum um síðustu helgi þegar hin árlega jólaskrúð- ganga fór þar fram. Um eitt hund- rað skrautvagnar, frá hinum og þessum félögum, taka þátt í göng- unni auk nokkurra hljómsveita sem halda uppi stemningunni. Allir keppa um að eiga fallegasta skraut1 vagninn enda mikil eftirvænting þegar kemur að verðlaunaafhend- ingunni. „Jólaskrúðgangan tókst vel í ár og islenski vagninn naut mikillar hylli viðstaddra. Við leggjum alltaf Tryggvi Freyr Elínarson í BT-búðinni: „PlayStation er fyrir frábærlega skemmtilega leiki." Leikjatölvan líka handa pabba „Hér i tölvuleikjadeildinni er það tvímælalaust nýja PlayStation-leikja- tölvan sem ég veðja á sem jólagjöfina í ár,“ segir Tryggvi Freyr Elínarson- ar, deildarstjóri tölvuleikjadeildar BT-búðarinnar í Skeifunni, þegar hann var beðinn um að velja jólagjöf úr versluninni. „Þetta er leikjatölva fyrir yngri kynslóðina en hún er engu að síður skemmtileg fyrir þá eldri og hentar pabba ekkert siður. Kosturinn við þessa tölvu er sá að hún er frekar ódýr í samanburði við aðrar tölvur, kostar aðeins 7.290 krónur. Um leið er PlayStation stærsta leiktækjatölvan á markaðn- um í dag. Og það spillir ekki fyrir hve gríðarlega mikið úrval er til af skemmtilegum leikjum fyrir hana.“ Þegar Tryggvi er beðinn um að nefna leiki segist hann eiga ansi erfitt með það. „Það er svo mikið af góðum leikjum til fyrir þessa tölvu en ég get bent á að við erum með PlayStation á sérstöku fcH/ verði ef menn kaupa með hennLásfT' nýja FIFA 2000-fótboltaleik- inn.“ Sesselja Siggeirsdóttir Seifert: Hún aöstoðar hér Söndru Fenton viö aö setja á sig stjörnuhúfuna en óskastjarnan var yfirskrift göngunnar í ár. Tanya Thorsteinsson brosir sínu breiðasta innan um stjörnur og jólaljós: Jólaskrúögangan er ávallt mikiö tilhlökkunarefni hjá íslensku börnunum sem búa í Norfolk. Jólaqiö'

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.