Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1999, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1999, Page 2
42 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1999 DV Honda Accord EXI nk. 4d. '01 1021 6801 Honda Prelude 2.2 VTl 2d. ‘03 1151 1.4801 Honda Accord coupé V6 2d. '08 3t. 3.5401 Honda Shutlle 2,2 LSI 5d. '00 106. 2.2801 Honda Accord LSI uk. 4 d. '05 1001 1.2501 Honda Clvlc 1,5 LSI 4 d. ‘87 38 6. 1.1801 Honda Clvlc Sl ssk. 4d. ‘87 33 6. 1.1501 Honda Clvic LSl 5g. 5d. '88 226. 1.5701 Honda CR-VRVí ssk. 5d. '88 65 6. 1.8501 Ford Mondeo Ghla st 5d. '06 48 6. 1.2501 Dalhattu Torlos 4x4 ttk.5d. '88 146. 1.3001 MMC Lancer GLXI5 g. 4 d. '88 236. 1.180 6. MMC Carltma SDI ssk. 5d. '88 521 1.5001 MMC Lancer S g. 4 d. '81 82 6. 488 6. MMC Lancer ssk. 5d. '82 58 6. 6401 MMC Lancer GL 5g. 4d. '83 1151 5801 MMC Lancer sl 4x4 51 '83 806. 7001 MMC Spacewagon ssk. 5 d. '83 1371 8001 Suzukl Sideklck 5g. 51 '83 1051 870 6. Suzukl Vltara 5 g. 31 '87 186. 1.2801 Tosota Corolla XLI5 g. 31 '85 88 6. 6701 Toyota Corolla ssk. 41 '82 1171 7301 Tovota Corolla ssk. 41 '08 401 8501 Toyota Corolla GL 5 g. 41 '82 1131 780 6. Toyota Corolla 68 31 '88 426. 1.1801 Toyota Tourlng 4x4 5g. 5d. '81 1301 6201 Volvo S40 ssk. 41 '86 216. 1.8201 VW Goll Manhattan 2.0 51 '08 416. 1.2801 VW Vento GL ssk. 41 '83 501 8801 WHONDA NOTAÐIR BÍLAR Vatnagöröum 24 Sími 520 1100 Reynsluakstur Toyota Yaris „Free-Tronic"1f0: „Bíll ársins" stendur vel fyrir sínu - skemmtilegt útlit, mikið pláss og lipur skipting Suzuki Vitara JLX 5 g. 07/96, hvítur, ek. 80 þ. 1.260.000. Honda Civic 1,4 si 3 d. 08/96, grænn, ek. 42 þ. 1.050.000. Toyota Yaris var á dögunum valinn „bíil ársins í Evrópu“, nokkuö aö óvör- um, en þetta er í raun í fyrsta sinn sem bill, framleiddur i Japan, hefur náð þessum eftirsótta titli. Nokkuð er síö- an Yaris var kynntur hér á landi en hann kom, sá og sigraði hér líka, ef svo má aö orði komast, því hann hefur fengið mjög góðar viðtökur. Af því til- efni að hann var valinn bíll ársins þótti rétt að endumýja kynnin við hann en ekki síður að reyna Yaris „Free-Tronic“, gírskiptikerfi sem bygg- ist á rafeindatækni. Gírstöngin er enn á sínum stað en kúplingspedalinn er horfinn. Ökumaðurinn hefur samt fulla stjóm á gírskiptingum en þarf ekki að hugsa um að kúpla. Smart Það er eitt orð sem lýsir Yaris en það er „smart“. Hönnunin er, að mati undirritaðs, vel heppnuð. Útlitið er ný- tískulegt, án þess að vera um of ögrandi. Hönnun útlits var í höndum hönnunarstofu Toyota í Evrópu, EPOC, en hönnun inn- anrýmis fór fram í Japan. Þegar Yaris var kynntur hér i upphafi vora þau orð látin falla að „það er búið að fá mikið pláss í litl- um bíl“. Þetta er alveg rétt því þessi bíll er „miklu stærri að inn- an en utan“. „Free-Tronic“ fyrst 1 Ijós fyrir alvöra. Vegna þess að rafeindatæknin sér um að kúpla var miklu minna um það að bíilinn spólaði og gírskiptingar vora miklu mýkri og liprari en vænta hefði mátt ef ökumaðurinn hefði sjálfur ver- ið að kúpla. Út frá þessu sjónarmiði er „Free- Tronic“ sniðug lausn en ég held samt að ég myndi halda mig við hefðbundna kúplingu með pedala. Sérstæfiir mælar. Þrivíddin gerir þafi afi verkum afi þeir viröast vera langt inni í mælaborfiinu. Góð fjöðiun og hljóðlátur Líkt og i þeim stutta reynsluakstri sem við fórum í eftir frumkynninguna kemur á óvart hve bíllinn er hljóðlátur í venjulegum akstri á malbiki. í akstri á möl grípa dekkin smásteina og kasta undir botninn á bílnum þannig að úr verður nokkur hávaði. Þegar snjórinn kom til sögunnar dempaðist veghljóðið alveg niður þannig að bíUinn rennur nánast hljóðlaust áfram í venjulegum akstri. Fyrir fram hefði líka mátt ætla að svo lítil vél þyrfti að puða nokkuð með tilheyrandi hávaöa en annað kom á daginn. Vélin er hljóðlát og aflið kom verulega á óvart, 68 hestöfl úr 998 cc vél. Vélin er búin tölvustýröri opnun ventla, VVT-i (variable valve timing- intelligence), sem gerir hana bæði snarpari og eyðslugrennri, en eyðslan er sögð vera 5,6 lítrar á hundraöið í blönduðum akstri. Hámarksaflið, 68 hö„ næst við 6.000 snúninga á mínútu og hámarkssnúningsvægið, 90 Nm, við 4.100 snúninga. Hröðun frá 0 í 100 km er um það bil 12 sekúndur. Búið er aö boða l,3ja lítra vél í Yar- is og verður spennandi að reyna hann með slíkri vél því þá hlýtur aflið að verða vel yfirdrifið. Fjöðrunin kom einnig nokkuð á óvart. Að framan er hefðbundin MacP- herson-gormafjöörun sem stendur vel fyrir sínu en að aftan sjálfstæð gorma- fjöðran á eltiörmum sem hönnuð var sérstaklega fyrir Yaris, bæði hvað varðar virkni og ekki síður til að taka sem minnst pláss af innanrýminu. Útvarpifi er sambyggt stjórntækjum í mifiju mælaborðsins. Geislaspilari er staöalbúnaöur f Yaris Sol. Á skjánum fyrir mifiju má sjá á hvafia útvarpsstöfi er stillt ásamt klukku og útihitastigi. snúningshraða vélarinnar, hreyfingu á gírstöng, bensíngjöf og bremsu. Þegar sett er í gang þarf bíllinn að vera í hlutlausu en vökvadæla dælir strax upp þrýstingi og sjálfvirknin fer að virka. Hún auðveldar að leggja í þröng stæði og taka af stað í brekku en það tekur hátt í tvo daga að venjast henni þannig að vinstri fóturinn fari ekki í sífellu að leita að kúplingu þegar skipt er um gír. Þegar við reyndum þennan „kúplingslausa" Yaris fór að snjóa ótæpi- lega á höfuðborgarsvæðinu og þvi reyndi nokkuð meira á aksturshæfni og rásfestu bílsins en á þurr- um götum og við betri að- stæður. Hér komu kostir Verð sem stendur fyrír sínu Miðað við búnað er verðið gott. 3ja huröa Yaris Terra kostar kr. 998.000 og 5 hurða kr. 1.088.000. Fimm hurða Sol- útgáfan kostar kr. 1.198.000 og með Free-Tronic kostar fimm hurða Yaris Sol kr. 1.249.000. Það er því ljóst að Yaris kom sterk- ur til leiks hvað varðar verð og bilið frá grunngerðinni Terra upp í Sol er ekki meira en svo að margir hafa látið eftir sér enn meiri búnað og tekið Sol fram yfir Terra. _ - -JR Þafi kemur verulega á óvart hve rúmgófiur bíll Yaris er og aögengi gott, jafnt afi framan og aftan. Toyota Yaris, nýlega valinn „bíll ársins f Evrópu", bíll mefi sérstætt útlit og mikifi pláss. DV-myndir Hilmar Þór Toyota Yaris 1,0 Free-Tronic Helstu tölur: Lengd: 3.610 mm. Breidd: 1.660 mm. Hæð: 1.500 mm. Hjólahaf: 2.370 mm. Innanrými, 1/br/h: 1.800/1.380/1.265 mm. Farangursrými: 205 til 305 lítrar. Eigin þyngd: 820 til 940 kg. Vél: 4ra strokka, 998 cc, 68 hö. v/6.000 sn. Snúningsvægi 90 Nm v/4100 sn. Drifrás: Framhjóladrifmn, fimm gíra. Sjálfvirk kúpling. Fjöðrun: MacPherson-gormafjöðr- un framan, gormar aftan. Stýri: Tannstangarstýri. Hemlar: Diskar framan, skálar aftan. Hjól: 175/65R14. Verð: 5 hurða Sol Free-Tronic kr. 1.249.000 (3ja hurða Terra kr. 998.000). Umboð: P.Samúelsson, Kópavogi. Sætin era góð og þar sitja allir vel, hvort sem um er að ræða fram- eða aft- ursæti. Hávöxnustu menn hafa miklu meira en nægt höfúðrými alls staðar í bílnum og körfúboltamenn gætu senni- lega verið með hatt án óþæginda. Fótarými er dágott og kostur er að hægt er að færa aftursætið ffarn eða aftur eftir notkun hveiju sinni en með því að renna því fram um 15 sentí- metra er hægt að auka farangursrým- ið úr 205 í 305 lítra og sé aftursætið lagt ffarn er plássið orðið 950 lítrar. Hægt er að feÚa fram hluta aftursætisbaks (40/60) ef þörf er á að flytja stærri hluti. Nýtt sérstætt mælaborð Við hönnun Yaris var farþegarýmið tekið til sérstakrar skoðunar og vis- indi vinnuvistffæðinnar notuð í botn. Meðal þess sem út úr þessu kom er allsérstæð hönnun á mælum í mæla- borði. Þeir eru fyrir miðju og hallast í átt að ökumanni. Það sem er þó merki- legast við þá er að þeir era í þrívídd þannig að þegar horft er inn í dökkan skjáinn virðast mælamir vera langt inni í mælaborðinu. Þetta er gert í Ijósi þess að rannsóknir sýndu að mikill tími og fyrirhöfn fer í það aö skipta frá því að horfa fram á veginn og á mæl- ana. Með þessari nýju hönnun mæl- anna þurfa augun ekki að skipta um fókuslengd sem er stórt atriði. Undir- ritaður þarf að nota gleraugu við lest- ur og þarf því venjulega að píra augun Aöalmáliö í Yaris „Free-Tronic“: gír- stöng, bensíngjöf og hemlapedall til stafiar en enginn kúplingspedall. Rafeindatæknin sér um afi kúpla aðeins þegar skipt er ffá veginum á mælana en hér var þetta þetta leikur einn og án óþæginda. önnur stjómtæki era þægileg og innan seilingar. Viðbótarskjár er í miðju sem sýnir hvaða útvarpsstöð hefúr verið valin, hitann úti fyrir og klukku. Nóg er af hirslum í Yaris, samtals 15 lítra, sem dreift er um allan bílinn. Þar á meðal er gott hólf undir framsæti, góð hólf sitt til hvorrar hliðar á miðstokki og vasar í hurðum. Tvö búnaðarstig Yaris er í boði í tveim- ur stigum búnaðar. Terra er grunngerðin og Sol er betur búinn. Sol hefúr það umfram Terra að vera með króm- grill, samlita stuðara, raf- stýrðar rúðuvindur og rafstýrða og upphitaða hliðarspegla. Einnig má nefna að Sol er með hæðarstillingu á ökumannssæti og ABS-læsivöm hemla umfram Terra. í Terra-gerð er Yaris með útvarp og segulband en í Sol er geislaspilari staðalbúnaður. Free-tronic-kúplingin ersniðug Yaris er ekki fáanlegur sjálfskiptur með þessari litlu 1,0 lítra vél en er á hinn bóginn í boði með sjálfvirkri kúp- lingu, Free-Tronic. Þessi kúpling er í raun sú sama og í venjulega bílnum en er komin með skynjara sem skynja .';'V 313 j RR Vélin, afieins 998 rúmsentimetrar, er skemmtilega spræk, enda eru togufi 68 hestöfi út úr þessari litlu vél. J

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.