Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1999, Síða 3
LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1999
4SS,
lar
47
Umferðarmannvirki og umferðarkerfið:
Hvernig spörum við með því að eyða?
Á ráöstefnunni var hópur fólks frá Fjallahjólaklúbbn-
um en félagar hafa veriö duglegir viö aö vekja máls á
sínum hagsmunamálum og mættu fleiri slíkir hópar
taka þá til fyrirmyndar. Þarna er hópurinn fyrir utan
Hótel Sögu og kominn á nagladekkin.
Fimmtudagirm 25. nóvember siðast-
liðinn var haldin ráðstefna í Súlnasal
Hótel Sögu um umferðarmannvirki og
umferðarkerfið. Mættir voru margir
sérfræðingar í þessum málaflokki, með-
al annarra Öm Steinar Sigurðsson,
verkfræðingur öá VST hf., sem flutti er-
indi um kostnað við umferðarmann-
virki. í þvi kom fram að þrátt fyrir að
60% slysa í þéttbýli verði við gatnamót
er ástandið hér nokkuð gott miðað við
akstur erlendis. Áhættustuðullinn hér
er lægri heldur en gengur og gerist eða
2,3 sem er frekar lítil áhætta.
Kostnaður vegna umferðar mik-
Það sem mesta athygli vakti hjá Emi
voru útreikningar hans á einingakostn-
aði og kostnaði þjóðfélagsins út frá því.
Meðalkostnaður við ökutæki er 22,11
krónur á hvem ekinn kílómetra og öku-
stundakostnaður, sem er kostnaður
vegna þess tima sem tapast undir stýri,
965 krónur á klukkustund. Þegar þessar
tölur em reiknaðar út yfir árið verða
þær mjög háar. Árlegur ökutækjakostn-
aður er rúmir 33 milljarðar og öku-
stundakostnaður rúmir 24 milljarðar.
Þar að auki er kostnaður vegan óhappa
11,5 milljarðar á ári þannig að ljóst má
vera að þjóðfélagið getur sparað sér um-
talsverðar Qárhæðir með bættu umferð-
arkerfi. Með hveiju prósenti í lækkun
þessara kostnaðarliða sparast 700 miHj-
ónir á ári.
Samræmingu vantar
Aðrir framsögumenn á ráðstefnunni
vom dr. Haraldur Sigurþórsson, verk-
fræðingur hjá Línuhönnun, sem flutti
erindi um umferðaröryggi, Sigurður
Ragnarsson, verkfræðingur hjá For-
verki, en erindi hans fjallaði um mann-
virki á hönnunarstigi, og Bjöm Ólafs-
son, forstöðumaður hjá Vegagerðinni,
sem fiallaði um merkingar
og vegvísun. Það sem var
sammerkt með erindum
þeirra var að mikið vantar
upp á að samræming náist í
umferðinni. Þeirri samræm-
ingu þarf að ná i öllum flokk-
um. Samræma þarf útboð og
verklýsingar, merkingar og
fleira. í dag er farið eftir al-
mennum verklýsingum, stytt
„alverk“, en búa þarf til sam-
ræmdar verklýsingar sem
stytta mætti sem „höfúð-
verk“ en það er ekki einfalt í
framkvæmd. Hjá Haraldi
kom einnig fram að bráða-
birgðalausnir í umferðinni
standa oft lengi og verða
stundum endanlegar. Má i
því dæmi nefha gatnamót
Miklubrautar og Snorra-
brautar sem eru hálfkláruð
mislæg gatnamót og 90' beygju á Höfða-
bakka sem stafar af þvi að framlengja
átti götuna seinna. Koma þarf í veg fýr-
ir að svona bráðabirgðalausnir verði
óafturkræfar.
Hiólreiðar lausn á vandanum
ao einhveiju leyti?
Mikil fjölgun bíla síðustu árin hefúr
verið að sliga umferðarkerfið og stór
hluti þess vandamáls er fjöldi bíla í um-
ferð með aðeins ökumanninn innan-
borðs. í stærri borgum, og þá sérstak-
lega Asíulöndum, er stór hluti umferð-
arinnar reiðhjól og mótorhjól og þar
myndi kerfið hrynja ef allir væru þar á
bíl. Gert hefúr verið átak i höfúðborg-
inni á undanfómum árum í gerð göngu-
og hjólreiðastíga en þar vantar tengingu
við næstu sveitarfélög. Ekki er um mikl-
ar vegalengdir að ræða og eflaust
myndu fleiri notfæra sér það að fara á
hjóh í vinnuna úr Kópavogi eða Garða-
bæ ef sú tenging væri fýrir hendi. Vildu
menn þar benda dálítið hver á annan í
því sambandi. Kringlumýrarbrautin er
þjóðvegur í þéttbýli og þess vegna fellur
hann undir Vegagerðina en hún vili
ekki kannast við að gangstéttir eða hjól-
reiðastígar við hana séu í þeim pakka.
Þar eiga sveitarfélögin að koma til að
hennar mati. Ber þá Vegagerðin enga
ábyrgð á gangandi eða hjólandi vegfar-
endum utan þéttbýlis? Þama þarf að
gera bragarbót og riki og sveitarfélög að
hafa meiri samvinnu.
Umræður
Eftir framsöguerindm stjómuðu þeir
Ómar Ragnarsson og Birgir Þór Braga-
son umræðum um efni fundarins og
sátu þá fulltrúar ríkis og sveitarfélaga
fýrir svörum. Margt var rætt þar og
mikið spurt um atriði eins og lýsingu á
Hellisheiði og hljóðmanir, svo að eitt-
hvað sé nefnt. Nýjasta útspil stjómmála-
Mótoristarnir Ómar Ragnarsson og
Birgir Þór Bragason stjórnuöu um-
ræðum á ráöstefnunni.
manna til vegabóta á Suðurlandi er lýs-
ing á Hellisheiði og vom menn ekki á
einu máli um ágæti hennar. Kannanir
erlendis frá sýna aukningu umferðar-
hraða við betri lýsingu og ekki má þessi
hættulegi vegarkafli við því. 60%
banaslysa verða í dreifbýli og oft vegna
framúraksturs eða útafkeyrslu þannig
að liklega væri skynsamlegra að verja
peningum frekar í tvöfóldun akreina til
að minnka hættuna vegna þessara
þátta. Hljóðmanir vom einnig til um-
ræðu og hvort hafa ætti þær öðmvísi en
þær nú em. Vel lagaðar hljóðmanir falla
vel inn í landslag og spara líka peninga
sem annars fæm í að keyra efiii frá
byggingu götunnar eða umferðarmann-
virkisins.
Ráðstefnur sem þessar mættu gjam-
an vera fleiri og heyra mátti á flestum
gestum hennar að menn vom ánægðir
með hana. Að ráðstefnunni stóð Nestor,
kynningar- og ráðstefnuþjónusta, í sam-
ráði við ýmsa hagsmuna- og áhugaaðila.
-NG
13,4% fleiri bílar en í
Sala nýrra fólksbíla - þar með talið
jeppa - fyrstu 11 mánuði ársins varð
14.620 bílar. Það er 13,4% aukning frá
sama tíma í fyrra þegar 12.893 bílar
höfðu verið seldir í lok nóvember. Árið
í fyrra var talið gott ár í bílasölu og að-
eins yfir eðlilegri endumýjun.
Söluhæsta tegundin í ár er, eins og
undanfarið, Toyota sem er með 2627
bila selda, rétt tæp 18% markaðarins
og um 1,5 prósentustigum meira en í
fyrra. Söluhæsta umboðið er hins veg-
ar Hekla hf., með 2934 bíla selda. Ingv-
ar Helgason hf. kemur í þriðja sæti
með 2243 bíla og B&L skipar fjórða
Mercedes-Benz:
Skoða öryggisbelti í M-línunni
Mercedes-Benz bifreiðaverksmiðj-
umar, sem era í eigu stórfyrirtækis-
ins Daimler-Chrysler, vilja kalla inn
til skoðunar allar M-línu bifreiðar
vegna athugunar á öryggisbeltabún-
aði í framsætum.
Þetta er gert í ýtrasta öryggisskyni
eftir að belti losnaði úr hylki við
gæðaprófun í verksmiðju á dögunum.
Eftir þetta atvik vora 2.500 M-línu bíl-
ar skoðaðir í verksmiðjunni og vora
gerðar athugasemdir við búnaðinn í
þremur þeirra. Rannsóknir sýna að
líklega þarf að skipta um búnað í
0,5% bíla af M-línu-gerð. Engar kvart-
anir hafa borist frá viðskiptavinum
og ekkert slys hefur orðið.
Til að fyllsta öryggis sé gætt ætla
forráðamenn Ræsis hfi, sem hefur
umboð fýrir Mercedes-Benz á Islandi,
að hafa samband við eigendur M-línu-
bifreiða á íslandi og kalla þá inn til
skoðunar. Læsingarhylkin í framsæt-
unum verða skoðuð og prófuð og
þeim skipt út ef galli kemur í ljós.
í fréttatilkynningu frá Ræsi kemur
fram að mikil áhersla er lögð á hvers
kyns gæðaprófanir hjá Mercedes-
Benz-verksmiðjunum. í hvert sinn
sem galli kemur fram, jafnvel þótt
smávægilegur sé, er gripið til viðeig-
andi ráðstafana til þess að mæta ýtr-
ustu öryggiskröfum sem gerðar era
til vandaðra og öraggra bifreiða eins
og Mercedes-Benz.
Opel Zafira:
„Fjölskyldubíll ársins" í Svíjjjóð
Opel Zafira var á dögunum valinn
„fjöiskyldubíll ársins" af Mo-
torforaren, blaði bíleigenda í Svíþjóð,
en eins og fram hefúr komið fékk
Zafira „gullna stýrið" í sínum flokki
nýlega.
Alls vora það 12 leiðandi bílablaða-
menn frá helstu dagblöðunum í Sví-
þjóð sem stóðu að valinu.
Valið byggðist á fjóram meginþátt-
um: Þægindum, öryggi, verðgildi
(bæði hvað varöar kaup á bílnum og
viðhaldskostnaði) og umhverfisþátt-
um. Meðal atriða sem dómnefndin dró
fram var eftirfarandi: Smart og fjölhæf
hönnun. Hönnun öftustu sætanna
stendur upp úr. Mikið öryggi. Góð
þjónusta meðal góðs nets umboðs-
manna. Góður kostur hvað varðar um-
hverfisáhrif.
Opel Zafira hefúr gengið vel á mark-
aði í Svíþjóð fra því að bíllinn var
kynnur þar í ágúst, og sama á við í
flestum Evrópulöndum, en í dag hefúr
Opel fengið meira en 150.000 pantanir
á Zafira. Til að mæta þessu hefúr Opel
aukið framleiðslugetuna i Bochum í
Þýskalandi og ráðgerir 150.000 bíla
framleiðslu þar í ár. Heildarafköst á
árinu 2000 era áætluö um 200.000 bílar.
Varað við liknarbelgjum á hlið
Liknarbelgir á hlið geta stórlega
slasað eða jafiivel drepið böm sem era
of nærri þeim þegar þeir blásast út í
árekstri, segir í viðvörun sem banda-
ríska þjóðvegaöryggisráðið NHTSA
hefur gefið út. í þessari viðvörun er
tekið mjög sterkt til orða og ráðið hef-
ur jafhframt komið þeim tilmælum til
bílaframleiðenda að þeir sendi ekki
bíla frá verksmiðjum til umboða öðra-
vísi en líknarbelgir á hlið séu gerðir
óvirkir en kaupendur geti síðan fengið
hliðarbelgina tengda ef þeir óska þess
eftir að hafa fengið frceðslu um hugs-
anlegan óskimda sem þessi öryggis-
búnaður geti valdið.
Enn sem komið er hafa engin alvar-
leg slys hvað þá dauðaslys verið skráð
sem rekja má til líknarbelgja á hlið.
Veijendur hliðarbelgja benda á að ár-
lega verða um 7500 banaslys í Banda-
ríkjunum af völdum hliðarárekstra.
Þeir benda á að þessir belgir gætu
mjög líklega fækkað þessum slysum þó
í einhveijum tilvikum kæmu slys af
líknarbelgjum á móti og þá er spurt
hvor kosturinn sé verri.
Líknarbelgjum í stýri og við fram-
sæti hefúr verið kennt um 145 dauða-
slys síðan 1990. Þetta hefúr valdið
nokkrum úlfaþyt. Samkvæmt upplýs-
ingum NHTSÁ hafa langflestir þeirra
sem farist hafa meö þessum hætti ver-
ið böm sem ekki vora i beltum, hvað
þá bamabílstólum. í viðvörunarbréfi
NHTSA tU bílaframleiðenda er lögð
áhersla á að bilakaupendum sé gerð
grein fyrir þeirri hættu sem bömum
getur stafað af líknarbelgjum, ekki síst
ef þau era ekki í beltum.
MeginheimUd: CNN
fyrra
sætið með 1394 bíla. í fimmta sæti era
Bílheimar með 1251 bU en Brimborg er
í sjötta sæti með 1003 bíla. Séu Ingvar
Helgason og Bílheimar hins vegar tal-
in saman, eins og í rauninni er eðli-
legt, bera þau fyrirtæki samanlögð höf-
uð og herðar yfir hina með 3494 bíla
selda þessa 11 mánuði ársins og röðin
breytist sem því svarar.
Samtals em þessi fyrirtæki með
11.452 bUa selda sem era 78,3% mark-
aðarins. Þau sex fýrirtæki sem ótalin
eru skipta mUli sín þeim 21,7% sem
eftir era en aðeins tvö þeirra era með
fleiri en eina tegund. Það era Jöfur
með 864 bUa selda og Ræsir með 284
bíla.
Mesta söluaukningin í prósentum er
hjá Isuzu, 658% aukning frá árinu
áður. í fýrra seldust 26 Isuzubílar en á
sama tíma í ár er salan komin í 470
bíla. -SHH
Sölulistinn í heild Iftur þannig út:
Toyota 2627
Volkswagen 1445
Nissan 1357
MMC 893
Subaru 886
Opel 749
Daewoo 708
Renault 637
Suzuki 572
Ford 550
Honda 534
Hyundai 493
Peugeot 475
Isuzu 470
Skoda 385
Daihatsu 321
Kia 287
Mazda 200
Land Rover 199
Galloper 152
Fiat/AlfaR/Lanc. 148
Volvo 132
BMW 119
Chrysler 102
Mercedes-Benz 84
Audi 59
Saab 21
GM 11
Porsche 3
Það sem msstu máli sldptir í jsppadekkium aru gæðfi gott grip
og mýkt. Mickey Thompson dekldn haia þBssa kosti auk þess að
vera sérlega hljóðlát í akstri. Fjallasport er sérhæft fyrirtæki í
breytmgum á jeppum og sölu á aukahlutum fyrir jeppa.
QuickAIR
MALARHÖFÐI 2-112 REYKJAVÍK ■ SÍMI S77 4x4
<