Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1999, Síða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1999, Síða 44
60 MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 1999 T~VW * nn Ummæli sem Hrossakaup stjórnar- flokkanna held að hrosskaup stjómarflokkana með Byggðastofn- un og Seðlabanka séu einhver verstu og vitlaus- ustu hrosskaup 1 og óhentugustu fyrir þjóðina, lengi hafa farið fram.“ Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður, á Alþingi. Hobbíið „Þetta er bara hobbí. Við höldum eins lengi áfram og við getum, eins lengi og fólk nenn- ir aö hlusta á okkur, en við drögum línuna við það að fara aö spila fyrir pítsur." Höskuldur í hljómsveitinni Quarashi, í Fókus. Sjö milljóna króna hjónaband „Nú síöast komust tveir hag- fræðingar að því að gott hjónaband væri sjö milljón króna virði á árs- grundvelli, með öðrum orðum: þau hjú sem eiga í lélegri sambúð þurfa sjö milljón- ir í viðbótartekjur til að tryggja sér sama „hamingju- stuðul“ og þau lánsömu.“ Árni Bergmann rithöfundur, ÍDV. Breiðtjaldsreisn Sinfóníunnar „í þessum upphafna loka- þætti sýndi hljómsveitin alla þá breiðtjaldsreisn sem sin- fónískur ritháttur hefur upp á að bjóða, svo þröngar fellingar Háskólabíós glenntust út í svimandi gímald." Ríkarður Ö. Pálsson, í Morg- unblaðinu. Glæpurinn er horfinn „Þetta eru góðar málalyktir. Glæpurinn er horf- inn úr málinu og það gleður mig að Guðmundur Bjamason heldur höfði sínu, enda fagurt á að líta.“ Össur Skarphéð- insson alþingismaður um málalok eyðijarðarinnar Hóls, i DV. Að vita og ekki vita „Á dagskránni verður allt sem fólk þarf að vita og þarf ekki að vita um undirbúning jólanna." Sigurjón M. Egilsson, hjá nýju Miðbæjarútvarpi, í DV. Pétur Geirsson, hótelstjóri Hótel Borgarness: Hér þarf að efla skólakerfið DV, Borgarbyggö: „Ég get ekki svarað því játandi að ég sé sannfærður um það að útflutn- ings- og viðskiptaháskóli verði stofn- settur í Borgarnesi en ég hef trú á að það sé hægt ef menn leggjast á eitt,“ segir Pétur Geirsson, hótelstjóri og eigandi Hótel Borgamess, sem lagði fram tillögu um það að kannaðir yrðu möguleikar á stofnun útflutnings- og viðskiptaháskóla í Borgarnesi á aðal- fundi Markaðsráðs Borgfirðinga fyrir skömmu. „Hugmyndin er svo sem ekki eldri en síðan í sumar, ekki í þessu formi allavega. Ég er hins vegar búinn að velta því fyrir mér lengi að hér verði að efla skólakerfið til þess að unga fólkið þurfi ekki að fara í burtu og hef verið meö ýmsar hugmyndir í þessu sambandi. Mér datt þetta í hug í sum- ar, þegar ég heyrði tölur um aðsókn að hliðstæðum skóla í Reykjavík eins og ég er að hugsa um og þá fór ég að velta þessu fyrir mér. Ég ræddi þetta við forsvarsmenn Samvinnuháskól- ans á Bifröst og spurði þá hvort þeir væru tilbúnir að færa út kvíamar hingað niður eftir þar sem ég tel að tiltekna þjónustu vanti í skólanum á Bifröst til að gera hann öflugri og svo stutt væri á milli aö hægt væri að reka þetta sem eitt skólasvæði. Þeir höfðu ekki áhuga á að sinna þessari hugmynd en ég ákvað að koma henni á framfæri á aðalfundi Mark- aðsráðs Borfirðinga sem er hug- myndabanki að eflingu atvinnu- rekstrar menningar og fleira í Borgarfirði, norðan Skarðsheið- ar. Sumum líst vel á og öðrum illa eins og gengur DV-mynd DVÓ að þetta sé hægt en það skeður ekkert í þeirri baráttu sem við heyjum við höfuðborgarsvæðið með stöðugu tapi öðmvísi en menn geri eitthvað og hugsi eitthvað." Pétur segir að það sé ekki of mikið að vera með þrjá háskóla í Borgar- firði. Mjög algengt er að millistigs- Maður dagsins skólar og æðri skólar séu staðsettir í jaðri borga eða stórborga erlendis, eða fyrir utan þær, vegna þess, sem reyndar er ekki á íslandi, að þar á að vera ódýrara að reka hús- næði vegna lægri fast- eignagjalda og minni tilkostnaðar þar sem komið er út fyrir dýrasta svæðið. í raun og vera ætti að vera ódýr- ara að búa á lands- byggðinni en inn- an Elliðaá en það er ekki svoleiðis hér á íslandi eins og er. Ég hef þó trú á því að þróunin verði sú að skólar verði ekki endanlega í mið- borg ReyKjavík, þar verði frekar mið- stöð viðskipta og banka og annað. Skólar ættu ekki að vera í miðborg. Þetta er ekki fyrsta hugmyndin sem Pétur leggur fram því fyrir nokkrum árum vildi hann láta bora jarðgöng undir Bröttubrekku og segir hann að það hafi verið til þess að styrkja stöðu Vesturlands gagnvart Suðurlandi þannig að hægt væri að fara i ferðir á vetrum og á sumrin í öruggara um- hverfi út frá Reykjavík. Dalamenn töldu það skref of stórt og tóku ekki undir og því datt hugmyndin út af í bili. Áhugamál Péturs hafa verið í kringum atvinnusköpun og þjónustu. Hann er búinn að vera i þjónustustörfum síðan hann man eftir sér og hefur ekki haft nein önnur sérstök áhugamál. Pétur er fráskilinn en á frá fyrra hjónabandi þrjú uppkomin börn og átta ' * barna- böm. DVÓ Geir Ólafsson syngur á Gauknum í kvöld. Geir og Furstarnir á Gauknum Söngvarinn Geir Ólafs- son er alltaf að láta að sér kveða meira og meira og er hann tíður skemmtikraftur á öldurhúsum borgarinnar um þessar mundir. Hann mun mæta hress á Gaukinn í kvöld ásamt Furstunum og syngja lög sem velflestir þekkja. í hljómsveit Geirs, Furstunum, eru engir aukvisar heldur landskunn- ir kappar, Guðmundur Steingrímsson er á tromm- ur, Carl Möller á píanó, Árni Scheving á bassa, og Þorleifur Gíslason á saxó- fónn. Skemmtanir Annað kvöld verður svo útgáfuteiti hjá hljómsveit- inni Frogs á Gauknum en hana skipar meðal annars gaimll Gauksvinur, Gunn- ar Bjarni. Tónleikarnir bæði kvöldin er í beinni á www.xnet.is Selfyssingur Myndgátan hér að ofan lýsir hvorugkynsorði. 1 1 ., B W S’’ i : ■ ► I í i ■ H. i á » 1 ? ? W \ 1 W 'f ¥ % 1* h Leikið verður á orgei Grensás- kirkju í kvöld. Orgeltónleikar í kvöld kl. 20.30 verða orgeltón- leikar í Grensáskirkju. Árni Arin- bjarnar, orgelleikari kirkjunnar, mun leika orgelverk eftir Bach, prelúdíu og fúgu í G dúr, Að- ventu- og jólasálmaforleiki úr Orgelbuchlein eða litlu orgelbók- inni og að lokum Prelúdíu og fúgu í h-moll. Aðgangur er ókeypis og öllum heimili. Jólatónar á aðventu Jónatónleikar eru í Tónlistar- skólanum á Akranesi eins og víð- ast hvar á landinu. Á þessum tón- leikum koma fram nemendur á ýmsum stigum tónlistarnámsins og leika fyrir gesti fjölbreytta tón- Tónleikar list sem að mestu tengist jólahá- tíðinni og aðventunni. Að þessu sinni era haldnir sex tónleikar í sal Tónlistarskólans á Akranesi og hefjast þeir allir kl. 20. Næstu tónleikamir era annað kvöld og síðan eru tónleikar á fimmtudagskvöld og síðustu tón- leikamir eru 15. og 16. desember. í vetur eru tæplega þrjú hundruð nemendur í Tónlistarskólanum á Akranesi. Bridge Zia Mahmood er þekktur fyrir að spá mikið í sálfræðilegu hliðina við spilaborðið og spilar ekki alltaf upp á bestu líkurnar. Skoðum hér eitt spil með hann í sagnhafasætinu sem kom fyrir í keppni um lands- liðssæti i Bandaríkjunum í janúar síöastliðnum. Félagi Zia í þessu spili var Michael Rosenberg. Austur 4 KDG6 * ÁKG7 D64 * G4 * 5 1043 K9852 * K952 * Á98 V 982 •f G10 * D10876 gjafari og enginn á hættu: Austur Suður Vestur Norður pass pass pass 1 ♦ pass 1 grand pass 2 grönd pass 3 grönd p/h Kerfi Zia og Rosenberg var stand- ard og vestur valdi að spila út hjartaþristi vegna þess að Rosen- berg opnaði á einum tígli. Zia ákvað að setja gosann í fyrsta slag og aust- ur drap á drottningu. Austur skipti yfir í spaða sem Zia drap á gosann í blindum og spilaði litlum tígli! til baka. Vestur drap tíu suðurs á kónginn og ákvað að skipta yfir í lauf, horfandi á gosann annan í blindum. Zia setti þristinn, austur ásinn og áttan heima. Þegar austur spilaði áfram laufi setti Zia tíuna, vestur drap á kóng og spilaði áfram laufi eins og til var ætlast. Zia sá að vörnin myndi óhjákvæmilega verða á undan að fría tígullitinn áður en hann gæti sjálfur búið til níunda slaginn og eina vinningsvonin var að búa til snotra blekkingu fyrir vörnina. ísak Öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.