Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1999, Page 1
• Jólahlaðborð úti á sjó
• Fátækraþerrir
kom á Þorláksmessu
• Jólagetraun DV
• Fúsi í Salem sendi
jólagjafir í togarana
Súfistinn:
Ljáöu mér
eyra að lesa í
Jólasveinarnir á Jólasveinaþjónustu Skyrgáms til þjónustu reiöubúnir.
„Vertíðin hefst iyrst tyrir alvöru þegar fyrsti jólasveinninn kemur til byggða aðfaranótt 12. desember."
I kvöld verður lesið upp úr nýjum
bókum á Súfistanum, Laugavegi 18.
Bókakynningin ber yfirskriftina
Ljáðu mér eyra og er á vegum bóka-
forlaga Máls og menningar og For-
lagsins.
Bækumar sem verða kynntar eru
Minningar geisju eftir Arthur
Golden, Alkemistinn eftir Paulo
Coelho, List skáldsögunnar eftir Mil-
an Kundera, Á fjalli lifs og dauða eft-
ir Jon Krakauer og að lokum verður
lesið úr bók Snævarrs Guðmunds-
sonar, Þar sem landið rís hæst.
Upplesturinn hefst klukkan 20.
Halldór Hreinsson í Útilífi:
Skórnir duga vel við íslenskar
aöstæður.
Jólasveinaleiga með pakkadreifingu á aðfangadag og heimsóknir á jóladag:
Málaliðar j ólanna
Gönguskór
skipta öllu
„Það er ekki spurning að ég
myndi velja mér góða gönguskó
enda eru gömlu skómir mínir orðn-
ir hálflúnir," sagði Halldór Hreins-
son hjá versluninni Útilífi þegar
hann var beðinn að velja sér eina
gjöf í búðinni.
„Skórnir sem yrðu fyrir valinu
heita Meindl-Island og hafa verið
feikivinsælir til margra ára. Þeir
hafa reynst vel og ég veit aö þeir
eru góðir í þessari tíð sem er núna
innanbæja.r auk þess að vera líka
góðir í íjallgöngumar á sumrin.
Nafngiftin Island kemur til af því að
þeir duga vel við allar íslenskar að-
stæður,“ sagði Halldór.
Meindl-gönguskómir kosta 16.900
krónur og segir Halldór það hvorki
hátt né lágt verð. Algengasta verð á
gönguskóm sé á bilinu 12 til 18 þús-
und. „Reynslan segir okkur að þetta
séu góðir skór. Það vita líka
allir sem ganga mikið aö góðir
gönguskór skipta öllu og era
ómetanlegir," sagði Halldór
Hreinsson hjá Útilífi. -aþ
„Bömin eru alltaf mjög þakklát og
starfið er mjög skemmtilegt," segir
Bendt Harðarson sem ásamt félögum
sínum hefúr rekið Jólasveinaþjón-
ustu Skyrgáms nokkur undanfarin
ár. Fyrirtækið er eitt þeirra sem nú
auglýsa þjónustu sína i smáauglýs-
ingum DV.
Bendt og félagar era ungir náms-
menn og þeir hafa mikla reynslu af
því að umgangast böm. „Við höfum
langflestir tekið mikinn þátt í æsku-
lýðsstarfi Þjóðkirkjunnar og það má
segja að það hafi verið í því starfi sem
þessi hugmynd að jólasveinaþjónust-
unni kviknaði," segir Bendt.
Þó enn séu nokkrar vikur til
jóla hafa Bendt og starfsbræður
hans þegar skemmt nokkrum
sinnum og pantanir eru teknar
að streyma inn. „Við byrjuðum fyrr
að auglýsa núna en í fyrra og fólk
hefur strax tekið við sér en það er þó
alls ekki svo að það sé allt upppant-
að. Vinsælust er pakkadreifingin á
aðfangadag og síðan heimsóknir i
heimahús á jóladag en það er líka
mjög mikið að gera í sambandi við
ýmsar skemmtanir og samkomur, til
dæmis hjá fyrirtækjum og starfs-
mannafélögum þeirra," segir Bendt.
Láréttur í loftinu
Jólasveinar Bendts eru yfirleitt
tveir ög tveir saman og hafa uppi
ýmis gamanmál, hljóðfæraslátt og
söng þar sem þeir koma. Ýmislegt
óvænt og spaugilegt hendir óhjá-
kvæmilega í daglegu amstri jóla-
sveina.
„Jólasveinar frá okkur voru að
fara að skemmta í Haukahúsinu í
Hafnarfirði í fyrra og vora seinir fyr-
ir og þurftu að hlaupa síðasta spöl-
inn í fullum skrúða. Það var snjór
yfir öllu og talsverð hláka. Skyndi-
lega missti einn jólasveinninn fót-
anna og flaug láréttur í loftinu, eins
og í bíómynd, og lenti flatur í polli.
Þegar hann kom á staðinn holdvotur
vakti það mikla lukku að jólasveinn-
in heföi dottið í poll,“ segir Bendt.
Sveinar í próflestri
Eins og áöur sagði eru Bendt og
vinir hans i námi og nú er prófatími
en hann segir jólasveinaútgerðina
ekki hafa truflandi áhrif á próflest-
urinn. „Vertíðin hefst fyrir alvöru
þegar fyrsti jólasveinninn kemur til
byggða aðfaranótt 12. desember og
þá styttist í próflok. Þetta er líka
mest á kvöldin og um helgar og við
gætum þess sömuleiðis að ofkeyra
ekki sömu mennina," segir hann en
alls era jólasveinarnir á Jólasveina-
þjónustu Skyrgáms átta talsins.
Sem dæmi um verð fyrir heim-
sóknir Skyrgáms og félaga má nefna
að 2.500 krónur kostar að dreifa
pökkum í hvert hús á aðfangadag og
heimsókn á jóladag með 15 til 20
mínútna dagskrá kostar 6.000 krónur
en f báðum þessum tilvikum mæta
tveir filefldir jólasveinar á vettvang.
„Það má kannski geta þess líka að
20% af öllum tekjum okkar af þessu
renna til Hjálparstarfs Þjóðkirkjunn-
ar,“ skýtur Bendt inn að endingu.
-GAR
AEG
Vinnur vark sín
j nJJooj
■:*' ;
BRÆÐURNIR
Lógmúla 8 • Sími 530 2800
6280U-W
i undir borðplötu: H: 82-88 B:60 D:57
;un: Hraðkerfi BI0 50°C 0,95 kwst. Venjulegt 65°C kerfi 1,25 kwst
motkun: Hraðkerfi BI0 50°C 15 lítrar Venjulegt 65°C 19 Iftrar
ig: Sjálvirk vatnsskömtun, notar aldrei meira vatn en þörf er á
innra byrgði. Ytrahús sinkhúðað (ryðgar ekki)
lækka efri grind með einu handtaki
Hægt að stilla start-tíma allt að 19 klst. fram í tlmann
hurðarbremsa. Hnífaparagrind opnast eins og bók
Innbyggt hita-element
^eð heitum b'®
Tekur 12 manna stell
Mjög hjóðlát vél aðeins 45 db (rt
6 þvottakerfi
TURBO-þurrkun, þurrkar með heitum blæstri
4 hitastig
Aqua Control, sex-falt vatnsöryggiskerfi