Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1999, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1999
7
dv________________________________Viðskipti
Þetta helst: Viðskipti á VÞÍ 610 m.kr.... Mest með
húsbréf, 430 m.kr.... Hlutabréf 111 m.kr.... Mest viðskipti með
bréf Marels, 31 m.kr., og hækkuðu bréfin um 1,9% ...
Hagnaður
Landsbankans
1.170 milljónir
- fyrstu níu mánuði ársins
Hagnaður Landsbanka ís-
lands hf. nam alls 1.170 millj-
ónum króna fyrstu níu mán-
uði þessa árs, samkvæmt
óendurskoðuðu uppgjöri. Á
sama tímabili í fyrra nam
hagnaður bankans um 719
milljónum kr. og hefur því
aukist um tæplega 63% milli
tímabila. Arðsemi eigin fjár
á tímabilinu nam 16%.
Bankaráð Landsbanka Is-
lands hf. fjallaði á fundi sín-
um 21. október sl. um uppgjör sam-
stæðu bankans fyrir fyrstu níu mán-
uði þessa árs. í tilefni af sölu á 15% af
hlutafé ríkissjóðs í bankanum, sem
hefst þann 15. desember, hefur banka-
ráð ákveðið að birta niðurstöður úr
umræddu uppgjöri.
Hreinar vaxtatekjur bankans
námu alls 4.028 milljónum kr. fyrstu
níu mánuðina og höfðu aukist um
25,5% frá því á sama tíma í fyrra.
Hreinar rekstrartekjur í heild námu
alls um 6.100 milljónum króna og
höfðu þær aukist um 20,8%.
Heildareignir Landsbank-
ans i lok september námu
alls tæplega 193,2 miUjörðum
kr. og höfðu aukist um 22,2%
frá áramótum. Útlán námu í
lok september 131.980 milljón-
um og höfðu á tímabilihu
aukist um 14,4%. Innlán
námu 79.962 milljónum og
höfðu aukist um 8,7%. Eigið
fé var í lok september um
10.916 milljónir.
Afkoma Landsbankans fyrir fyrstu
níu mánuði ársins 1999 er nokkru
betri en markmið bankans um arð-
semi á árinu kveða á um. Ekki þykir
ástæða til að endurskoða þau mark-
mið þótt fyrirséð sé að arðsemin
verði í eða nokkuð yfir þeim efri
mörkum sem kynnt voru í upphafi
árs. Rétt er að taka fram að afkoma
fjármálafyrirtækja er að hluta háð
ýmsum ytri þáttum svo sem verðlags-
þróun og þróun ávöxtunarkröfu á
markaði.
Halldór J.
Kristjánsson
bankastjóri.
Tæknjval kaupir fjórðung í
íslenskri miðlun
Tæknival hf. hefur gengið frá
kaupum á 25% hlut í íslenskri miðl-
un ehf. Andri Þór Guðmundsson,
viðskiptafræðingur og fyrrverandi
aðstoðarforstjóri Lýsis hf., hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri ís-
lenskrar miðlunar í stað Svavars
Kristinssonar sem verður stjómar-
formaður fyrirtækisins. Auk hans
sitja í stjóm Karólína S. Hróðmars-
dóttir og Árni Sigfússon, fram-
kvæmdastjóri Tæknivals.
Kaupþing með 8,1% ■
Vinnslustöðinni
Kaupþing hefur tilkynnt Verðbréfa- bréfastofan tilkynnt um að eignarhlutur
þingi íslands að eignarhlutur Kaup- hennar í Vinnslustöðinni hafi lækkað
þings í Vinnslustöðinni hf. sé kominn í úr 6,7% í 0,01%.
8,08% en var áður 1,4%. Þá hefur Verð-
Baugur og Oliufelagið inn i
Úrvalsvísitöluna
Tvö ný félög koma inn í visitöluna frá
og með 1. jan. Þau félög sem inn koma
em Baugur hf. (verslun og þjónusta) og
Olíufélagið hf. (ohudreifmg) en félögin
sem detta út em Haraldur Böðvarsson
hf. (sjávarútvegur) og Opin kerfi hf.
(upplýsingatækni). Nú er ekkert fyrir-
tæki úr upplýsingatæknigeiranum í
visitölunni en inn koma fyrirtæki úr
þjónusm og verslun og olíudreifmgu.
Alls em 45 hlutafélög skráð á Aðal-
lista þingsins, utan hlutabréfasjóða, og
vega þau 15 félög sem verða í Úrvalsvísi-
tölunni samtals 69,4% af markaðsverð-
mæti þeirra. Velta félaganna á þinginu
sem valin hafa verið í vísitöluna er
74,7% af veltu hlutabréfa á Aðallista á
siðastliðnum 12 mánuðum.
Úrvalsvísitala VÞÍ (ICEX-15) er sam-
ansett af félögum sem skráð em á Aðal-
lista VÞÍ og em valin fimmtán félög eft-
ir fyrir fram ákveðnum reglum. Valið í
vísitöluna fer fram tvisvar á ári og
Maersk gengur frá
Gengið hefur verið frá kaupum
danska gámaflutningafyrirtækisins
Maersk á bandariska skipafélaginu
SeaLand fyrir 800 milljónir dollara (56
milljarðar ísl. kr.)
Sammni 'félaganna festir Maersk í
sessi sem stærsta gámaflutningafyrir-
tæki heims. Fyrirtækið starfrækir 250
skiptast timabilin þann 1. janúar og 1.
júlí ár hvert. Samkvæmt reglum um
visitöluna skal það birt eigi siðar en 10.
desember og 10. júní hvaða félög lenda i
vísitölunni á komandi tímabih.
Af þeim 20 félögum á AðaUista þings-
ins sem tíðust viðskipti em með á þing-
inu á 12 mánaða tímabili em það 15
stærstu felögin að markaðsverðmæti í
lok tímabilsins sem mynda Úrvalsvísi-
töluna næstu 6 mánuði. Hlutabréfasjóð-
ir era þó undanskildir við val þetta.
Tímabilið sem ræður samsetninguni
fyrir tímabilið 1. janúar 2000 til 1. júli
2000 nær frá 1. desember 1998 til 30. nóv-
ember 1999.
Úrvalsvísitalan er þvi samsett af
þeim félögum sem hafa hvað virkasta
verðmyndum á þinginu en val í Úrvals-
vísitöluna ber að öðm leyti ekki að
túlka sem gæðastimpil á viðkomandi
hlutabréf.
kaupum á SeaLand
flutningaskip og er um tvöfalt stærra
en næststærsta fyrirtæki heimsins, Ev-
ergreen Marine Corp Ltd frá Taívan.
Maersk er í eigu A.P. Möller sam-
steypunnar en í tilkynningu frá henni
kemur fram að starfsmenn Maersk-
SeaLand muni verða um 10 þúsund á
skrifstofum í rúmlega 100 löndum.
Opið alla daga
Helgar
11.-12. Des. kl. 11:00-1
18.-19. Des. Kl. 11:00-2
Virka daga
10. Des. kl. 12:00-1
13.-17. Des. kl. 12:00-
20.-23. Des. kl. 12:00-1
Matur
Leikföng
Verkfæri
Gjafavara
Snyrtivörur
Geisladiskar
Föt og fataefni
Raftæki og Ijös
Teppi og trévara
ikór og skartgripir
lækur og búsöhöld
iompudóf og antik
ÓdÝrt'.®,|ýr
o9 ævin,y
í Kolaportinu
Markaðstorg
KOLAPORTIÐ