Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1999, Side 1
ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1999
Einungis þriðj-
ungur
Marsleiðangra
heppnast
bls. 20-21
Gran
Turismo 2
á leiðinni
bls. 22
Eru stýri-
kerfi áhuga-
verð?
Bls 18
PlayStation
Kvikmynd á Fókusvefnum
Nýr athyglisverð-
ur vefur verður
opnaður á Fók-
usvefnum innan
skamms. Hann
verður tileinkaður kvikmyndinni
Gemsum sem Mikael Torfason á
heiðurinn að, skrifar handritið
og leikstýrir. Tökur á myndinni
eru að hefjast um þessar mundir
og er það ætlun aðstandenda
myndarinnar að birta á Fók-
usvefnum ýmislegt efni jafnóðum
og myndin er búin tO. Þannig
geta áhugasamir i raun fylgst
með öllu því sem er að gerast hjá
tökuliðinu, skoðað tökur dagsins
og lesið viðtöl við aðstandendur
myndarinnar. Nánar verður fjall-
að um þetta mál í Fókusi næst-
komandi fostudag.
j'JiiÍJÍ)
Tölvuþrjótur játar
Tölvuþrjóturinn
sem bjó til hinn
alræmda Melissu-
tölvuvírus hefur
játað sekt sína.
Maðurinn sem er ábyrgur fyrir
Melissu heitir David Smith og er
31 árs tölvuforritari. Meðal þess
sem kom fram við yfirheyrslur á
Smith þessum er að vírusinn er
nefndur eftir nektardansmær frá
Florida sem maðurinn var í
kynnum við. Melissu-vírusinn
hefur valdið tjóni upp á 80 millj-
ónir dollara (um 5,6 milljarða
isl.króna) síðan hann komst á
stjá í mars á þessu ári. David
J’jjJVilJ1
Smith viðurkenndi að hann hefði
gert vírusinn til
að valda tjóni
en hann hefði
ekki búist við
að tjónið yrði
eins mikið og
kom á daginn.
Sagði hann að
hann hefði út-
búið vírusinn
þannig að
ekki heföi átt
að hljótast
mikið tjón af honum. Greinilegt
er að það hefur eitthvað mistek-
ist.
Á föstudaginn
var fyrsta Ari-
ane 5-eldflaugin
send af stað út í
geiminn frá
Frönsku-Gíneu.
Innan 30 mín-
útna hafði hún skilað XMM-gervi-
hnetti Geimferðastofnunar Evrópu
á sporbaug um jörðu og var vel-
gengni verkefnisins túlkuð sem
mikill sigur fyrir sögu evrópskra
geimferða.
Sérstaklega var þetta ánægjuleg
stund fyrir aðstandendur verkefnis-
ins, sem höfðu unnið að þvi i um
áratug, í ljósi þess hve hörmulega
tókst til við fyrsta tilraunaflug Ari-
ane 5 áriö 1996. Flaugin sem send
var þá á loft sprakk skömmu eftir
flugtak og var útlitið ekki gott fyrir
Ariane næstu mánuði á eftir.
Meginverkefni næstu Ariane 5-
flauga verður síðan að flytja gervi-
hnetti á sporbaug um jörðu. Sá
bransi er talsvert ábatasamur um
þessar mundir og því er það mikið
gleðiefni fyrir evrópska geimvís-
indamenn að geta tekið þátt í hon-
um af fullum krafti. Ariane 5 er öfl-
ugasta eldflaug sem byggð hefur
verið í Evrópu og getur hún borið
ýmist einn þungan gervihnött eða
tvo léttari. Það var ekki vanþörf á
að koma loks í gagnið jafnöflugri
eldflaugategund því heilir 42 gervi-
hnettir bíða nú þess að komast á
sporbaug hjá Arianespace, fyrirtæk-
inu sem framleiðir eldflaugina.
I^JLJjjJj-'
fáíú Jj*
AfÍdllG
tekst á loft
ur v
j nJjooj
— ; Favorit 6280U-W
Gerð undir borðplötu: H: 82-88 B:60 D:57
Orkunotkun: Hraðkerfi BIO 50°C 0,95 kwst. Venjulegt 65°C kerfi 1,25 kwst.
{Vatnsnotkun: Hraðkerfi BIO 50°C 15 lítrar Venjulegt 65°C 19 lítrar
Fuzzy-logig: Sjálvirk vatnsskömtun, notar aldrei meira vatn en þörf er á
Ryðfrítt innra byrgði. Ytrahús sinkhúðað (ryðgar ekki)
w Hægt að lækka efri grind með einu handtaki
Hægt að stilla start-tíma allt að 19 klst. fram í tímann
Sjálfvirk hurðarbremsa. Hnífaparagrind opnast eins og bók
Innbyggt hita-element
§9
gO
o.\
ll
m
'É4M
%%
Lá g m ú
Sími 530 2800
heitum b'®
Tekur 12 manna stell
Mjög hjóðlát vél aðeins 45 db (re 1pW)
6 þvottakerfi
TURBO-þurrkun, þurrkar með heitum blæstri
4 hitastig
Aqua Control, sex-falt vatnsöryggiskerfi