Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1999, Blaðsíða 17
16
ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1999
ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1999
25
Sport
Stuóningsmenn íslendingliösins
Walsall voru óhressir eflir tapleik
liðsins gegn Tranmere, 1-2, í ensku
B-deildinni í knattspymu á sunnu-
dag. Þeir létu mikiö til sín heyra og
heimtuðu að eigandi félagsins, Jeff
Bowser, kæmi félaginu i betri hend-
ur. Með Walsall leika sem kunnugt er
þeir Bjarnólfur Lárusson og Sig-
uróur Ragnar Eyjólfsson.
Ray Graydon, knattspyrnustjóri
Walsall, var ekki hress með þessi
mótmæli og sagði að ef Bowser hætti,
myndi hann hætta líka. Walsall er
næstneðst í B-deildinni og virðist lik-
legt til að hafa aðeins eins árs dvöl
þar. Stefna Bowsers er að steypa fé-
laginu ekki í skuldir og fá aðeins
samningslausa leikmenn í hópinn, og
Graydon segist styðja það heils hug-
ar.
John Hartson, sóknarmaöur
Wimbledon, hefur gengist undir að-
gerð á fæti og missir af næstu leikj-
um liðsins í ensku A-deildinni í
knattspymu.
Celtic og Rangers skildu jöfn, 1-1, í
stórleik skosku A-deildarinnar í
knattspymu í gær. Mark Viduka
kom Celtic yfir á 18. mínútu en Billy
Dodds jafnaði metin fyrir Rangers á
27. mínútu.
Siguröur Jónsson var í byijunarliði
Dundee United sem tapaði fyrir Aber-
deen, 3-1. Sigurður, sem hefur verið
frá í nokkrar vikur vegna meiðsla,
var skipt út af eftir klukkutímaleik.
Dundee og St. Johnstone skildu jöfn,
1-1, og í leik Hibernian og
Kilmamock varð einnig jafntefli, 2-2.
Ólafur Gottskálksson var á vara-
mannabekk Hibernian. Rangers er
efst með 44 stig, Celtic 40 og Dundee
Utd 30.
Rússneski handknattleiksmaðurinn
Alexander Sklyraov, leikmaður með
meisturum Kaustik Volgograd, var
myrtur í heimabæ sínum í síðustu
viku. Sklyraov, sem var 21 árs gam-
ail, var stunginn tvívegis í brjóstið
með hníf af glæpagengi og lést á leiö
á sjúkrahús. íþróttamenn í Volgograd
hafa undanfarin ár oröið fyrir barö-
inu á ódæðismönnum en ekki áður
hafa þeir verið drepnir. -GH/VS
NBA-DEILDIN
Úrslitin í nótt:
Charlotte-Atlanta.......108-104
Coleman 25, Wesley 23 -
Rider 25, Jackson 20.
Orlando-Minnesota.......105-107
Abdul-Wahad 16, Armstrong 16 -
Garnett 26, Brandon 18.
Chicago-Indiana .........91-103
Brand 22, Artest 22 -
Davis 21, Rose 20.
Utah-Phoenix .............92-91
Malone 28, Russel 14 -
Chapman 29, Kidd 16.
Vancouver-Philadelphia . .93-100
Abdur-Rahim 24, Reeves 18 -
Iverson 29, Geiger 20.
Golden State-SA Spurs . . .83-105
Starks 27, Jamiison 14 -
Robinson 28, Duncan 16.
LA Lakers-DaUas.........108-106
O'Neal 35, Bryant.25 -
Nowitzki 30, Finley 24.
Lið aldarinnar
Liö aldarinnar í íslenskum körfu-
bolta, sem mætir Hamri í Hvera-
gerði annað kvöld, var tilkynnt í
gær. Það skipa eftirtaldir:
Þorsteinn Hallgrímsson, Kol-
beinn Pálsson, Einar Bollason, Torfi
Magnússon, Guðmundur Þorsteins-
son, Jón Sigurðsson, Jón Kr. Gísla-
son, Pálmar Sigurðsson, Símon
Ólafsson, Gunnar Þorvarðarson,
Kristinn Jörundsson, Bjami Gunn-
ar Sveinsson, Páll Kolbeinsson og
Hjörtur Hansson. Einnig leika með
liðinu þeir Gísli Páll Pálsson, bæjar-
stjómarmaður í Hveragerði og fyrr-
um KR-ingur, og Ólafur Ratnsson,
formaður KKÍ og fyrrum leikmaður
Hauka. Pétur Guðmundsson, eini ís-
lendingurinn sem hefur leikiö í
NBA, er búsettur erlendis og því
ekki tilbúinn í leikinn.
Ágóði af leiknum rennur til
styrktar Landssambandi áhugafólks
um flogaveiki. -ÓÓJ/VS
Bland i
oka
• •
Samtök íþróttafréttamanna velja íþróttamann ársins í 44. sinn:
- Eyjólfur Sverrisson í öðru sæti og Vala Flosadóttir í því þriðja
Sundmaðurinn Öm Amarson var í
gærkvöldi útnefndur íþróttamaður
ársins 1999 af Samtökum íþróttafrétta-
manna í hófi á Hótel Loftleiðum.
Þetta var í 44. skipti sem Samtök
íþróttafréttamanna útnefna íþrótta-
mann ársins og annað árið í röð sem
styttan glæsilega, sem fylgir sæmdar-
heitinu, fer í hendur Amar Amarson-
ar.
Öm er 18 ára gamall Hafnfirðingur
og hefur æft sund með Sundfélagi
Hafharíjarðar frá unga aldri. Hann
náði þeim glæsilega árangri að verða
tvöfaldur Evrópumeistari á Evrópu-
meistaramótinu í sundi í 25 metra
laug sem fram fór í Portúgal á dögun-
um. Öm kom fyrstur í mark í 100 og
200 metra sundi og þar með undir-
strikaði hann styrk sinn. Örn hefur
nú þegar, þó ungur sé að árum, skip-
að sér á bekk meðal bestu baksunds-
manna heims í dag.
Það er alveg ljóst að ef rétt verður
á spilum haldið þá blasir framtíðin
við þessum mikla íþróttamanni. Hann
vinnur aö því hörðum höndum að
mæta sem best undirbúinn til leiks
fyrir Ólympíuleikana í Sydney á kom-
andi hausti. Það verður gífurlega
spennandi að fylgjast með honum þar
etja kappi við sína jafningja í sínum
greinum.
Vel að titlinum kominn
Þegar litið er til sundmanna úti í
hinum stóra heimi hafa sundmenn
hér mátt búa við aðstæður sem ekki
eru þeim sæmandi. Öm hefur sýnt
það og sannað að allt er hægt ef vilji
einn er fyrir hendi. Gífurleg ástund-
um æfinga hefur borið ríkulegan
ávöxt þótt ungur sé að árum. Öm æfir
að jafnaði um fimm tíma á dag svo
sjálfsaginn verður að vera mikill tii
að komast í fremstu röð. Örn er vel að
þessari útnefningu kominn annað
árið í röð. íslensk íþróttaæska litur
upp tO þessa íþróttamanns og hún
getur margt af honum lært.
Hefur allt til að bera
Ekki eru það aðeins íslendingar
sem eru stoltir af sínum afreksmanni
og bíða spenntir eftir framgöngu hans
á næstum árum. Erlendir sundfræð-
ingar hafa tekið eftir þessu nafni og
bíða ennfremur spenntir. Þeir segja
að hann hafi allt tO að bera tO að ná
enn lengra. Tíminn einn á eftir að
leiða í ljós hvað gerist í þeim efnum.
Hér er á ferð mikið efni og að því
verður að hlúa. Stuðningi við hann i
hvaða formi sem er er hverrar krónu
virði.
Eins og kom fram í DV í gær kusu
lesendur blaðsins Örn íþróttamann
ársins þriðja árið í röð.
-GH/JKS
Válerenga hefur flækt málin
- Guöjón Þóröarson, knattspyrnustjóri hjá Stoke, hræddur um aö ekkert veröi af kaupunum á Brynjari
Guðjón Þórðarson, knattspymu-
stjóri Stoke City, segir að norska lið-
ið Válerenga hafl flækt málin varð-
andi kaupin á Brynjari Bimi Gunn-
arssyni og hann sé hræddur um að
felagið sé að missa af íslenska lands-
liðsmanninum hjá Örgryte.
Þetta kom fram í enska blaðinu
Sentinel í gær. Válerenga kemur að
málinu vegna þess að félagið lét
Brynjar fara tO Örgryte í Svíþjóð
fyrir einu ári, án greiðslu en með
þeim skOmálum að félagið fengi
hlut í sölu hans ef hann færi frá Ör-
gryte. Haft er eftir Guðjóni í Sentin-
el að Válerenga fái helming kaup-
verðsins og af þeim sökum hafl
sænska liðið skyndOega hækkað
kröfur sínar um greiðslur fyrir
Brynjar. Áður hafði verið talað um
að hann færi tO Stoke fyrir 60 mOlj-
ónir króna.
Stjómarmenn Örgryte hafa að
undanfomu neitað að gefa upp við
sænska fjölmiðla hve mikið Váler-
enga fái af kaupverðinu. DV ræddi í
gær við Stefan Allbáck, stjómarfor-
mann sænska félagsins, og hann
vOdi sem fyrr ekkert segja um það
mál. „Það hefur ekkert nýtt gerst í
máli Brynjars og ég veit ekki hvem-
ig þetta fer en við munum ræða við
Stoke á næstu dögum,“ sagði AO-
báck viðDV.
Brynjar fór tU Stoke rétt fyrir jól-
in en þegar tU kom var ekki komið
samkomulag mOli örgryte og Stoke
um kaupverðið. Hann gat því ekkert
rætt við Stoke um launamál, gekkst
aöeins midir læknisskoðun hjá fé-
laginu og fór aftur heim.
Hjá Örgryte vOja menn helst
halda Brynjari í sínum röðum enda
þótti hann besti leikmaður liðsins á
þessu ári. Haft var eftir þjálfara og
stjómarmönnum eftir tímabOið að
það besta sem felagið gæti gert fyrir
komandi timabU væri aö halda
Brynjari.
„Við vUjum helst halda honum en
við eigum í fjárhagserflðleikum
eins og mörg önnur félög og þvi
gætum við neyðst tO að láta hann
fara. Það skýrist betur á næst-
unni,“ sagði Stefan Allbáck.
-EH/VS
Örn Arnarson, íþróttamaður ársins,
með verðlaunagripinn glæsilega sem
Samtök íþróttafréttamanna veittu í 44.
sinn í gær. Á minni myndinni óskar
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
íslands, Erni til hamingju með
útnefninguna en Örn var kjörinn
íþróttamaður ársins annað árið í röð.
DV-myndir E.ÓI.
íþróttamaður ársins:
Þessir fengu at-
kvæði í kjörinu
1. Örn Arnarson, sund, SH.................347
2. Eyjólfur Sverrisson, knattsp., Herthu .. 264
3. Vala Flosadóttir, frjálsar, ÍR.........239
4. Ólafur Stefánsson, handkn., Magdeburg . 95
5. Rúnar Kristinsson, knattsp., Lilleström . 91
6. Rúnar Alexandersson, fimleikar, Gerplu 61
7. Kristinn Björnsson, skíði, Leiftri.....59
8. Bjarki Sigurösson, handkn., Aftureld. . . 55
9. Sigurbjörn Báröarson, hestaíþr., Fáki . . 48
10. Þóröur Guðjónsson, knattspyma, Genk . 33
11. Elva Rut Jónsdóttir, fimleikar, Björk .. 32
12. Auðunn Jónsson, kraftlyftingar, Kópav. 30
13. Guörún Arnardóttir, frjálsar, Ármanni . 28
14. Jón Amar Magnússon, frjálsar, Tindast 26
15. Vernharð Þorleifsson, júdó, KA.........21
16. Halldór Jóhannsson, fimleikar, Ármanni 19
17. Þórey Edda Elísdóttir, frjálsar, FH .... 18
18. -19. Birkir Kristinsson, knattspyma, ÍBV 15
18.-19. Guöm. Benediktsson, knattsp., KR . . 15
20. Eiður Smári Guðjohnsen, knattsp, Bolton 10
21. Róbert J. Duranona, handkn., Eisenach . 5
22. -23. Edda Lúvísa Blöndal, karate, Þórsh. . 3
22.-23. Einar K. Hjartarson, frjálsar, FH . . . 3
24.-26. Elsa Nielsen, badminton, TBR....... 2
24.-26. Gísli G. Jónsson, torfæra.......... 2
24.-26. Lára Hrund Bjargardóttir, sund, SH . 2
27.-29. Björgvin Sigurbergsson, golf, GK . . . 1
27.-29. Ingibergur Sigurðsson, glíma, Árm. . 1
27.-29. Rúnar Jónsson, rall, Reykjavik..... 1
+
Sport
Ætla að standa mig
enn betur á næsta ári
- sagði Örn Arnarson - Fulltrúi landsliðsins, segir Eyjólfur
„Ég skcil viðurkenna að það fór
heitur straumur um mig þegar nafn
mitt var tilkynnt. Þetta er mikill
heiður sem mér áskotnast annað
áriö í röð. Ég átti allt eins von á
þessu en bjóst við að Eyjólfur Sverr-
isson myndi veita mér mestu keppn-
ina. Eftir á varð ég hins vegar hissa
hve munurinn var mikill," sagði
Öm Amarson, íþróttamaður ársins
1999, í samtali við DV rétt eftir út-
neíhinguna í gærkvöld.
Samtök íþróttafréttamanna kusu
Öm Amarson, sundmann úr SH,
íþróttamann ársins í kjöri á Hótel
Lofleiðum í gærkvöld og var þetta í
44. skipti sem kjörið fer fram en því
var hleypt af stokkunum 1956.
- Að hljóta þennan titil hlýtur
ad vera töluverð áskorun.
„Þetta er það náttúrlega. Ég ætla
að standa mig enn þá betur á næsta
ári en því sem er að ljúka. Næsta ár
verður örugglega þaö mikilvægsta á
mínum ferli. Ég stefni að því að
gera góða hluti á Ólympíuleikunum
í Sydney en hátt í níu mánuðir eru
til stefnu. Ég mun að sjálfsögðu gera
mitt besta þangað til og tímann
þangað til ætla ég að nýta til hins
ýtrasta," sagði Öm.
- Þessi árangur þinn hefur vak-
ið athygli. Eru ekki einhverjir
skólar vestra setn sœkjast eftir
þér?
„Jú, því er ekki að neita. Ég hef
fengið tilboð frá hinum og þessum
skólum í Bandaríkjunum. Ég get
upplýst það að ég er ekki á leiðinni
til Bandaríkjanna fyrr en í fyrsta
lagi eftir ólympíuleikana. Það er
gaman að sjá að skólar vestra vilja
fá mann. Ég hef fengið frá sumum
þeirra virkilega góð tilboð. Maður
veit aldrei hvað maður gerir síðar í
þessum efnum,“ sagði Öm Amar-
son.
Skemmtilegt ár
„Þetta var virkilega skemmtilegt
og góð tilfmning að lenda svona of-
arlega í þessu kjöri. Ég lít meira á
mig sem fulltrúa landsliðsins sem
náði frábærum árangri á árinu og
allir sem standa að landsliðinu eiga
hlut i þessu sæti mínu,“ sagði
Eyjólfur Sverrsson við DV en hann
varð í öðru sæti á eftir Emi í kjör-
inu.
„Þetta ár er án efa eitt það besta
hjá mér sem knattspyrnumaður
enda gengið gott bæði með landslið-
inu og Herthu. Þetta er búiö að vera
mjög skemmtilegt ár og þá sérstak-
lega gagnvart landsliðinu. Þá hefur
verið mjög gaman að spila með 16
bestu liðum Evrópu i meistaradeild-
inni og að leika á móti heimsklassa-
leikmönnum. Ég stend enn við þá
ákvörðun mína að snúa heim úr at-
vinnumennskunni árið 2001. Hvað
við tekur þá er allt óráðið og það er
alls ekki víst að ég spili neitt hér
heima,“ sagði Eyjólfur.
-JKS/GH
Örn Arnarson:
Með annan
besta tíma
í heiminum
Árangur Arnars Arnarsonar
á Evrópumótinu innanhúss í
Portúgal á dögunum er enn
glæsilegri þegar nánar er að
gáð. Örn er í dag með næst-
besta tíma í heiminum í 200
metra baksundi, aðeins
heimsmet Krayselburg hins
ameríska er betra, 1:52,47, og í
100 metra baksundi er hann
með fimmta besta tímann.
Tími Arnars í 200 metra
baksundi er sennilega 10. eða
11. besti frá upphafi. Á World
Cup mótunum frá því haustið
1997 hefur einungis einn
maður synt hraðar en
íslendingurinn í 200 metra
baksundi og það gerði
Krayzelburg þegar hann setti
heimsmetið í haust. Einungis
fjórir sundmenn hafa farið
hraðar í 100 metra baksundi á
sama tíma.
-JKS