Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1999, Blaðsíða 4
20
+
■ ■ ©
■afEillillg
■ ■ ■# ■ ■ ■ ■ ■■ ■
21
ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1999
Þróun vísindanna frá 1000 til 2000:
Newton, Darwin og Einstein lögðu grunninn
- tuttugasta öldin þó langafkastamest
Það er verulega
athyglisvert að
velta fyrir sér
öllum þeim
breytingum sem
orðið hafa á
svíðum visinda og tækni á síðustu
1000 árum. DV-Heimur bað Þorstein
Vilhjálmsson, prófessor í vísinda-
sögu, að leiða okkur í gegnum
helstu framfarimar.
„Ef við skoðum ástandið eins og
það var fyrir 1000 árum þá er oft tal-
að um myrkar miðaldir. Síðan þá
hefur gríðarlega mikið breyst, ekki
síst hvað varðar hugmyndir fólks. Á
þessum tíma studdist almenningur
við hina svokölluðu jarðmiðjukenn-
ingu, þ.e. að jörðin væri miðja al-
heimsins. Ég held að einna mestu
skilin í hugmyndasögunni hafi orð-
ið þegar þessari kenningu var
hnekkt og sólmiðjukenningin kom
fram. I tengslum við það þurftu
menn að ráða fram úr ýmsum gát-
um, t.d. hvemig haldast hlutir við
jörðina ef hún er á fleygiferð um-
hverfis sólu, og svo framvegis.
Þama liggur því grunnurinn aö eðl-
isfræði og ýmsu öðru sem við not-
Einstein á langstærstan hlut í afstæðiskenningunni.
Þorsteinn Vilhjálmsson, prófessor ■' vísindasögu, segir að hugmyndir fólks varðandi heiminn hafi breyst gríðarlega mikið síð-
ustu 1000 árin. Þar á meðal öðlaðist það vitneskju um að jörðin væri ekki miðja alheimsins. DV-m<ynd E.ÓI.
umst enn þá við í dag,“ segir Þor-
steinn.
Newton, Darwin
og Kólumbus
Aflfræði Newtons að m«<eð-
töldu þyngdarlögmálinu kemur í
kjölfar þessara uppgötvana og segir
Þorsteinn að margir vísindamenn
myndu einmitt telja Newton vera
mesta vísindamann árþúsundsins,
því kenningar hans leggja grunn aö
svo mörgum öðrum kenningum, að-
ferðum og hugmyndum. Hann skap-
aði mönnum því í raun frjóan akur
í 200 til 300 ár á eftir þar sem vís-
indamenn vinna á sömu forsendum.
Önnur bylting í svipuðum stærð-
arflokki að mati Þorsteins varð svo
í líffræðinni á nítjándu öld þegar
Darwin kom til sögunnar með þró-
unarkenninguna. Þar á sér einnig
stað mjög róttæk bylting á hugsun-
arhætti og viöhorfum vísinda-
manna og almennings.
„Á síðustu 1000 árum verður jafn-
framt gríðarleg breyting á þekkingu
manna á umhverfi sínu,“ heldur
Þorsteinn áfram. „í byijun þessarar
þúsaldar vissu menn í rauninni
mjög lítið um heiminn, heldur
þekktu nær eingöngu sitt nánasta
umhverfi. í kjölfar landafundanna á
15. öld fara menn síðan að ferðast
meira og heimsmynd þeirra stækk-
ar. Sögulegt mikilvægi Kólumbusar
finnst mér vera mjög mikið þó svo
sumir vilji draga úr því, því í kjöl-
farið á ferðum hans til Ameríku á
sér stað mikil aukning á þekkingu
manna um heiminn og stærö hans.“
Eðlisfræðibyltingar
En við færum okkur nær í tíman-
um og veltum fyrir okkur hvað sé
það helsta sem kemur upp í hugann
hjá Þorsteini varðandi vísindafram-
farir þegar 20. öldin er annars veg-
„Ég man til dæmis
þegar fyrstu tölvurnar
voru að koma hingað í
Háskólann. Þær voru í
þá daga bara reikni-
tæki fyrir vísinda-
menn, skjálausar og
notuðust bara við
strimla eða gata-
spjöld. Síðan koma
skjáirnir í kringum
árið 1980 og þá kem-
ur til skjalanna þessi
víxlverkun þar sem
maður talar við tækið
og tækið svarar.“
ar: „Talsverðar vísindabyltingar
hafa orðiö á 20. öldinni, t.d. í eðlis-
fræðinni 1 kjölfar þess að afstæðis-
kenningin og skammtafræðin voru
settar fram,“ segir Þorsteinn.
Hann segir afstæöiskenninguna
hafa breytt hugmyndum okkar um
rúm og tíma auk þess sem hún hef-
ur, sérstaklega nú síðustu ár, haft
áhrif á rannsóknir í stjarnvisind-
um. „Einstein á langstærstan hlut í
afstæðiskenningunni,“ segir Þor-
steinn, „og það verður að teljast
óvenjulegt að einn maður eigi svo
stóran hlut í jafnmikilvægri kenn-
ingu. Ef við eigum að leita að hlið-
stæðum einstaklingum koma helst
frumkvöðlar eins og Darwin og
Newton upp i hugann."
Skammtafræðin hefur líka í fór
með sér mjög róttækar breytingar á
grunnhugmyndum manna um or-
sakasamhengi og því um líkt. Hún
fjallar um atómin, hvernig þau eru
samansett og hvernig eindirnar í
þeim víxlverka hver við aðra. Þessi
fræði eru mjög abstrakt, að sögn
Þorsteins, og segir hann nemendur
oft vera í talsverðum vandræðum
með að skilja skammtafræðina þó
svo þeir séu búnir að læra eðlis-
fræði í nokkurn tíma. Engu að síð-
ur hefur þetta verið mjög mikiö not-
uð kenning á seinni hluta aldarinn-
ar og hefur hún reynst mjög frjó.
Meðal þess fyrsta sem skammta-
fræðin færði mannkyninu voru hin
litlu smáraútvörp sem tóku við af
stóru lampaviðtækjunmn en í dag
nýtist hún einnig í tölvum, ör-
bylgjuofnum og mörgum öðrum há-
tæknihlutum.
Bygging erfðaefnis
„Hvað liffræðina varðar á þessari
öld þá tókst mönnum á fyrstu árum
aldarinnar að tengja saman erfða-
fræði Mendels og þróunarkenningu
Darwins sem telst talsvert merki-
legt skref. Stærsti viöburðurinn á
þessari öld á þessu sviði var þó án
efa þegar þeir Watson og Crick upp-
götvuðu byggingu erfðaefnisins
skömmu eftir miðja öldina. Þá ger-
ist margt í senn í þekkingu mann-
kyns því við áttum okkur ekki bara
á byggingu erfðaefnis heldur
komumst að því að hún er sameig-
inleg öllum lífverum. í kjölfarið get-
um við sagt fullum fetum að ailar
lífverur séu komnar af sömu rót,“
segir Þorsteinn.
Atómkapphlaupið
Hann víkur sér síðan að öllu
dekkri hlið tækni- og vísindaþróun-
ar mannkyns: „Á þriðja og fjórða
áratugnum fer að aukast þekking
manna á atómkjamanum og menn
fara að gera sér grein fyrir því að
þar er mikil orka sem hægt er að
leysa úr læðingi. Um 1940 fara menn
svo að velta af alvöru fyrir sér hug-
myndinni um aö búa til vopn sem
byggist á þessum grunni."
Vestræna vísindamenn grunaði
að Hitler ætlaði að þróa vopn af
þessu tagi og því var talsverður
þrýstingur á stjórnvöld Bandaríkj-
anna að koma af stað hinu mikla
Manhattan-verkefhi sem að lokum
gerði þeim kleift að þróa og varpa
tveimur kjamorkusprengjum á Jap-
an. „í kjölfarið fer svo af stað flókin
saga sem við þekkjum í dag sem
kalt stríð og vígbúnaðarkapphlaup.
Þaö leiddi áður en lauk til þess að
stórveldin hefðu getað sprengt upp
jörðina nokkrum sinnum meö
vopnabúrum sínum,“ segir Þor-
steinn.
Hátæknin verður til
Upp úr miðri öldinni á sér svo
stað ákveðin mikilvæg breyting, að
mati Þorsteins, þegar hátækni fer
að skipa meiri og meiri sess í iðnaði
og daglegu lifi og menn byrja fyrir
alvöru að nýta sér grunnþekkingu
sem varð til snemma á öldinni.
„Hátækni má e.t.v. skilgreina
sem tækni sem byggð er á nútíma-
vísindum, þ.e. vísindum eins og
skammtafræði, mjög óhlutbundinni
stæröfræði og öðru slíku,“ segir
Þorsteinn og tekur sem dæmi GSM-
síma og þá tækni sem þarf til að
gera tveimur mönnum kleift að tala
saman með slíkum tólum án þess að
aðrir geti hlustað á samræðumar.
„Slíkir hlutir,
sem okkur finnast
hversdagslegir nú
orðið, eru í raun
byggöir á mjög há-
þróuðum vísind-
um. Örbylguofninn
er einnig mjög at-
hyglisvert dæmi í
þessu samhengi,
þvi hann verkar á
svo sérstakan hátt.
Til þess að skilja
hann þokkalega
þurfa menn helst
að kunna nokkur
skil á skammta-
fræði.
Hátækni af
þessu tagi hefur
einnig orðið til
þess að hlutir sem
okkur þóttu vera
orðnir tiltölulega
þróaðir fyrir tíu til
tuttugu árum hafa
áfram þróast veru-
lega. Gott dæmi eru bílar sem voru
orðnir nokkuð vel búnir fyrir 20
árum en síöan hefur alls kyns há-
tæknibúnaður bæst við,“ segir Þor-
steinn.
Afkastamesta öldin
Má þá ekki segja að 20. öldin hafi
verið afkastamest allra alda hvað
tækniframfarir varðar þó svo
grunnurinn hafi verið byggður á
fyrri öldum? „Jú, í rauninni má
segja þaö,“ segir Þorsteinn, „því á
öldinni hafa orðið margar byltingar
í vísindum og tækni og sérstaklega
hefur tækniþróunin verið ör á síð-
ustu 50 árum.
Iðnbyltingin hafði vissulega átt
sér stað á átjándu og nítjándu öld og
leitt af sér tækni eins og rafmagn,
gufuvélar og símann en slíkir hlutir
hafa þó
einnig tekið
gríðarlegum
breytingum
á þessari öld.
Það er að
mörgu leyti
merkilegt að
lifa þessa
tíma. Ég man
til dæmis
þegar fyrstu
tölvurnar
voru að
koma hingað
í Háskólann.
Þær voru í
þá daga bara
reiknitæki
fyrir vísinda-
menn, skjá-
lausar og
notuðust
bara við
strimla eða
gataspjöld.
Síðan koma
skjáimir í kringum árið 1980 og þá
kemur til skjalanna þessi víxlverk-
un, þar sem maður talar við tækið
og tækið svarar. í kjölfarið er svo
hægt að fara að nota þetta tæki í
fleira, eins og t.d. ritvinnslu. Síðan
koma sífellt öflugri tölvur, rit-
vinnsla, tölvupóstur og nú síðustu
ár höfum við séð Netið verða mikil-
vægan þátt í lífi okkar. Þróunin hef-
ur því verið gríðarlega ör á síðustu
árum og allt útlit fyrir að svo verði
áfram,“ segir Þorsteinn. -KJA
Þróunarkenning Darwings telst vera
merkilegt skref.
WIKiWiHiliiTIID.UiHlitiUiHlHilB
Spáð í framtíðina:
Veröur ekki eins og við höldum
- sögunni er engan veginn lokið
Það er við hæfi á
tímamótum að
velta því fyrir
sér hvað fram-
tíðin beri í
skauti sér og því
biðjum við Þorstein Vilhjálmsson
prófessor aö rýna örlítið í krist-
alskúluna fyrir okkur. „Það er svo-
lítið skrýtið að sjá hvemig margir
hugsa um framtíðina í dag,“ segir
hann, „því það er eins og þeir haldi
á einhvern hátt aö sögunni sé lokið.
Þeir telja að ein þjóðfélagsgerð hafi
sigrað og eitthvert lokaástand sé
„Saga 20. aldarinnar
sýnir þetta mjög
glöggt, því hvenær á
20. öldinni hefur sag-
an orðið eins og menn
héldu fyrirfram að hún
yrði? Menn höfðu ekki
hugmynd um að kalda
stríðið myndi skella á
og hvernig það myndi
enda, menn höfðu
ekki hugmynd um að
tölvur kæmu til sög-
unnar né að þær
myndu þróast þannig
að Netíð yrði til og svo
mætti lengi telja.“
komið á sem muni standa um aldur
og ævi. Þetta hefur náttúrlega aldrei
gerst í sögunni og því er undarlegt
að fólki sé farið að finnast að þessi
sé raunin í dag.“
Þorsteinn segir þessar hugmynd-
ir virðast aðallega vera ríkjandi í
Bandaríkjunum þó einnig séu þær
ríkar meðal íslendinga og annarra
Norðurlandabúa. Þær virðast hins
vegar ekki eins áberandi þegar
sunnar dregur í Evrópu og þar seg-
ir hann að finna megi þjóðfélags-
rýna sem em alls ekki á því að sög-
unni sé lokið.
um aö kalda stríðið myndi skella á
og hvernig það myndi enda, menn
höfðu ekki hugmynd um að tölvur
kæmu til sögunnar né að þær
myndu þróast þannig að Netið yrði
til, og svo mætti lengi telja.
En það er kannski eitt sem við
getum slegið fostu með framtíðina:
aö þekkingin verður alltaf meira og
meira virði. Ef maður ætlar að velta
fyrir sér hvað þjóðir sem ætla að
spjara sig í framtíöinni eiga að gera
þá er alveg ljóst að þær eiga að
styrkja þekkingu sína sem er þá
bæði í gegnum skólakerfið, vísinda-
rannsóknir og allt annað sem stuðl-
ar að öflun, nýtingu og dreifingu
þekkingar í þjóðfélaginu.
Þetta er án efa besti undirbúning-
urinn undir framtfðina og því mið-
ur verður aö segjast að íslenskir
stjómmálamenn virðast vilja forð-
ast allt sem heitir beinn stuðningur
við vísindi og jafnvel á stundum við
sjálft skólakerfið,“ segir Þorsteinn
Vilhjálmsson að lokum.
-KJA
Þekkingin skiptir
höfuðmáli
„Hins vegar tel ég
miklu frekar að ör-
uggara sé að segja
það um framtíðina að
við getum hreinlega
ekkert spáö fyrir um
hana. Nema kannski
með því að segja að
það sé tiltölulega ör-
uggt að hún verði
ekki framhald af for-
tíðinni, þ.e. að hún
verði ekki það sem
við höldum að hún
veröi,“ segir hann.
„Saga 20. aldarinn-
ar sýnir þetta mjög
glöggt því hvenær á
20. öldinni hefur sag-
an orðið eins og
menn héldu fyrirfram
að hún yrði? Menn
höfðu ekki hugmynd
„Ef maöur ætiar aö velta fyrir sér hvað þjóðir sem ætia að spjara sig í framtíðinni eiga að
gera þá er alveg Ijóst að þær eiga að styrkja þekkingu sína, m.a. gegnum skólakerfið," seg-
ir Þorsteinn Vilhjálmsson.
<<Álit almennings á tækni aö breytast:
Umhverfissóöaskapur
kemur mönnum í koll
Þorsteinn Vil-
hjálmsson pró-
fessor segir það
vera mjög
greinilegt að
hugmyndir
manna um áhrif tækninnar hafi
breyst á síðustu árum. „Upp úr 1970
fer almenningur að vakna til vit-
undar um að tæknin hafi ekki bara
í för með sér jákvæðar afleiðingar
heldur líka neikvæðar og þá sér-
staklega hvað varðar umhverfis-
mál, mengun og slíkt," segir hann.
Jafnframt bendir hann þó á að
vissulega séu það ekki bara vélar
og verksmiðjur sem menga heldur á
fólksfjölgunin einnig sök á ýmsum
vanda í umhverfismálum. Hún hef-
ur verið verulega hröð undanfama
áratugi og er í raun einnig að hluta
afleiðing vísinda- og tækniframfara
í kjölfar öflugri læknavísinda.
„í fyrstu voru þessar hugmyndir
takmarkaðar við þrönga hópa fólks
sem margir vildu á sínum tíma
kalla sérvitringa en síðustu ár hafa
þessi mál þróast þannig að ómeng-
uð náttúra er talin af mjög mörgum
vera mikil verðmæti. Ég tel að þessi
straumhvörf séu einmitt að veröa
meðal íslendinga nú allra síðustu
ár þó svo margir geri sér ekki grein
fyrir því. Sumir hafa tekið sér stöðu
- hugvitið verður sífellt mikilvægara
framarlega á þeim vagni og aðrir
aftarlega en ég held aö almenningur
hneigist sífellt meira í átt að hug-
myndum af þessu tagi,“ segir Þor-
steinn.
Sóðaskapur síður liðinn
Hann segir þessar hugmyndir
hafa valdið því að geysilegar breyt-
ingar hafa átt sér stað í daglegu lífi
venjulegs fólks á Vesturlöndum, t.d.
hvað varðar meðferð á sorpi, tak-
mörkun á útblæstri bíla og svo
mætti lengi telja. „Það er mikilvægt
að átta sig á því að rótin aö þessum
breytingum er hjá borgaranum
sjálfum, sem vill ekki mengað vatn,
mengað loft og svo framvegis. Þessi
tilhneiging borgarans til að verja
hagsmuni sína gagnvart hlutum af
þessu tagi er mjög rík og hún fer
vaxandi með ári hverju. Þess vegna
er það undarleg stefna ýmissa ráða-
manna hér á landi að halda að þeir
geti litið framhjá skoöunum af
þessu tagi. ímynd skiptir sífellt
meira máli í alþjóðaviðskiptum og
því verða bæði fyrirtæki og stjóm-
völd að átta sig á því að umhverfis-
sóðaskapur getur komið þeim veru-
lega í koll vegna breyttra viðhorfa
almennings og neytenda," bætir
Þorsteinn við.
Framfaratrúin breytist
Hann segir einnig að trúin á
framfarir hafi breyst verulega síðan
fyrir 30 ánun: „Þá sáu menn fyrir
sér að öll þróun myndi halda beint
áfram, allt yrði stærra, meira og
betra. Þessi trú manna á beinan,
efnistengdan hagvöxt hefur hins
vegar ekki ræst. Þetta kemur til
dæmis fram í orkumálum, þar sem
orkuneysla almennings hefur alls
ekki aukist eins mikið síðustu ára-
tugi og menn ímynduðu sér. Þetta
kemur til af því að sífellt er verið að
hanna tæki sem þurfa minni orku,
eins og sjá má t.d. á bílum og heim-
ilistækjum af ýmsum toga sem hafa
þróast þannig að þau verða spar-
neytnari með hverju árinu."
Þorsteinn vUl meina að neyslan
hafi hins vegar flust yfir i hátækni-
hluti sem þarfnast ekki jafn mikils
hráefnis og þeir hlutir sem almenn-
ingur keypti hvað mest af fyrir 30
árum eða svo. Iðngreinar sem snú-
ast um að framleiða efnismikla
hluti sem nota mikið af áli, stáli og
slíku vaxa ekki nærri eins mikið og
iöngreinar sem snúa að hátækni og
þjónustu. „Þetta hefur orðið til þess
að framfarirnar hafa á síðustu
árum farið að snúast miklu meira
um hugvit heldur en framleiðslu
ákveðinna efna. Ef við tökum hug-
búnað sem dæmi, sem er orðinn ein
arðbærasta framleiðsluvara i
heimi, þá byggir hann í sjálfu sér á
litlu öðru en þekkingu og vinnu
þeirra sem framleiða hann. Hér hef-
ur því orðið grundvallarbreyting
frá því sem var fyrir einungis um
30 árum.“ -KJA
„Ég tel að þessi
straumhvörf séu
einmitt að verða
meðal íslendinga nú
allra síðustu ár þó
svo margir geri sér
ekki grein fyrir því.
Sumir hafa tekið sér
stöðu framarlega á
þeim vagni og aðrir
aftarlega en ég held
að almenningur
hneigist sífellt meira í
átt að hugmyndum af
þessu tagi,“
Mengun er að verða æ meira vandamái og hefur almenningsálitið að undanförnu lagst <
af auknum þunga gegn þeim sem menga umhverfi sitt.