Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1999, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1999, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 1999 Fréttir i>v Halldór Ásgrímsson, formaöur Framsóknarflokksins: Hrakti ekki Finn burt - heldur óvægin gagnrýni og óvönduð fréttamennska „Þaö er þannig í stjómmálum aö menn koma og fara. Finnur hefur tekið þessa ákvöröun og það mun nýtt fólk taka við hans störfum. Þaö eru tímamót í sögu flokksins og í íslenskri stjómmálasögu að þrjár konur og þrír karlar sitji í ríkisstjóm fyrir Framsóknarflokk- inn og aö einn þriðji þingflokksins em konur. Ég tel að í þessu felist sóknarfæri fyrir flokkinn og að við höfum fulla burði til þess að ráða við þau verkefni sem eru fram undan,“ sagði Halldór Ásgrímsson að afstöðnum þingflokksfundi Framsóknarflokksins í gær. Á fundinum var einróma samþykkt sú tillaga Halldórs að Valgerður Sverrisdóttir taki við embætti iðn- aðar- og viðskiptaráðherra af Finni Ingólfssyni sem sest í einn þriggja bankastjórastóla Seðlabankans á nýársdag. Atgervisflótti ofsóttra Halldór sagðist hafa trú á því fólki sem starfar í Framsóknar- flokknum og að innan hans finnist arftaki Finns í varaformannsemb- ætti. „Hins vegar er það áhyggjuefni hve mikið af ungum mönnum hef- ur verið að hverfa út úr íslenskri pólitík á undanförnum árum. Ég nefni menn eins og Kjartan Jó- hannsson, Eið Guðnason, Jón Baldvin Hannibalsson, Svavar Gestsson, Friðrik Sophusson, Þor- Halldor Ásgrímsson: „Ég er viss um aö þaö hefur enginn framsóknarmaður látiö hafa þetta eftir sér.“ Frá þingflokksfundi framsóknarmanna í gær. stein Pálsson og nú Finn Ingólfs- son,“ sagði Halldór. „Þaö er vissulega áhyggjuefni fyrir íslensk stjórnmál ef þessi þróun heldur áfram en ég tel að fyrir því séu ákveðnar ástæður, meðal annars óvægin gagnrýni í garð stjórnmálamanna, mikið álag á þeirra heimili og óvönduð frétta- mennska. Menn virðast ekki hika við, ef vantar fréttir, að skálda inn í það, eins og ég sá til dæmis í DV í dag, að þegar menn eru að skrifa fréttaskýringu þá er hluti af því hreinn skáldskapur. Þetta virðist mönnum, sumum hverjum, vera eðlileg fréttamennska í íslensku samfélagi,“ sagði Halldór. Valgeröur Sverrisdóttir: Ætla að liúka stóra málinu „Það eru mörg spennandi verk- efni sem heyra undir iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið sem á eftir að leiða til lykta. Ég mun leggja mig fram um það að ljúka stóra málinu sem er Fljótsdalsvirkjun og upp- bygging álvers í Reyðarfirði," seg- ir Valgerður Sverrisdóttir sem tek- ur við lyklavöldum af Finni Ing- ólfssyni í iönaðar- og viðskipta- ráðuneytinu á gamlársdag. Forveri hennar hefur ýmist ver- ið gagnrýndur fyrir að fara sér of hægt eða of hratt í einkavæðingu f* Valgeröur Sverrisdóttir. ríkisfyrirtækja. Valgerður boðar enga stefnu- breytingu í þeim efnum. „Ég tel að frá- farandi iðnaðar- og viðskiptaráð- herra hafi verið afar farsæfl í starfi. Það liggur fyrir stefna rík- isstjómarinnar um öll mál sem varða iðnað og viðskipti og mínar skoðanir falla algjörlega að þeim þannig að það er ekki að búast við stefnubreytingum í þeim mála- flokki frekar en öðrum en auðvit- að koma Edltaf einverjir nýir siðir með nýju fólki,“ segir Valgerður. Sjálf telur hún stærstu fréttina við skipan sína í ráðherraembætti vera þá að þar með séu jafnmarg- ar konur ráðherrar og karlar í ráð- herraliði Framsóknarflokksins. „Ég er óskaplega stolt yfir því,“ segir hún. -GAR DV-mynd E.OI. Hrakti Finn ekki burtu Stöð 2 hélt því fram að brotthvarf Finns Ingólfssonar af vettvangi stjórnmálanna ætti sér að hluta til skýringu í óánægju hans með for- ystu og stjómunarstíl formannsins Halldórs. „Þetta er eitt af því sem menn eru að búa til. Við Finnur er búnir að vera mjög nánir allar götur frá því fljótlega eftir 1980. Hann var minn aðstoðarmaður í sjávarútvegsráðu- neytinu i fjögur ár. Og við höfum líka veriö vinir. Við höfum gengið saman á íjöll og eytt mörgum stund- um saman. Þannig að maður skilur nú ekki svona eða hvaða hvatir liggja þar að baki. Ég er viss um að það hefur enginn frámsóknarmaður látið hafa þetta eftir sér. Þetta er fráleitt, en maður er bara orðinn svo vanur þessu að maður er hætt- ur að vera undrandi á skáldskapar- hæfileikunum," sagði Halldór. Halldór sagði engar áætlanir um frekari breytingar á ráðherraliði Framsóknarflokksins og gaf lítið út á vangaveltur um slíkt. „Menn eru alltaf að velta einhverju fyrir sér. Það er eins og gengur í lífinu," sagði Halldór Ásgrímsson. -GAR Blaðríð í Siv Fræg urðu þau um- mæli Ólafs Ragnars Grímssonar að stærsta efnahagsvandamál vinstri stjómarinnar sem sat 1988-1991 væri blaðrið í Steingrími Hermanns- syni. Hann gat, sem kunnugt var, aldrei þag- að ef blaðamaður var ná- lægt og blaöraði jafhan meiru en hann var spurð- ur um. Þegar Jón Baldvin og Ólafur Ragnar suðu saman hvers kyns hókus- pókusa í aðsteðjandi kreppum varð gagnið alltaf minna en efni stóðu til þvi blaðurskjóðan í forsætisráðuneytinu var jafnan búin að blaðra öllu í alla sem sist máttu vita. Stjómlaust blaður er áberandi kvilli hjá for- ystumönnum Framsóknar í Reykjanesi og ber öll merki hæggengs veirusjúkdóms. Denni varð til dæmis ekki blaöurskjóöa fyrr en hann varð for- sætisráðherra og hjá arftaka hans í Reykjanesi, Siv Friðleifsdóttur, lét stjómlaust blaður ekki á sér kræla fyrr en í aðdraganda ráðherradóms þegar hún slóst við Finn heitinn um varafor- mennsku í Framsókn. Þá blaðraði hún því í Moggann að gagnstætt Finni ræflinum vildi hún endilega að Fljótsdalsvirkjun færi í umhverfis- mat. Skömmu síðar varð Siv ráðherra og leiddi þegar í stað gervallt fjölmiðlastóð landsins með sér á Eyjabakka og blaðraði viðstöðulítið á með- an. Meðal annars blaðraði hún því í sjónvarpiö að þar sem Eyjabakkamir væru bara ferlega ljót- ir mætti hennar vegna sökkva þeim án þess að hafa fyrir einhverju leiöinda umhverfismati. En þjóðin hafði ekki gleymt blaðri Sivjar við Mogg- ann og á einni mínútu í Ríkissjónvarpinu fuðraði pólitísk framtíð blaðurskjóðunnar af Nesinu upp í skammlifum fjölmiðlaloga. Á þessum tímapunkti var blaðrið í Siv orðið að slíku vandamáli í Framsókn að Finnur heitinn og Halldór bönnuðu henni að blaðra nema innan ráðuneytisins. Það reyndust dýrkeypt mistök. Þegar sendiherra Norðmanna skolaði þangað í kurteisisheimsókn var blaðurskjóðan svo mál- þola að hún kyrrsetti Halvorsen garminn. Lengi dags blaðraði hún yfir honum um ámátlega stöðu Halldórs Ásgrímssonar ef Norðmenn byggðu ekki álver á Reyðarfirði og hótaði skrúfum og strafli þegar sendiherra sýndi á sér fararsnið. Halvor- sen sá sitt óvænna og skrifaði langa skýrslu um blaður Sivjar til norska utanríkisráðuneytisins þar sem menn sátu agndofa yfir blaðrinu þangað til kontóristi benti á þá skelfilegu staðreynd að blaðurskjóðan væri Norðmaður. Nú er komið að því að borga fyrir allt blaðrið. Finnur heitinn skilur eftir sig varaformannsstól sem Siv hefði fyrir hálfu ári tekið með annarri hendi. Nú á hún varla sjens. Kátlegir kaflar eins og Guðni, sem enginn tók mark á til skamms tíma, eru miklu sterkari kandídatar. Á örfáum mánuðum tókst Siv Friðleifsdóttur að breyta sjálfri sér úr leiðtogaefni Framsóknar í marklitla blaðurskjóðu sem blaðraði sína eigin pólitísku framtíð svo rækilega ofan í mýrina á Eyjabökk- um að hennar hefur ekki orðið vart síðan. Stein- grímur lifði af blaðrið í sjálfum sér en sama verð- ur ekki sagt um núverandi umhverfisráðherra. Dagfari sandkorn Klossalaus Umsjónarmenn morgunþáttar Bylgjunnar urðu að laga sig að breyttmn aðstæðum með tilkomu morgunsjónvarpsins. Höfðu þau á orði að ekki gengi lengur að mæta ' i vinnuna krumpuð og úfin heldur yrði útlitið að vera tipp- topp. Þorgeir Ást- valdsson, hinn gamalreyndi út- varpsmaður, er einn umsjónar- manna morgun- sjónvarpsins. Þorgeir er mikifl klossamaður og þekktur fyrir hvítu klossana sem hann hefur haft á fótum í meira en tvo áratugi. Þó klossarnir séu þægilegir munu þeir hafa verið þymir í augum framleiðenda morgunsjónvarpsins, passað illa inn i settið. Þvi þarf Þorgeir að klæðast reimuðum skóm. Gamansömum vinum hans finnst hann heldur blár í framan eftir að herða tók aö fótunum en eru ekki alveg vissir hvort um eigi aö kenna hækkuðum blóðþrýstingi eða áköfum Framstuðningi... Messað á Netinu Ófáum finnst stundum að ein- ungis séu tveir prestar í Reykjavík, Pálmi Matthíasson í Bústaða- hverfi og Vigfús Þór Ámason í Grafarvogi. Ekki er nóg með að fjöldi komi í kirkju til þeirra og sækist eft- ir þjónustu þeirra heldur eru þeir famir að láta á sér kræla á fleiri svið- um. Messuflutn- ingur var víst nokkur á Netinu um jólin. Samkvæmt fréttum úr Bústaðakirkju komu nokkur hund- rað manns í netmessu. Þó um nýlundu virðist að ræða vita færri að þrjú ár era síðan messum í Dóm- kirkjunni var varpað á Netið. Menn era greinilega á undan tím- anum í elstu kirkju borgarinnar ... Vigdís varamaður Heyrst hefur að Vigdis Finn- bogadóttir hafi verið boöuð sem varamaður Ólafs Ragnars Gríms- sonar í gamlárshátiðina í Perlunni sem aðalræðumaður vegna menningar- borgarinnar. Ólafur Ragnar mun hafa tjáð skipuleggjend- um þessarar finu veislu að hann ætti ekki heiman- gengt þetta kvöld. Var þá farið til Vigdísar sem þáði boðið strax. Annars er töluvert rætt um að fólk hafi sent afboð, vilji vera heima hjá sér á gamlárs- kvöld. Og enn fremur að nú gangi miðar í veisluna mifli manna í stjómkerfi borgarinnar ... Stóla undir alla Framsóknarmönnum tókst svo sannarlega að stela senunni í lok þessa ársþúsunds. Finnur Ingólfs- son hljóp í Seðlabankann og Val- gerður Sverris- dóttir fær loks ráð- herraósk sína upp- fyllta. Hagyrðing- ar, stórir og smáir, fara gjarnan af stað þegar eitt- hvað er að gerast í pólitíkinni og eru tíðindin Framsókn engin undantekning. HV sendi þetta: Halldór í krappan dans kominn er enn, konur á hásœti kalla. Þeir eru ekkifleiri framsóknar menn, aöfá mœtti stóla undir alla. Umsjón: Haukur L. Hauksson Netfang: sandkorn @ff. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.