Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1999, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 1999
Útlönd
Meint saknæmt
athæfi Helmuts
Kohls skoðað
Saksóknarar í Þýskalandi hafa
ákveðið að hefja rannsókn á því
hvort Helmut Kohl, fyrrum kansl-
ari, hafi gerst sekur um glæpsam-
legt athæfi með því að þiggja fé í
kosningasjóði flokks síns á meðan
hann gegndi kanslaraembættinu.
Þýska sjónvarpsstöðin ARD
hafði eftir ónafngreindum heim-
ildarmönnum að saksóknari í
gömlu höfuðborginni Bonn myndi
greina þinginu frá því í dag, mið-
vikudag, að rannsókn yrði hafin.
Kohl viöurkenndi fyrr í mánuð-
inum að ónafngreindir menn
hefðu afhent honum sem svarar
sjötíu milljónum íslenskra króna
í leynisjóði kristilegra demókrata.
Lög kveöa hins vegar á um að
greint sé opinberlega frá öllum
slíkum fiárgjöfum. Kohl hefur
þráfaldlega neitað aö segja hverj-
ir eigi hér hlut að máli.
Rússar ná lykil-
stöðum í Grozní
Rússneski herinn segist hafa
náð lykilstöðum í Grozní, höfuð-
borg Tsjetsjeniu, á sitt vald. Rúss-
ar búa sig undir stórsókn gegn
bækistöðvum uppreisnarmanna í
snæviþöktum fiöllunum í suður-
hluta lýðveldisins.
Rússneska sjónvarpsstöðin
ORT sýndi seint í gærkvöldi
myndir af hermönnum með fang-
ið fullt af handsprengjum á vappi
um götumar í úthverfum Grozní.
Fréttir hermdu að Rússarnir
hefðu lagt undir sig hæðir við
miðborgina og ættu í hörðum bar-
daga um yfirráð yfir niðursuðu-
verksmiðju í norðurhluta borgar-
innar.
Litlar upplýsingar hafa borist
um umfang bardaganna. Stríð-
andi fylkingar segja að óvinurinn
hafi misst marga menn en mann-
fall í eigin röðum sé óverulegt.
Tipper Gore
undir hnífinn
Tipper Gore, eiginkona Als
Gores, varaforseta Bandaríkj-
anna, gekkst
undir tveggja
klukkustunda
skurðaðgerð í
gær þar sem
hnúður í skjald-
kirtli hennar
var fiarlægður.
Að sögn tals-
manns varaforsetans var ákveðið
að fiarlægja hnúðinn og rannsaka
hvort hann væri krabbamein.
Niðurstöður þeirrar rannsóknar
verða kunnar eftir eina viku.
Tipper Gore hefur ekki haft
nein einkenni um veikindi í
skjaldkirtlinu, að sögn talsmanns-
ins. Hnúðar á skjaldkirtli eru alla
jafna góðkynja og ólíklegt að þeir
berist til annarra hluta líkamans.
Monica mælir
með megrun
Monica Lewinsky, fræg fyrir
ástarævintýri sitt með CJinton
Bandaríkjaforseta, hefur tekið að
sér að mæla með megrunarfæði
fyrir stórfé. Sjálf hefur Monica
lést um meira en tíu kiló við að
borða fæði þetta.
Indverska stjórnin ræddi flugránið í morgun:
Flugræningjarnir
hafa fengið svar
Indverska ríkisstjórnin hefur gef-
ið flugræningjunum, sem halda
rúmlega 150 manns í gíslingu í ind-
verskri farþegavél á flugveUinum í
Kandahar í Afganistan, viðeigandi
svar við kröfum þeirra, eins og það
var orðað í morgun. Ekki hafði ver-
ið greint frá innihaldi þess þegar
DV fór í prentun. Flugræningjamir
krefiast þess nú að 35 íslamskir
skæruliðar í haldi í Indlandi verði
látnir lausir og að rúmir fiórtán
milljarðar króna verði greiddir í
lausnargjald fyrir gíslana.
Indverskir embættismenn sögðu í
einkasamtölum i gær að ekki yrði
gengið að þessum kröfum.
Indverska farþegaþotan hefur
verið á flugvellinum í Kandahar i
Afganistan síðan á jóladag. Henni
var rænt á aðfangadag þegar hún
var á leið frá Nepal til Indlands.
Samningamenn indverskra
stjómvalda hófu fiórðu umferð
samningaviðræðna sinna við flug-
Grímuklæddur flugræningi ræðir
við fulltrúa talebanastjórnarinnar f
Afganistan við indversku þotuna.
ræningjana í morgun. Nokkur bjart-
sýni ríkir um að eitthvað , jákvætt"
muni gerast í málinu í dag.
Flugræningjamir eru fimm eða
sex, vel vopnum búnir. Talið er að
þeir séu frá Kasmír þar sem Ind-
veijar og Pakistanar hafa deilt um
yfirráð.
Líklegt þykir að þráteflið á flug-
vellinum í Kandahar verði til að
auka enn á þrýstinginn frá ættingj-
um gíslanna. Ættingjarnir hafa sak-
að stjómvöld um að stofna lífi gísl-
anna í hættu með aðgerðaleysi sínu.
Aðstæður um borð í vélinni bötn-
uðu aðeins í gær þegar leyfi fékkst
til að gera við vél sem knýr loft-
ræstikerfi þotunnar. Embættismað-
ur sem sá til farþeganna þegar aft-
urdymar voru opnaðar til að hleypa
inn fersku lofti sagði að þeir virtust
betur á sig komnir en áður.
Flugræningjamir höfnuðu i gær
beiðni um aö mæður og böm þeirra
fengju að fara frá borði. Til þessa
hafa ræningjarnir leyft 28 af farþeg-
unum sem stigu um borð í Nepal að
fara frjálsir ferða sinna.
Lögreglumenn, sérþjálfaðir í að stilla til friöar í óeiröum, eru algeng sjón í Jerúsalem þessa dagana en þar sem víöar
í ísrael hefur löggæsla veriö hert til muna vegna árþúsundamótanna. Búist er við aö milljónir manna fagni
áramótunum í ísrael en yfirvöld hafa lagst gegn stærri samkomum í borginni. Símamynd Reuter
^ Tæpar þrjár milljónir heimila án rafmagns í Frakklandi:
A annað hundrað látnir
í óveðrinu í Evrópu
Óveðrið hélt áfram að geisa í
Frakklandi, Spáni og Sviss í gær,
þriðja daginn í röð, með þeim afleið-
ingum að 28 manns létu lífið í
Frakklandi. Þá létust að minnsta
kosti tólf skíðamenn í grennd við
skíðabæinn Galtuer í Austurríki í
gær.
Síðan óveðriö hófst á jóladag hef-
ur tala látinna risið hratt og er kom-
in í rúmlega 110 manns. í Frakk-
landi hafa 68 manns látið lífið, átta
á Bretlandi, 13 í Sviss og 17 í suður-
hluta Þýskalands. Flest dauðsfall-
anna má rekja til trjáa sem féllu í
ofsaveðrinu. 1 Versölum einum féllu
tíu þúsund tré á aðeins þremur
kíukkustundum.
Eignatjón er griðarlegt og eyði-
leggingin mikil. í gær voru rúmlega
þrjár milljónir heimila í Frakklandi
rafmagnslausar og ekkert útlit fyrir
Frakkar uröu illa úti í óveörinu en
þar létust tæplega sjötíu manns.
að tækist að ljúka viðgerð fyrir ára-
mót. Um fiórðungur rafveitukerfis-
ins í Frakklandi laskaðist í óveðr-
inu og 36 háspennulínur skemmd-
ust. Frakkar báðu í gær um aðstoð
og eru viðgerðarmenn frá Ítalíu,
Spáni og Þýskalandi komnir til að-
stoðar. í morgun hafði tekist að
hleypa rafmagni á hálfa milljón
heimila.
Menn eru byrjaðir að meta eigna-
tjónið og í París er talið að það nemi
ekki undir 500 milljónum franka
eða 5,5 milljörðum íslenskra króna.
Margar sögufrægar byggingar fóru
illa í veðrinu; þakplötur þuku af
Notre Dame kirkjunni og talsverðar
skemmdir urðu á La Sainte-
Chapelle hallarkirkjunni. Talið er
að viðgerðir á sögufrægum bygging-
um í gjörvöllu Frakklandi muni
kosta um fimm milljarða króna.
Stuttar fréttir i>v
Fáir vilja missa pundið
Aðeins sautján prósent Breta
eru fylgjandi því að leggja sterl-
ingspundið á hilluna og taka upp
evruna, sameiginlegan gjaldmiðil
Evrópusambandsins, í staðinn.
Þetta kemur fram í skoðanakönn-
un sem kynnt var í morgun.
Fimmtíu og níu prósent vilja
óbreytt ástand, ESB og pund.
Stjórnin í heilu lagi
Ríkisstjóm Ehuds Baraks, for-
sætisráðherra ísraels, er enn í
heilu lagi. Flokk-
ur heittrúaðra
gyðinga, Shas,
hafði hótað að
ganga úr stjóm-
inni vegna deilna
um fiármögnun
skóla hans. Lausn
er fundin og
flokkurinn situr áfram í stjóminni.
Flugeldar í Færeyjum
Frændur okkar Færeyingar
gera ráð fyrir að skjóta upp fimm-
tíu tonnum af flugeldum til aö
fagna árinu 2000. Það er fimmtíu
prósentum meira en á síöasta
gamlárskvöld og tvöfalt meira en
fyrir tveimur árum, segir í
Dimmalætting.
Njósnari gripinn
Danska lögreglan handtók á að-
fangadag mann sem grunaður er
um að hafa njósnað fyrir austur-
þýsku leyniþjónustuna Stasi á
meðan hann starfaði i danska ut-
anríkisráðuneytinu á árunum
1979 til 1981.
Bókuðu fyrir 16 árum
Bresk hjón spöruðu sér umtals-
verðar Qárhæðir þegar þau flugu
til Ástralíu á dögunum þar sem
þau ætla að fagna árþúsundamót-
unum. Hjónin, sem eru á áttræð-
isaldri, keyptu flugmiðana fyrir
16 árum og greiddu fyrir xun 16
þúsund krónur.
Barnamorðingi fær slag
Myra Hindley, alræmdur
barnamorðingi, var i gær flutt á
spítala í Bury St. Edmunds. Myra
var dæmd í lífstíðarfangelsi fyrir
grimmileg morð á tveimur börn-
um og aðild að þremur öðrum.
Hún þjáist af hjartveiki í kjölfar
hungurverkfalls að undanfórnu.
Hættir við áramótapartí
Borgarstjórnin í Seattle hefur
aflýst hátíðarhöldum um áramót-
in af ótta við hryðjuverk.
Louis Féraud látinn
Franski tískukóngurinn Louis
Féraud er látinn, 79 ára að aldri.
Féraud gat sér frægðar á sjöunda
áratugnum þegar hann hannaði
fót á frönsku leikkonuna Brigitte
Bardot.
36 blaðamenn drepnir
Að minnsta kosti 36 blaðamenn
voru drepnir á árinu 1999 eða tvö-
falt fleiri en árið á undan. Ráðist
var á 653 blaðamenn. Flest atvik-
in eiga sér stað á Myanmar, Sýr-
landi og í Kína.
Vill kaupa Dome
Athafnamaðurinn Richard Bran-
son er sagður í viðræðum vegna
hugsanlegra kaupa
hans á árþúsunda-
höllinni, Dome, í
London. Branson
vill opna skemmti-
garð í höllinni.
Verði af samning-
um mun Branson
taka við höllinni í næsta mánuði. A
gamlárskvöld verður áramótagleði
í höllinni fyrir 15 þúsund manns.
Hreinsar til í hernum
Slobodan Milosevic, forseti
Júgóslavíu, hefur ekki setið auð-
um höndum um hátíðamar. For-
setinn hefur hreinsað til í her sín-
um, rekið nokkra foringja og ráð-
ið aðra. Að sögn Tanjug-fréttastof-
unnar þykir ein athyglisverðasta
stöðuhækkunin hafa farið til Vla-
dimirs Lazarevics sem er orðinn
einn af æðstu herforingjum
Júgóslavíuhers.