Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1999, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 1999
19
Fréttir
fciuUkj
^.Iriþ.'rtt :ilíiai'iiuit:u\lríYi ;'i 7i\lau':.trimi
1 ..tjaiiúar
3Uunluiriiiit - ci.imor glirnmei. ylys orj gluOi (ym prftfossion
I I(íhtn1 s.tlM3vf;is!;i ft»*|rjtif iuta i fiilnni
i*vl.’t11*'.tuf hi;tllartittt ■ f-’rnniandi og önr;mdi
Einsetning grunnskólanna kallar á miklar framkvæmdir:
Þrjú fyrirtæki berjast
DV; Akranesi:
Áætlað er að ljúka einsetningu
grunnskólanna á Akranesi í ágúst
2002. Nýverið voru boðnar út fram-
kvæmdir við viðbyggingu við
Gnmdaskóla og Brekkubæjarskóla.
Þijú tilboð bárust í byggingu grunn-
skóla á Akranesi: frá ístaki,
Loftorku og Trésmiðju Þráins Gísla-
sonar. Verið er að meta tilboðin en
þegar hefur verið ákveðið að ganga
til viðræðna við Loftorku um bygg-
ingu Brekkubæjarskóla, a.m.k. upp-
steypu þess húss. Verið er aö meta
tillögur varðandi Grundaskóla en
niðurstaða ætti að liggja fljótlega
íyrir varðandi þá byggingu.
„Það má gera ráð fyrir að einsetn-
ingin muni kosta bæjarsjóð Akra-
ness á bilinu 250-300 milljónir
króna og stefnt er að því að ljúka
þeim framkvæmdum á næstu þrem-
ur árum þannig að skólamir verði
einsettir árið 2002,“ sagði Gísli bæj-
arstjóri viö DV. -DVÓ
Gefum
okkur Öllum betri framtíd
W* 'WT *: •
4|«S®íís.
Ert þú aflögufær?
Fjöldi feröa-
manna á svæði
frosts og funa
DV, Suðurlandi:
Margir leggja leið sína á ýmsa
vinsæli ferðamannastaði landsins,
til að mynda að Gullfossi og Geysi,
þrátt fyrir að vetur sé genginn í
garð, kalt i veðri og snjór yfír öllu.
Það er heldúr ekki síðra sjónarspil
sem ferðalangar upplifa í kuldan-
mn. Með bættum bílakosti og betri
þjóðvegum hefúr ferðamennska að
vetri aukist svo um munar.
Gullfoss er í klakaböndum og við
Geysi má upplifa undarlegar og
stórbrotnar andstæður vetrarkuld-
ans og jarðhitans. Varla sér út úr
augum ef gengið er í gegnum hvera-
gufuna sem síðan fellur sem frosnar
ísnálar i gaddinum. Fram undir
þetta hafa rútur fullar af erlendum
ferðamönmnn verið við Geysi.
Ferðafólkið fer að sjálfsögðu að
Strokki og bíður þar í ofvæni eftir
að hann gjósi. Hann lætur ekki bíða
lengi eftir sér. -NH
Kvótaeign
Grundfirðinga
stóreykst
- tvö ný togskip bætast í flotann
DV, Grundarfirði:
Tvö togskip munu innan skamms
bætast í skipaflota Grundfirðinga.
Skrifað verður undir samninga um
kaup á Heiðrúnu GK 505 og Þór Pét-
urssyni GK 504 laugardaginn 18.
desember. Með kaupunum eykst
kvótastaða Grundarfjarðar um 1.455
þorskígildistonn. Það er fyrirtækið
Guðmundur Runólfsson hf. í Grund-
arfirði sem kaupir togskipin frá
Sandgerði. Heiðrún, sem áður hét
Heiðrún ÍS, var smíðuð á ísaflrði
1978 og er 294 brúttólestir að stærð.
Þór Pétursson, sem er 143 brúttó-
lestir, var smíðaður á ísaflrði árið
1989. Að sögn Guðmundar Smára
Guðmundssonar, framkvæmda-
stjóra Guðmundar Runólfssonar, er
stefnt að því að skipin komi fljót-
lega eftir undirritun til Grundar-
fjarðar og fari þá strax á veiðar.
Með tilkomu þessara skipa og afla-
heimilda sem þeim fylgja eykst
kvótastaða Grundarfjarðar um rúm
14%. En fyrir yfirstandandi kvótaár
var úthlutun aflaheimilda með jöfn-
un til 15 báta og skipa í Grundar-
firði 10.035 tonn. -DVÓ/GK
Menn biða með gaddfreðna fingur spennta á gikknum viö Strokk til að ná myndum af gosi.
DV-mynd Njöröur
J
Brekkubæjarskóli á Akranesi, Loftorka hreppti uppsteypuna á viðbyggingu við skólann þrátt fyrir tilboö frá verk-
takarisanum ístaki. DV-mynd Daníel
,
Starfsfólk Deloitte & Touche við opnun skrifstofunnar. Frá vinstri: Birgir
Finnbogason, Magna Sigbjörnsdóttir, Kristín Friðjónsdóttir, Pálína Pálsdótt-
ir, Hulda Ómarsdóttir, Jóhanna Þorsteinsdóttir, Ólafur H. Úlfarsson og Mar-
grét Sanders. Sigurður Páll Hauksson situr fyrir framan hópinn.
Alþjóðlegt sam-
starf á Siglufirði
Endurskoðunar- og ráðgjafar-
skrifstofa með fmu frönsku nafni
var opnuð á dögunum á Siglufirði,
Deloitte & Touche, í samvinnu vlð
Sigurð Pál Hauksson sem stjómar í
þessu alþjóðlega fyrirtæki. Fyrir-
tækið er til húsa að Aðalgötu 34 þar
sem bókhaldsstofan PÁ hefur verið
starfrækt undanfarin ár. Markmið
D&T með opnun skrifstofu á Siglu-
firði er að efla og auka þjónustu fyr-
irtækisins á Norðvesturlandi. Félag-
ið hefur þá útibú og starfsstöðvar á
14 stöðum víða um land.
Sigurður Páll Hauksson sagði í
samtali við fréttamann DV að D&T
væri hluti af alþjóða endurskoðun-
ar- og ráðgjafarfyrirtæki sem hefði
82 þúsund starfsmenn i 133 löndum.
Höfuðstöðvar hér á landi eru í
Reykjavík og í Kópavogi.
-ÖÞ
Suðurnes:
Halli
yfir 100
milljónir
DV, Suðurnesjum:
Fyrirsjáanlegt er að halli á
rekstri Heilbrigðisstofnunar Suð-
umesja mun fara yfir 100 milljón-
ir á þessu ári. Samkvæmt rekstr-
aryfírliti yfir sjö fyrstu mánuði
ársins nam hallinn rúmum tiu
milljónum króna á mánuði eða
rúmum 70 milljónum á þessu
tímabili.
Stjóm HSS telur að fjárveiting-
ar til starfseminnar séu ekki í
neinu samræmi við fjárveitingar
til sambærilegra stofnana og HSS
verði ekki rekin án halla nema
komi til lokunar deilda sem sé óá-
sættanleg niðurstaða.
Það sé hins vegar heilbrigðis-
ráðuneytisins að taka ákvörðun
um lokun deilda eða aukin fjár-
framlög. -AG