Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1999, Síða 34
42
MIÐVKUDAGUR 29. DESEMBER 1999
Afmæli
Ólafur Skúlason
Herra Ólafur Skúlason biskup,
Kirkjusandi 5, Reykjavík, er sjötug-
ur í dag.
Starfsferill
Ólafur fæddist í Birtingaholti í
Hrunamannahreppi og ólst upp í
foreldrahúsum, lengst af í Keflavík.
Hann lauk stúdentspófi frá VÍ 1952,
embættisprófi í guöfræöi frá HÍ
1955, stundaði framhaldsnám og
sótti ýmis námskeið við bandaríska
háskóla fyrir starfandi sóknar-
presta á starfsármn sínum þar
vestra en auk þess stundaði hann
guðfræðinám í skóla alkirkjuráðs-
ins í Bossey í Sviss 1960.
Ólafur var prestur íslenska safn-
aðarins í Montain í Norður-Dakota
1955-59, í Keflavík í þrjá mánuði
1959-60, var fyrsti æskulýðsfulltrúi
þjóðkirkjunnar 1960-64, sóknar-
prestur í Bústaðaprestakalli í
Reykjavík 1964-89, dómprófastur
1976-89, vígslubiskup 1983-89, og
biskup íslands frá 1989 og þar til
hann fékk lausn frá embætti að eig-
in ósk frá 1.1. 1998.
Ólafur sat í stjóm Hins íslenska
kirkjufélags í Ameríku 1956-59, í
stjóm Prestafélags íslands 1970-79
og formaður þess 1974-79, var for-
maður æskulýðsnefndar þjóðkirkj-
unnar 1964-67, sat í Bamaverndar-
ráði íslands 1975-78, var kosinn í
stjóm Lútherska heimssambands-
ins 1990 og formaður Rannsóknar-
stofnunar þess í Strassborg frá
sama tíma.
Fjölskylda
Ólafur kvæntist 18.6. 1955 Ebbu
Guðrúnu Brynhildi Sigurðardóttur,
f. 5.12. 1935, húsmóður. Hún er dótt-
ir Sigurðar Þ. Tómassonar, f. 16.7.
1910, forstjóra í Reykja-
vík, og k.h., Maggýjar
Flóventsdóttur, f. 1.9.
1910, húsmóður.
Börn Ólafs og Ebbu eru
Guðrún Ebba, f. 1.2.1956,
formaður Félags grunn-
skólakennara, gift Stefáni
Halli Ellertssyni stýri-
manni og eiga þau tvær
dætur, Hrafnhildi, f. 1981,
og Brynhildi, f. 1987; Sig-
ríður, f. 9.8.1958, húsmóð-
ir og BA í frönsku og hol-
lensku, gift Höskuldi
Hrafni Ólafssyni, fram-
kvæmdastjóra hjá Eimskipafélagi
íslands í Reykjavik, og eiga þau
þrjú böm, Ólaf Hrafn, f. 1981, Ás-
gerði, f. 1987, og Sigriði, f. 1998;
Skúli Sigurður, f. 20.8. 1968, prestur
á ísafirði en kona hans er Sigríður
Björk Guðjónsdóttir, skattstjóri á
ísafirði og eru böm þeirra Ebba
Margrét, f. 1991, og Ólafur Þor-
steinn, f. 1999.
Systkini Ólafs eru Helgi, f. 4.9.
1933, d. 30.9. 1996, leikari og leik-
stjóri, var kvæntur Helgu Bach-
mann leikkonu; Móeiður, f. 10.2.
1938, ökukennari í Keflavík, gift
Bimi Bjömssyni, lögregluþjóni;
Ragnheiður, f. 12.3.1943, píanókenn-
ari í Keflavík, gift Sævari Helgasyni
málara.
Hálfsystir Ólafs, samfeðra, er
Kristrún, f. 9.2. 1927, húsmóðir í
Reykjavík, gift Þóri Geirmundssyni.
Foreldrar Ólafs voru Skúli Ódd-
leifsson, f. 10.6.1900, d. 3.1.1989, um-
sjónarmaður í Keflavík, og k.h., Sig-
ríður Ágústsdóttir, f. 11.4. 1902, d.
16.11. 1961.
Ætt
Faðir Skúla var Oddleif-
ur, b. í Langholtskoti í
Hrunamannahreppi
Jónsson, b. á Hellishólum
Jónssonar, dbrm. á Kóps-
vatni Einarssonar, b. í
Berghyl Jónssonar, b. í
Skipholti Jónssonar,
bróður Fjalla-Eyvindar.
Móðir Skúla var Helga,
systir Önnu, ömmu Jóns
Skúlasonar, fyrrv. póst-
og símamálastjóra. Anna
var dóttir Skúla, alþm. í
Berghyl Þorvarðarsonar, bróður
Jósefs, langafa Ólafs ísleifssonar,
framkvæmdastjóra Alþjóðasviðs
Seðlabanka íslands. Annar bróðir
Skúla var Þorvarður, afi Sigurgeirs
Jónssonar, fyrrv. ráðuneytisstjóra.
Þriðji bróðir Skúla var Hannes,
langafi Ástu, móður Hannesar
Hólmsteins Gissurarsonar. Fjórði
bróðir Skúla var Jón, langafi Önnu,
móður Hjartar hæstaréttardómara
og Ragnheiðar, rektors MR Torfa-
barna. Systir Skúla var Margrét,
langamma Björgvins Vilmundar-
sonar, fyrrv. bankastjóra og Gunn-
ars Arnar listmálara og Þórðar
Steinars hrl. Gunnarssona. Önnur
systir Skúla var Helga, amma Ólafs
Halldórssonar handritafræðings.
Sigríður var dóttir Ágústs, alþm.
í Birtingaholti, bróður Guðmundar,
föður Ásmundar biskups. Annar
bróðir Ágústs var Kjartan, prófast-
ur í Hruna, faðir Guðmundar jarð-
fræðings. Þriðji bróðir Ágústs var
séra Magnús, skólastjóri KÍ. Ágúst
var sonur Helga, b. í Birtingaholti,
bróður Andrésar í Syðra-Langholti,
foður Magnúsar, prófasts og alþm. á
GOsbakka, foður Péturs, ráðherra
og Ragnheiðar, ömmu Jakobs Fri-
manns Magnússonar, hljómlistar-
manns og málsvara Umhverfisvina.
Þá var Andrés hreppstjóri afi Þórð-
ar hæstaréttardómara, föður Magn-
úsar, framkvæmdastjóra NATO á
íslandi, föður Kjartans borgarfull-
trúa. Loks var Andrés hreppstjóri
langafi Guðmundar í. Guðmunds-
sonar, ráðherra og sendiherra.
Helgi var sonur Magnúsar, alþm í
Syðra-Langholti Andréssonar. Móð-
ir Magnúsar var Margrét Ólafsdótt-
ir, b. í Efra-Seli Magnússonar, og
Malínar Guðmundsdóttur, b. á
Kópsvatni, ættföður Kópsvatnsætt-
arinnar Þorsteinssonar. Móðir
Helga var Katrín Eiriksdóttir, ætt-
föður Reykjaættar Vigfússonar,
langafa Sigurgeirs Sigurðssonar
biskups, föður Péturs biskups.
Móðir Sigríðar var Móeiður
Skúladóttir Thorarensen, læknis og
alþm. á Móeiðarhvoli, bróður
Bjama amtmanns og skálds. Skúli
var sonur Vigfúsar, sýslumanns á
Hlíðarenda í Fljótshlið Þórarinsson-
ar, ættföður Thorarensenættar
Jónssonar. Móðir Skúla var Stein-
unn Bjamadóttir, landlæknis Páls-
sonar og Rannveigar Skúladóttur,
landfógeta Magnússonar. Móðir Mó-
eiðar var Sigríður Helgadóttir, kon-
rektors í Skálholti Sigurðssonar og
Ragnheiðar Jónsdóttur, systur Val-
gerðar, konu biskupanna Hannesar
Finnssonar og Steingríms Jónsson-
ar, ömmu Steingríms Thorsteins-
sonar, skálds og rektors, og
langömmu Níelsar Finsen, nóbels-
verðlaunahafa í læknisfræði.
Ólafur og Ebba verða að heiman á
afmælisdaginn.
Herra Ólafur
Skúlason.
Kristín Bjömsdóttir Liiders
Kristín Björnsdóttir Lúders, áður
húsfreyja að Kársnesbraut 103,
Kópavogi, nú búsett að Fælledvej 24
c. 1. dv. 4000, Raskilde, Danmark, er
níræð í dag.
Starfsferill
Kristín fæddist að Saurbæ í Kol-
beinsdal og ólst þar upp. Hún stund-
aði nám við Húsmæðraskólann á
Blönduósi 1929, dvaldi síðan þrjú ár
á heimili læknishjónanna Braga
Ólafssonar og Sigríðar Jónsdóttur á
Hofsósi þar sem hún vann jöfnum
höndum á heimili þeirra og aðstoð-
aði lækninn við læknisverk á lækn-
isstofunni. Þá sigldi hún til Dan-
merkur 1935, lærði þar fatasaum og
vann að saumum fyrir verslunar-
húsið Rosenberg í tvö ár.
Er Kristín gifti sig var hún
heimavinnandi framan af en hóf
síðan störf við niðursuðuverksmiðj-
una ORA við stofnun hennar og
starfaði þar um árabil þar til hún
lét af störfum, heiðruð með gjöfum
og viðurkenningarskjali af forstjóra
fyrirtækisins.
Kristín og maður hennar voru
landnemar í Kópavogi þar sem þau
byggðu sér litið hús að Kársnes-
braut 37 árið 1944 og reistu síðan
stærra hús á sama stað er varð
númer 103.
Þeim hjónum voru andleg mál
hugleikin og leituðu margir tfl
þeirra um fyrirbænir. Eftir lát eig-
inmanns Kristínar bjó hún ein en
flutti síðan til dætra sinna til Dan-
merkur 1975 þar sem hún býr nú
ein í íbúð eldri borgara og hugsar
um sig sjálf með hjálp dætra sinna.
Fjölskylda
Eiginmaður Kristínar var Georg
Lúders, f. 21.3. 1909, d. 16.6. 1965,
húsgagnasmiður hjá Kristjáni Sig-
geirssyni og trésmiðjunni Byggir.
Hann var af dönsku og austurrísk-
um ættum.
Dætur Kristínar og Georgs eru
Jóhanna Ragnheiður, f. 21.8. 1944,
skrifstofumaður í Fredriksberg, gift
Henning Smith skrifstofumanni og
eiga þau þrjú böm og fjögur bama-
böm; Rut, f. 16.4.1947, danskennari,
starfsmaður við leikskóla og rekur
brúðarkjólcdeigu í Roskilde, gift
Sören Tomsen en var áður gift Jan
Schmidt og em böm þeirra tvö.
Systkini Kristínar: Jó-
hannes, lést af slysförum
á fjórða ári; Haflína, f.
24.11.1905, ekkja eftir Sig-
urmon Hartmannsson,
bónda og hrossaræktanda
að Kolkuósi í Skagafirði.
Foreldrar Kristínar
voru Björn Hafliðason, f.
13.9. 1869, d. 24.8. 1937,
bóndi í Saurbæ 1 Kol-
beinsdal, og k.h., Ragn-
heiður Sigríður Þorláks-
dóttir, f. 5.6. 1874, d. 15.2.
1957, húsfreyja.
Ætt
Bjöm var sonur Hafliða, b. í
Sviðningi í Kolbeinsdal Jónssonar,
b. í Hofdölum Hafliðasonar, bróður
Margrétar, ömmu Jóns Jóhannsson-
ar, fræðimanns á Siglufirði.
Móðir Bjöms var Marín, systir
Kristinar í Neðra-Ási, föður Sigur-
bjöms prests, föður Gísla, forstjóra
Elliheimilisins Grundar, Lárusar
borgarminjavarðar og Friðriks stór-
kaupmanns. Marín var dóttir
Bjöms, b. í Brekkukoti, Ingimund-
arsonar, b. á Miklahóli. Móðir
Björns var Sesselja Gísla-
dóttir, prests á Staðar-
bakka, Hannessonar.
Móðir Marínar var Elín
Sigfúsdóttir, b. i Víkur-
koti, Þorsteinssonar frá
Hryggjum.
Ragnheiður Sigríður var
dóttir Þorláks, b. á Vatns-
leysu, bróður Ásmundar,
afa Ingibjargar Einars-
dóttur, ljósmóður á Akur-
eyri, á tíræðisaldri, heið-
urfélaga Ljósmæðrafé-
lagsins. Þorlákur var son-
ur Einars, b. í Bjamastaðagerði,
Einarssonar, og Kristínar, systur
Áma á Grundarlandi, langafa Hjart-
ar Leós Jónssonar, hreppstjóra á
Eyrarbakka, og Baldurs Magnús-
sonar módelsmiðs. Kristín var dótt-
ir Ásmundar, b. á Bjamastöðum,
Jónssonar og Kristínar Þorkelsdótt-
ur.
Móðir Ragnheiðar Sigríðar var
Rut Guðmundsdóttir frá Teigakoti
Kristjánssonar og Guðbjargar
Markúsdóttur. Móðir Guðbjargar
var Rut Konráðsdóttir, systir Jóns
pr. á Mælifelli.
Kristín Björnsdóttir
Luders.
Pétur Snæbjörnsson
Pétur Snæbjömsson hótelstjóri,
Austurhlíð, Mývatnssveit, er fertug-
ur í dag.
Starfsferill
Pétur fæddist á Húsavík og ólst
upp i Mývatnssveit.
Pétur stundaði nám viö Hótel- og
veitingaskóla íslands og lauk þaðan
prófúm sem matreiðslumaður 1980,
öðlaðist Diplom í eldhússtjórnun frá
Norsk Hotell Högskole 1984 og i hót-
elstjórnun frá sama skóla 1986. Þá
lauk hann prófum til kennslurétt-
inda við KHl 1995.
Pétur var hótelstjóri á Hótel
Húsavík 1986-89, yfirmatreiðslu-
maður hjá Veislueldhúsinu í Glæsi-
bæ 1989-92, kennari í matreiðslu í
Hótel- og veitingaskóla íslands
1990-95 og er hótelstjóri í Hótel
Reynihlíð frá 1993.
Pétur situr i stjórn flugfélagsins
Mýflugs og Atvinnuþróunarfélags
Þingeyinga. Hann er varaformaður
kjördæmisráðs Framsóknarflokks-
ins i Norðurlandi eystra, á sæti í
eftirfarandi nefndum innan Sam-
taka ferðaþjónustunnar: Gististaða-
nefnd, Samskiptanefnd milli gisti-
staða og ferðaskrifstofa og Flokkun-
amefnd gististaða.
Fjölskylda
Pétur kvæntist 24.8.1985 Maríu F.
Rúriksdóttur, f. 21.3.1958, viðskipta-
fræðingi og skrifstofustjóra Skútu-
staðahrepps. Hún er dóttir Rúriks
Sumarliðasonar, húsvarðar í Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti, og
Guðlaugar Björnsdóttir, læknarit-
ara á Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
Börn Péturs og Maríu eru Þuríð-
ur, f. 5.9. 1984; Ástríður, f. 8.9. 1989.
Systkini Péturs eru Þuríður, f.
10.8. 1951 í Mývatnssveit; Þórunn, f.
19.2.1953 í Mývatnssveit; Halldór, f.
19.3. 1966 í Noregi; Bryndís, f. 25.1.
1968, í Reykjavík.
Foreldrar Péturs: Snæbjöm Pét-
ursson, f. 31.8. 1928, fyrrv. starfsm.
Kísiliðjunnar, og Guðný Halldórs-
dóttir, f. 2.3. 1930, húsmóðir.
Afmælisbarnið stendur fyrir gleð-
skap í Gamlabænum að kvöldi af-
mælisdagsins.
Til hamingju
með afmælið
29. desember
90 ára
Baldur Kristjónsson,
Kópavogsbraut 69, Kópavogi.
85 ára
Björgvin Jón Pálsson,
Suðurgötu 17, Sandgerði.
Guðlaug Margrét
Bjömsdóttir,
Heiðmörk 13, Hveragerði.
Margrét Kristin Pétursdóttir,
Hraunbúðum, Vestmannaeyjum.
80 ára
Einar Júliusson,
Holtsgötu 24, Sandgerði.
Guðrún Karlsdóttir,
Hnappavöllum n,
Fagurhólsmýri.
ögmundur Ingvar
Þorsteinsson,
Fannarfelli 10, Reykjavík.
75 ára
Jóhanna G. Gunnlaugsdóttir,
Kópavogsbraut lb, Kópavogi.
Margrét Inger Olsen,
Faxabraut 27d, Keflavik.
70 ára
Andrés Einarsson,
Hruna 2, Kirkjubæjarklaustri.
Kristjana Anna Jónasdóttir,
Eskihlíð 14, Reykjavík.
Þorgerður Halldórsdóttir,
Stigahlíð 4, Reykjavík.
60 ára
Bjami Kristinsson,
Langagerði 7, Reykjavík.
50 ára__________________
Árni Andersen,
Fífuseli 33, Reykjavík.
Bergljót Pétursdóttir,
Háagerði 69, Reykjavík.
Elín Jóhanna Eliasdóttir,
Grjótaseli 1, Reykjavík.
Elisabet Þórdis
Guðmundsdóttir,
Fífuseli 37, Reykjavík.
Svanborg Kjartansdóttir,
Sóltúni 30, Reykjavík.
Þorgeir Jón Pétursson,
Sæviðarsundi 9, Reykjavik.
40 ára
Anna Gunnlaug Egilsdóttir,
Holtagerði 13, Kópavogi.
Guðbjörg Steina
Björgvinsdóttir,
Funafold 32, Reykjavík.
Hulda Arndís Jóhannesdóttir,
Gnoðarvogi 78, Reykjavík,
Kjartan Skaftason,
Tryggvagötu 18, Reykjavík.
Óli Tryggvason,
Svarfaðarbraut 4, Dalvík.
Sigrún Óskarsdóttir,
Blikastíg 5, Bessastaðahreppi.
Víglundur Jón Gunnarsson,
Miðstræti 12, Neskaupsstað.
Þorsteinn V. Sigurðsson,
Skaftahlið 10, Reykjavík.
/
IJrval
- 960 síður á ári -
fróðleikur og skemmtun
sem liíir mánuðum og
árumsaman