Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1999, Side 1
FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1999
15
Það helsta
1900-2000
í máli
og myndum
Grikkland:
Helgi
skoraði
tvö mörk
Helgi Sigurðsson var í essinu
sinu þegar hann skoraði tvö
mörk fyrir Panathinaikos í
grisku deilda-
keppninni í
knattspyrnu í
gærkvöld. Pan-
athinaikos vann
stórsigur, 7-1, á
Panahaiki á
ólympíuleik-
vanginum í Aþenu. Helgi skor-
aði fyrsta og síðasta mark liðs
síns í leiknum og er spennan
gríðarlega hörð í toppbarátt-
unni. Olympiakos, sem sigraði
Ionikos, 1-2, á útivelli er í efsta
sætinu með 36 stig en Panathi-
anikos kemur í humátt á eftir
með 35 stig.
Þessi tvö lið skera sig nokkuð
úr því OFI Iraklion er í þriðja
sætinu með 29 stig. Arnar Grét-
arsson og félagar í AEK töpuðu
óvænt á heimavelli, 0-1, fyrir
Panionios. AEK er í fjórða sæt-
inu með 21 stig. -JKS
Þýski handboltinn í gærkvöld:
Dormagen fékk
skell í Wuppertal
- lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar töpuðu með tólf mörkum
Wuppertal hafði betur í íslend-
ingaslagnum gegn Bayer Dormagen
í þýsku deildinni í handknattleik i
gærkvöld. Wuppertal, sem hefur átt
erfltt uppdráttar til þessa í vetur,
lék sinn besta leik á timabilinu og
lék Dormagen grátt í leiknum. Lykt-
ir leiksins urðu 30-18 eftir að staðan
í hálfleik var 12-9 fyrir Wuppertal.
Beelmann, Rasch og Filippow
gerðu allir sex mörk hver fyrir
Wuppertal. Heiðmar Felixsson átti
ágætan leik og skoraði þrjú mörk og
Dagur Sigurðsson skoraði tvö mörk.
Héðinn Gilsson skoraði þrjú mörk
fyrir Dormagen. Daða Hafþórssyni
var sýnt rauða spjaldið sjö mínútur
fyrir leikslok. Með sigrinum komst
Wupptertal i 15. sætið en lærisvein-
ar Guðmundar Guðmundssonar í
Dormagen eru í 16. sæti.
Sigurður Bjamason og félagar í
Wetzlar sigruðu Minden, 27-25, og
skoraði Sigurður eitt mark í leikn-
um.
Lemgo tapaði á heimavelli
Ein óvæntustu úrslit í deildinni
til þessa í vetur urðu í leik Lemgo
og Frankfurt. Eftir æsispennandi
leik sigruðu gestirnir í Frankfurt,
26- 27. Lemgo gat með sigri skotist
upp í annað sætið en situr fyrir vik-
ið áfram í fjórða sætinu.
Bilanovic skoraði sjö mörk fyrir
Frankfurt sem er í 11. sæti. Vinstri
handarskyttan Zerbe er allur að
koma tO og gerði fimm mörk fyrir
Lemgo.
Róbert Duranona skoraði tvö
mörk fyrir Eisenach sem tapaði,
27- 22, fyrir Grosswaldstadt.
Flensburg fer í fríið langa í topp-
sætinu sem nú fer í hönd vegna
Evrópukeppninnar i Króatíu. Flens-
burg sigraði Bad Schwartau, 29-23,
eftir að staðan í hálfleik var 12-11
fyrir Flensburg. Daninn Christian-
sen skoraði 11 mörk fyrir Flens-
burg, þar af níu úr vitaköstum.
Flensburg meö fimm stiga
forystu
Kiel, sem er í öðm sætinu, sigr-
aði Nettelstedt á útivelli, 25-28. Jak-
obsen skoraði átta mörk fyrir Kiel
og þeir Staffan Olson og Magnus
Wislander gerðu frnim mörk hvor.
Flensburg hefur 32 stig í efsta
sætinu en síðan koma Kiel og
Lemgo með 27 stig og Kiel á leik til
góða. í dag leika Gummersbach og
Essen og síðan verður gert hlé á
deildinni til 5. febrúar.
-JKS
Lið aldarinnar:
Frábær
skemmtun
DV, Hveragerði:
Lið aldarinnar í körfuknatt-
leik spilaði gegn nýliöunum í úr-
valsdeildinni, Hamri í Hvera-
gerði, i gærkvöld í leik til
styrktar LAUFinu sem er Land-
samband áhugamanna um floga-
veiki. Góð aðsókn var að leikn-
um sem lyktaði með sigri Ham-
ars, 83-74, en hátt í 200 manns
komu í „skjálftagryfjuna".
Spilað var í fjórum leikhlutum
og sýndu bæði lið hreint ótrúlega
takta og þar fóru fremstir í
flokki Hjörtur Hansson og Jón
Kr. Gíslason í liði aldarinnar.
Mjög jafnt var oft á tíðum en
staðan var 24-15 fyrir Hamar eft-
ir fyrsta leikhluta.
í öðrum leikhluta jafnaði lið
aldarinnar í fyrsta skipti í leikn-
um er tvær mínútur voru eftir og
voru það Jón Kr. Gíslason og
Einar Bollason sem sáu um að
skemmta áhorfendum með góð-
um sveifluskotum.
í þriðja leikhluta fór fremstur
í flokki Ómar Sigmarsson, leik-
maður hjá Hamri, sem skoraði
alls 6 þriggja stiga körfur á stutt-
um tima. Þegar nokkrar mínútur
voru eftir af þriðja leikhluta
meiddist Símon Ólafsson hjá liði
aldarinnar á hné og varð að fara
af leikvelli. Gestimir voru yfir
allan þriðja leikhlutann og var 6
stiga forskot liðs aldarinnar stað-
reynd. Gunnar Þorvarðarson fór
á kostum hjá gestunum og skor-
aði alls 15 stig.
í fjórða leikhluta tók Hamar til
sinna ráða og setti Skarphéðin
Ingason inn á en Skarphéðinn
hefur verið að spila geysilega vel
í vetur. Hann var með 16 stig og
sýndi feikigóða takta á tímabili
og voru nokkrar frábærar troðsl-
ur góð skemmtun fyrir bæði leik-
menn og áhorfendur. Hamar
náði yfirhöndinni í byrjun fjórða
leikhlutar og hélt henni til loka
leiks og var 83-74 sigur Hamars
staðreynd. Fyrir Hamar var
Ómar Sigmarsson með 18 stig og
Skarphéðinn Ingason 15. Hjá
gestunum skoraði Gunnar Þor-
varðarsson 15 stig og Hjörtur
Hansson gerði 10 stig.
-KB
Scifo ekki
til Standard
Samkvæmt frétt frá belgiska
sjónvarpinu hefur Standard hætt
við að kaupa Enzo Scifo. And-
erlecht og Standard voru búin að
ná samkomulagi og leikmaður-
inn átti lokaorðið. Það sem setti
strik í reikninginn voru kaup-
kröfur Enzo Scifo. Forráðamenn
Standard vildu engan veginn
ganga að þeim kröfum sem Enzo
Scifo setti fram og hafa sagt að
þeir séu hættir við kaupin.
-JKS/KB/Belgíu