Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2000, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2000, Qupperneq 7
MiÐVIKUÐAGUR 2. FEBRÚAR 2000 23 ■*! Gunnar Egilson, klarínettuleikarí og tónlistarkennari: „Það hefði ekki verið hœgt að gera sömu kröfur á fyrstu áratugunum, enda bar hljómsveitin þess merki. “ ræða, Symfóníuhljómsveit Reykjavíkur breyttist í Sin- fóníuhljómsveit Islands, því þama vom að mestu leyti sömu hljóðfæraleikarar. Hljómsveitin hélt sína fyrstu tónleika í Austurbæjarbíói þann 9. mars 1950. Þetta þótti mikill viðburður og blöðin töluðu um stórvið- burð.“ En það vom ekki allir á sama máli um mikilvægi þess að hafa sinfóníuhljómsveit. „Akveðinn kjami hafði áhuga á hljómsveitinni, öðmm fannst algjör óþarfi að drattast með þetta. Deilur um hljómsveitina í formi blaðaskrifa stóðu fram eftir öllum sjötta áratugn- um og vom þeir meira áberandi sem vom á móti. Eg skrifaði sjálfur greinar til að taka upp hanskann fyrir hljómsveitina, enda farinn að skipta mér af störfum hennar." Beint á bailið Hljóðfæraleikur með Sinfóníuhljómsveit Islands var langt frá því að vera full vinna á þessum fyrstu árum og áratugum og ekki var laust við að það kæmi niður á gæðum spilamennskunnar. „Það var ekki hægt að lifa af hljómsveitarstarfinu, því það var ekki nema hálft starf. Við urðum því að vinna fyrir okkur með öðru móti og hjá mér varð dansmúsíkin fyrir valinu." Gunnar segir að það hafi verið dálítið óþægilegt að fara upprifinn beint af sinfóníutónleikum til að spila á balli. „Þetta er sem betur fer liðin tið, enda kröfúrnar orðnar mun meiri. Það hefði ekki verið hægt að gera sömu kröfur á fýrstu áratugunum, enda bar hljómsveit- Trabont 1970 og á timabili leit út fyrir að allt væri búið. Þá setti Gylfi Þ. Gislason, þáverandi menntamálaráðherra, nefnd í málið og starfaði hún í 15 mánuði. Niðurstaða hennar var sú að samstarfi hljómsveitarinnar og Þjóðleikhússins var hætt en Þjóðleikhúsið hafði verið einn af rekstraraðilunum. Samningnum við leikhúsið fylgdi vinnuskylda sem hreinlega stóð hljómsveitinni fyrir þrifúm. Hún þurfti alltaf að vera til taks fyrir leikhúsið sem þýddi að aldrei var hægt að gera vinnuplön fram í tímann en á því byggist starfið. Eftir að kvöðinni var létt gat hljómsveitin loksins farið að starfa skipulega," segir hann. „Þetta var vendipunkturinn þótt áfram væri óvíst um fram- haldið og mér fannst alltaf sem hljómsveitin væri með fallöxina hangandi yfir sér. Lög um hljómsveitina voru ekki sett fyrr en 1983. Þá fyrst fannst mér hlutimir fara að gerast og hljómsveit- in byrja að blómstra fyrir alvöru. Stöðugildin vom komin upp í 70 enda hafði tóniistarfóiki fjölgað mikið á þessum árum. Á sama tíma jukust kröfúr um hæfúi en þær vom nánast engar þeg- ar ég byijaði.“ Aðeins eitt vantar Það er ekki að ástæðulausu sem Gunnari finnst hann hafa verið þátttakandi í ótrúlegu uppbyggingarstarfi. „Til- vist hljómsveitarinnar hefúr frá upphafi verið forsenda fyr- ir allri tónlistarfræðslu og um leið hefúr tónlistarfræðslan hafl góð áhrif á þróun hljómsveitarinnar. Áður fyrr þegar einhver forfallaðist var enginn til að hlaupa í skarðið en núna sækir fjöldinn allur af tónlistarfólki um hverja stöðu sem losnar. Viðhorf fólks til hljómsveitarinnar hefúr líka breyst og í dag hvarflar ekki að nokkrum manni að leggja inn sem í Kádilják Sinfóníuhljómsveit íslands verður 50 ára á þessu ári og heldur formlega upp á afmælið með hátiðartónleikum i Háskóla- bíói þar sem hún mun frumflytja á íslandi Sinfóníu nr. 3 effir Mahler. Fyrir fimmtiu ámm hefði líklega fáum dottið i hug að Sinfóníuhljómsveit jslands ætti nokkumtíma eftir að verða það sem hún er í dag; samanburðarhæf við bestu sinfóníuhljómsveit- ir heims. Gunnar Egilson klarinettuleikari man ekki aðeins vel eftir stofúun Sinfóniuhljómsveitar íslands. Hann þekkir sögu hennar og feril því hann hefúr fylgst með þróuninni, sem hljóðfæraleik- ari, baráttumaður í stéttarfélagi tónlistarmanna, stjómarmaður og siðast skrifstofúmaður og einn af skipuleggjendum efnis- skrárinnar. „Það gekk á ýmsu við stofnun Sinfóníuhljómsveitarinnar veit ég þótt ég hafi ekki tekið þátt í þeirri baráttu sjálfúr. Ég var bara strákur á þessum tíma, nýkominn heim úr námi,“ segir Gunnar. „Áður en ég fór út lék ég með hljómsveit sem þá hét Symfóníu- hljómsvcit Reykjavíkur. Þá vora bara liðin tvö ár fiá því ég byijaði að spila á hljóðfæri. Á þessum tíma liggur mér við að segja að hafi verið nóg að geta haldið á hljóðfæri til að vera lið- tækur." Umdeildur stórviðburður „Þegar samþykkt var að stofna Sinfóniuhljómsveit íslands til reynslu í febrúar 1950 var nánast bara um nafnbreytingu að in þess merki. Hún var ekki aðeins lítil, æfingar vom stopular og þar af leiðandi vora menn ekki alltaf í góðu formi til að spila. Ef ég ætti að bera hljómsveitina saman við bílategundir myndi ég segja að hún hafi verið eins og Trabant í upphafi en í dag má líkja henni við Kádilják." Fallöxinni lyft Þegar Gunnar horfir til baka finnst honum að uppsveiflan á þessum fimmtíu árum hafi verið nokkuð stöðug. Hljómsveitin hafi orðið betri með hveijum áratugnum. „Margir samverkandi þættir hafa haft áhrif á uppgang hljóm- sveitarinnar. Sem formaður stéttarfélags tónlistarmanna og fúll- trúi þeirra á samningafundum fann ég lengi fyrir óttanum við að hljómsveitin yrði lögð niður. Það kom alvarlega til greina árið hana niður. Maður verður frekar var við að íslendingar séu stoltir af hljómsveitinni sinni þótt sú viðurkenning hafi fyrst þurft að koma að utan,“ segir Gunnar Egilson, sem fyrir fimmtán árum vék sæti til að taka starf skrifstofústjóra hljómsveitarinnar „og til að hleypa hinum ungu og snjöllu klarinettuleikurum að. Það eina sem hljómsveitina vantar er almennilegur tónlistarsalur. Það er gjörólíkt að spila og hlusta á hljómsveitina þegar hún leikur í alvöru tónlistar- sal.“ Kannski var það vegna þess hve Háskólabíó er óheppi- legur salur fyrir tónlistarflutning að enginn hér heima átt- aði sig á því hve Sinfóníuhljómsveitin er orðin góð fyrr en útlendingar sem heyrðu hana leika erlendis fóru að hrósa henni á níunda áratugnum." -MEÓ infóníuhljómsveit Islands verður 50 ára á þessu ári Hún var ekki burðug þegar hún fór af stað en hefur síðan vaxið og dafnað svo eftir henni er tekið í útlöndum. Gunnar Egil- son hefurfylgst með starfi Sinfóníunnar frá upphafu JÚlll Sögulegir dýrgripir 1. júní verður opnuð sýning í Stofnun Árna Magnússonar í Ámagarði á handritum sem geyma frásagnir um kristnitökuna á íslandi og ferðir fólks frá íslandi og Grænlandi til Vestur- heims í kringum síðustu þúsaldamót. Þetta eru handrit að íslendinga- bók Ara fróða, Kristni sögu, Grænlendinga sögu og Eiríks sögu rauða, svo nokkur rit séu nefnd. Sýningin stendur til ágústloka. Sumarhátíð ÍBR Sumarhátíð íþróttabandalags Reykjavík- ur stendur frá 17. til 24. júní. Á þjóðhátíðar- deginum sjálfúm ber hæst að ylströnd - ný og endurbætt baðstrandaraðstaða í Nauthóls- vík - verður vígð með því að Ingibjörg Sól- rún Gisladóttir borgarstjóri stingur sér þar til sunds. Alla vikuna gefst borgarbúum síð- an tækifæri til að leggja stund á hinar fjöl- breyttustu sumaríþróttir, hjólabretti jafnt sem Jónsmessuhlaup, golf, boltaíþróttir og fleira og fleira. Leiklistarhátíð 21.-25. júní heldur Bandalag íslenskra leikfé- laga upp á 50 ára aftnæli sitt með veglegri ieik- listarhátíðáAkureyri: Leikum núna! Leiksýn- ingar hátíðarinnar verða 11 talsins, þar af þrjár erlendar. Meðan á hátíðinni stendur verða leiksmiðjur og leiklistamámskeið í fúllum gangi. Opnunaratriði Leikum núna verður viðamikil götuleiksýning sem allir hátíðargest- ir taka þátt í. Sýningin verður einnig opnunar- atriði Listagils 2000. Strandlengjan 2000 Allir muna eftir hinni skemmtilegu og geysi- vinsælu sýningu Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík á strandlengjunni við Skeijafjörð og Fossvog sumarið 1998. Það var bara fyrsti hlutinn í þriggja sýninga röð. Á menn- ingamótt í fyrra var annar hlutinn opnaður, Firma og smiðshöggið verður rekið á verkið núna á menningarárinu þegar þriðja og viða- mesta sýning Myndhöggvarafélagsins verð- ur opnuð meðfram Sæbrautinni þann 10. júní árið 2000. Áætlað er að um 25 lista- menn, erlendir sem innlendir, smíði list sína inn í Reykjavíkurlandslagið. Harmoníkuhátíð Á harmoníkuhátíðina að Reynisvatni 14.-16. júlí koma fram fremstu nikkuleikarar landsins og þar að auki fjöldi erlendra gesta. Hátíðin verður líka niðri í miðbæ að þessu sinni. ÍA. / Agúst Futurice Tískusýningin Futurice sem Eskimo Models standa fyrir 1.-13. ágúst er einstæður viðburð- ur hér á landi - enda er ætlunin að koma Islandi á tískukort heimsins. Heimsþekktir, norrænir og islenskir hönnuðir verða leiddir saman í þriggja daga tískuveislu. Um leið er Futurice fjöllistaviðburður þar sern tíska tvinnast saman við tónlist og sjónarspil fyrir augað. Tónlistin er reyndar einkar áhugaverður flötur á Fut- urice, þar koma við sögu Iistarmenn á borð við ' Björk, Gus Gus og Móu. Eldur og eimyrja 11.-18. ágúst verða hinni fomu iðn eldsmiðs- ins gerð skil á alþjóðlegri liátíð með þátttöku á þriðja hundrað eldsmiða hvaðanæva að úr heiminum. Dustað verður rykið af gömlum verkfæram sem safúað hefúr verið saman víða um landið og hápunktur hátíðarinnar er smíði risavaxins verks þar sem allir þátttakendur há- tíðarinnar leggjast á eitt við sköpunina. Á sama tíma verður haldin Hátíð cldsins þeg- ar eldglæringar og mikilfenglegt sjónarspil munu ráða rikjum í Reykjavík. Menningamótt- in - aðfaranótt 20. ágúst - verður hluti af Há- tíð eldsins. Raddir Evrópu og Björk 26. og 27. ágúst verða tónleikar Radda Evr- ópu og Bjarkar. Björk syngur eigin lög með kórnum en Atli Heimir Sveinsson hefúr útsett þau sérstaklega fyrir þetta tækifæri. Einnig verða flutt verk eftir An'o Part en stjórn- andi er Þorgerður Ingólfsdóttir. September Jasshátíö Jasshátíð Reykjavíkur verður haldin 2.-10. september og má búast við veglegri veislu en nokkra sinni fyrr. Boðið verður upp á fjöl- breytta dagskrá, stærri tónleika I tónleikasölum í bland við uppákomur á klúbbum og krám, auk þess sem glaðningar verða á hverju strái. Vindhátíðin 2000 Vindhátíðinni 3.-9. september er fyrst og fremst ætlað að vera óður til hinna jákvæðu eiginleika vindsins en jafúframt úttekt á því hvemig hann tengist íslensku þjóðlífi og menningu. Vindurinn verður virkjaður sem aflgjafi ýmiss konar listviðburða en einnig verður hann afhjúpaður sem eðlisfræðilegt fyr- irbrigði, viðfangsefni og innblástur skálda, orkugjafi, mikilvirkur meðhöfúndur íslenskrar náttúra og hluti af henni, gróðureyðingarafl, samtalsefúi o.s.frv. Leitin að Jónasi Borgarleikhúsið vígir 250 sæta sal í september með frumsýningu á nýjú verki eftir Hallgrím Hclgason. Leikritið er í bundnu máli og segir frá ákafri leit sem upp- hefst þegar orðrómur spyrst út um að Jónas Hallgrimsson hafi sést á einum af börum borgarinnar. ihníðtmr íuctntnti v''' inn*> * lÁVttí Inítfm jtVUVí tli Úr Flateyjarbók -IavJ Kiv Sýningin Þorlákstíðir og önnur Skálholtshandrit er opin kl. 14-16 þriðjudaga til föstudaga fram til 14. maí. hann l. júní verður opnuð sýningin Kristnitaka og Vínlandsferðirí elstu heimildum. Þar verða sýnd handrit sem geyma frásagnir af kristnitökunni á Islandi og ferðum norrænna manna til Vesturheims. Sýningin verður opin daglega kl. 13-17 1. júní til 31. ágúst en frá 1. september þriðjudaga til föstudaga kl. 14-16. i§>tofnun árna iílagnúöáonar á íélanbt Árnagarði við Suðurgötu 101 Reykjavík Sími: 525 4010 fax: 525 4035 Netfang: rosat@hi.iswww.hi.is/HI/Ranns/SAM Menningarveisla 10.-16. september verður alþjóðleg bók- menntahátíð haldin hér á landi í fimmta sinn. Um mánaðamótin september-október verður líka haldin kvikmyndahátíð og norræn rað- stefha um kvikmyndagagnrýni. Kvikmyndahá- * tíðin er að þessu sinni haldin undir yfirskrift- inni „íslcndingasögurnar og vcstrinn - með viðkomu hjá Hammett og Chandler". Október íslensk hönnun 14.október hefst sýning- in Form ísland á gam- alli og nýrri íslenskri hönnun aföllu tagi. Stúlkan í vitanum 15. október verður ópera fyrir böm frumsýnd í ís- lcnsku óperunni, byggð á ævintýri Jónasar Hallgrímssonar. Sögu- sviðið færir Böðvar Guðmundsson til sam- tímans en þungamiðja verksins er sem fyrr hin eilífa barátta góðs og ills. Tónlistin er eftir Þor- kel Sigurbjörnsson en leikstjóri er Hlín Agn- arsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.