Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2000, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 2000
11
DV
Fréttir
Gamli skólinn í Álftafirði fær nýtt hlutverk:
Sveitafólkið fer að
framleiða lakkrís
„Við erum að leggja loka-
hönd á undirbúning lakk-
rísverksmiðjunnar og það
veröur byrjað að vinna
seinnipartinn í' þessum
mánuði,“ sagði Ólafur
Ragnarsson, sveitarstjóri á
Djúpavogi, þegar DV hafði
samband við hann í gær.
Lakkrísverksmiðjan
verður í skólahúsinu á Ker-
hömrum (Múlaskóla) í
Álftafirði, en skólahúsið
hefur ekki verið notað síð-
ustu tvö ár. „Aðstaða er
mjög góð i húsinu og þarna
skapast 5 til 7 störf fyrir
fólk í sveitinni og ég er viss
þessi atvinnusköpun
kemur í veg fyrir að sumt
af þessu fólki þurfl að
flytja burt vegna sam-
dráttar í búskapnum,"
sagði Ólafur. „Við erum
búnir að kaupa búnað til
brjóstsykursgeröar sem
er á leiðinni til okkar og
verður hann tekinn í
notkun um leið og lakk-
rísvinnslan."
Framleiðslan fer á inn-
anlandsmarkað og til
Englands og Danmerkur.
Framkvæmdastjóri er Ás-
geir Ásgeirsson, bóndi á
Ólafur Ragnars-
son sveitarstjóri
- fólkið í sveit-
inni fer að búa
til lakkrís. DV-
mynd Hafdís
Bogadóttir
um að Blábjörgum í Áiftafirði. Ólafur seg-
ir að næg atvinna sé á Djúpavogi
og fólki hefur heldur fjölgað á
staðnum. Það sem ekki hefur skeð
á seinni árum er að undanfarið
hafa komið nokkrar fyrirspurnir
frá fólki á Reykjavíkursvæðinu um
húsnæði og atvinnu á Djúpavogi.
„Við erum að byrja á hafnarfram-
kvæmdum í Gleðivík þar sem
verður hafskipahöfn, þar er mikið
dýpi og verður góð aðstaða fyrir
stór skip. Ég er bjartsýnn á fram-
tíðina hér á Djúpavogi, við höfum
alla þá þjónustu sem til þarf til að
fólki líði vel hér og að auki mikla
og sérstaka náttúrufegurð," segir
Ólafur Ragnarsson sveitastjóri.
-JI
Félagsmiðstöö unga fólksins, Arnardalur, 20 ára:
Ellin vék fyrir æskunni
Notaðu vísifin;
DV, Akranesi:
Tuttugu ár eru liðin frá því að
Akraneskaupstaður hóf rekstur fé-
lagsmiðstöðvar ungs fólks í Arnar-
dal. í húsinu hafa eldri borgarar átt
sitt heimili og síðar vék ellin fyrir
æskunni ef svo má segja. Eins og
tíðkast á merkum tímamótum var
boðað til afmælissamsætis og
mættu til veislunnar bæjarstjóri,
bæjarritari, bæjarfulltrúar og
stjórnendur æskulýðs- og félags-
mála bæjarins og deildu stund með
unglingunum í tilefni dagsins.
Lilja Ingimarsdóttir, sem býr á
Dvalarheimilinu Höfða, var heið-
ursgestur samkomunnar, en hún
ólst upp í Arnardal sem barn og
fram á unglingsár. Lilja riíjaði upp
gamla tíma frá árum sínum í Arnar-
dal og las upp kvæði sem ort var til
hennar sem unglingsstúlku þegar
hún bjó í Amardal. Faðir hennar,
Ingimar Magnússon trésmiður,
byggði húsið og flutti með tjöl-
skyldu sína í Arnardal árið 1925.
Hluta af neðri hæðinni tók Ingimar
undir trésmíðaverkstæði. Ingimar
kallaði húsið Arnardal en hann ólst
upp í Arnardal, gegnt ísafjarðar-
kaupstað, og tók nafnið þaðan. Ingi-
mar seldi húsið árið 1936 Ólafi Pét-
urssyni trésmið. Árið 1938 keypti
Ytri-Akraneshreppur, nú Akranes-
kaupstaður, húsið Amardal, Fjólu-
grund 7 (i dag Kirkjubraut 48) und-
ir rekstur elliheimilis.
Þetta átti að vera bráðabirgða-
lausn en þarna var rekið elliheimili
f 40 ár, eða fram í febrúar 1978 þeg-
ar Dvalarheimilið Höfði tók til
starfa. Árið 1965 var byggt við Am-
ardal þar sem nú er anddyri og
skrifstofa. í upphafi voru 11 til
heimilis í Amardal og 17 þegar þeir
voru flestir.
Lilja Ingimarsdóttir og Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, í hófi sem haldið var
í tilefni af afmæli einnar elstu æskulýösmiðstöðvar landsins. DV-mynd Daníel.
Menn voru ekki á eitt sáttir hvað
gera átti við Arnardal þegar rekstur
elliheimilisins var fluttur að Höfða
en að lokum var tekin ákvörðun um
að reka í Arnardal æskulýðsstarf-
semi. Ætli menn hafi reiknað með
að sú starfsemi yrði þar í a.m.k. 20
ár? Félagsmiðstöðin Arnardalur er
þriðja eða fjórða elsta félagsmiðstöð-
in á landinu. -DVÓ
MH1086
Verð 33.300
Húsmuiiir
Reykjavfkurvegi 72
Hafnarfirði Sími 555 1503
Páll fær nýjan og kornungan aðstoðarmann:
Leggur nám á hilluna í bili
- fyrri aðstoðarmaður tekur til við að kynna Toyota
Aðstoðarmannaskipti
hafa orðið hjá Páli Péturs-
syni félagsmálaráðherra.
Nýi aðstoðarmaðurinn,
sem hóf störf í ráðuneytinu
á dögunum, er Birkir Jón
Jónsson, 20 ára stúdent frá
Siglufirði og nemi i stjóm-
málafræði við Háskóla Is-
lands.
Gunnar Bragi Sveinsson
frá Sauðárkróki, sem starf-
aði við hlið Páls fram að
Birkir Jón
Jónsson.
síðustu áramótum, hefur
horfið til annarra starfa. „Ég lauk mín-
um prófúm fyrir áramótin og svo
bauðst þetta starf skyndilega, þannig
að ég lagði námið til hliðar í bili, enda
sýnist mér að mörg spenn-
andi verkefhi bíði og þetta
starf verði mér betri skóh
en margt annað,“ sagði
Birkir í samtali við DV.
Gunnar Bragi réð sig til
starfa hjá íslensku auglýs-
ingastofunni og mun þar t.d.
vinna að kynningarstarfi
fyrir Toyota. Sem kunnugt
er var nokkur óvissa með
framhald ráðherratíðar Páls
Péturssonar allt þar til Finn-
ur Ingólfsson fór í Seðla-
bankann og var það ein helsta ástæðan
fyrir því að Gunnar Bragi söðlaði um.
-ÞÁ
Köttur úti í mýri...
...úti er ævintýri.
Atak til að fækka
flækingsköttum í
Miðbæ
í samræmi við samþykkt um
kattahald í Reykjavík
tilkynnist hér með að
dagana 14.-19. febrúar
nk. mun sérstakt átak gert
til að fanga flækingsketti í
Miðbæ (frá Snorrabraut að
Kringiumýrarbraut).
Kattaeigendur í hverfinu eru
hvattir til að halda köttum
sínum inni á meðan á
átakinu stendur.
Jafnframt eru kattaeigendur
minntir á að merkja ketti
sína með húðflúri (tattó-
veringu) á eyrum og skrá
upplýsingar um eiganda,
heimilisfang og símanúmer.
Jafngild er örmerking skv.
stöðlum Alþjóða staðlaráðsins
(ISO 11784 eða 11785).
Óll handsömuð dýr verða
flutt í Kattholt.
£
I #g|gg
Hreinsunardeild Reykjavíkurborgar
MH 2505
Verð 49.900