Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2000, Side 26
MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 2000
«8
Frábærar
fótboltamyndir
OFFICIAL SEASON REVflEW 1998 99
Manchester United
ií CHAMPIONS
?OF EUROPE
The Oílicial Story oF
The Greatest Night In British Sport
Skoöaðu okkur á netinu. Víð erum á visir.ís
Sviðsljós___________________
Pamela Anderson:
Ekki á leið
i>v
hjónaband
Fyrrverandi silíkongellan Pamela
Anderson kveðst ekki vera á leið í
hjónaband á ný með Tommy Lee í
nánustu framtíð. Frá þessu skýrði
hún í viðtali í Berlín á dögunum þar
sem hún var að kynna nýja sjón-
varpsmyndaflokkinn sinn, V.I.P.
Pamela segir að samband þeirra
Tommys sé þó gott. „Það er ágætt.
Það er upp og niður eins og gengur.
Það eru engin sambönd fullkomin.
En við erum saman og við búum í
sama húsi,“ sagði Strandvarðagell-
an fyrrverandi.
Pamelu, sem er búin að láta fjar-
lægja sílíkonið úr brjóstunum,
flnnst hún kynþokkafyllri eftir að
hún varð mamma. Fjölskyldulífið er
mikilvægt fyrir hana. „Bömin mín
era dásamleg. Ég myndi vilja vinna
minna og verja meiri tíma með
bömunum mínum.“
Synimir, Brandon og Dylan, fá
oft að fylgja mömmu sinni í vinn-
Madonna vill
eignast barn á ný
Söngkonan Madonna vill verða
mamma á ný. Poppstjörnuna
dreymir um að gefa Lourdes dóttur
sinni, sem er þriggja ára, systkini.
„Hún ætti að eignast bróður eða
systur. Hún er hræðilegt dekur-
bam. Hún þarf samkeppni," segir
Madonna í viðtali við tímaritið
Jane. Söngkonan vildi þó ekki láta
uppi hver kæmi til greina sem faðir
nýja bamsins. Madonna er núna
með leikstjóranum Guy Ritchie.
Dætur Fergie
sendar til Sviss
Dætur Söru Ferguson, sem kölluð
er Fergie, og Andrésar prins eiga að
ganga í einkaskóla í Sviss.
Prinsessumar, Beatrice, sem er 12
ára, og Eugenie, 9 ára, eiga að fara í
Aiglon skólann í Ölpunum þar sem
skólagjaldið er um 2,5 milljónir
króna á ári.
Elísabet Englandsdrottning var
fyrst andvíg hugmyndinni um að
litlu prinsessumar færu úr landi en
hún er nú sögð hafa samþykkt það.
Pamela þarf að mæta snemma í
vinnuna og fer á fætur kiukkan 5 á
morgnana. Símamynd Reuter
una. Þeir áttu til dæmis að fá að
fara með í auglýsingaferðina til Evr-
ópu en Dylan fékk eyrnabólgu og
gat þess vegna ekki flogið. „Ég er
búin að vera burtu frá þeim í eina
viku. Ég hef aldrei verið svona lengi
fjarverandi," sagði Pamela leið.
Hún leggur hart að sér við vinn-
una. Hún fer á fætur klukkan 5 á
morgnana og heldur þá í stúdíóið
þar sem sjónvarpsmyndaflokkurinn
er tekinn upp. Þar er Pamela við
störf allan daginn. Hana dreymir
um að eignast hús í suðurhluta
Frakklands. Þar vill Pamela geta
dvalið með Tommy og strákunum
þegar hún fær frí frá störfum.
Pamela er ekki sú eina í fjöl-
skyldu sinni sem hefur komið fá-
klædd fyrir almenningssjónir.
Amma hennar lét einu sinni mynda
sig í sundbol fyrir kóka kóla-auglýs-
ingu.
Ekki er víst að allar konur séu tilbúnar að setja upp ermar eins og þessar á
myndinni en undirfötin sjálf eru frekar hefðbundin. Þau voru sýnd á
alþjóðlegu undirfatasýningunni á tískuvikunni í París. Símamynd Reuter
Friðrik prins verður
læknir á Grænlandi
Friðrik krónprins í Danmörku
hefur verið útnefndur læknir leið-
angursins Sirius 2000 á Grænlandi.
Hann á að reyna að veita þátttak-
endum rétta meðferö þegar þörf
krefur. Sá sem hefur mesta reynslu
af skyndihjálp er útnefndur læknir
og í þetta sinn var það sjálfur krón-
prinsinn. Hann hefur sótt fleiri
námskeið í skyndihjálp en hinir
þátttakendumir í leiðangrinum.
Óttast er að kuldinn verði versti
óvinur leiðangursmanna. Fyrstu
mánuðina má búast við að frostið
fari i 40 til 50 stig. Leiðangursmenn
ætla að ganga 3500 kílómetra yfir
Grænlandsjökul og hefst ferðin 10.
febrúar næstkomandi.