Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2000, Blaðsíða 1
ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2000
Olífuolía
gegn
krabba-
meini
Bls. 22
Veisla
fyrir
hraða-
fíkla
Tölvureiði er
vandamál
Bls. 19
Bls. 23
PlayStation
Heilaskemmd orsakar ofbeldi
Ný rannsókn hefur
sýnt fram á að menn
sem eru með
ákveðna tegund af
heilaskemmd eru
líklegri til að verða ofsareiðir og
beita ofbeldi. Þetta kom í ljós þegar
heilar karlmanna sem sýnt hafa
merki um andfélagslega hegðun
(Antisocial Personality Disorder)
voru rannsakaðir. Þá kom í ljós að
mennina vantaði allar taugajffumur
í ákveðnum hluta heilans p magn
taugafrumna sem samsvarar u.þ.b.
tveimur teskeiðum. Frumurnar
vantaði í þann hluta heilans sem
vísindamenn hafa talið að sé mikil-
vægur við að þróa félagslegan
þroska og samvitund barna og ung-
linga. Þessar niðurstöður hafa leitt
til þess að menn efast um hvort rétt-
lætanlegt sé að fangelsa menn með
þessi einkenni eftir að þeir fremja
ofbeldisverk, þar sem þeir virðast
ekki hafa stjórn á sjálfum sér vegna
líkamlegs galla.
Netnotkun á vinnustöðum
sögðust sáttir við að starfsmenn
stunduðu „skynsamlega" mikið net-
flakk í vinnunni, 86% segjast þola
a.m.k. einhverjar persónulegar tölvu-
póstsendingar, en 31% sagðist fylgj-
ast með netnotkun starfsmanna eða
takmarka hana að einhverju leyti.
Netmiðillinn
Vault.com, sem er
leiðandi í rannsókn-
um á vinnustöðum,
gerði fyrir skömmu
skoðanakönnun meðal yflr 2.500
verkamanna og yflrmanna og komst
að athyglisverðum niður-
stöðum varðandi netnotkun
á vinnustöðum. Meðal ann-
ars sögðust 37% starfs-
manna vera „stanslaust" á
flakki um Netið, 90% fara á
heimasíður sem tengjast
ekki vinnunni a.m.k. einu
sinni á dag og 84% senda
persónulegan tölvupóst
a.m.k. einu sinni á dag. Yfir-
menn virðast vera tiltölu-
lega rólegir yfir netnotkun
starfsfólks, því 82% þeirra
Eins og lesendur DV-
Heims þekkja þá
telja margir að tölv-
ur sem fólk mun
klæðast eða hengja
utan á sig muni verða æ meira áber-
andi á næstu árum. Tæknin sem
mun gera fólki kleift að hlaupa um
með tölvuna hengda utan á sig og
örlítinn skjá fyrir augunum er sí-
fellt að verða meðfærilegri og betri
og því ætti lítiö að verða því til fyr-
irstöðu að áhugasamir geti nýtt sér
hana i náinni framtíð.
Á sýningu i Bangkok í síðustu
viku sýndi einmitt þessi stúlka hér
á stóru myndinni frumgerð af ör-
smárri handtölvu og Eye-trek-tölvu-
einglyrni frá Olympus, sem reyndar
hefur verið fjallað um áður hér í
DV-Heimi. Tölvan keyrir á
Windows-stýrikerfi og nýtir sér alla
eiginleika einglymisins sem birtir
notandanum skjámynd með 800x600
upplausn sem virkar á hann eins og
hann sé aö horfa á 10 tommu skjá úr
50 cm fjarlægð.
Sýningin sem um ræöir er sú
stærsta sinnar tegundar á þessu
landsvæði og sýndu um 800 fyrir-
tæki hvaðanæva úr heiminum
nýjasta nýtt úr tækniheiminum. Yf-
irvöld í Taílandi standa aö henni en
hún er liður í tilraun til að rétta við
efnahag svæðisins eftir þriggja ára
erfiða kreppu.
íijJyuj1
8 síðna sérblað um hesta og hestaíþróttir fylgir
DV ó morgum.
FjallaS verður t.d. um tamningu hrossa og nýja aðferSafræSi
sem þar er aS rySja sér til rúms.
UtreiSar aS vetrarlagi og ferSaþjónusta verSur einnig til umfjöllunar,
svo og horfur í útflutningi á hestum.