Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2000, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2000, Blaðsíða 22
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000 13 "V Guöjón og Þorgeir Andrésson saman á æfingu á Aidu. Guðjón er ungur skrifstofumaður hjá Námsgagnastofnun ríkisins að loknu námi í sögu og heimspeki. „Ég fór með vinnufélögum mín- um niður á Gauk á Stöng eitt kvöldið. Þar var glaumur og gleði eins og endranær og meðal gesta var Guðbjöm Guðbjörnsson tenór- söngvari. Hann tekur nokkrar strófur fyrir félaga sina og það verður til þess að félagar mínir, sem höfðu heyrt mig syngja hnippa í mig og hvetja mig til að láta í mér heyra. Ég gaf frá mér nokkra tóna, hann svaraði og fljót- lega upphófst þama nokkurs kon- ar söngeinvígi milli bassa og ten- órs og skapaðist mikil stemning þar sem gestir klöppuðu fyrir okk- ur á víxl. Á eftir tókum við tal saman og þá kom í ljós að hann hélt að ég hefði lært að syngja sem var ekki rétt. Hann hvatti mig óspart og sagðist ætla að hringja í menn sem hann þekkti. Ég tók þetta mátu- lega alvarlega en daginn eftir hringdi Ragnar Bjömsson, skóla- stjóri Nýja tónlistarskólans, í mig og bað mig að mæta daginn eftir í prufu hjá Sigurði Demetz. Það gerði ég og var sagt eftir prufima að mæta í fyrsta tímann daginn eftir. Það var mín gæfa að lenda í höndunum á manni eins og Sig- urði.“ Guðjón segir að áður en þetta gerðist hafi hann haft talsverðan áhuga á tónlist og hlustað á gæða- DV-mynd Teitur tónlist af ýmsu tagi en hafði eigin- lega aldrei leitt hugann að því að gerast söngvari og aldrei komist í tæri við söngkennara. Síðan vék vinnan smátt og smátt fyrir söngnáminu og eftir sýninguna á Tosca fékk Guðjón til- boð frá Óperunni í Ósló og var ráð- inn á staðnum. „Það var mjög dýrmæt reynsla og ég tel á að á þessum árum í Ósló hafði ég breyst úr efnilegum söngnemanda í atvinnumann á mínu sviði. Ég mæli með því við unga söngvara að þeir fastráði sig við óperuhús því þar gefst svo fjöl- þætt reynsla sem endist manni til æviloka." -PÁÁ „Það vill svo skemmtilega til að hlutverk konungsins, D Re, í Aidu er fyrsta hlutverkið sem ég söng þegar ég var að stíga mín fyrstu spor á sviði hjá Óperunni í Ósló. Það var gaman að rifja upp kynnin við hann,“ segir Guðjón Óskarsson bassi sem tekur þátt í uppfærslu Sinfóníuhljómsveitar íslands á Aidu í Laugardalshöll. Frumsýning var á fimmtudagskvöld en seinni sýning- in er í kvöld. „Það var mikil stemning á frum- sýningu eins og alltaf þegar er fullt hús. Það var mjög skemmtilegt aö syngja þarna og viðtökur góðar.“ Guðjón segir að sá mikli áhugi sem sýningin vekur og sú erfiða að- staða sem hljómsveit og söngvurum er búin í Laugardalshöll sé holl áminning um aö hér vanti tilfmnan- lega tónlistarhús sem standi undir nafni. „Gamla bió var ágætt en þessi sýning hefði aldrei komist þar inn. Þetta er áreiðanlega fjölmennasta óperuuppfærsla sem gerð hefur ver- ið á íslandi. Þetta er „grand opera“ eins og Verdi er þekktastur fyrir og nýtur mikilla vinsælda. Það er brýnt fyrir tónlistina á íslandi að hér rísi tónlistarhús. Þó reynt sé að gera það besta úr aðstæðum i Laug- ardalshöli þá er þetta auðvitað ekki boðlegt aðstaða.“ Fluttur heim Guðjón flutti aftur heim til ís- lands árið 1997 eftir um það bil sjö ára útlegð, fyrst við söngnám á ítal- íu og síðan sem fastráðinn söngvari við Óperuna í Ósló í sex ár, frá 1990-96. Hann er með umboðsmann á sínum snærum og hefur næg verkefni. „Fyrir utan einstaka konserta þá fer ég til Dresden í maí að syngja í Daphne eftir Richard Strauss og verð síðan þrjá mánuði í Salzburg í Austurríki í sumar að syngja í óper- um eftir Berlioz og Wagner.“ Guðjón hefur áður sungið með ýmsum þeim sem taka þátt í upp- færslunni á Aidu. Hann og Kristján Jóhannsson sungu saman í Tosca í íslensku óperunni fyrir mörgum árum og Garðar Cortes þandi radd- böndin í hlutverki Radamesar á móti Guðjóni í Aidu í Ósló fyrir nokkrum árum. Guðjón þekkir einnig karlakórixm Fóstbræður frá fomu fari. Söng með Fóstbræðrum „Það var árið 1987, þegar ég var alger græningi, nýbyijaður að læra söng, að ég söng einsöng með kóm- um á vortónleikum. Ég lærði söng við Nýja tónlistarskólann sem Ragnar Bjömsson, þáverandi stjóm- andi Fóstbræðra, rak. Það er gaman að hitta þá aftur, enda em þeir í góðu formi. Erlendu einsöngvaramir era sérlega hrifnir af kóranum og hljómsveitinni sem taka þátt í þessari uppfærslu og segja að þeir séu framúrskarandi góðir.“ Örlagaríkt kvöld á Gauknum Það er til skemmtileg saga af því hvemig það vildi til að Guðjón lagði fyrir sig söngnám. Hann segist oft hafa sagt hana áður en lætur til leiðast. Þessir atburöir gerast þegar Guöjón Óskarsson bassasöngvari syngur konunginn í Aidu. Hann var upp- götvaöur á Gauki á Stöng. DV-mynd E.OI. Uppgötvaður á Gauknum - Guðjón Úskarsson bassi er konungur í Aidu múla 8 • Sími 530 2800 www.ormsson.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.